Morgunblaðið - 14.06.1994, Side 4

Morgunblaðið - 14.06.1994, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Viggó Jónsson BJÖRGUNARMENN róa í átt til Einars Gylfa Jónssonar þar sem hann hangir á klettavegg og bjarga honum í land. Morgunblaðið/Viggó Jónsson BÁTURINN lenti í miklu sogi, reis upp og honum hvolfdi. Níu manns fóru fyrir borð, en þeir björguðust allir úr sjökulánni. Níu manns björguðust úr Vestari-Jökulsá í Skagafirði Maður verður lítið peð í þessum ógnarkrafti „ÉG VAR hræddur allan tímann og vissi ekki annað en að þetta gæti orðið mitt síðasta," segir Einar Gylfi Jónsson, sál- fræðingur, sem var einn þeirra sem köst- uðust úr gúmmíbát í Vestari-Jökulsá í Skagafirði á sunnu- dag. „Ég hef heyrt það alla ævi að jök- ulsár séu stórhættu- legar og ég held að ég hafi kynnst því núna. Maður verður afskaplega lítið peð í þessum ógnarkrafti." Átta sálfræðingar og einn farar- stjóri voru um borð í bátnum og björguðust allir þegar þeir féllu útbyrðis. Einar Gylfí segir að snarræði og rétt viðbrögð að- standenda ferðarinnar, fyrirtæk- isins Ævintýraferða á Sauðár- króki, hafi skipt sköpum um að ekki fór verr. Slysið átti sér stað á þeim slóð- um þar sem Vestari-Jökulsá sam- einast Austari-Jökulsá og myndar stórfljótið Héraðsvötn. Einar Gylfi segir að ferðinni hefði verið um það bil að ljúka þegar atvikið átti sér stað, en leiðin sem er farin er um 8 kílómetrar, frá Goðadala- brú og niður í Héraðsvötn að Vili- inganesi. Einn fararstjóri, Hreiðar Gests- son, var um borð í bátnum, auk þess sem annar bátur var með í för. Mennimir voru allir f regng- öllum, með hjálma og í björgunar- vestum. Áður en lagt var af stað fóru að- standendur bátsferð- arinnar yfir það sem farþegar ættu að gera ef eitthvað færi úrskeiðis. „Það bjargaði okkur,“ segir Einar Gylfi. „Ferðin var eigin- lega að verða búin þegar við komum að röst þar sem var mikill hamagangur,“ segir hann, Farar- stjórinn hafi þá hróp- að til bátsmanna að róa hraðar til þess að lenda ekki á kletti sem er með gati í gegn en það hafi ekki tekist. „Báturinn sogað- ist upp að klettinum," segir Einar Gylfi. „Hann reis upp og við féll- um útbyrðist. Þrír úr hópnum so- guðust í gegnum gatið og sluppu þeir best. Við vorum hins vegar nokkrir sem lentum út í straumn- um þar sem hann var þyngstur." Meðal þess sem mönnunum átta var kennt áður en þeir lögðu af stað var að stíga ekki í botninn því þá væri hætta á að festa fót- inn undir gijóti, að láta sig fljóta á bakinu með fætumar á undan og koma sér undan bátnum eins og skot ef honum hvolfdi. „Þetta gerðum við sem betur fer allir,“ segir Einar Gylfi. „Þegar bátnum hvolfdi stóðu þessir piltar sig [að- standendur ferðarinnar] allir eins og hetjur." Flotgallar nauðsyn Þrjá mannanna rak talsvert niður eftir ánni, en Einar Gylfi var lengst í henni eða um 15 mín- útur og rak hann um tvo kíló- metra niður ána. Hann segir að versti óvinurinn hafi verið kuld- inn, enda sé hann nú þeirrar skoð- unar að menn eigi ekki að fara í svona ferðir án þess að vera í flot- galla eða blautbúningi. „Ég var orðinn mjög þrekaður og þegar ég komst í land var ég orðinn mjög máttfarinn,“ segir hann. Á ferð sinni niður ána hefði hann rekist utan í klettaveggi við ána tvívegis án þess að ná taki á þeim. Einar Gylfi segir að fyrstu við- brögð sín eftir að hann féll útbyrð- is hafi ekki verið rétt en þá hafi einhver hrópað að honum að hafa fætumar á undan og það hafi hann gert. „Ég var alltaf að hugsa um hvað væri best að gera,“ seg- ir hann. Þegar hann fann að ork- an var að þverra hafi hann ákveð- ið að láta sig fljóta niður ána í stað þess að reyna að ná landi. Hann hafi síðan borist að hraunkletti sem skagaði fram í ána. Hjá klettinum hafi hann lent í hringiðu sem bar hann nær landi og þar komist upp á klettanös. „Eg var kominn í öryggi og vissi að ég myndi ekki detta niður," segir hann. „Þá komu þeir á bátn- um eins og frelsandi englar og tóku mig um borð. Ég gat ekki einu sinni klætt mig úr.“ Einari Gylfa varð ekki mjög meint af volkinu, hann kvefaðist og marðist á höndum og fótum. Einar Gylfi Jónsson Starfsmenn Olíufélagsins í Mosfellsbæ ætla að fara fram á bætur Hvarf töskunnar tilkynnt fjórum mánuðum síðar FRÍMANN Lúðvíksson, annar tveggja starfsmanna bensínstöðvar Olíufé- lagsins hf. í Mosfellsbæ sem telja sig hafa legið undir grun um þjófnað á einni milljón kr. í eigu fyrirtækisins í fjögur ár, segist ætla að sækja það stíft að fá miskabætur frá Búnaðarbanka íslands. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins var hvarf peninganna, andvirði dagsölu bensínstöðvarinnar sem Frímann og starfsfélagi hans Stefán Valdimarsson settu í peningatösku í nætur- hólf bankans í maímánuði 1990, ekki tilkynnt lögreglu fyrr en íjórum mánuðum síðar. Hann segir að mennirnir tveir hafi verið yfirheyrðir sem vitni eins og fjöldi annarra manna sem tengdust þessu máli. Morgunblaðið/Þorkell Saklausir STEFÁN Valdimarsson, t.v., og Frímann Lúðvíksson starfsmenn Olíufélagsins hf. í Mosfellsbæ, sem hafa talið sig hafa legið undir grun um þjófnað á einni milljón kr. í eigu Olíufélagsins. „Þeir eru ekki yfirheyrðir • sem grunaðir menn en þeir eru ekki heldur yfirheyrðir sem vitni í þessu máli. Þeir þurftu t.d. að gefa RLR leyfi til að fara ofan í sína bankareikninga og það er ekki venju- legt að vitni þurfi að gera það,“ sagði Örn Höskuldsson lögfræðingur Frí- manns og Stefáns. Taskan fannst í síðustu viku þegar rafvirki var að koma fyrir öryggisbúnaði í næturhólfinu. Frí- mann sagði í sam- tali við Morgunblað- ið að hann teldi sök RLR stærsta í þessu máli. Hann hafi greint frá því við yfirheyrslur að hann hefði sett peningatöskuna í hólfið en hún hefði á einhvern hátt komist út úr rennunni niður í peningahólfið. Hann kvaðst hafa bent á að svipað tilvik hefði komið upp í Verslunarbankanum þar sem peningataska sem talin var horfin hefði fundist í rennunni. Vísa málinu frá sér „Ég er búinn að liggja undir grun í fjögur ár. Ég er þakklátur fyrir að hafa haldið starfinu og ég ætla núna, ef það er nokkur lífsins leið, að ná pening út úr þessu. Það skal einhver fá að borga,“ sagði Frímann. Örn Höskuldsson lögmaður Frí- manns og Stefáns segir að ekki sé búið að móta kröfugerð í þessu máli. Hann kveðst ekki vera sam- mála bankastjórum Búnaðarbank- ans sem ekki viti neina skömm upp á sig í þessu máli. „Mér finnst að þeir eigi skilið að fá skaðabætur, hvaðan svo sem þær koma,“ sagði Örn. Asökunarbeiðni Sólon Sigurðsson bankastjóri Búnaðarbankans segir að afsökun- arbeiðni hafi verið send Olíufélag- inu hf. og bankinn boðist til að bæta tjónið sem félagið hefur orðið fyrir. Hins vegar hafi bankinn aldr- ei ásakað mennina tvo frekar en aðra sem málinu tengdust, eins og t.a.m. starfsfólk bankans í Mos- fellsbæ. Geir Magnússon forstjóri Olíufé- lagsins hf. segir að sér komi ekki á óvart þótt mennimir fari fram á bætur. „Þessir menn hafa verið féhirðar á stærstu bensínstöðvum Olíufélagsins svo málið snýr ekki að okkur heldur alfarið að bankan- um. Mennirnir hafa notið fyllsta trúnaðar hjá okkur,“ sagði Geir. ... Gunnar Þórðar, Ellý, | Ragnar, Björgvin, Sigga, Bubbi og... Fjölsýning á Þingvöllum ►FJÖLSÝNING hefst klukkan níu um morguninn á Þingvöllum, 17. júní, og stendur fram eftir degi. Hún verður haldin um allt hátíðarsvæðið og verður sam- bland gamans og alvöru. Til dæmis munu álfakóngur og álfa- drottning birtast meðal mann- fólksins ríðandi á gæðingum. Einnig verður dansað á brúar- gólfum Þingvalla eins og gert var í öllum sveitum árið 1944. Flugbjörgunarsveitin verður með sýningaratriði í Almanna- gjá, Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla jámar og smíðar skeifur, Fimleikasamband Is- lands verður með fimleikasýn- ingu, 12 ungar leikkonur fara með ættjarðarljóð, fjöldi lítilla flugvéla flýgur yfir svæðið og fombílar verða á sérstöku fom- bílaplani. Að hætti Kjarvals ►FJÖLDI málara með trönur og krumpaða hattkúfa verður úti um gmndir að mála myndir af hrauninu og álfunum að hætti Kjarvals. Einnig munu konur snúa heyi og Hjalti Gestsson bún- aðarráðunautur Suðurlands skipuleggur húsdýrasýningu. Auk þess verður skipulögð þjóð- leg fjölskyldureið í sauðalitun- um; hestamenn í gömlum búning- um, hreppstjóri, oddviti, prestur, maddama, bændur og hjú sem ríða munu gegnum svokölluð landbúnaðar- og sjávarútvegs- svæði, til dæmis binda í bagga og sækja skreið og ríða svo upp í Almannagjá. Einnig verður haldin sýning á tækjum og tólum Ríkisútvarpsins og Pósts og síma á árum áður, þar að auki verða kvikmyndasýningar með göml- um heimildamyndum í sérstöku kvikmyndatjaldi. Aðstaða fyrir böm ►Á SVÆÐINU verður leikað- staða fyrir börnin og einnig verð- ur ungbarnaaðstaða á salernum sem sérmerkt eru fyrir fatlaða. Auk þessa verður upplýsinga- tjald á staðnum þar sem hægt verður að hafa upp á týndum börnum, sem verða munu í góð- um höndum fóstra þar til að- standendur vitja þeirra. Auk þessa verður hægt að nálgast almennar upplýsingar í sama tjaldi. L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.