Morgunblaðið - 14.06.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ1994 47
FRETTIR
Ur dagbók lögreglunnar
Tólf líkamsmeiðingar
FRÁ útskrift þroskaþjálfa.
22 þroskaþjálfar
brautskráðir
( BÓKFÆRÐ eru 489 atvik á tíma-
| bilinu. Utan þess venjulega vekur
I mesta athygli 12 skráðar líkams-
meiðingar, 4 umferðarslys, 26 önn-
ur umferðaróhöpp og 164 kærur
eða áminningar vegna ýmissa
umferðarlagabrota.
Á föstudagsmorgun var tilkynnt
um bifreið sem velt hafði verið
utan Nesjavallavegar vestan
Hengils. Tveir menn voru í bifreið-
inni. í ljós kom að bifreiðinni hafði
verið ekið út af veginum um tvö
( leytið um nóttina og mennirnir
| dvalið í henni síðan þá. Þeir voru
fluttir með sjúkrabifreið á slysa-
deildina. Ökumaður og farþegi
virtust einungis hafa hlotið lítils-
háttar meiðsli og má segja að þeir
hafi sloppið tiltölulega vel frá
óhappinu.
Síðdegis á föstudag varð harður
árekstur tveggja bifreiða á Vestur-
I landsvegi við Skálatún. Flytja
I þurfti ökumann og farþega úr ann-
arri bifreiðinni á slysadeild. Báðar
I bifreiðarnar voru fjarlægðar af
vettvangi með dráttarbifreið.
Ekið á lögregluþjón
Á föstudagskvöld ók ökumaður
bifhjóls á lögreglumann á Gullin-
brú svo flytja varð hann á slysa-
deild. Lögreglumaðurinn var að
sinna þar umferðareftirliti þegar
: bifhjólinu var ekið utan í hann.
i Ökumaður bifhjólsins ók af vett-
I vangi eftir atvikið. Bifhjólið var
af eldri gerðinni með hvítum elds-
neytisgeymi.
Almenn ölvun var í miðborginni
aðfaranótt laugardags og töluvert
um tusk og pústra. Rúður voru
brotnar á tveimur stöðum. Nokkra
unglinga þurfti að færa í unglinga-
athvarfið. Þeir voru síðan sóttir
þangað af foreldrum sínum.
Á laugardagskvöld var tilkynnt
1 um bifreið utan vegar nálægt Með-
í alfellsvatni. Ökumaðurinn, ungl-
ingur sem ekki hafði öðlast öku-
réttindi, er grunaður um að hafa
verið undir áhrifum áfengis. Eig-
Vinningstölur 11. júní 1994. |
:(ÚÍ6X24)l*fí‘f* (^mX36T 126)
VINNINGAR fjöldi VINNINGSHAFA upphæðAhvern VINNINGSHAFA
1. 5al5 0 1.850.032
2. 4 alö^ m 160.784
3. 4af5 68 8.157
! 4. 3al 5 2.54Ö 509
; Heildarvinningsupphæðþessaviku: 4.019.136 kr.
M 'k 1
upplysingar:Símsvari91 -681511 lukkulIna991002
10. - 13. júní 1994
andi, sem einnig virtist ölvaður,
hafði fengið piltinn til þess að aka
fyrir sig með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Kappakstur endaði með slysi
Skömmu eftir miðnætti endaði
kappakstur tveggja ökumanna á
Hverfisgötu með því að annar
þeirra ók á gangandi vegfaranda.
Sá var fluttur á slysadeild. Talið
var að hann væri fótbrotinn.
Um nóttina var tilkynnt um að
ungur maður hefði fallið af svölum
húss á Seltjarnarnesi. Hann reynd-
ist vera of ölvaður til þess að geta
sýnt listir sínar á handriði svalanna
með fyrrgreindum afleiðingum.
Fallið var um 3 metrar. Pilturinn
virtist hafa meiðst á baki og í and-
liti.
Undir morgun kom stúlka inn á
Miðborgarstöð lögreglunnar og
kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás
í Tryggvagötu. Lögreglumenn óku
stúlkunni á slysadeild, en hún virt-
ist vera talsvert slösuð.
Rúmmlega fimm á sunnudags-
morgun fór brunakerfi veitinga-
hússins Berlín í gang. Er að var
gáð reyndist vera þar dynjandi
dansleikur í gangi. Leikurinn var
stöðvaður og öllum viðstöddum
vísað út.
Átök á Lækjartorgi
Aðfaranótt laugardags kom til
átaka tveggja pilta á Lækjartorgi,
15 og 16 ára að aldri. Endaði það
með því að annar sló hinn í höfuð-
ið með bjórflösku auk þess sem sá
skarst talsvert á baki. Hinn piltur-
inn skar sig það alvarlega á fingri
að leggja þurfti hann inn á slysa-
deild til aðgerðar.
Nr. Leikur: Rbdin:
1. Brage - Spánga - 1
2. Brommap. - Spársvagen - X -
3. Luleá - Vasterás - X -
4. UMEÁ - Gefle - - 2
5. Vasalund - Sundsvall 1 - -
6. Vlsby - Klruna 1 - -
7. Forward - Stenungsund 1 - -
8. GAIS - Hassleholm - X •
9. Jonsered - Gunnilse - - 2
10. Kalmar FF - Oddcvold 11. Karlskrona - Örgryte 12. Ljungskile - Elfsborg 13. Lund - Slcipner 1 - - - - 2 - - 2 - X -
Heildarvinningsupphæðin:
73 milljón krónur
13 réttir: 886.900 | kr.
12 réttir: 16.600 __1 kr'
11 réttir: 1.300 1 kr.
10 réttir: 370 1 kr.
Handtaka þurfti ölvaðan 16 ára
pilt í miðborginni aðfaranótt laug-
ardags eftir að sá hafði reynt að
slá í andlit lögreglumanns. Piltur
þessi hefur margsinnis komið við
sögu mála hjá lögreglunni áður.
Þegar annar ölvaður maður, 29
ára að aldri, var handtekinn vegna
slagsmála í miðborginni þessa
nótt jós hann svívirðingum yfir
lögreglumennina og sagðist myndi
sjá til þess að þeir yrðu allri rekn-
ir úr starfi vegna afskipta sinna
af honum. Hér eru einungis nefnd
tvö algeng dæmi um viðmót öl-
vaðs fólks í miðborginni um helg-
ar. Það er öllum þeim sem þannig
hugsa ölvaðir, hollt að staldra við
á meðan þeir eru edrú, hugsa sinn
gang og endurmeta afstöðu sína
til náungans svo þeir verði sér
ekki til minnkunnar þegar á reyn-
ir. Það á ekki síst við um þann
ölvaða sem gat ekki setið á sér
eftir orðaskipti við pylsuaf-
greiðslumann aðfaranótt laugar-
dags. Þegar honum var gert að
framvísa persónuskilríkjúm með
ávísun eins og aðrir lagði hann
hendur á afgreiðslumanninn með
þeim afleiðingum að maðurinn
kenndi til í baki.
Það er von lögreglunnar að full-
trúar borgarinnar sem og aðrir
hlutaðeigandi aðilar skoði hug sinn
til mannsafnaðarins í miðborginni
að kvöld- og næturlagi um helgar
og vinni með henni að því að koma
málum þannig fyrir að allflestir
geti vel við unað.
ÞROSKAÞJÁLFASKÓLI íslands
var slitið 3. júní í Bústaðakirkju.
Að þessu sinni brautskráðust 22
nemendur að loknu þriggja ára
námi. í vetur voru í skólanum 77
nemendur í grunnnámi og 18 í
framhaldsnámi.
Skólastarf hófst 1. september og
við skólann störfuðu í vetur 35
kennarar sem kenndu hver á sínu
sérsviði.
Við skólaslit flutti formaður
skólastjórnar, María E. Ingvadóttir,
ávarp en einiíig ávörpuðu fulltrúar
útskriftanema og tuttugu ára
þroskaþjálfa samkomuna. Þá voru
afhentir fímm styrkir úr minningar-
sjóði Guðnýjar Ellu Sigurðardóttur.
Fengu tveir þroskaþjálfar styrki til
að kynna sér sjálfstæða búsetu
þroskaheftra í Danmörku, tveir til
að sækja þangað námskeið um boð-
skipti og fimmta styrkinn fékk
þroskaþjálfi sem mun kynna sér
notkun snertitáknmáls í greiningar-
kennslu og þjálfun ungra blindra/
þroskaheftra barna við Perkins
School for the Blind í Boston.
Hópur söngfólks úr þjóðkirkjunni
í Hafnarfirði söng ættjarðarlög við
athöfnina og að lokum sungu allir
ísland ögrum skorið.
Nýja Posturepedic®dýnukerfið frá ^ J
Dýnurnar, sem laga sig að líkamanum
I
I
(
(
(
Fjaðrakerfið PostureTech, Stálgrind SteelSpan á Styrktir kantar EdgeGuard,
sem getur líkamanum neðri dýnu, sem tryggir sem gefur 10% meira
mátulegan stuðning. langvarandi endingu. svefnrými.
Aðeins frá Sealy. Aðeins frá Sealy. Aðeins frá Sealy.
Opið virka daga frá kl. 10-18
HÚSGAGNAVERSLUN
Marco
Langholtsvegi III. simi 680 690.
Frí heimkeyrsla
og uppsetning á
stór-Reykjavíkursvæðinu
M 9310