Morgunblaðið - 14.06.1994, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FLOKKSÞING ALÞÝÐUFLOKKSIIMS
Þreifingar baksviðs um varaformannskiör
Guðmundur
Arnisigr-
aði Ossur
Jón Baldvin um ályktun flokksþings um ESB
Við höfum sett
stefnuna á aðild
í ÁLYKTUN flokksþings Alþýðuflokksins um ísland og Evrópusamband-
ið, sem samþykkt var mótatkvæðalaust sl. laugardag, segir að hagsmun-
um íslendinga verði til frambúðar best borgið með því að ísland_ láti á
það reyna, hvort unnt sé að tryggja brýnustu þjóðarhagsmuni íslend-
inga við samningaborðið. „Endanleg afstaða til hugsanlegrar aðildar
að ESB verður hins vegar ekki tekin fyrr en samningsniðurstöður liggja
fyrir og hafa verið rækilega kynntar. Islenska þjóðin mun að sjálfsögðu
eiga síðasta orðið um það mál í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu," segir
í ályktuninni.
Gerðar voru nokkrar breytingar
á ályktunardrögunum á laugar-
dagsmorgni í starfshópi þingsins
og náðist þar málamiðlun um orða-
lag. Felld voru út úr setningunni
um hvernig hagsmunum íslendinga
verði best borgið orðin „að ísland
stefni að fullri aðild að Evrópusam-
bandinu". Að sögn Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, var full samstaða um
þessa málamiðlun í starfshópi
þingsins.
„Þetta er ekki veigamikil efnis-
breyting. Þetta þýðir að við höfum
sett stefnuna á aðild með þeim
fyrirvara að við tökum ekki endan-
lega afstöðu fyrr én samningsnið-
urstöður liggja fyrir,“ sagði Jón
Baldvin á fréttamannafundi sem
haldinn var síðdegis á laugardag.'
Ekki urðu miklar umræður um
Evrópumálin á þinginu sjálfu. Þeg-
ar drögin voru kynnt á föstudag
tóku nokkrir þingfulltrúar til máls
og lagðist enginn þeirra gegn
ályktunardrögunum en flestir lýstu
stuðningi við þau. Sumir hvöttu þó
til varfærni í viðræðunum við ESB.
í hádegisverði á laugardag hlýddu
þingfulltrúar á erindi Thorbjörns
Jaglands, formanns norska Verka-
mannaflokksins, um Evrópumál en
eftir hádegi hófst svo umræða um
Evrópuályktunina eins og hún lá
þá fyrir að lokinni umijöllun mál-
efnahóps þingsins. Þrír þingfulltrú-
ar tóku til máls og lýstu stuðningi
við ályktunina. Var hún svo sam-
-þykkt mótatkvæðalaust á þinginu.
Aðspurður hvort þessi ályktun
Alþýðuflokksins samræmdist
stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart
Evrópusambandinu sagði Jón Bald-
yin: „Ríkisstjórnin hefur ekki geng-
ið lengra en að segjast vilja taka
upp viðræður við Evrópusambandið
um að festa EES í sessi. Opinber
stefna ríkisstjórnarinnar er sú að
aðildarumsókn sé ekki á dagskrá.
Flokksþing Alþýðuflokksins hefur
tekið af skarið og að okkar mati
er málið á dagskrá og tímabært
að hefja kerfísbundna vinnu til
þess að undirbúa samningaviðræð-
ur. Við stígum þarna skrefi
lengra,“ sagði hann og kvaðst ætla
að kynna þessa niðurstöðu flokks-
þingsins í ríkisstjórn.
Ákvörðun um aðild ekki
tímabær
í ályktuninni segir ennfremur
að ákvörðun um að leggja fram
umsókn um aðild að ESB sé ekki
tímabær. íslensk stjórnvöld eigi
eftir að láta á það reyna í formleg-
um samningaviðræðum við ESB,
hvort unnt sé að tryggja fullnustu
og framkvæmd EES-samningsins,
þótt ísland yrði eitt aðili að honum,
með pólitísku samkomulagi um eft-
irlit og lausn deilumála.
„Alþýðuflokkurinn mun fyrir sitt
leyti leita eftir viðræðum við aðrar
stjórnmálahreyfingar og almanna-
samtök með það að markmiði að
efla þjóðarsamstöðu um þau hags-
munamál þjóðarinnar, sem setja
þarf á oddinn í viðræðum við Evr-
ópusambandið," segir í ályktuninni
og ennfremur er ákveðið að efna
til sérstaks aukaþings flokksins til
þess að fjalla um spurninguna um
aðildarumsókn að Evrópusamband-
inu, þegar niðurstöður þjóðarat-
kvæðagreiðslna á Norðurlöndum
liggja fyrir og viðræður stjórn-
valda, hagsmunasamtaka og
stjórnmálaflokka hafa átt sér stað.
Áhersla er lögð á að verði niður-
staðan sú, að sækja með formleg-
um hætti um aðild verði þar með
sett af stað ferli, sem muni taka
alllangan tíma.
Mikil óvissa ríkti um
varaformannskjör á
flokksþinginu um helg-
ina og áttu sér stað við-
ræður og þreifingar
baksviðs bæði á föstu-
dag o g laugardag allt
þar til kom að sjálfum
kosningunum. Omar
Friðriksson greinir frá
aðdraganda kosning-
anna og úrslitum.
UM TÍMA leit út fyrir að kosið yrði
á milli þriggja ráðherra, Guðmundar
Árna Stefánssonar heilbrigðisráð-
herra, Össurar Skarphéðinssonar
umhverfisráðherra og Sighvats
Björgvinssonar viðskiptaráðherra. Á
seinustu stundu dró Sighvatur sig
hins vegar til baka og lýsti yfir að
hann væri ekki í kjöri en Sighvatur
lagði mikla áherslu á að fundinn
yrði frambjóðandi utan ráðherra-
hópsins sem flestir gætu sætt sig við.
Alls greiddu 365 atkvæði í vara-
formannskjörinu. Guðmundur Ámi
sigraði og fékk 188 atkvæði eða
51,5% en Óssur fékk 159 eða 43,5%,
Marías Þ. Guðmundsson fékk 11 at-
kvæði, Sighvatur Björgvinsson 2 at-
kvæði og Jóhanna Halldórsdóttir 1
atkvæði.
Össur var eini þingfulltrúinn sem
lýst hafði yfír framboði til varafor-
mennsku þegar flokksþingið hófst.
Gerðar voru ítrekaðar tilraunir til að
fá Rannveigu Guðmundsdóttur,
varaformann flokksins, til að falla
frá ákvörðun sinni um að gefa ekki
kost á sér til endurkjörs. Rannveig
gaf í skyn á föstudag að hún kynni
að endurskoða afstöðu sína og tók
sér frest fram á laugardag en lýsti
þá yfir að afstaða sín væri óbreytt.
Guðmundur Árni Stefánsson var til-
búinn að bjóða sig fram til varafor-
mennsku en gaf þó enga yfirlýsingu
um það fyrr en á laugardegi, Össur
hvikaði hvergi frá framboði sínu og
Sighvatur Björgvinsson lét að því
liggja í samtölum við þingfulltrúa
að hann færi einnig í framboð til
varaformanns án þess þó að hann
lýsti því yfír með formlegum hætti.
Mikil leit var gerð meðal þingfull-
trúa að frambjóðanda utan ráðherra-
hópsins ef það mætti verða til að
koma í veg fyrir kosningaátök milli
ráðherranna þriggja en án árangurs.
Mest áhersla var lögð á að fá konu
í framboð sem sátt gæti náðst um
ef svo færi að Jón Baldvin yrði kjör-
inn formaður. Um tíma voru taldar
líkur á að Anna Margrét Guðmunds-
dóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Suður-
nesjabæ, léti tilleiðast en hún féll frá
því. Einng var rætt við Petrínu Bald-
ursdóttur alþingismann. Auk þess
voru Ingvar Viktorsson, fyrrv. bæjar-
stjóri í Hafnarfírði og Kristján Möller
frá Siglufirði taldir koma til greina
en hvorugur lét tilleiðast.
Þingstörf á flokksþinginu féllu
niður í þijár klukkustundir eftir há-
degi á Iaugardag þegar rýma þurfti
íþróttahúsið, þar sem þingið var hald-
ið, vegna sprengjuhótunar. Sá tími
var notaður til ennfrekari þreifínga
um varaformannskjörið en ákveðið
var svo að bíða eftir niðurstöðu úr
formannskjörinu áður en úrslitatil-
raunin yrði gerð.
Forystufólkið
NÝKJÖRIN forysta Alþýðuflokksins. Valgerður M. Guðmundsdótt-
ir ritari, Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður, Jón Baldvin
Hannibalsson formaður og Sigurður E. Amórsson gjaldkeri.
Til sölu á besta
staó i Skeifunni
Skrifstofuhúsnæði ca. 315ferm. á 2. hæð.
Verslunarhúsnæði ca. 245 ferm. á götu-
hæð (eða 2 x 122 ferm.) auk byggingarrétt-
ar á ca. 150 ferm.
Lagerhúsnæði í kjallara með innkeyrslu og
góðri lofthæð ca. 230 ferm. (80 + 150 ferm.).
Selst í einingum eða sameiginlega.
Ragnar Tómasson hdl.,
Kringlunni 4,
sími 682511 '
Kjör í framkvæmdastórn og flokkstjórn
Magnús Arni varð efstur
Magnús Árni Magnússon, formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna, og
Petrína Baldursdóttir, alþingismað-
ur, voru langefst í kjöri til fram-
kvæmdastjórnar Alþýðuflokksins.
Valgerður Guðmundsdóttir var sjálf-
kjörin ritari Alþýðuflokksins og Sig-
urður E. Arnórsson var kjörinn
gjaldkeri.
Magnús Árni fékk 207 atkvæði,
Petrína fékk 203 atkvæði, Steindór
R. Haraldsson fékk 148 atkvæði,
Arnór Benónýsson fékk sömuleiðis
148 atkvæði, Hervar Gunnarsson
fékk 137 atkvæði, Eyjólfur Sæ-
mundsson fékk 113 atkvæði og
Bryndís Kristjánsdóttir fékk 106
atkvæði. Vegna reglu í lögum
flokksins um kynjakvóta náði Bryn-
dís kjöri, en Eyjólfur ekki.
Þijátíu voru kjörin í flokksstjórn,
en þar sitja einnig þingmenn flokks-
ins, sveitarstjórnarmenn og formenn
félaga. Þau sem náðu kjöri eru:
Aðalheiður Sigursveinsdóttir, Hörð-
ur Zóphaníasson, Jón Karlsson, Jón
Þór Sturluson, Lára V. Júlíusdóttir,
Stefán Gunnarsson, l’ryggvi L.
Skjaldarson, Pétur Bjarnason, Stef-
án Friðfinnsson, Steindór Karvels-
son, Gylfí Þ. Gíslason, Ragna Berg-
mann, Cecil Haraldsson, Helga E.
Jónsdóttir, Viggó V. Sigurðsson,
Eiríkur B. Einarsson, Haukur Helga-
son, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Gylfi
Þór Gíslason, Tryggvi Gunnarsson,
Helgi Daníelsson, Hrafnkell Óskars-
son, María Kjartansdóttir, Kristín
Jóhanna Björnsdóttir, Ólína Þor-
varðardóttir, Elín Harðardóttir, Guð-
finna Vigfúsdóttir, Ragnheiður
Björk Guðmundsdóttir og Sjöfn Sig-
urbjörnsdóttir.