Morgunblaðið - 14.06.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ1994 49
BREF TIL BLAÐSIIMS
Amalgamhættan og
heilsupostularnir
Frá Herði Þórleifssyni:
FIMMTUDAGINN 3. júní birtist í
Morgunblaðinu bréf frá Ævari Jó-
hannessyni, sem titlar sig starfs-
mann hjá Raunvísindastófnun Há-
skóla íslands, þar sem hann „fræðir"
almenning um hve hættulegar silfur-
tannfyllingar séu. Tilefnið er grein
um amalgam í Morgunblaðinu sem
hann ekki tilgreinir nánar. I grein
Ævars er eitt og annað sem ekki á
neitt skylt við raunvísindi. Ég vil
benda á nokkur atriði sem gætu
frætt en ekki hrætt almenning.
Það er rétt að kvikasilfur er hættu-
legt efni, eitraður málmur, og því
rétt að forðast það eins og hægt er.
En því miður er ekki hægt að for-
aðst allar hættur þessa heims og
menn læra af reynslunni og af um-
gengni við efni úr náttúrunni. Viðm-
iðun hættumarka tekur oft tillit til
hlutfallsins milli áhættu og ábata.
Það fylgir því viss áhætta að setja
salt í matinn sinn eða taka inn líf-
snauðsynleg meðul. Lækningar hafa
eins og sjúkdómar oft reynst hættu-
legar heilsu manna. Með 150 ára
reynslu af silfurfyllingum að baki og
eftir þrotlausar rannsóknir vísinda-
manna síðustu áratugina hafa verið
kynntar niðurstöður sem menn taka
mark á. Erfitt hefur reynst að finna
hættuna sem postular hræðslunnar
boða. Viðbrögð eru mismunandi eftir
löndum og viðkvæmni mismikil
gagnvart hræðsluáróðri. Slíkur áróð-
ur hefur blómstrað og er jafnvel orð-
inn ábatasamur fyrir postula hans.
Hræðsluáróður
Ævar rekur hræðsluáróður þegar
hann gefur í skyn að eitur úr tann-
fyllingum berist upp í nef og þaðan
beint upp í heila! Einnig er hann
segir að örveirur í munni séu „taldar
umbreyta ólífrænu kvikasilfri í líf-
rænt“. Trúi þeir sem trúa vilja.
Ólífrænt bundið kvikasilfur sem
er í tannfyllingum er ekki talið
hættulegt. Lífrænt bundið kvikasilf-
ur er aftur á móti hættulegt og kem-
ur t.d. fyrir í fiski og skeldýrum. Það
magn sem hver einstaklingur fær
af kvikasilfri með fæðu er skilgreind
stærð og þolanlegt hámark á viku
er uppgefið af alþjóða heilbrigðis-
stofnuninni (WHO). Það magn sem
finnst í blóði og þvagi almennings í
ýmsum löndum er þekkt og er mis-
munandi milli þjóða. Það kvikasilfur-
magn sem getur losnað úr tannfyll-
ingum fer aldrei upp fyrir áðurnefnt
hámark og er oftast langt frá því
og því lítil ástæða til að óttast. Notk-
un amalgams fer sífellt minnkandi
vegna batnandi tannheilsu og notk-
unar annarra fyllingarefna. Vert er
að nefna að kvikasilfurmagn í síga-
rettureyk er yfir leyfilegu hámarki
kvikasilfurs í andrúmslofti og ættu
heilsupostularnir frekar að snúa sér
gegn slíkri hættu.
Sænska vísindamannanefndin sem
sett var í að kanna skaðsemi kvika-
silfurs í tannfyllingum komst að
þeirri niðurstöðu að ekki ætti að
vinna meiriháttar tannfyllingavinnu
í ófrískum konum því undir vissum
kringumstæðum gæti verið fræðileg-
ur möguleiki á skaðsemi. Svona vark-
árar setningar er létt að mistúlka!
Þessi sænska viðvörun var tekin upp
í Þýskalandi en hefur verið afturköll-
uð þar sem forsendur, þóttu ekki
nægar.
Bann við silfurfyllingum verður
að skoðast frá sjónarhóli hlutfallsins
áhætta/ábati og sjá fáir rök fyrir
síku banni. í löndum þar sem amalg-
ambann hefur komið til tals er það
vegna umhverfissjónarmiða en ekki
af umhyggju fyrir fólki með amalg-
amfyllingar.
Það getur aðeins orðið tannlækn-
um gleðiefni ef lagt verður bann við
amalgamfyllingum. Það þýðir að
notadijúgt, öruggt og ódýrt fylligar-
efni er bannað og ekkert samsvar-
andi kemur í staðinn. Því fengju
tannlæknar, sem hér eru of margir
og hafa sumir of lítið að gera, næg
verkefni við að setja dýrari fyllingar
í almenning. Slíkt bann væri aftur
pólitísk ákvörðun sem gerði almenn-
ingi enn einu sinni skylt að borga
brúsann.
Vandfundin liætta
Frétt Ævars um að þýskir hafi
bannað alla notkun amalgams á ekki
við rök að styðjast. Þýskir tannlækn-
ar gera um 40 milljónir silfurfyllinga
' á ári og nota í það 20 tonn af kvika-
silfri. Það mundi ekki fara fram hjá
neinum, a.m.k. ekki í tannlækna-
stétt, ef slíkt bann væri sett. Stað-
reynd er hins vegar að bannað er
að nota gamlar gerðir af amalgami.
Nú er skylt að nota hágæðaamalgam
(non gamma 2) sem flestir upplýstir
tannlæknar notuðu hvort sem var.
Ævar segir ofnæmi gegn kvika-
silfri vera mun algengara en sagt er
í tilnefndri grein í Mogga. Ofnmæi
gegn kvikasilfri er sjaldgæft. Það
sýna ofnæmispróf og dreifing kvika-
silfurs í náttúrunni. Það má ekki
rugla saman ofnæmi, þar sem allt
varnarkerfi líkamans bregst ókvæða
við, og yiðkvæmni eða næmi gegn
efnum þar sem aðeins er um stað-
bundna svörun að ræða. Svokölluð
vefjavinátta efna (biocompatability)
er mismunandi og næmi einstaklinga
einnig. Dæmi eru til um staðbundna
ertingu í munni frá silfurfyllingum
sem hafa ekkert með ofnæmi að
gera. Hættuleg efni eru á hveiju
strái í lækningum, í tannlækningum
og þó helst í iðnaði. Kviksilfur notað
til tannlækninga er aðeins 3% af
notkun kvikasilfurs í iðnaði!
Hræðsluáróður hefur helst verið not-
aður gegn flúor og amalgami. Flúor
er eina vikra efnið gegn tannátu og
er eitrað. Amalgam er að hluta til
kvikasilfur sem er eitrað! Hætturnar
eru samt ekki miklar ef rétt er með
farið.
Hvað viðvíkur galvaniskri spennu
í munni er hún vel þekkt, en ekki
hefur tekist að sýna fram á heilsu-
spillandi áhrif hennar þrátt fyrir
ijölda tiirauna og rannsókna.
Það sem skrifað hefur verið um
amalgam á síðustu 10 árum er næst-
um óþijótandi. Þeir sem hafa gert
sér það ómak að taka saman niður-
stöður úr þúsundum rannsóknar-
skýrslna sérfræðinga frá mörgum
löndum hafa ekki bent á þá stór-
hættu sem hræðslupostularnir boða.
Hér verða ekki tíundaðar tölur úr
vísindatímaritum sem ég hef gluggað
í. Hætturnar leynast hvert sem litið
er. Hættulegir eru þeir „raunvísinda-
menn“ sem gera sjálfir tilraunir og
túlka niðurstöðurnar að eigin geð-
þótta.
Mikilvægast er þó að almenningur
sé ekki hræddur. af sjálfskipuðum
heilsupostulum sem nota nafn raun-
vísindastofnunar til að gera mál-
flutning sinn trúverðugri. Vænti ég
að stofnunin sé ekki stolt af slíkri
notkun. Ævar getur haft sínar skoð-
anir á silfurfyllingum og kvikasilf-
ursgufum í munni. Hans málflutn-
ingur miðar að því að hræða fólk en
ekki fræða. Tel ég að það sé hvorki
hans hlutverk né þeirrar stofnunar
sem hann kennir sig við.
HÖRÐUR ÞÓRLEIFSSON,
tannlæknir, Akureyri.
Sumarparadísin
á Kanarí
frá aðeins kr. 39.900
í 3 vikur 30. júní
Tryggðu þér síðustu sætin í sólina í júní á hreint frábærum kjörum. Góðar rúmgóðar íbúðir
með tveimur svefnherbergjum á Barbados, sem hafa verið mjög vinsælar hjá farþegum
okkar síðustu 2 árin. Vegna mikilla viðskipta við Barbados-gististaðinn, bjóða þeir okkur
sérkjör í þessari ferð á aðeins 8 íbúðum.
Bókaðu strax og tryggðu þér sæti meðan enn er laust.
Verð kr. 39.900
Verð á mann m.v. hjón með 2 börn, 2-14 ára, 30. júní
Verð kr. 54.900
Verð á mann m.v. 2 í íbúð, 30. júní í 20 naetur.
Flugvallarskattar:
| Fullorðinn kr. 3.600, barn kr. 2.405.
í 20 nætur.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
afr europa I TURJIVIA
ÞjóðhátBar
4 stk. hamborgarar
m/brauði
Pepsi IV2 Iftri
kr.
G@ÐI
-gfeðanm vegm*.
brauðskinka
krTkg
G0ÐI
-gætianm vegmíy
spamaðar-
bjÚgU kr./kg
G0ÐI,
-gpeöanm vegnaly
vínarpylsur 14 stk
ípakkWL4í)í)
íslensk grillkol 2
kr.
8 rúllur salernispappír
Lambakjöt
á lágmarksverði
Grillkjöt á tilboði
f
% Grensásvegi
Rofabæ
Eddufelli
Þverbrekku
Álfaskeiði
OPID ALLA l)A(i \ TIL IiL. 23