Morgunblaðið - 14.06.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 14.06.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atvinnumál í öndvegi á fundi Norræna læknaráðsins Atvinnuleysi lækna hefur aukist á Norðurlöndum ATVINNULEYSI meðal lækna hefur aukist í a.m.k. þremur Norður- landanna, Finnlandi, Sví})jóð og Danmörku. Ástandið er einna verst í Finnlandi en á síðustu mánuðum hefur atvinnuleysi einnig aukist hratt í Svíþjóð. Atvinnumál verða þannig í öndvegi á fyrsta fundi Norræna læknaráðsins sem haldinn er í Reykjavík í þessari viku. Þar verða einnig tekin fyrir málefni sem tengjast menntun lækna, vinnuaðbúnaði þeirra og þagnarskyldu. Morgunblaðið/Golli Ræktað í rigningu Þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi lækna á Norðurlöndum óttast Sveinn Magnússon formaður Nor- ræna læknaráðsins ekki að íslensk- ir læknar þurfi að kvíða skæðu at- vinnuleysi í bráð. I fyrsta lagi hafi þeir á undanförnum misserum sótt meira í nám og starf til Noregs þar sem atvinnuleysi lækna er ekki vandamál enn sem komið er. Samstarf Norðurlanda mikilvægt í annan stað hafi könnun vinnu- hóps um atvinnuhorfur íslenskra • lækna nýlega leitt í ljós að framboð á læknum verði lítið eitt meira en eftirspurn allt til ársins 2015 en eftir það myndist nokkur skortur á læknum. Loks telur Sveinn að fleiri möguleikar hafí opnast fyrir ís- lenska lækna, einkum í Bretlandi, eftir gildistöku EES-samningsins. Formlegt samstarf norrænna landsfélaga lækna hófst árið 1992 með stofnun Norræna læknaráðs- ins. Það kom í hlut íslendinga að leiða samstarfið í fyrstu og fundur ráðsins hér í Reykjavík er sá fyrsti í röðinni. „Norrænir læknar höfðu starfað mikið saman á ólíkum vett- vangi en ráðinu er ætlað að auka það og samræma," sagði Sveinn Magnússon á blaðamannafundi í gær. Hann sagði að hlutverk þessa samstarfsvettvangs verði m.a. að vaka yfir réttindamálum lækna á Norðurlöndum og viðhalda sam- ræmi milli Iandanna þannig að áunnin réttindi lækna í einu landi þýði það sama í hinum löndunum. Á fundinum verður rætt um skyldur lækna í víðu samhengi en sérstök áhersla lögð á þagnar- skyldu þeirra. Fram kom í máli Sveins að læknar á Norðurlöndum séu uggandi um síaukna tilhneig- ingu lögregluyfirvalda, atvinnu- rekenda eða tryggingarfélaga að krefjast upplýsinga um heilbrigði einstaklinga. Að mati formanna norrænu landsfélaga lækna var t.a.m. gróflega traðkað á trúnaðar- skyldu lækna í fyrra þegar lög- regla í Danmörku ruddist inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmanna- höfn, krafðist upplýsinga um alla einstaklinga sem slasast höfðu í óeirðum daginn áður og handtók þá síðan á staðnum. Um eitt hundrað fulltrúar nor- rænna landsfélaga lækna sækja fund Norræna læknaráðsins og annar eins fjöldi, makar og böm, fylgir fundargestum. Fundinum Iýkur á morgun, 15. júní. ÞEIR ERU margir krakkarn- ir, sem þessa dagana hlúa að beðum sínum í skólagörðun- um. Skiptir þá ekki máli hvort sólin skín eða regnið fellur. Þær Bryndís og Svala gáfu sér tíma til að líta upp þegar Morgunblaðið bar að garði í skólagörðunum við Rauða- gerði. Þær ætla að rækta í beðunum sínum kartöflur, hvítkál, rófur, rauðkál, blóm- kál og eitthvað fleira, sitt lítið af hverju. Erfiðlega gengnr að hemja útgjöld heilbrigðisráðuneytis Samdráttur yfirvof- andi á spítölum Hjálparstarf í Keflavík Rúm milljón hefur safnast Á VEGUM bæjatyfirvalda í Suður- nesjabæ og Rauða-krossdeildar á Suðurnesjum hefur verið unnið að hjálparstarfí vegna þeirra sem misstu húsnæði og eigur sínar brun- anum í Keflavík, að kvöldi fimmtu- dags. Að sögn Guðmundar R.J. Guðmundssonar fulltrúa Rauða- krossdeildarinnar, hefur þegar safnast vel á aðra milljón inn á reikning 43-1000, hjá Sparisjóði Njarðvíkur. Á fimmtudag fer af stað söfnunarátak á útvarpi Bros, sem er svæðisútvarp Suðurnesja. Jóhann Geirdal einn íbúanna seg- ir að vel hafi gengið að koma íbúun- um fyrir í húsnæði. Starfsfólk Rauðakrossdeildarinnar og bæjar- ins hafi brugðist skjótt við og að- stoðað við flutninga. Guðmundur R.J. Guðmundsson sagði að Rauði kross íslands og Rauða-krossdeild- in á Suðurnesjum hafi hvor um sig lagt fram 500 þús. til aðstoðarinn- ar. Það hafi verið hugsað sem sára- bót til þeirra sem misstu innbú og fatnað í brunanum og er reiknað með að hver íbúi fái um 10 þús. til fatakaupa. Sagði Guðmundur að Rauða- krossdeildir víða um land hafi ákveð- ið að leggia fram aðstoð sína. „Ég veit að það hefur safnast vel,“ sagði hann. A Alþýðuflokksþinginu, sem haldið var um helgina söfnuðust til dæmis rúmlega 200 þúsund krónur." Guðmundur sagði að búið væri að koma þeim verst stöddu fyrir í húsnæði en ennþá eru margir, sem búa hjá ættingjum og vinum og vantar tilfinnanlega íbúðir. Er verið að vinna að lausn fyrir fólkið í nánu samstarfi við félagsmálastofnun bæjarins. HÁDEGlsMATStPIU Fiskréttartilboð matreiðslumeistarans KR. 85O,- Ofnbökuð smálúða með osti og sperglum KR. 950,- ^ Gufusoðinn regnbogasilungur með eplum og banönum í karrí-engifersósu KR. 950,- Glóðarsteikt blálanga í appelsínusósu KR. 950,- Súpa og heimabakað brauðfylgir öllum réttum dagsins. Skólabrú Sími 62 44 SS Vísbendingar eru um að halli á fjáriögum þessa árs verði að óbreyttu 13-14 milljarð- ar króna en ekki innan við 10 milljarðar. Mestu munar um að ýmis sparnaðaráform í heilbrigðisráðuneytinu virðast í hættu og kannaði Guðmundur Sv. Hermannsson hvernig ráðuneytið ætlar að bregðast við. Útgjöld heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytis stefna að óbreyttu í að verða á annan milljarð umfram áætl- anir fjárlaga og þá eru ekki talin með útgjöld vegna ákvarðana ríkis- stjórnarinnar um auknar greiðslur til lífeyrisþega og vegna kjarasamn- inga við meinatækna og hjúkrunar- fræðinga. Einkum er um að ræða að áform- aður spamaður vegna lyfjaútgjalda hefur ekki náðst fram og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins vantar þar um 300 milljónir króna upp á. Þá hafa ekki náðst samningar við sérfræðinga um að lækka gjaldskrár þeirra en með því átti að spara um 150 milljóna króna útgjöld. Einnig stefnir rekstur sjúkrastofnana fram úr fjárlagaheimildum nema þær grípi til ráðstafana og niðurskurðar síðari hluta ársins. Guðmundur Ámi Stefánsson heil- brigðisráðherra segir rétt að útgjöld vegna lyfja hafi verið í hærri kantin- um það sem af er árinu. Bæði virð- ist grunnverð lyfja hafa hækkað erlendis frá og þá hefði ekki dregið úr lyfjanotkun. „Á móti kemur að enn hefur ekki mælst lækkun á álagningu hér innanlands sem ég tók ákvörðun um og gilti frá 1. mars,“ sagði Guðmundur Árni. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis segir að fyrirhuguð lækkun útgjalda til lyfjámála hafi að hluta til tengst nýjum lyfjalögum sem Alþingi af- greiddi I vor. Þingið hefði þá ákveð- ið að lyfjalögin tækju ekki gildi fyrr en 1. nóvember 1995 og um leið ákveðið að ýta verðlækkuninni á undan sér, en samkvæmt frumvarp- inu áttu lögin að taka gildi um mitt þetta ár. Fyrirætlanir hefðu verið um að ná .150-200 milljóna króna sparnaði með þessu móti og sagðist Páll efast um að hægt verði að ná því markmiði með öðrum hætti þar sem ekki væri gert ráð fyrir að hlut- ur sjúklinga í lyfjakostnaði yrði meiri en nú er. Heyrst hafa efasemdir um að auglýsingaherferð heilbrigðisráðu- neytisins í vor til að hvetja almenn- ing og lækna til að ávísa á ódýrustu samlyf í stað dýrari sérlyfja, hafi haft tilætluð áhrif, og jafnvel leitt til þess að fólk hafi í aukn- um mæli krafist þess að fá sérlyf. Þessu vísaði Guðmundur Ámi Stefáns- son á bug og sagði að merkingar við samheita- lyf á lyfseðlum hefðu aukist verulega í kjölfar þessarar herferðar þótt merkingar við sérlyf hafí jafnframt aukist eitthvað. Samkvæmt upplýsingum úr heil- brigðisráðuneytinu sýndi könnun á lyfseðlum gefnum út í tvo daga í apríl, að merkingar við samheitalyf á lyfseðlum höfðu aukist um 21,25% frá fyrra ári og merking við sérlyf hafði aukist um 12%. Ómerktum seðlum hafði fækkað um 49,4%. Að óbreyttu er, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins, talið fyrirsjáanlegt að rekstur ríkisspítal- anna og Borgarspítala fari talsvert fram úr fjárlagaheimildum þótt þeim verði bættur upp kostnaður vegna Sjúkrahús verða að skera niður. kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og meinatækna. Þá liggur fyrir að ekki næst fram 160 milljóna niður- skurður á rekstri Landakotsspítala sem gert var ráð fyrir á fjárlögum þar sem barnadeild spítalans hefur ekki enn verið flutt til Borgarspítal- ans. Guðmundur Árni Stefánsson sagðist telja einsýnt að leysa yrði hluta af vandamáli Landakots með aukafjárveitingu í haust. Hins vegar ætti hann von á að hinir stóru spítal- arnir yrðu innan fjárlagamarka þeg- ar upp yrði staðið. Páll Sigurðsson sagði að ráðu- neytismenn vissu að ekki hefði geng- ið vel hjá sjúkrahúsum að ná niður rekstrarkostnaði á þessu ári. „Ef það á að verða þurfa sjúkrahúsin að draga saman starfsemi sína síðari hluta ársins og það munu þeir gera fái þeir ekki aukið fé. Því má búast við samdrætti í þjónustu sjúkrahúsa þegar líður á árið,“ sagði Páll. I Ijárlögum var gert ráð fyrir að ná niður kostnaði sjúkratrygginga um 150 milljónir með nýjum samn- ingum við lækna um að lækka gjald- skrá vegna sérfræðiþjónustu. Ríkið sagði upp samningum við lækna og hefur samninganefnd á vegum tryggingastofnunar og fjármála- ráðuneytis reynt að ná fram samn- ingum um lægri gjaldskrár. Þetta hefur ekki tekist og raunar talið ólík- legt að samningar náist á árinu. Á meðan er því áfram farið eftir gömlu gjaldskránum. Guðmundur Árni sagði aðspurður --------- að möguFgt væri að setja reglugerðir um að setja þak á greiðslur rík- isins til sérfræðinganna og þeir yrðu síðan að innheimta það sem á vantaði hjá sjúklingum. Slíkt væru þó hæpin vinnubrögð og mjög mikil- vægt væri að ná samkomulagi við lækna. í fjárlögum voru að auki áform um sparnað með útboði á rannsókn- um, að tekjutengja ekkjulífeyri, og samræma frítekjumark lífeyris- greiðslna og hefur verið gagnrýnt að þessi áform eru ekki enn komin til framkvæmda. Guðmundur Árni Stefánsson sagði þetta allt vera í undirbúningi og sagðist hann gera ráð fyrir að þegar gefín yrði út reglu- gerð um eingreiðslur til lífeyrisþega myndu fylgja með reglugerðir um tekjutengingu ekkjulífeyris og um frítekjumark I lífeyristryggingum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.