Morgunblaðið - 14.06.1994, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.06.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1994 19 VIÐSKIPTI FLUGLEIÐIR — Farþegum Flugleiða fjölgaði um 40% á fyrsta ársfjórðungi en ekki varð þó um sambærilega aukningu tekna. Þetta má rekja til þess að fjölgunin varð mest á skemmri leiðum eins og t.d. milli Kaupmannahafnar og Hamborgar. Afkoman versnaði um 5 7 milljónir Góðar bókanir gefa Flugleiðum vonir um hagnað á árinu AFKOMA Flugleiða hf. fyrir skatta versnaði um 57 milljónir á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Þannig var tapið fyrir skatta 954 milljónir en var 897 milljónir í fyrra. Verulegt tap er jafnan af rekstri Flugleiða á þessum árstíma sem jafnast út með hagnaði yfir sumarmánuðina. Horf- ur þykja nú nokkuð góðar hjá félag- inu og er útlit fyrir töluvert betri sætanýtingu í sumar en í fyrra. Að sögn Halldórs Vilhjálmssonar, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, er því áfram gert ráð fyrir hagnaði hjá félaginu á þessu ári. Farþegum Flugleiða fjölgaði um 40% á fyrsta ársfjórðungi en ekki varð þó um sambærilega aukningu tekna. Þetta má rekja til þess að fjölgunin varð mest á skemmri leið- um eins og t.d. milli Kaupmanna- hafnar og Hamborgar. Lækkuðu meðaltekjur af hveijum farþega um 10% á milli ára, sem hafði í för með sér 180 milljóna tekjurýmun á tímabilinu. Farþegatekjur félagsins hækk- uðu um 24% á milli ára og heildar- tekjur um 15,4%. Sömuleiðis varð 15,4% hækkun á rekstrargjöldum m.a. vegna hækkunar á gengi doll- ars gagnvart krónu. Á fyrsta árs- fjórðungi eru gjöld í dollurum tölu- vert hærri en tekjur og áhrif gengis- lækkunar krónunnar gagnvart doll- ar því óhagstæð. Áð teknu tilliti til skatta varð heildartap Flugleiða um 965 millj- ónir en tapið í fyrra var alls um 739 milljónir. Versnandi afkomu af heildarstarfseminni má fyrst og fremst rekja til þess að fyrstu þijá mánuði sl. árs var tekjufærsla í rekstrarreikningi að fjárhæð 180 milljónir vegna lækkunar á tekju- skattsskuldbindingu. Þessi lækkun var tekjufærð vegna taprekstrar á sl. ári. Tekjuskattsskuldbinding Flugleiða í árslok 1993 var engin og því engin sambærileg tekju- færsla í rekstrarreikningi þessa árs. Gengisþróunin mun ráða miklu um þróunina í rekstrinum í sumar hjá Flugleiðum. Ef gengi erlendra gjaldmiðla verður hátt yfir sumar- mánuðina er það félaginu hagstætt þar sem mestra tekna í erlendum gjaldeyri er aflað á tímabilinu júní- ágúst. Halldór Vilhjálmsson sagði að tekjur félagsins af millilandafluginu hefðu verið í samræmi við áætlanir í maímánuði en apríl hefði verið verri en skv. áætlun. „Við vonumst til að sumarið verði betra en áætlað var og miðað við bókanir munum við vinna upp tekjutapið af lækkun fargjalda. Þá hefur kostnaðurinn verið alveg í takt við áætlanir.“ British Airways Tafirí fyrstu ferð frá Orly Flugvöllurinn opnaður erlendum flugfélögum París. Reuter. FYRSTA ferð brezka flugfélagsins British Airways (BA) frá Orly-flug- velli við París til London síðan flug- völlurinn var opnaður erlendum flug- félögum tafðist í gær, mánudag, vegna mótmælaaðgerða flugfélags- starfsmanna. Orly var opnaður fyrir samkeppni erlendra flugfélaga eftir harðar deil- ur BA og franskra yfirvalda, sem reyndu að varðveita yfirburðastöðu Air Inter, innanlandsflugfélags Air France, sem ríkið rekur. Um 50 starfsmenn einkaflugfé- lagsins Air Liberté tóku þátt í mót- mælum gegn hinu nýja, opna kerfi við brottför farþega BA og Frakk- landsdeildar félagsins, TAT, frá Orly. Flugvél BA átti að fara kl. 7.55 að staðartíma, en tafðist í um það bil hálftíma. Flugvél Air France fór á tilsettum tíma frá Heathrow-flug- velli við London, kl. 7.45 að staðar- tíma. British Airways/TAT og Air France eiga að skipta á milli sín átta ferðum á dag milli London og Orly. i ■ Oflugar og vandaðar 486 tölvur I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.