Morgunblaðið - 12.11.1994, Page 8
8 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
PrófKjör sjálfstæðismanna á Suðurlandi:
Eggert Haukdal
féll fyrir Drífu
Við brúsarpallinn beið hans mær . . .
434 þátttakendur í stærðfræði-
keppni framhaldsskólanema
EFSTU menn í efri stigi.
EFSTU menn í neðra stigi.
434 NEMENDUR úr 19 skólum
tóku þátt í fyrri hluta stærðfræði-
keppni framhaldsskólanema, þar
af 232 í neðri stiga og 191 í efri
stiga. Viðurkenningarskjöl hafa
verið afhent 20 efstu keppendum
á neðra stigi og 21 efsta á efra
stigi. Þeim hefur jafnframt verið
boðið að taka þátt í seinni hluta
keppninnar, úrslitakepnni, sem fer
fram við Háskóla íslands í mars
1995.
Efstu í fyrri hluta:
Neðra stig: 1. Kári Ragnarsson,
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
2. Gísli Harðarson, Menntaskólan-
um á Akureyri, 3. Þrándur Grét-
arsson, Menntaskólanum við
Hamrahlíð, 4. Óskar Sigurgeirs-
son, Menntaskólanum í Reykjavík,
5. Baldvin Ottó Guðjónsson,
Menntaskólanum í Reykjavík,
6. -7. Ingólfur Þorsteinsson,
Verzlunarskóla íslands, Steinþór
Steingrímsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 8.-11. Helgi Þorgeirs-
son, Menntaskólanum í Reykjavík,
Snævar Sigurðsson, Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti, Sveinn B.
Sigurðsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 12.-13. Finnbogi Ósk-
areson, Flensborgarskólanum í
Hafnarfirði, Guðmundur Harðar-
son, Menntaskólanum á Laugar-
vatni, 14.-16. Jón Thoroddsen,
Menntaskólanum í Reykjavík, Pét-
ur Runólfsson, Fjölbrautaskóla
Suðurlands, Þórdís Linda Þórar-
insdóttir, Menntaskólanum við
Hamrahlíð, 17. Hannes Helgason,
Flensborgarskólanum í Hafnar-
firði, 18.-21. Gísli Bragason,
Menntaskólanum í Reykja-
vík,Indriði Stefánsson, Mennta-
skólanum í Reykjavík, Vala Hjör:
leifsdóttir, Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ, Þórólfur Rúnar Þórólfs-
son, Menntaskólanum við Hamra-
hlíð.
Neðra stig: Gunnlaugur Þór
Briem, Menntaskólanum í Reykja-
vík, 2. Guðmundur Hafsteinsson,
Menntaskólanum í Reykjavík,
3.-4. Logi Ragnarsson, Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, Magnús
Þór Torfason, Menntaskólanum í
Reykjavík, 5. Haukur Eggertsson,
Verzlunarskóla íslands, 6. Baldvin
Gíslason, Menntaskólanum í
Reykjavík, 7. Jóhann T. Sigurðs-
son, Menntaskólanum á Akureyri,
8. Einar Guðfínnsson, Mennta-
skólanum í Reykjavík, 9. Hjördís
Sigurðardóttir, Menntaskólanum í
Reykjavík, 1G.-12. Georg Lúð-
víksson, Menntaskólanum í
Reykjavík, Jón Guðni Ómarsson,
Verzlunarskóla íslands, Skúli
Guðmundsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 13. Eggert Jón Magn-
ússon, Fjölbrautaskóla Suður-
lands, 14.-15. Guðmundur Páll
Magnússon, Menntaskólanum við
Sund, Hjálmar Gíslason, Mennta-
skólanum á Laugarvatni, 16.-17.
Haukur Þór Hannesson, Verzlun-
arskóla íslands, Hjörtur Smára-
son, Kvennaskólanum í Reykjavík,
18.-20. Hjalti Þórarinsson,
Menntaskólanum í Reykjavík, Jó-
hannes B. Hreinsson, Menntaskól-
anum í Reykjavík, Oskar D. Pét-
ursson, Flensborgarskólanum í
Hafnarfirði.
Fimmta Eystrasaltskeppnin í
stærðfræði verðurhaldin í Tartu í
Eistlandi 9.-13. nóvember nk.
Þangað fara fjórir efstu í efra stigi
og efsti maður á neðra stigi.
Fararstjórar eru Rögnvaldur Möll-
er og Benedikt Jóhannesson,
stærðfræðingur. Einnig stendur til
að taka þátt í Norðurlandakeppni
í stærðfræði um miðjan mars, og
Alþjóðlegu ólympíukeppninni í
stærðfræði, sem fer fram í Kanada
í júlí 1995.
Kristniboðsdagurinn er á morgun
Aldrei hafa fleiri
verið við kristniboð
KRISTNIBOÐSDAG-
URINN 1994 er á
morgun og verður
kristniboðs á vegum Sam-
bands íslenskra kristni-
boðsfélaga þá minnst í
kirkjum landsins og veitt
viðtaka gjöfum til starfs-
ins. A vegum SIK eru nú
starfandi 14 íslenskir
kristniboðar við ýmis störf
í Eþíópíu og Kenýu og er
kostnaður við starfið áætl-
aður 17 milljónir króna á
árinu. Að sögn Skúla Sva-
varssonar, formanns Sam-
bands íslenskra kristni-
boðsfélaga, eru tekjur SÍK
háðar velvilja kristinna
manna hér á landi, en um
miðjan október vantaði enn
6,5 milljónir upp á að end-
ar næðu saman þetta árið.
Samband íslenskra
kristniboðsfélaga hefur að sögn
Skúla átt samstarf við sambæri-
leg félög hjá hinum Norðurlanda-
þjóðunum, og á þeirra vegum
væru á bilinu 350-400 manns við
kristniboðsstörf. Sá fjöldi íslend-
inga sem nú eru kristniboðar er
óvenjumikill, og segir Skúli þá
aldrei hafa verið fleiri í einu.
Fólkið fær ekki greidd laun fyrir
starf sitt, en hins vegar segir
Skúli kostnaðinn vera mikinn þar
sem ekki aðeins þurfi að sjá þessu
fólki fyrir nauðsynjum heldur sé
ýmis annar kostnaður t.d. vegna
styrkja til fjölda innlendra aðila
á þeim stöðum sem kristniboð-
arnir starfa.
„Við erum ekkert að byggja
upp neitt sem íslenskt er á þess-
um stöðum, heldur miðum við frá
upphafi að því að það verði inn-
lend kirkja sem taki við starfinu
og styðjum við innfædda á meðan
þeir þurfa á að halda. Sem dæmi
má nefna að í Konsó þar sem við
hófum kristniboðsstarf fyrir rúm-
um 40 árum er kirkjan orðin sjálf-
stæð að mestu leyti, en við styðj-
um að vísu barnaskóla sem þar
er enn. Annars sjá þeir um allt
sjálfir, og þar er til dæmis stór
sjúkrastöð, en þarna er nú rúm-
lega 70 söfnuðir. Þar eru unnin
mörg þróunarverkefni sem við
styrkjum ekkert héðan að heiman
nema hvað þarna er fólk frá okk-
ur sem er ráðgjafar. Við byggjum
því á að þeir taki við öllu sjálfir
og þá förum við á nýja staði, en
við miðum allt við að verkefnin
séu ekki ofviða því fólki sem við
erum að vinna á meðal og það
geti haldið þeim áfram, þess
vegna er þetta kannski svolítið
hægfara, en við höfum komist
að þeirri niðurstöðu að svona
hægfara starf skilar ---------
miklu meiri árangri
þegar til lengri tíma er
litið.“
- Hvernig er fjár-
öflun' til starfsins hátt-
að?
„Það eru einstakl-
ingar sem styðja okkur og
styrkja, og á þessu ári ráðgerum
við að við þurfum um 17 milljón-
ir til að standa undir kostnaði.
Það er svolítið basl að fá þetta,
en það heyrist kannski ekki svo
hátt í okkur. Við erum ekki að
fara fram fram með stóra auglýs-
ingaherferð eða annað slíkt, því
við viljum að sem mest af því sem
safnast fari beint til starfsins en
ekki í einhvern kostnað. Þetta
kostar það að það ber kannski
minna á okkur en ýmsum öðrum,
en þetta hefur gengið hingað til,
og það eru margir sem gefa mik-
ið.“
- Hvert er umfang kristni-
Skúli Svavarsson
► Skúlí Svavarsson, formaður
Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga, er fæddur á Akur-
eyri 1939. Að loknu gagnfræða-
prófí lærði hann skipasmíðar,
en árið 1962 fór hann í kristni-
boðsskóla í Noregi eftir að hafa
stundað nám utanskóla við
Menntaskólann á Akureyri í til-
skildum greinum til að komast
í skólann í Noregi. Eftir að
hafa lokið námi í kristniboðs-
skólanum árið 1966 fór Skúli
til kristniboðsstarfa í Eþíópíu
þar sem hann dvaldist samtals
í níu ár og í Kenýa þar sem
hann var í fjögur ár. Frá 1985
hefur Skúli verið formaður
Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga og haft með höndum
stjórn kristniboðsins í Afríku.
boðsstarfsins á vegum íslendinga
samanborið við aðrar þjóðir?
„Ég hugsa að við séum mjög
framarlega hvað þetta varðar.
Við erum í samstarfi við Norður-
landaþjóðirnar, en þær eru mjög
duglegar og svolítið erfitt að bera
sig saman við þær. Norðmenn til
dæmis gefa rúmlega 1% þjóðar-
tekna sinna til þróunarverkefna,
og samanborið við þá er þetta
kannski ekki svo miirið hjá okk-
ur. En ef við berum okkur saman
við Dani þá stöndum við mjög
vel að vígi og eins erum við mjög
framarlega gagnvart öðrum Evr-
ópuþjóðum. Það fólk sem við höf-
um úti er mjög virkt, og til dæm-
is í Eþíópíu þar sem Norðurlanda-
þjóðirnar hafa starfað saman, eru
okkar menn ráðgjafar biskups í
tveimur af átta biskupsdæmum
sem þar eru. Sömu sögu er að
segja í Kenýu þar sem okkar fólk
er leiðtogar yfir stóru svæði og
_________ mjög virt innan kirkj-
unnar. Við höfum haft
fólk sem hefur bæði
mjög góða menntun og
mikla reynslu, en við
reynum að halda okkar
fólki lengi og þess
vegna höfum við verið
töluvert áberandi þama úti.
Margt af þessu fólki hefur í
kristniboðsskólanum í Noregi
hlotið þá guðfræðimenntun og
aðra undirbúningsmenntun sem
þarf til starfa í þróunarlöndum,
og einnig em nokkrir hjúkrunar-
fræðingar sem hlotið hafa eins
árs undirbúning fyrir störf í fram-
andi umhverfi. Einnig eru á okk-
ar vegum guðfræðingar frá Há-
skóla íslands, sem hlotið hafa
sömu undirbúningsmenntun, og
einnig eru kennarar og húsasmið-
ur sem stendur fýrir bygginga-
framkvæmdum. Fólkið hefur því
mjög alhliða bakgrunn eftir því
í hvaða störf það fer.“
Höfum fólk
meö góða
menntun og
mikla reynslu