Morgunblaðið - 26.01.1995, Side 1

Morgunblaðið - 26.01.1995, Side 1
80 SÍÐUR B/C/D 21. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Æ fleiri búaeinir Lundúnum. Reuter. Æ FLEIRI Bretar kjósa ein- lífi - búa einir, eignast börn utan hjónabands og skiija, samkvæmt skýrslu bresku hagstofunnar um félagsleg- ar breytingar í Bretlandi sem birt var í gær. Bretar hneigjast einnig til þess að giftast og eignast börn seinna en fyrir aldar- fjórðungi, auk þess sem þeir eru heilbrigðari en feitari. „Hluti þeirra sem búa ein- ir hefur næstum tvöfaldast frá því í byijun áttunda ára- tugarins og er nú 11%,“ að sögn skýrsluhöfundanna. „Tíðni hjónaskilnaða hef- ur meira en tvöfaldast frá 1971 og eru tíðari en í nokkru öðru Evrópusam- bandsríki,“ sögðu höfund- arnir. „Hins vegar hefur giftingum fækkað, þannig að nú er einn hjónaskilnaður á hverjar tvær giftingar.“ U.þ.b. þriðja hvert barn sem fæðist er óskilgetið, en árið 1971 fæddist eitt af hveijum tíu börnum utan hjónabands. Harðar sprengjuárásir á vígi Tsjets.íena í úthverfum Grosníborgar Búa sig undir stórsókn Rússa Saksóknarar í Simpson- málinu gagnrýndir JOHNNIE Cochran, aðalverjandi O.J. Simpsons, sagði í gær að lög- reglumenn og saksóknarar hefðu sniðgengið mikilvæg vitni sem hefðu getað sannað sakleysi íþrótta- og sjónvarpshetjunnar. Cochran sagði að vitni hefði séð fjóra menn hlaupa frá húsi þar sem fyrrverandi eiginkona Simp- sons, Nicole Brown Simpson, og vinur hennar, Ronald Goldman, voru myrt 12. júní. Vitnið hefði haft samband við lögregluna og saksóknara en þeir hefðu ekki viljað hlusta á það. Annað vitni hefði reynt að ná tali af embættismanni saksókn- araembættisins en hann hefði ver- ið upptekinn við að ræða við miðil. „Þetta mál snýst um það að menn voru of fljótir að dæma og voru helteknir af því að sigra hvað sem það kostaði," sagði Cochran, sem fór einnig fögrum orðum um sakborninginn sem heiðarlegan og umburðarlyndan mann sem hefði fyrirgefið konu sinni framhjáhöld. Hann vitnaði óspart í menn eins og Martin Luther King, Abraham Lincoln og Cíceró. Grosní, Moskvu. Reuter. RÚSSNESKAR hersveitir gerðu í gær harðar sprengjuárásir á vígi Tsjetsjena í úthverfum Grosní, höf- uðstaðar Tsjetsjníju, og tsjetsjensk- ir hermenn sögðu að Rússar væru að undirbúa stórsókn til að hrekja uppreisnarherinn í burtu. „Pavel Gratsjov [varnarmála- ráðherra Rússlands] sagði í gær að borgin væri að mestu á valdi Rússa og andstaðan væri aðeins á nokkrum svæðum," sagði tsjetsj- enskur hermaður og glotti. „Dæmi- gert. Við ætlum að sýna honum núna hvernig ástandið er í raun og veru.“ „Við búumst við mikilli sókn núna með skriðdrekum og her- mönnum til að flæma okkur á brott,“ sagði annar Tsjetsjeni í her uppreisnarhéraðsins. „Hver okkar getur ráðist á að minnsta kosti einn skriðdreka. Jafnvel þótt við þurfum að henda okkur undir þá. Við heyj- um núna heilagt stríð.“ Tvær rússneskar þyrlur voru skotnar niður í grennd við Grosní í gær og allir í áhöfnunum, sex manns, biðu bana. Gratsjov lofsamaður Öryggisráð Rússlands kom sam- an í Moskvu undir forystu Borísar Jeltsíns forseta og fór lofsamlegum orðum um framgöngu Gratsjovs í Tsjetsjníju-málinu. Ráðið sam- þykkti einnig að færa stjóm hern- aðaraðgerðanna í Tsjetsjníju frá hernum til innanríkisráðuneytisins, sem endurspeglar það mat ráðsins að herinn hafi lokið ætlunarverki sínu. /níerfax-fréttastofan hafði eftir Gratsjov að hann hygðist víkja sex eða sjö hershöfðingjum frá fyrir að neita að taka þátt í hernaðaraðgerð- Reuter TSJETSJENSKIR flóttamenn á troðfullum vörubíl á leið frá Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju. Um 10.000 óbreyttir borgarar eru enn í Grosní og ráðgert er að flytja a.m.k. helminginn á brott. unum í Tsjetsjníju. Eina nafnið sem hann nefndi var Edúard Vorobev, næstæðsti yfirmaður rússnesku hersveitanna í héraðinu. Fréttastofan Izvestía sagði að ráðgjafar Jeltsíns væm að undirbúa stofnun þjóðvarðliðs sem yrði undir beinni stjórn forsetans. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður þjóðvarðliðið „tæki í baráttunni um pólitísk völd“ og „vopnuð stoð hins pólitíska leiðtoga ríkisins". Liðið á að vera tiltölulega fámenn úrvals- sveit og því verður aðallega falið að fást við innanríkisvandamál, að sögn fréttastofunnar. ísraelar ákveða að reisa hundruð húsa í óhökk PLO Jerúsalem, Amman. Reuter. Reuter Morðárás í Moskvu Moskvu. Reuter. LÆKNAR í Moskvu reyndu í gær að bjarga lífi Georgys Karkarashvil- is, fyrrverandi varnarmálaráðherra Georgíu, en skotið var á hann og fylgdarmann hans af vélbyssu úr launsátri í borginni í gærmorgun. Karkarashvili, sem varð að láta af embætti er honum mistókst að bijóta á bak aftur uppreisn Abk- haza í Georgíu, sótti námskeið hjá rússneska herráðinu. Fylgdarmað- urinn, Paata Datuashvili, lést í árás- inni, hann var staðgengill Karka- rashvilis á ráðherraárunum. Ofbeldisárásir gegn stjórnmála- mönnum Georgiumanna hafa verið tíðar og í desember var einn af helstu stjórnarandstöðuleiðtogun- um, Gia Chanturia, myrtur. Eigin- kona hans, Irina, sem einnig er stjórnmálamaður, særðist illa. Sjónvarpsbanni aflétt Dómarinn, Lance Ito, aflétti í gær banni við beinum sjónvarps- útsendingum frá réttarhöldunum eftir að sjónvarpsstöð baðst af- sökunar á þeim mistökum að sýna andlit varamanns í kviðdómnum. Dómarinn hafði gefið fyrirmæli um að ekki mætti sýna kviðdóm- arana. Myndin er af verjendum Simp- sons á leið í dómsalinn, umkringd- um fjölda fjölmiðlamanna. NEFND ísraelskra ráðherra ákvað í gær að heim- ila smiði hundraða nýrra íbúðarhúsa á Vest- urbakka Jórdanar þrátt fyrir harða andstöðu Frels- issamtaka Palestínumanna (PLO). Nefndin ákvað þó að hægja á sölu íbúðanna til að freista þess að hindra að friðarviðræðumar við Palestinumenn sigldu í strand vegna deilunnar. Abraham Shohat, fjármálaráðherra ísraels, viðurkenndi að stjóm Yitzhaks Rabins væri nú að heimila þrefalt örari byggingarframkvæmdir í þágu gyðinga á hemumdu svæðunum en stjórn Likudflokksins. Þegar fréttamenn spurðu Shohat hvernig stjórnin hygðist útskýra áform hennar um frekara landnám fyrir Palestínumönnum svaraði hann: „Við ætlum að útskýra það.“ Binyamin Ben-Eliezer húsnæðismálaráðherra sagði að 800 íbúðir, sem þegar hafa verið reistar í Maale Adumim nálægt Jerúsalem, yrðu seldar. Ennfremur yrði hafist handa við byggingu 1.080 íbúða til viðbótar, en aðeins 500 þeirra yrðu seldar í ár. Nefndin ákvað ennfremur að heimila sölu á 350 íbúðum sem þegar hafa verið smíðaðar í Givat Zeev, norður af Jerúsalem, og að allt að 800 ný hús yrðu reist þar. Palestínumenn höfðu krafist þess að bygging- arframkvæmdum yrði hætt, einkum í „Stór-Jerú- salem" eins og fsraelar hafa kallað svæðið. Þar er m.a. Austur-Jerúsalem, sem Palestínumenn vilja gera að höfuðborg framtíðarríkis síns. Arafat mótmælir Flokkur heittrúaðra gyðinga, Shas-flokkurinn, hafði hótað að ganga til samstarfs við Likud-flokk- inn ef dregið yrði verulega úr frekara landnámi. Til að friða flokkinn samþykkti ráðherranefndin sölu á 1.000 íbúðum í Betar í grennd við Jerúsal- em þar sem Shas nýtur mikils fylgis. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, sem var í heim- sókn í Jórdaníu, sagði að áform ísraela væru brot á samkomulagi þeirra við PLO um að hætta við frekara landnám gyðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.