Morgunblaðið - 26.01.1995, Page 7
J
MOPGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. JANUAR 1995
FRETTIR
>
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Svamlað í skammdegissól
SÍÚ þegar svartasta skammdegið er að baki og sól strákar vildu ekki láta sitt eftir liggja og skelltu
isekkar á lofti þykir sjálfsagt að nota hveija stund sér í laugarnar þar sem þeir nutu þess til hins
iem gefst til útiveru af einhveiju tagi. Þessir hressu ýtrasta að svamla í skammdegissólinni.
Þorlákur Helgason
Framboð
Þjóðvaka
of þröngt
ÞORLÁKUR Helgason, annar oddviti
Jafnaðarmannafélags íslands, hefur
dregið sig út úr undirbúningi fram-
boðs Þjóðvaka fyrir alþingiskosning-
amar þar sem hann telur framboðið
of þröngt pólitískt séð.
Félagið lýsti í mánuðinum stuðn-
ingi við Þjóðvaka. Þorlákur tók þátt
í starfi flokksins og segist styðja
hann áfram. Hins vegar hafí undir-
búningur framboðsins ekki orðið eins
og hann ætlaði: „Ég leit svo á að
þetta væri kall um samstarf vinstri
manna og liður í því að byggja upp
stóran jafnaðarmannaflokk. Við í
Jafnaðarmannafélaginu lögðum til
meiri opnun á framboðinu og vildum
fara djarfar fram, en urðum undir.“
Morgunblaðinu er kunnugt um að
Þorlákur hafi kannað möguleika á
að taka sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík. Hann vildi ekki
segja annað um það en að hann hefði
rætt við Alþýðubandalagið eins og
aðra í því augnamiði að stuðla að
sameiningu vinstrimanna.
í RÚMFATALAGERNUM!
„Boxdýna“
með krómgafli
Talsverður árangur af aðhaldsaðgerðum utanríkisráðuneytis
Utgjöld innan fjárheimilda
3RIPIÐ hefur verið til aðgerða til að draga úr
ítgjöldum og auka sértekjur utanríkisráðu-
neytisins undanfarin ár með því að fara ofan í
saumana á starfsemi þess og stofnana sem und-
ir það heyra.
I fréttatilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram
ið útgjöld yfirstjórnar ráðuneytisins hafi verið
5,5 milljónum króna innan fjárheimilda 1992,
24,6 m.kr. innan fjárheimilda 1992 og 20,4 m.kr.
innan fjárheimilda 1993. Útgjöld sendiráða og
fastanefnda hafi verið 33,3 m.kr. innan fjárheim-
ilda 1991, 6,8 m.kr. innan fjárheimilda 1992 og
4,9 m.kr. innan fjárheimilda 1993.
Útgjöld lækkuðu um 45%
Utanríkisráðuneytið bað nýverið Ríkisendur-
skoðun um stjómsýsluendurskoðun á embætti
sýslumanns á Keflavíkurflugvelli í þeim tilgangi
að meta árangur af aðhaldsaðgerðum ráðuneytis-
ins. Meginniðurstaða Ríkisendurskoðunar er að
vel hafi til tekist að bæta fjárhagslegan rekstur
embættisins á síðustu^ ámm með aðhalds- og
sparnaðaraðgerðum. Útgjöld ríkissjóðs vegna
embættis sýslumanns á Keflavíkurflugvelli lækk-
uðu að raungildi um 45% frá 1988 til 1993. Ríkis-
endurskoðun hefur hins vegar bent á að gengið
hafi verið of nálægt embættinu með kröfum um
sparnað á árinu 1994.
Gjöld embættis sýslumanns á Keflavíkurflug-
velli árið 1988 voru nettó rúmlega 305 m.kr.,
fjárheimildir voru rúmlega 271 m.kr. og halli því
tæplega 34 m.kr. Árið 1993 vom nettó útgjöld
tæplega 169 m.kr., fjárheimildir rúmlega 163
m.kr. og halli því aðeins tæplega 5,5 m.kr. Árleg
útgjöld sýslumannsembættisins á Keflavíkurflug-
velli hafa því verið lækkuð um sem nemur tæp-
lega 137 m.kr. á tímabilinu 1988-1993.
Farið yfir tillögur
Ríkisendurskoðun leggur m.a. til að gerðar
verði úrbætur í gæslu í hliðum inn á vallarsvæð-
ið og í flugstöð, auk vinnuhagræðingar á skrif-
stofu sýslumanns og milli lögregluþjóna og toll-
varða. Varnarmálaskrifstofa mun á næstunni fara
yfir tillögur Ríkisendurskoðunar í samráði við
embætti sýslusmanns á Keflavíkurflugvelli í þeim
tilgangi að tryggja áfram skilvirkan rekstur emb-
ættisins án þess að draga úr þeim árangri sem
náðst hefur með aðhaldsaðgerðum utanríkisráðu-
neytisins, segir í frétt ráðuneytisins.
ÚTSALAN ER HAFIN..
Opið: Mán. - fös. kl. 9-18,
lau. kl. 10-16.
AXIS
AXIS HÚSGÖGN HF. • SMIÐJUVEGI9» 200 KÓPAVOGUR* SÍMI 554 3500
90 cm x 200 cm 19.900 kP
120 cm X 200 cm 29.900 kP
140 cm x 200 cm 32.900 kP
5
c*
Furuhúsgögn
15% afsláttur
Kommóða
hvít
2.990 kr.
«P it
Sæng og koddi
1 sett
1.990 kr.
2 sett
2.990 kr.
/
ALNAVARA
Áður allt að 399 kr/m
Nú á stórlækkuðu verði:
99 kr/m
UlSatsláttr
af allri álnavöru sem
ekki er á útsölu!
"W RÚMFATA-
LAGERINN
9 HoKagVOum Skolunni 13 Rey^arvfcurvagi 72 NorðurUnaa3Í
| Reykjavik RoyN-iv*. Haírwtifði Akureyn I