Morgunblaðið - 14.03.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995 19
Borgarplast fær gæðavottun
Borgarnesi.
Storebrand
með minni
hagnað ’94
Ósló. Reuter.
HAGNAÐUR UNI Storebrand,
stærsta tryggingafélags Noregs,
snarminnkaði í fyrra, en markaðs-
hlutdeild jókst.
Hagnaðurinn nam 522 milljónum
norskra króna samanborið við 1.40
milljarða 1993. Sérfræðingar höfðu
spáð 312 milljóna króna hagnaði.
„Versnandi afkoma 1994 saman-
borið við metárið 1993 stafaði ein-
göngu af verulega minni tekjum
vegna óróa á fjármagnsmörkuðum
og vaxtasveiflna,“ sagði í yfirlýsingu
frá UNI. Rekstrarhagnaður af líf-
tryggingum minnkaði um 3.49 millj-
arða króna í 1.92 milljarða að sögn
UNI. Hagnaður af öðrum trygging-
um nam 712 milljónum króna sam-
anborið við 1.16 milljarða 1993.
----------» ♦ ♦-----
AGA bætir
afkomuna
Stokkhólmi.
AFKOMA sænska gasfyrirtækisins
AGA á síðasta ársfjórðungi í fyrra
var sú bezta í sögu þess að sögn
Dagens Nyheder. Hagnaður á árinu
í heild fór 100 millj. s.kr. fram úr því
sem spáð hafði verið.
Verð á hlutabréfum í AGA hækk-
aði um 4 s.kr. í 78,50 þegar ársreikn-
ingar voru birtir.
Hagnaðurinn á árinu jókst um 27%
í 1.725 milljarða s.kr úr 1.348 s.kr.
árið á undan. Velta jókst í 12.544
milljarðar s.kr. úr 11.385 milljörðum
1993.
Nýlega ákvað AGA að reisa nýja
loftgasverksmiðju í Avesta. Kostn-
aður er áætlaður 350-400 milljónir
s.kr. og talið er að verkinu ljúki fyrir
lok næsta árs.
Sala AGA hefur aukizt á öllum
mörkuðum. Eftirspurn jókst einkum
í Þýzkalandi síðari hluta árs. Staðan
í Bandaríkjunum er í meira jafnvægi
og umsvifín í Brasilíu hafa aukizt.
----------»-■»-♦----
Verslunarráð
Pólitísk
umgerð at-
vinnulífs
SEINNI mörgunverðarfundur Versl-
unarráðs íslands með foringjum
stjómmálaflokka og framboða fyrir
kosningar til Alþingis verður haldinn
á morgun, miðvikudag, kl. 8-9.30 í
Átthagasal Hótel Sögu.
Á fundinn mæta Friðrik Sophus-
son, varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og Kristín Ást-
geirsdóttir, talsmaður Kvennalistans.
Þau munu kynna afstöðu til íslensks
atvinnulífs, pólitískrar umgerðar og
stöðu þess í alþjóðlegu samhengi, að
því að segir í frétt frá Verslunarráði.
----------» ♦ ♦-----
Nýr eigandi
afsláttar-
klúbbs
MARKAÐSSKRIFSTOFAN Upp-
mark sf. hefur tekið við rekstri Is-
landsdeildar World for 2 afsláttar-
klúbbsins af Pétri Jóhannessyni, sem
hefur rekið klúbbinn hér í 5 ár.
World for 2 starfar í um 30 löndum
um allan heim og klúbbfélögum býðst
að koma á veitingastaði, panta máltíð
fyrir tvo en greiða aðeins fyrir aðra,
segir í frétt frá Uppmarki. Fyrirtækið
hefur ráðið Jónínu Pálsdóttur sem
sölu- og_ þjónustustjóra fyrir World
for 2 á íslandi. Eigendur Uppmarks
hafa í þijú ár rekið Einkaklúbbinn,
sem er að sögn fyrirtækisins stærsti
afsláttarklúbburinn hérlendis.
NÝVERIÐ hlaut fyrirtækið Bor-
garplast hf. í Borgarnesi gæða-
vottun samkvæmt ISO staðli 9001.
Það eru ellefu fyrirtæki á landinu
sem hafa hlotið samskonar vottun
og þar af aðeins tvö á Vesturlandi
þ.e. Borgarplast í Borgamesi og
Islenska járnblendifélagið á
Grundartanga, hin fyrirtækin eru
á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Aðspurður sagði Ómar örn
Ragnarsson, deildarstjóri hjá Bor-
garplasti hf. í Borgarnesi, að vott-
unin fælist í því að gæðakerfí
fyrirtækisins hefði verið tekið út
af óháðum aðila og borið saman
við sérstaka gæðastaðla. Gæða-
kerfið hefði staðist samanburðinn
við gæðastaðlana og þannig hefði
fyrirtækið fengið vottunina. Sagði
Omar að gæðakerfi Borgarplasts
skiptist í 20 kafla, sem tækju til
allrar starfsemi fyrirtækisins.
Fylgst væri með gæðum hrá-
efna og framleíðsluvörunum á
meðan verið væri að framleiða
þær. Einnig væri framleiðsluferlið
sjálft skoðað. Lokaskoðun færi síð-
an fram áður en varan væri áf-
hent. Sagði Omar að lögð væri
sérstök áhersla á þjálfun starfs-
manna og gerðar væru þjálfunará-
ætlanir sem miðuðu að því að
starfsmennirnir gætu unnið sem
flest störf hjá fyrirtækinu.
Sagði Ómar örn að Einar Ragn-
ar Sigurðsson, starfsmaður hjá
Ráðgarði, hefði séð um uppsetn-
ingu gæðakerfisins hjá Borgar-
plasti. Um úttektina hefðu séð
Kjartan Kárason frá Vottun hf.
ásamt Freygarði Þorsteinssyni,
sérfræðingi frá Iðntæknistofnun.
Verksmiðja Borgarplasts í
Borgarnesi hóf starfsemi fyrir
rúmum 20 árum. í fyrstu var
framleitt þar einangrunarplast til
húsaeinangrunar en fyrir nokkrum
árum hóf fyrirtækið framleiðslu
frauðplasteinangrunarkassa, sem
fyrst og fremst hafa verið notaðir
við pökkun á ferskfiski sem fluttur
er út með flugvélum. Þessir kassar
eru einnig notaðir undir ígulker.
Helstu viðskiptavinir Borgarplasts
á þessum markaði eru laxeldis-
stöðvar, hafbeitarstöðvar, fisk-
vinnslustöðvar og fisk- og ígul-
keij aútflytjendur.
ISLENSKI MARKAÐSDAGURINN
Námsstefna um
samvinnu auglýsenda
og auglýsingastofa
í Borgarleikhúsinu föstudaginn 17. mars kl. 10:00 -15:10
Aðalgestur námsstefnunnar er Chris Clark, Group Director hjá
auglýsingastofunni SAATCHI & SAATCHI í London.
Á námsstefnu íslenska markaösklúbbsins veröur fjallaö á lýsandi og faglegan hátt um þetta
málefni frá sjónarmiðum beggja aðila og skoöaö hvernig samvinna þeirra getur best oröiö,
báöum aðilum til hagsbóta.
1
Dagskrá:
10:00-10:05 Bogi Þór Siguroddsson, formaður ÍMARK, setur námsstefnuna
10:05-11:00 Chris Clark. SAATCHi & SAATCHi
11:00-11:10 Fyrirspurnir og umræður
11:10-11:30 Kaffihlé
11:30-12:00 Hailur A. Baldursson. Yddu
12:00-12:30 Hilniar Sigurðsson. Grafít
12:30-13:00 Léttur hádegisveröur
13:00-13:30 Ingólfur Guðmundsson, Landsbanka íslands
13:30-14:00 Bjarni Snæbjörn Jónsson, Skeljungi
14:00-14:10 Kaffihlé
14:10-14:40 Magnús Pálsson. Markmiöi
14:40-15:10 Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara
15:10 Námsstefnuslit
Þátttökugjald og skráning
Þátttökugjald fyrir félaga í ÍMARK er kr. 8.500, en kr. 10.500 fyrir aöra. Innlfaliö er léttur hádegisveröur, kafflveitingar og
námsstefnugögn. Þátttökugjald má greiöa meö VISA eöa EURO. Skilyröi fyrir því aö fá aðgöngumiða á félagsverði ÍMARK
er aö viökomandi hafi greitt félagsgjöld.
Skráning fer fram á skrlfstofu ÍMARK í síma 568 0945. Einnig má tilkynna þátttöku í faxi 568 0965. Tilkynnið þátttöku
sem allra fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður.
Munið verölaunaafhendinguna fyrir ATHYGLISVERÐUSTU AUGLÝSINGU ÁRSINS 1994 I aðalsal Borgarleikhússins sem hefst kl. 15:30
og sýninguna í anddyri leikhússins. Aðgangur ókeypis.
tMARK