Morgunblaðið - 14.03.1995, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ESAB
Allt til rafsuðu
ESAB
RAFSUÐUTÆKI
ESAB
FYLGIHLUTIR
ESAB
RAFSUÐUVÍR
ESAB
Forysta ESflB
er trygging fyrir gæðum t
og góðri þjónustu.
= HÉÐINN =
V E R S L U N
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
Blab allra landsmanna!
JH0r0tmí>Iat>ií>
-kjarni málsins!
Anandjafnaði
SKAK
Las Palmas,
Kanarícyjum
12 SKÁKA EINVÍGI UM
ÁSKORUNARRÉTTINN
Á KASPAROV
9. — 23. mars
INDVERJANUM Anand hefur
tekist að jafna metin í einvíginu
við Gata Kamsky með því að vinna
þriðju skákina sem tefld var á
laugardaginn. Anand fór illa að
ráði sínu í fyrstu skák einvígisins
þegar hann féll á tíma með væn-
lega stöðu. Hann hafði síðan svart
í næstu skák og hélt þá örugglega
jafntefli.
Þriðja skákin var gífurlega
spennandi. Hún fór rólega af stað
en í 17. leik tók Kamsky af skar-
ið og blés til sóknar á kóngs-
væng. Hann fórnaði síðan peði
og lagði allt undir þegar hann lét
annað af hendi í viðbót til að auka
sóknarþungann.
Það má deila um það hvort
Anand hafi varist rétt, en hvað
sem því líður þá komst hann út
úr flækjunum með góða stöðu í
35. leik. Hann náði síðan hættu-
legu frípeði á b línunni án þess
að Kamsky næði nægjanlegu
mótspili.
Þetta var stórskemmtileg bar-
áttuskák sem lofar góðu um fram-
haldið. Anand hefur teflt mun
betur en Kamsky í einvíginu, en
eigin taugar eru hans hættuleg-
asti andstæðingur. Hvöss tafl-
mennska Kamskys með svörtu
kemur talsvert á óvart, en það
er einmitt slíkur skákstíll sem
fært hefur honum hvem sigurinn
á fætur öðrum í einvígjum gegn
þeim Kramnik, Anand, Short og
Salov upp á síðkastið. Það er
styrkleiki Kamskys að hann er
ávallt sallarólegur við borðið sama
hve staðan er flókin.
3. einvígisskákin:
Hvitt: Anand
Svart: Kamsky
Spænski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - b5
í fyrstu skákinni lék Kamsky
5. — Be7, sem er algengara en
Arkhangelsk afbrigðið sem hann
velur nú.
6. Bb3 - Bb7 7. Hel - Bc5 8.
c3 - d6 9. d4 - Bb6 10. Be3 -
0-0 11. Rbd2 - h6 12. h3 -
Db8!?
Nýjung. í einvígi sínu við Nigel
Short sl. haust lék Kamsky 12. —
Rd7 og hafði sigur um síðir.
13. d5 - Re7 14. Bxb6 - cxb6
15. Bc2 - Rd7 16. Rh4 - Dd8
17. Rfl - g5!?
Eftir rólega
byrjun blæs Kam-
sky til atlögu á
kóngsvæng.
18. Rf3 - f5 19.
exf5 - Rxf5 20.
R3h2 - Df6 21.
Rg4 - Dg7 22.
Rfe3 — Rxe3 23.
Rxe3 — Hf4 24.
a4! - Haf8?!
Fómar peði til
að forðast upp-
skipti eftir 24. —
bxa4 25. Hxa4.
25. axb5 — a5 26.
Hfl - Bc8 27.
g3 - H4f7 28. b4
- e4!?
Kamsky hefur
ekki tekist að skapa sér nein
gagnfæri fyrir peðið og fórnar
öðm til að koma riddaranum í
sóknina.
■ b c d • I g h
29. Bxe4 — Re5 30. Bg2
Varlega teflt. Til greina kom
að freista þess að halda í bæði
peðin og leika 30. Dh5. Nú hefði
Kamsky átt að halda línunni lok-
aðri í bili og leika strax 30. —
Rf3+! Það hefði hindrað 33. leik
Anands.
30. — axb4 31. cxb4 — Rf3+ 32.
Bxf3
Anand stefnir leynt og ljóst
að einföldunum og er sáttur við
að láta annað peðið af hendi.
32. - Hxf3 33. Ha8! - Bxh3
34. Dxf3 - Hxa8 35. Hcl
Línurnar hafa skýrst. Anand
hefur dregið tennumar úr svörtu
sókninni og stendur mun betur
að vígi, ekki síst vegna þess að
hann hefur betri kóngsstöðu.
35. - Hf8 36. De2 - Bd7 37.
Hc7 - Hf7 38. Hb7 - Dal+ 39.
Rfl - Kg7
Svarar hótuninni 40. Hxd7.
Eftir 39. - Da8 40. Hxb6 -
Dxd5 41. Dd2! er svartur í miklum
vanda.
40. Hxb6 - Dd4 41. Hb8 -
Dxb4 42. Re3 - h5!? Það er
ekki að sjá að svartur eigi neitt
viðunandi mótspil fyrir peðið.
Kamsky leggur nú gildm fyrir
hvít sem má ekki leika 43. Dxh5?
- Del+ 44. Kh2 - Hxf2+ 45.
Rg2 — Hxg2+ 46.Kxg2 — Dd2+
og svartur þráskákar.
43. b6! - h4 44. g4 - Bb5 45.
Ddl - Db2 46. Rf5+ - Hxf5
Nú er svarta staðan gertöpuð,
en eftir 46. — Kh7 47. Dd4 lend-
ir hann í vonlausu endatafli.
47. gxf5 - Be2 48. Da4 - Bf3
49. Dd7+
49. f6+! var einfaldasta vinn-
ingsleiðin.
49.- Kh6 50. De6+ - Kh5 51.
De8+ - Kg4 52. Del - Bxd5
53. He8 - Bf3
53. — Dd4! hefði valdið hvíti
meiri erfíðleikum í úrvinnslunni.
54. f6 - Kh5 55. f7 - Dd4
Síðasta máthótunin.
56. He4! - Df6 57. b7 - Bxe4
58. Dxe4 og svartur gafst upp.
Stórmótið í Linares
Efstu menn á Linaresmótinu
unnu allir sínar skákir í áttundu
umferð. Karpov vann Lautier,
ívantsjúk vann Ljubojevic og
Topalov vann Beljavskí. Önnur
úrslit: Short—Tivjakov 0—1,
Sokolov—Drejev Vi,
Khalifman—Shirov V2,
Illescas—Akopjan Vi og I.
Sokolov—Dreev Vi. Staðan:
1—3. Karpov, ívantsjúk og
Topalov 6 v. 4. Shirov 5 v.
5—7. Beljavskí, Tivjakov og
Khalifman 4V2 v. 8. Drejev 4
v. 9. Illescas 3*/2 v. 10. Short 3
v. 11—12. Ljubojevic og I.
Sokolov 2Vi v. 13—14. Akopjan
og Lautier 2 v.
Skákkeppni
framhaldsskóla
Tíu sveitir tóku þátt og tefldi
hver sveit við allar hinar, níu
umferðir. Umhugsunartíminn
var 40 mínútur á skákina.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
sigraði með töluverðum
yfirburðum. Úrslit urðu þessi:
1. Menntaskólinn við
Hamrahlíð, A sv. 33 v.
2. Verzlunarskóli íslands
28Vi v.
3. Menntaskólinn á Akureyri
26 v.
4. Menntaskólinn í Reykjavík,
A sv. 25VÍ v.
5. Menntaskólinn við
Hamrahlíð, B sv. 17 v.
6. Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti I6V2 v.
7. Menntaskólinn i Reykjavík,
B sv. IOV2 v.
8. Framhaldsskólinn í
Reykholti 9 v.
9. Iðnskólinn í Reykjavík 8 v.
10. Menntaskólinn í
, Reykjavík, C sveit 6 v.
íslandsmeistarar Mennta-
skólans í Reykjavík voru Arnar
E. Gunnarsson (8 v. af 9), Páll
Agnar Þórarinsson (7‘/2 af 8),
Torfí Leósson (7V2 af 9),
Kjartan Ásgeir Maack (8 v. af
8) og Atli Antonsson (2 v. af
2). Hamrahlíðarsveitin vann sér
þátttökurétt á Norðurlandamóti
framhaldsskóla sem fram fer í
Noregi næsta haust.
Margeir Pétursson
Anand teflir betur, en óvíst að það dugi.
skólar/námskeið
myndmennt
■ Keramiknámskeið
Ný námskeió í keramik fyrir byrjendur
eru að hefjast á Hulduhólum,
Mosfellsbæ.
Upplýsingar 1 síma 666194.
Steinunn Marteinsdóttir.
■ Málun - myndlist
Málunamámskeið byrjenda. Undirstaða
olía og vatnslitir. Laus örfá sæti framhalds-
nemenda. Uppl. eftir kl. 13 alla daga.
Rúna Gísladóttir, sími 561 1525.
tölvur
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
■ Tölvuskóli 1 fararbroddi
öll hagnýt töivunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1.
- Word fyrir Windows og
Macintosh.
- WordPerfect fyrir Windows.
- Excel fyrir Windows og
Macintosh.
- PageMaker fyrir Windows/
Macintosh.
- Paradox fyrir Windows.
- Tölvubókhald.
- Novell námskeið fyrir netstjóra.
- Word og Excel framhaldsnámskeið.
- Bamanám.
- Unglinganám.
- Windows forritun.
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upptýsingar og skráning
1' sfma 616699.
rSfe Toluuskóli Reykíavíkur
Borgartúni 28, sími 616699
ýmislegt
■ Lærið véfritun
Vélritun er undirstaða tölvuvinnslu.
Kennum blindskrift og almennar uppsetn-
ingar. Ný námskeið byrja 13. mars.
Innritun í súnum 28040 og 36112.
Vélritunarskólinn,
Ánanaustum 15.
■ Námsaðstoð
fyrir nemendur í grunnskólum
í fslensku, stærðfræði, ensku og dönsku.
Reyndur kennari sem býr í Garðabænum.
Hafið samband í síma 5658135.
■ PHOENIX námskeið - leiðin til
árangurs
verður haldið dagana 21., 22. og 23.
mars á Hótel Loftleiðum.
Nánari upplýsingar veitir yfirumsjónar-
maður og leiðbeinandi Brian Tracy nám-
skeiða á íslandi, Fanný Jónmundsdóttir,
í síma 5671703.
Klúbbfundur verður haldinn á Hótel Loft-
leióum mánudaginn 27. mars kl. 20.
Barnfóstrunámskeið
1995
1. 8., 9., 13. og 14. mars.
2. 15., 16., 20. og 21. mars.
3. 22., 23., 27. og 28. mars.
4. 29., 30. mars og 3. og 4. apríl.
5. 24., 25., 26. og 27. aprfl.
6. 3., 4., 8. og 9. maí.
7. 29., 30., 31. maí og 1. júní.
8. 7., 8., 12. og 13. júm.
Kennsluefni: Umönnun ungbarna
og skyndihjálp.
Upplýsingar/skráning:
Simi 688188 kl. 8-16.
Reykjavíkurdeild RKÍ.
tungumál
ENSKUSKÓLINN
Túngötu 5.
*
Hin vinsælu 7 og 10 vikna ensku-
námskeið eru að hefjast.
★ Áhersla á talmál.
★ 10 neniendur hámark í bekk.
★ 10 kunnáttustig.
Einnig er í boði:
Viðskiptaenska, rituð enska, ^tmræðu-
hópar, TOEFL-undirbúningur, stuðn-
ingskennsla fyrir unglinga og enska fyr-
ir börn 4-12 ára.
★ Enskir, sérmenntaðir kennarar.
★ Markviss kennsla í vinalegu
umhverfi.
Hafðu samband og fáðu frekari
upplýsingar í síma 25900.
■ Enskunám í Englandi
Góð reynsla, gott verð. Undirbúnings-
námskeið í boöi.
Upplýsingar gefur Erla Ara-
dóttir, sími 565 0056.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Upplýsingar í síma 17356.