Morgunblaðið - 31.03.1995, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 31.03.1995, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Morgunblaðið/Snorri Snorrason Lengsta skip flotans Sæplast á Dalvík Seldu 900 fiski- ker á sýningu í Skotlandi AKUREYRIN EA 110 er nú lengsta íslenzka fiskiskipið, 72 metrar, ef frá eru talin skip á b-skráningu. Miklar endurbætur voru gerðar á skipinu í Póllandi og er það nýkomið heim eftir þær. Auk lengingarinnar, var millidekk hækkað upp, skutur breikkaður og endurnýjaður, mót- taka stækkuð og klædd innan með stáli og nýr toggálgi settur á skip- ið, sem nú getur dregið tvö troll í einu. Þá voru togvindur og grandaravindur endumýjaðar. Vistarverur skipverja vom stækk- ar fyrir framanb brú, en þar er setustofa og aðstaða til líkams- ræktar. Þá var afl ^ðalvélar einn- ig aukið. Nú er unnið að breyting- um og niðursetningu vinnsluvéla á millideki og er áætlað að Akur- eyrin haldi tii veiða í lok næstu viku. Akureyrin, sem áður hét Guðsteinn, var upphaflega smíðuð í Póllandi 1974 og var 53 metrar á lengd fyrir lengingu. Akureyrin er einn af fyrstu frystitogumm landsmanna og hefur verið eitt aflasælasta skip íslenzka flotans. SÆPLAST hf. á Dalvík samdi um sölu á 900 fiskkerum á alþjóðlegri sjávarútvegssýningu í Aberdeen í Skotlandi nú í mánuðinum og fyrir liggja fyrirspumir um annað eins magn. Sæplast hefur selt til Skot- lands í nokkur ár, að sögn Krist- jáns Aðalsteinssonar fram- kvæmdastjóra, en ekki áður náð þeim árangri að ganga frá stórum samningum á sýningu. Kristján sagði að Sæplast hefði byijað að taka þátt í sýningum í Skotlandi árið 1988 og sú vinna sem fyrirtækið hefði sett í mark- aðssetningu þar væri nú að skila sér. í fyrra seldi Sæplast 1.000 ker til Skotlands fyrir um 15 millj- ónir króna, en útlit er fyrir að sal- an tvöfaldist í ár. Sýningin í Aberdeen er árleg útgerðarsýning og sagði Kristján að um tveir þriðju hlutar sölunnar væru til skipa en afgangurinn til fiskvinnslufyrirtækja. Langstærsti einstaki markaður Sæplasts fyrir fiskiker er í Danmörku en Skotland og eyjamar þar í kring era einnig mikilvægur markaður ásamt Hol- landi og Frakklandi. Iceland Seafood Corporation: Kynntu fimm nýjar fiskaf- urðir í Boston ICELAND Seafood Corporation, dótturfyrirtæki íslenzkra sjávaraf- urða í Bandaríkjunum er um þessar mundir að kynna 5 nýjar fiskaf- urðir á markaðnum vestan hafs. Sjávarafurðasýningin Boston Sea- food Show var meðal annars notuð til þessarar vörakynningar, en á sýningunni brögðuðu um 4.000 manns á fískinum frá Iceland Seafood. „Þetta er mjög góð sýning og nú var mikið um alvöru sýningargesti sem eru komnir til að leita að vöru til að verzla með,“ segir Elvar Ein- arsson, framkvæmda- stjóri innkaupasviðs sjávarfangs. „Við vor- um mjög ánægðir með þessa sýningu og þær undirtektir sem við fengum á vörurnar sem við vorum að kynna. Við kynntum 5 nýjar afurð- ir, en það eru „poppkom fiskur", smábitar í brauðmylsnum, sem eru síðan djúpsteiktir. Þá erum við með „Iceland Delight" sem er fiskur sem stefnt er inn á heil- brigðisgeiran síðan fisk- ur að suðrænum hætti fyrir þann markað sem notar vatnasteinbít þá vorum við með vöru sem heitir „Country Classics" sem er ætluð fyrir veitingahús og loks vorum við með for- grillaða ufsabita. Um það bil 4.000 manns smökkuðu hjá okkur og við fengum mjög góðar undirtektir og virðist töluvert af viðskiptum að vera að koma út úr því. Við eyðum töluverðum tíma til funda með kaupendum og seljendum víða að úr heiminum á þessum sýn- ingum. Kosturinn við þessar sýning- ar er sá að þar hittast nánast allir og mikið er um mikilvæga fundi. Margir starfsmanna okkar meira og Morgunblaðið/Stefanía HILMAR B. Jónsson, matreiðslumeistari, eldaði fyrir um 4.000 manns á sýningunni. minna fastir á fundum allan sýning- artímann. Okkur hefur gengið vel að selja afurðir okkar á föstunni, en okkur skortir ufsa til sölu. Við gætum selt mun meira af ufsa hefðum við hann og verð á honum hefur farið hækk- andi. Það er því orðið vænlegri kost- ur að framleiða ufsaflök á Bandarík- in en verið hefur að undanförnu," segir Elvar Einarsson. Aófara á morgunjundgefurgull í mundl Taktu laugardaginn sncmma og komdu á skemmtilegan morgunfund þar scm Geir og Lára Margrét ræða vítt og breitt um stöðuna í stjórnmádunum nú þegar vika er til kosninga. Stutt ávörp, skeleggar spurningar og snjöll svör. Fundurinnhefst kl. 10.30 ogstendurtil kl. 12. Allir velkomnir. Landsmálafélagið Vörður og Óðinn BETRA ÍSLAND
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.