Morgunblaðið - 31.03.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
leika, mun víðtækari upplýsingar
um ökutækin og er mun þjálla held-
ur en kerfi SKÝRR. Gögnin sem
geymd eru í ökutækjaskránni eru
opinber, en með því að tryggja jafn
háðu fyrirtæki og BSKI rekstur
skrárinnar og alla yfirumsjón er
aldrei komið í veg fyrir sam-
keppnislegar hindranir.
Óhagræði fyrir neytendur
Aðalskoðun hf. hefur verið bent
á það að flest það sem komið hefur
fram um yfiburðastöðu BSKÍ í
skjóli einkaleyfis hafi verið vitað
áður en fyrirtækið hóf starfsemi
og því hafi mátt taka tillit til þess.
Vissulega er það rétt og forsvars-
menn Aðalskoðunar hf. hafa alla
tíð gert sér grein fyrir mismunun-
inni og hagað uppbyggingu fyrir-
tækisins í samræmi við það og
áætlanir gengið eftir.
Neytendur eru sá hópur sem
hafði og hefur ekki fengið vitn-
eskju um það hvorki frá stjórnvöld-
um né BSKÍ að mörgum einkaleyf-
isþáttum sé ekki aflétt. Þetta hefur
verulegt óhagræði og kostnað í för
með sér fyrir alla sem að málinu
koma, því að neytendur eru al-
mennt vanir að geta fengið hjá
skoðunarfyrirtæki alla almenna
þjónustu er varðar skoðun og
skráningu ökutækja. Næsta skref
dómsmálaráðherra hlýtur að verða
það að finna leiðir til lausnar á því
að skoðunarfyrirtæki og viðskipta-
vinir þeirra þurfi ekki að vera jafn
háð BSKÍ og raun ber vitni.
Eitt af skilyrðum stjórnvalda
þegar skoðunarstofa hefur starf-
semi er að fyrirtækið skoði öku-
tæki á landsbyggðinni að ári í full-
nægjandi skoðunaraðstöðu. Á
þessu stigi er erfitt að gera sér
grein fyrir hvert viðskiptavinir Að-
alskoðunar hf. á landsbyggðinni
snúa sér á næsta ári þegar kemur
að þjónustu gagnvart einkaleyfis-
þáttum BSKI.
Aðferð til fyrirmyndar svo
fremi sem jöfn samkeppnis-
skilyrði séu tryggð
Undanfarin ár hefur verið mikil
þróun í meðferð lögboðins eftirlits
og prófana í Evrópu. Sú aðferð sem
ESB- og EFTA-ríki stefna nú að
hefur opnað leiðir til þess að aflétta
einkaleyfi ríkisstofnana og annarra
á sviði eftirlits. íslensk stjómvöld
hafa ákveðið að fara þessa leið á
hinum mismunandi sviðum eftirlits-
iðnaðarins.
Þessi leið tryggir að aldrei verður
um samkeppni að ræða gagnvart
öryggisþáttum skoðunarinnar því
að með faggildingu fyrirtækis sem
ætlar að hasla sér völl á þessu sviði
lýsir aðili á vegum stjórnvalda því
yfír, eftir yfirgripsmikla úttekt, að
fyrirtækið sé hæft til að fram-
kvæma verkið og skoðunin sé fram-
kvæmd af hlutlausum aðila.
Lögbundin öryggisskoðun á sér
langa hefð og sú aðferð stjórnvalda
að fela þjónustuna óháðum og hlut-
lausum skoðunarstofum, sem hafa
enga viðskiptalegra hagsmuna að
gæta gagnvart framkvæmd skoð-
ana, hlýtur að vera öllum neytend-
um til hagsbóta, svo fremi sem jöfn
samkeppnis- og þjónustuskilyrði
séu tryggð.
FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995 39
PHILCOiiIi
Heimilistæki hf
SÆTUN8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
PHILCO CBR 20
Alls 320 ltr.
Sjálfvirk afþýðing á kæli
-24° frysting
175,6 x 54 x 57,5 sm.
54.910
51.800 afb.verð
PHILCOIM
sem nær til 100
Pltilco kæliskápa
PHILCO AR 25
Alls 250 ltr.
Sjálfvirk afþýðing á kæli
-24° frysting
141,5 x 54 x 57,5 sm.
39.900«.
42.900 afb.verð
PHILCO AR 28
Alls 280 ltr.
Sjálfvirk afþýðing á kæli
-24° frysting
154 x 54 x 57,5 sm.
44.555stw.
46.900 afb.veið
Heill gámur
af sparnaði!
Nú gefst viðskiptavinum okkar kostur
á að gera reyfarakaup í PHILCO
kæliskápum á frábæru verði!
Athugið: TAKMARKAÐ MAGN
Nú er að hrökkva eða stökkva, því
fyrstur kemur, fyrstur fær.
Höfundur er s Ijórnarformaður
Aðalskoðunar hf.
I
wammmmmmmmmm
Af&og INTERNET
Við kynnum OS/2 Warp stýrikerfið og Internet þjónustu Nýherja í verslun okkar í Skaftahlíð 24
laugardaginn I. apríl á eftirfarandi tímum: OS/2 Warp kl. 12:10 og Internet kl. 11:10 og 13:10. Við
minnum einnig á námskeið tölvuskólans okkar um OS/2 Warp stýrikerfið og Internet.
Nánari upplýsingar um námskeiðin fást í símum 569 7769 og 569 7770.
JUM
ALLAN HEIM !
NANARI UPPLYSINGAR ERU A HEIMASIÐU NYHERJA: http://www.ibm.is/
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 - SÍMI 569 7700
Alltaf skrefi á undan