Morgunblaðið - 31.03.1995, Qupperneq 52
52 FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
/ ÉS HELP AP ÉG SBTJt RROSj l A AMPLITIP a jo'ni .' > . I | PIB copeffíagen
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
VES MAAM..I WASTOLD
TO SI6N UP FOR DANCE
LE550NS BECAUSE I NEED
TO 8E MORE OUT601N6..
Já, kennari ... mér var sagt
að innrita mig í dansskóla
af því ég þyrfti að vera fé-
lagslyndari.
Ef til vill verð ég ekki
eins einmana ef ég er
félagslyndari.
Já, þetta er hundurinn
minn, hann er mjög fé-
lagslyndur.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ráðsfundur ITC
Frá Guðlaugu Jónsdóttur:
ÞÚ ÁGÆTI lesandi staldrar ef til
vill við og spyrð: Hvað er ITC?
Leyfðu mér að segja frá þessum
samtökum!
ITC stendur fyrir International
Training in Communication, sem
ég leyfí mér að þýða á íslensku
Alþjóðleg þjálfunarsamtök. Þessi
félagasamtök hafa starfað á íslandi
síðan 1975 en voru upphaflega
stofnuð í Bandaríkjunum 1938.
Nú eru starfandi ITC-deildir víðs
vegar um heiminn og á íslandi eru
starfandi 18 deildir vítt og breitt
um landið.
Hvaða gagn má hafa af
því að vera í ITC?
ITC kennir aðilum sínum örugga
framkomu og gefur þeim tækifæri
til þess að æfa sig og læra í vinsam-
legu og skilningsríku umhverfi. ITC
hjálpar aðilum til að komast yfir
þá hræðslu sem velflestir hafa fund-
ið fyrir er þeir þurfa að tala fyrir
framan hóp af fólki.
Hvers konar leiðbeiningar
fást hjá ITC?
Hveijum aðila er í byijun séð
fyrir námsvísi er samanstendur af
handbók með ræðu, undirbúningi,
vinnubók og ýmsum leiðbeiningum.
Samskiptin við aðra aðila með svip-
uð markmið hjálpa þér að ná fram-
förum. Þar sem frammistaða þín
er metin, til þess þú að náir betri
tökum á framtíðarverkefni þínu.
Þú tekur framförum með þeim
hraða sem þér hentar. Mundu að
þeir sem nú standa í ræðustólnum
hafa eitt sinn bytjað með því skrefí
sem þú kannski hugleiðir nú að þú
ættir að taka.
Hvernig starfar ITC?
ITC starfar í deildum og hámark
í hverri deild er 30 einstaklingar,
svo hver og einn njóti þeirrar þjálf-
unar sem boðið er upp á. Bæði
konur og karlar geta gerst aðilar.
Fundir í ITC eru haldnir tvisvar í
mánuði frá september fram í maí
og stendur hver fundur í allt að tvo
tíma.
Hvernig fara fundirnir fram?
Efni fundanna er margvíslegt og
engir tveir fundir eru eins þó upp-
bygging þeirra sé í nokkuð föstu
formi. Fundarsköp eru í heiðri höfð,
ýmis verkefni sem úthlutað er fyrir-
fram til aðila, fyrirlesarar fengnir
með ýmiskonar fræðsluerindi, upp-
lestur á ljóðum eða sögum úr bókum
eða frumsamið, gaman og alvara í
bland.
Uppbygging ITC
Deildir ITC skiptast niður í I.,
II. og III. ráð. Ráðin halda ráðs-
fundi tvisvar til þrisvar á ári og öll
ráðin eru aðilar að landssamtökum
sem halda þing vor hvert. Nú á
laugardaginn 1. apríl er ráðsfundur
hjá III. ráði í félagsmiðstöð HK í
íþróttahúsinu Digranesi. Því ekki
að skreppa á fundinn á morgun kl.
9 og kynnast þessari starfsemi lítil-
lega.
GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR,
ITC Fífu,
Hraunbraut 10, Kópavogi.
Lánin greiða þeir
sem landið erfa
Frá Ólafi Briem:
ÞAÐ ER skammt til kosninga og
því mætti álíta að fyrirsögn
þessarar greinar sé vísbending til
lesenda um það að efni hennar sé
kosningabaráttunni tengt. Svo er
þó alls ekki, nema að því leyti
sem hún tengist baráttumáli
allra stjórnmálaflokka og bar-
áttumálið hafíð yfír sundrungu
þá sem stundum einkennir
stjómmálabaráttúna.
Þess er oft getið í ræðu
og riti hve skuldabyrði þjóð-
félagsins er mikil og sífellt
vaxandi sú skuld sem við
ætlum þeim að axla sem á
eftir okkur koma. Vissu-
lega er Ijúft að geta notið
ávaxta nútíðarinnar í boði
framtíðarinnar.
Þetta þýðir samt ekki
að sumt það, sem gert
hefur verið fyrir reikning
þeirra sem við taka, hafí
ekki verið í þágu þeirra sem
skrifað hafa upp á skulda-
bréfin, sem erfíngjunum er
svo ætlað að greiða.
Það hlýtur að vera
ánægjuefni í hvert sinn
þegar gerð er virð-
ingarverð tilraun til
að minnka þann
skuldabagga sem
,ýtt er á undan, og
er síðasta dæmið í
því efni samkomu-
lag það sem gert
hefur verið milli
Gigtarfélags íslands
og Lionshreyfingar-
innar um að koma á
stofn Rannsóknar-
stofnun Islands í gigt-
arsjúkdómum.
Ekki aðeins miðast
rannsóknir að því að þeim
sem landið erfa verði hlíft
við þeim þjáningum sem
gigtin veldur þeim sem hún
sækir heim, heldur jafnframt
að því að lækka útgjöld vegna
hennar sem nú nema milljörð-
um árlega.
Það er því vissulega vonandi
að landsmenn taki höndum saman
við vísindamenn til lausnar gigtar-
gá'tunni.
ÓLAFUR BRIEM,
formaður kynningarnefndar Lions-
hreyfingarinnar á íslandi.
Alit efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.