Morgunblaðið - 04.04.1995, Side 32

Morgunblaðið - 04.04.1995, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Upphlaup krata gegn var- kámi Sjálfstæðisflokksins VIÐ okkur íslend- ingum blasir að nýta ný tækifæri: Þau hafa ekki síst skapast vegna nýrra samn- inga um alþjóðasam- starf. í fyrsta lagi ber að nefna aðildina að evrópska efnahags- svæðinu (EES) og síð- an hina nýju Alþjóða- viðskiptastofnun, sem reist hefur verið á grunni GATT-sam- komulagsins. Á mál- efnalegum forsendum á að velta fyrir sér öllum kostum til virk- ari þátttöku í samstarfi Evrópu- þjóða og almennt á alþjóðavett- vangi. Þegar litið er yfir kjörtímabilið og afstöðu flokka til þessara mála er ljóst, að ísland hefði hvorki orðið aðili að EES né Alþjóðavið- skiptastofnuninni án stuðnings Sjálfstæðisflokksins. Litlu munaði að EES-samningurinn næði í gegn á Alþingi. 33 þingmenn af 63 greiddu honum atkvæði, þar af 23 sjálfstæðismenn. Végna sam- komulags á vettvangi þingflokks sjálfstæðismanna tókst víðtæk samstaða á Alþingi um stofnað- ild íslands að Alþjóða- viðskiptastofnuninni. Án þessarar samstöðu hefði ísland ekki gengið inn í stofnun- ina fyrir 1. janúar 1995. Nauðsynlegt er að árétta þessar ein- földu staðreyndir nú vegna oflætis Alþýðu- flokksins og ósann- gjarns málflutnings. Eftir hinar hatrömmu deilur um EES á Alþingi tókst samkomulag innan utanríkismála- nefndar Alþingis um það, hvernig staðið skyldi að hagsmunagæslu íslendinga, þegar Evrópusam- bandið (ESB) stækkaði. Þetta samkomulag á Alþingi hélt, þótt Norðmenn höfnuðu aðild að ESB. Nú hefur með farsælum hætti og með góðri samstöðu stjórnmála- flokkanna verið gengið frá breyt- ingum á fyrirkomulagi EES-sam- starfsins eftir stækkun Evrópu- sambandsins. EES-samstarfið er fast í sessi og við því verður ekki Án vilja Sjálfstæðis- flokksins hefði ísland hvorki gengið í EES né Alþjóðaviðskiptastofn- unina segir Björn Bjarnason og telur, að þetta hafi gerst þrátt fyrir upphlaup Alþýðu- flokksins undir forystu utanríkisráðherra. hróflað á þann veg, að réttindi aðildarríkjanna skerðist. Enginn flokkur boðar fyrir kosningar, að hann vilji binda enda á EES-aðildina. Að vísu má þó segja, að Alþýðuflokkurinn hafí nokkra sérstöðu að þessu leyti, því að þvert á yfirlýsingar Jóns Bald- vins Hannibalssonar við EES- aðildina telur flokkurinn hana ekki duga okkur íslendingum. Þrátt fyrir upphlaupin Stjórnmálastarf Jóns Baldvins Hannibalssonar, formanns Al- þýðuflokksins, einkennist af upp- hlaupum. Þegar mál eru komin í óefni er reynt að dreifa athyglinni frá því, sem raunverulega er að gerast. Þetta hefur einkennt um- fjöllun Jóns Baldvins um þátttöku Islands í þessu nýja alþjóðasam- starfi. Hann vill draga stjórnmála- flokkana í dilka og komast að þeirri niðurstöðu, að sjálfur beri hann af eins og gull af eiri. Þessi dilkadráttur setur nú mjög svip sinn á kosningabaráttu Alþýðu- flokksins. Ég er þeirrar skoðunar, að tek- ist hafi að ná meirihluta á Alþingi til stuðnings við EES, þrátt fýrir upphlaup utanríkisráðherra. Hann taldi sér til dæmis sæma að út- húða alþingismönnum og starfs- háttum á Alþingi á blaðamanna- fundum í útlöndum, þegar af- greiðsla EES-samningsins var á mjög viðkvæmu stigi. Eg er einnig þeirrar skoðunar, að tekist hafi að sameina þingmenn um skjóta afgreiðslu á aðild íslands að Al- þjóðaviðskiptastofnuninni, þrátt Björn Bjarnason fyrir upphlaup utanríkisráðherra í tengslum við hana. Aðstoðarmað- ur ráðherrans ól og elur enn á ranghugmyndum um það, hvað felst í ákvæðum GATT-samnings- ins um landbúnaðarmál. Sama yfirlætið Kosningabarátta Alþýðuflokks- ins einkennist af miklu yfirlæti. Með því á að draga athygli frá umdeildum embættisverkum ráð- herra hans og klofningi flokksins. Kratar beija sér á bijóst og segj- ast vera á móti öllum hinum, því að þeir séu sérhagsmunaflokkar án framtíðarsýnar. Dæmi um ómerkilegan málflutning krata eru endurteknar rangar fullyrðingar þeirra um tollavald í landbúnaðar- málum. Á bak við yfirlætið og krossferð- arandann er hins vegar sú nötur- lega staðreynd, að svonefnd Evr- ópustefna Alþýðuflokksins er í molum. Eftir því sem liðið hefur á kosningabaráttuna hafa kratar lagt meiri áherslu á það en áður, að þeir séu ekki að tala um aðild að ESB heldur aðildarumsókn. Þeir eru sem sagt komnir á undan- hald frá eigin stefnu. Þeim er kannski orðið Ijóst, að aðild að ESB kemur ekki til álita fyrr en eftir aldamót? Þeir eru komnir í spor manns, sem hefur lýst áhuga á að sækja um ákveðið starf, en segir, þegar á hólminn er komið, að hann hafi bara ætlað að sækja umsóknareyðublaðið! Eftir að kratar hafa hopað með þessum hætt.i í kosningabarátt- Dýr eða ódýr heil- brigðisþj ónusta! UNDANFARIN misseri hefur víða ver- ið haldið fram að heil- brigðiskostnaður hér á landj. hafi þanist út og að nauðsynlegt sé að taka á þeirri þróun. En hveijar eru stað- reyndir málsins? Alþjóðasaman- burður Séu heilbrigðisút- gjöld hér á landi borin saman við heilbrigð- isútgjöld annarra OECD-ríkja kemur í ljós að ísland er í 13. sæti, með lítið eitt lægra hlutfall af landsframleiðslu en meðaltal þeirra (sjá meðfylgj- andi töflu). Rétt er þó að geta þess við slíkan samanburð að dýr- ara er að halda uppi viðunandi heilbrigðisþjónustu í stóru og stijábýlu landi en í þeim þéttbýlari. landið, nálægt 30 sjúkrahús og tugi hjúkrunarheimila. Stærðarhagkvæmnin, nýting vinnuafls og fjármuna, hefur verið mjög óhagstæð. Sér- hæfðar deildir og sér- hæfðar aðgerðir líða fyrir fámennið. Upp- tökusvæði verða of lít- il og rekstrareiningar óhagkvæmar. Vanda- mál og kostnaðarauki sem margar aðrar þjóðir eiga ekki við að stríða í sama mæli. Samt stöndum við vel í alþjóðlegum saman- Þróun heilbrigðis- kostnaðar Heilbrigðiskostnaður hér á landi sem hlutfall af landsframleiðslu hefur farið lækkandi síðustu 6 Framfarir lækna- vísinda, segir Jóhann Rúnar Björgvinsson, hafa iðulega í för með sér beinan kostnaðarauka. 8,1% árið 1994. Hlutdeild heimil- anna hefur að vísu farið vaxandi en hlutdeild hins opinbera hefur minnkað því meira. Þá sést að heilbrigðisútgjöld á föstu verði hafa vaxið um 6*/2% á tímabilinu sé miðað við verðvísitölu sam- neyslunnar en hins vegar staðið nokkurn veginn í stað sé mælt á mann. Einnig kemur fram að út- gjöld til heilbrigðismála kosta í kringum 132 þúsund krónur á Jóhann Rúnar Björgvinsson burði. Útgjöld hins opinbera og heimila til heilbrigðismála % af landsframleiðslu og á föstu verði 1988-1994 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 Heilbrigiðsútgj. % af landsframl. 8,47 8,49 7,95 8,09 8,15 8,25 8,14 Magnvísitala heilbrigðisútgjalda 1) 100,0 103,9 103,3 106,0 103,2 104,9 106,5 Magnvísitala heilbrigðisútgj. á mann 100,0 102,7 101,3 102,7 98,8 99,4 100,0 Heilbrigðisútgj. á mann (verðlag 1994 131,757 135,125 133,292 135,162 130,016 130,808 131,566 1) Staðvirt með verðvísitölu samneyslunnar. Heimild: Þjóðhagsstofnun. Mælikvarðar á árangur Einhlítir mælikvarðar á árangur heilbrigðisþjónustunnar eru ekki til, en meðalævilengd fólks og meðaldánartíðni ungbarna er þó oftast borin saman milli landa í þessu augnamiði, en þeir mæli- kvarðar gefa góða vísbendingu um árangur heilbrigðiskerfis viðkom- andi lands. í slíkum samanburði stöndum við allvel því meðalævi- lengd karla hér á landi er næst- lengst í OECD-ríkjum á eftir jap- önskum körlum eða 75,7 ár. Kon- urnar eru aðeins neðar í röðinni eða í ijórða sæti með 80,9 ár. Þá er dánartíði ungbarna næstminnst hér á landi eða 0,48 en meðaltal OECD-landa er 0,91. Ljóst er að árangurinn er góður samkvæmt þessum mælikvörðum. Framfarir skapa eftirspurn Flestar framfarir læknavísind- anna hafa í för með sér aukna Framfarir skapa með öðrum orð- um aukna eftirspurn eftir þjón- ustu. Oft og tíðum verða framfar- ir læknavísindanna til að auka sparnað, en oftar en ekki verða þær til að lengja líf og vellíðan fólks en kostnaður vex. Þannig hafa til dæmis nýjungar í augnað- gerðum, gervinýru, líffæraflutn- ingar, kransæðaaðgerðir, mjaðma- og hnjáliðaaðgerðir og smásjáraðgerðir aukið til muna árangur meðferðar, lengt líf og aukið vellíðan. Sama má segja uin framfarir í svæfingu, sem dregið hafa veru- lega úr áhættu í meðhöndlun eldri sjúklinga, um framfarir í mynd- greiningu og annarri tækni, s.s. ómskoðun, tölvusneið-myndun, segulómun og speglun og um framfarir í lífeðlisfræðilegum rannsóknum, sem einnig hafa bætt verulega getu við sjúkdóms- gréiningu. Flókið er að meta þjóðhagslegan ávinning slíkra framfara. Sumar Gerðu það gott með He Tæknival býður þér hágæða Hewlett-Packard litaprentara, geislaprentara og litaskanna á einstöku verði. Takmarkað magn. Kynntu þér málið. HP DeskJet 520 prentarinn fyrir svarta litinn. Hljóölátur, sterkurog hraðvirkur. Gæöaútprentun 300x600 dpi í svörtu. Tilboösverð: kr. 29.900 stgr. HP DeskJet 320 litaprentarinn. Hljóðláturog fyrirferðalítill. Gæöaútprentun 300x600 dpi í svörtu og 300 dpi í lit. Tilboðsverð: kr. 32.000 stgr. HP DeskJet 560C litaprentarinn. Hraðvirkur prentari með gæðaútprentun 300x600 dpi í svörtu og 300 dpi í lit. Tilboösverö: kr. 49.900 stgr. HP DeskJet 1200C litaprentarinn. Öfiugur. Hraðvirkur. Gott minni. Hágæöaútprentun 300x600 dpi í svörtu og 300 dpi í lit. Tilboösverð: kr. 105.900 stgr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.