Morgunblaðið - 04.04.1995, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.04.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 43 Sennilega er fæstum ljóst að kaffíð hefur nánast jafn mikið vægi í heimsviðskiptum og olían. Eins og olían drífur áfram vélar, eykur kaffið fólki þrótt. Margrét Þorvaldsdóttir kannaði sögu þessa eðal-drykkjar sem hressir bæði líkama og sál enda hafður um hönd hvenær sem tækifæri gefst. alla álfuna. Þau urðu fljótlega svo vinsæl, sem samkomustaðir þjóðfé- lagslegrar-, bókmenntalegrar- og pólitískrar umræðu og þóttu bjóða upp á svo opinskáa utnræðu, að yfír- völd urðu mjög óróleg. Þá var það að Charles II Englandskonungur fyr- irskipaði lokun kaffihúsanna, en varð að taka skipunina til baka þegar al- menningur mótmælti. Evrópubúar hófu kaffirækt í Ameríku og Asíu Evrópubúar urðu síðan mjög iðnir við að koma upp kaffírækt í löndum annars staðar í heiminum. Hollend- ingar hófu kaffírækt á eynni Jövu. Louis XIV Frakklandskonungur fékk landa sinn Desclieux til að kynna kaffið í nýja heiminum. Hann var sendur með græðlinga kaffítrésins til Ameríku og kom hann til eyjarinn- ar Martinique árið 1772. Græðlingar voru síðan fluttir þaðan til landa í Mið- og Suður-Ameríku, þar á meðal til Brasilíu sem hefur orðið eitt helsta framleiðslulandið, þar eru nú fram- leidd um 1.5000.000 tonn af kaffí á ári. Kaffl var fyrst flutt til íslands á 18. öld Innflutt voru 20 kg af kaffi 1760 - en 1976 tonn áriðl994 Hingað til lands var kaffíð ekki flutt inn fyrr en á 18. öld. Árið 1760 eru tæp 20 kg af kaffi flutt inn á vegum Hólmsverslunar (í Reykjavík). Jón Aðils sagnfræðing- ur telur að sá innflutningur hafi e.t.v. tengst iðnverksmiðjunum í Reykjavík. Innfiutningurinn jókst hægt. Árið 1772 eru flutt inn um 50 kg, en 1779 er innflutningurinn orðinn um 1.600 kg, en þá eru heldri bændur sagðir vera farnir að venj- ast góðgætinu. Kaffíð varð ekki aðeins drykkur .góðbænda heldur alls þorra fólks og hefur verið það síðan. Á síðasta ári voru flutt inn 1.976 tonn af kaffi fyrir 535,1 millj- ón króna, samsvarar það 7,6 kg af kaffí á hvert mannsbarn í landinu. Kaffiiðnaðurinn þróaður til að mæta auknum gæðakröfum Kaffíiðnaðurinn hefur verið þróað- ur til að mæta kröfum hinna ýmsu þjóða sem setja fram mismunandi gæðakröfur. Þjóðveijar vilja t.d. bragðmilt kaffí, Frakkar vilja aftur á móti hafa það dökkt og sterkara. Pólveijar vilja bragðmikið kaffí og Spánveijar vilja ekki aðeins ekta kaffí heldur einnig kaffi úr baunum sem hafa verið úðaðar örlitlum sykri í brennslu. Það vekur athygli að í Vestur-Evrópu er kaffíneyslan mest á Norðurlöndum, Hollandi og Belgíu eða allt að 13 kg á mann, í Eng- landi er hún 3,5 kg, í Frakklandi og á Italíu er hún 5 kg, minnst er kaffí- neyslan í Tyrklandi, aðeins 1 kg á mann. KAFFIHÚS hafa risið upp eins og gorkúlur á undanfömum árum hér í höfuðstaðnum og virðast þau njóta mikilla vinsælda fólks á öllum aldri sem hittist þar gjaman og ræðir málin. Kaffíhús eru ekkert nútíma fyrirbrigði, Charles 11 Englandskon- ungur fyrirskipaði árið 1675 að þijú þúsund kaffihúsum í landinu skyldi lokað, þar sem þetta væm fundar- staðir þar sem alið væri á uppreisnar- anda borgaranna. Hann varð að aft- urkalla skipan sína nokkrum dögum síðar vegna kröftugra mótmæla fólks- ins. Kaffið fyrst ræktað á 7. öld og þótti snemma ómissandi Kaffí var fyrst ræktað í Yemen á 7. öld. Ein sagan hermir að arabísk- ur „mullah" hafí veitt athygli geitum sem hlupu fullar af fjöri um holt og hæðir eftir að hafa étið lauf og ávexti af ákveðnum runnum. Hann fékk hugmynd og gerði úr þessu blöndu sem hann gaf munkum sínum til að halda þeim vakandi á stundum íhug- unar á kvöldin. Kaffidrykkur náði mikilli út- breiðslu á á sautjándu öld í Mið-Aust- urlöndum, í Persíu og Tyrklandi og í Evrópu og Ameríku. Kaffíð þótti ómissandi við félagslegar athafnir. Hjá mörgum þjóðum var kaffí notað til að sýna gestum hve velkomnir þeir voru. Bedúínar helltu t.d. aðeins fjórum sopum af kaffí í bollann í einu. Að fylla lítinn bolla var merki um að gestinum bæri að tæma boll- ann og fara síðan. Kaffihús urðu vinsælli en bænahús - lokun fyrirskipuð Kaffíhús urðu mjög vinsæl, þau urðu jafnvel vinsælli en moskumar og leiddi það til þess að í Mekka var fyrirskipað að loka skyldi öllum kaffi- húsum árið 1511, í Kaíró árið 1534 og í Konstantínopel, nú Istaribul, voru þau bönnuð af mörgum trúar- söfnuðum. ítalir urðu fyrstir Evr- ópubúa til að nota kaffi um 1660 og þaðan barst það fljótlega um alla Evrópu og voru kaffíhús opnuð um Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár i • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Bensínstöðvar og helstu ~ ‘ byggingavöruverslanir. Tilbúinn stíflu eyðir Dreifing: Hringás hf., sími 567 7878 - fax 567 7022 'KlEIA i tnalaríserdaj'list eúts oí£ Ittiit tierisl besl > &e/i j//' \ orðlenskci KK4 ha/iíi'ikjötið er rómcið jyrir gœði og gott bingð - encld unnið sainkrœint iiorðlenskri hefð sem liefiir gengið í arf kynslóð eftir kynslóð úr nýju úrrals norðlenskn lainbcikjöti. Norðlenska KEA hcuigikjötið - Iiátíðcirmatur sem hœgt er að trevsta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.