Morgunblaðið - 04.04.1995, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 53
MINNINGAR
mjög skýrmælt. Ekki skipti heldur
máli hvort hún spilaði á saxafón,
píanó, gítar, klarinett eða eitthvað
annað, hún gat spilað á það allt.
Allir í Lúðrasveit verkalýðsins
sem fóru í ferðina til Tékkóslóvak-
íu, kunna tecíladansinn. Við vorum
staddar fyrir utan hótelið í Lúxem-
borg á leið út á lífíð. Þá kenndi
Bergþóra okkur tecíladansinn og
var hann dansaður alla leiðina til
Tékkóslóvakíu og til baka. Enda
var það það eina sem rútubflstjórinn
lærði af okkur og gat tekið þátt í.
Maístjörnuna tók hún einnig
listavel og ekki á færi margra að
syngja það. En Bergþóra mín, þetta
er lagið þitt. Bergþóra mín, við
vonum að þér líði vel og við geym-
um allar fallegu og góðu minning-
arnar um þig.
Aðstandendum vottum við okkar
dýpstu samúð. Guð gefi ykkur
styrk.
Nellý og Guðlaug.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ODDSDÓTTIR,
Hrafnagilsstræti 29,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 6. apríl kl. 13.30.
Ragnar Stefánsson,
Hulda Árnadóttir,
Oddur Arnason,
Sigfríð Erla Ragnarsdóttir,
Jón Þ. Ragnarsson,
Úlfar Ragnarsson,
Anna Ragnarsdóttir,
Ragna O. Ragnarsdóttir,
Sigríður Ragnarsdóttir,
Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, Jón Ingi Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Stefanía Gústafsdóttir,
Ólafur Björnsson,
Jóhann G. Jóhannsson,
Frosti Frostason,
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta.
Upplýsingar
í síma 22322
FLUGLEIDIR
HÚTELLOFTLEIDIR
Blömastofa
Friöfmns
Suðurlandsbraut 10 u
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
ATVINNUAUGl YSINGAR
Húsvörður/bílstjóri
Bandaríska sendiráðið óskar að ráða í stöðu
húsvarðar/bílstjóra.
Krafist er mjög góðrar enskukunnáttu, fag-
þekkingar í trésmíði og/eða rafvirkjun og
góðrar þekkingar á Reykjavík.
Starfið felur í sér smáviðhald og umsjón með
viðhaldi á byggingum og bifreiðum sendi-
ráðsins, akstur sendiherra, annar akstur,
tollafgreiðslu og skýrslugerð.
Þessi staða er laus frá 2. maí 1995.
Umsóknareyðublöð fást í sendiráðinu, Lauf-
ásvegi 21. Umsóknum skal skilað í sendiráð-
ið fyrir lokun á föstudag, 7. apríl.
Elcon hf.
Rafeindavirki
Elcon hf. óskar eftir að ráða rafeindavikja.
Starfið er fólgið í að sjá um uppsetningu og
viðhaldi á siglinga- og fiskileitartækjum sem
fyrirtækið selur.
Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund,
vera duglegur og áþyggilegur, hafa góða
þekkingu á þessu sviði og haldgóða þekkingu
á tölvum og tölvuþúnaði og notkun þeirra.
Nánari upplýsingar veitir Árni Marinósson í
símum 552 9510 og 561 9510.
SAMBAND
ÍSLENSKRA SPARISJÓÐA
Markaðsstjóri
Starf markaðsstjóra sparisjóðanna innan
vébanda Sambands íslenskra sparisjóða er
laust til umsóknar.
Leitað er að einstaklingi með háskólamennt-
un í markaðsfræðum eða háskólamenntun
í viðskipta- eða hagfræði með sérstakri
áherslu á markaðsfræði. Einhver starfs-
reynsla er æskileg.
Um er að ræða mjög krefjandi starf er felur
í sér bæði sjálfstæða vinnu sem og sam-
starf við marga aðila. Starfið er laust nú
þegar. Laun og launakjör samkvæmt samn-
ingum SÍB og þankanna.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigs-
vegi 7, og skal umsóknum skilað á sama
stað. Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk.
GUÐNTIÓNSSON
RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Skrifstofustarf
SMITH & NORLAND
leitar að starfskrafti til að annast símsvörun,
móttöku gesta, aðstoð við gjaldkera og
tengd störf milli kl. 13 og 18 alla virka daga.
Góð almenn menntun, ásamt góðri fram-
komu, snyrtimennsku og reglusemi, er al-
gjört skilyrði. Vegna erlendra samskipta er
enskukunnátta nauðsynleg, einhver þýsku-
kunnátta kæmi sér vel.
Hér er um að ræða gott framtíðarstarf fyrir
einstakling, sem hentar að vinna þennan
vinnutíma frá kl. 13-18.
Góð laun eru f boði fyrir réttan einstakling.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigs-
vegi 7, og skal umsóknum skilað á sama
stað fyrir 6. aprfl.
Guðní Tónsson
RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞTÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Frá Fræðsluskrif-
stofu Norðurlands-
umdæmis eystra
Kennarastöður við eftirtalda skóla eru lausar
til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 1995.
Grunnskólinn í Grfmsey
Almenn kennsla.
Barnaskóli Ólafsfjarðar
Yngri barna kennsla, hand- og myndmennt
ásamt almennri kennslu.
Dalvíkurskóli
Almenn kennsla, myndmennt.
Grunnskólinn í Hrísey
Almenn kennsla.
Árskógarskóli
Yngri barna kennsla.
Þelamerkurskóli
íþróttir.
Barnaskóli Akureyrar
íþróttir stúlkna.
Lundarskóli
Sérkennsla, tónmennt.
Gagnfræðaskóli Akureyrar
Stærðfræði, smfðar.
Glerárskóli
Almenn kennsla, heimilisfræði, tónmennt,
smíðar.
Síðuskóli
Almenn kennsla, sérkennsla, danska, mynd-
mennt, heimilisfræði, smíðar.
Bröttuhlíðarskóli
Sérkennsla.
Hvammshlíðarskóli
Sérkennsla.
Hrafnagilsskóli
Almenn kennsla.
Valsárskóli
Almenn kennsla, hannyrðir, smíðar,
tónmennt.
Grenivíkurskóli
Almenn kennsla.
Litlulaugaskóli
Almenn kennsla.
Hafralækjarskóli
Almenn kennsla, handmennt.
Borgarhólsskóli
Almenn kennsla, smíðar.
Grunnskólinn í Lundi
Almenn kennsla.
Grunnskólinn á Kópaskeri
Almenn kennsla.
Grunnskólinn á Raufarhöfn
Almenn kennsla.
Grunnskólinn á Þórshöfn
Almenn kennsla.
Upplýsingar gefa skólastjórar í viðkomandi
skólum.
Frá fræðsluskrif-
stofu Norðurlands-
umdæmis eystra
Auglýstar eru til umsóknar lausar stöður
skólastjóra og kennara við nýjan skóla á
Akureyri, Giljaskóla.
Upplýsingar gefur skólafulltrúi Akureyrar-
bæjar í síma 96-27245.
Sjóntækjaf ræðingu r
Óskum eftir að ráða sjóntækjafræðing til
starfa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband.
ougoð
KRINGLUNNI
sími 689111.