Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Stígamót Tölvuskráning í samræmi við lög FRAMKVÆMDAHÓPUR Stíga- móta segir að það sé ekki stefna samtakanna að fjalla opinberlega um einstök mál og í framtíðinni, eins og hingað til, verði tölvuskrán- ingu upplýsinga hagað í samræmi við lög og fyrirmæli stjórnvalda. Tölvunefnd komst að þeirri nið- urstöðu, að lög um skráningu og meðferð persónuupplýsinga hefðu verið brotin með yfirlýsingum um að konur væru til meðferðar hjá Stígamótum vegna meintrar kyn- ferðislegrar áreitni biskups Is- lands. Nefndin gerir þær kröfur til Stígamóta, að skrá eftirleiðis ekki nöfn meintra fremjenda kyn- ferðislegs ofbeldis og gefa engar upplýsingar um nöfn þolenda né meintra fremjenda kynferðislegs ofbeldis. Framkvæmdahópur Stígamóta segir, að vegna bréfs Tölvunefndar vilji hópurinn ítreka, að tölvu- skráning gagna hafi aldrei verið með því móti sem ætla mætti af bréfi nefndarinnar. í tölvuskráðum gögnum Stígamóta sé hvorki að finna nöfn né önnur persónuauð- kenni þolenda kynferðislegs of- beldis né meintra fremjenda. Fækka á embættisbústöðum ríkisins Leiga á ríkisíbúðum færð að markaðsverði TIL stendur að fækka embættisbú- stöðum ríkisins og miða leigu á íbúðarhúsnæði í' eigu ríkisins við markaðsverð á þeim stöðum þar sem eðlilegur húsaleigumarkaður er fyrir hendi. Fjármálaráðherra hefur lagt lagafrumvarp fram á Alþingi um breytingar á lögum um íbúðarhús- næði í eigu ríkisins. Þar er gert ráð fyrir að ijármálaráðherra verði heimilað án auglýsingar að selja ríkisstarfsmönnum með sérstökum kjörum það húsnæði sem þeir hafa nú á leigu, enda sé húseignin í sveitarfélagi með fleiri en 1.000 íbúum. Þarna er um að ræða 120-130 íbúðir en alls eru um 400 slíkar íbúðir um allt land í eigu ríkisins. Söluandvirði íbúðanna hefur ekki verið metið, en talið er að það geti verið allt að 900 milljónir króna. Óski núverandi leigutakar ekki eftir að kaupa það húsnæði sem þeir leigja nú er lagt til að megin- reglan verði sú að húsnæðið verði selt þegar leigutakar flytja úr hús- inu. Markaðsleiga Einnig gerir frumvarpið ráð fyr- ir því að að þeim stöðum þar sem eðlilegur húsaleigumarkaður er fyrir hendi, verði íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins leigt á markaðsverði. Ef eðlilegur markaður er ekki fyrir hendi verði áfram miðað við bruna- bótamat, staðsetningu og notagildi eins og gert er nú en húsaleigan á þessum stöðum hækki í áföngum á næstu sjö árum til að standa undir kostnaði við rekstur og við- hald. Gott tækifæri! Lítill iðnaður ásamt góðri verslun. Frábær staðsetning. Lág húsaleiga. Ótal möguleikar og gott verð. Hóll - fyrirtækjasala, Skipholti 50B, sími 551 9400. CC9 11C0 CCO 1Q7ÍI LARU5.Þ VALOIMARSSON, framkvæmdasíJORi UUfa I IuUuUL I U / U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, lOGGHIUR fASIFIGNASAll Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Lyftuhús - útsýni - skipti Stór og sólrík 4ra herb. íb. tæpir 120 fm ofarl. í lyftuh. við Kaplaskjóls- veg. 4 rúmg. svefnherb. Frábært útsýni. Góð lán. Skipti mögul. á 2ja- 3ja herb. íb. Lítil fbúð - öll eins og ný Endurbyggð 2ja herb. rishæð í reisulegu steinh. við Barónsstíg, rétt við Laugaveginn. Sérþvottaaðst. Verð aðeins 4,2 millj. Heimar - Vogar - nágrenni Leitum að 3ja herb. íb. má vera á jarðh., í skiptum fyrir 5 herb. hæð í hverfinu. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Stórt endaraðhús - hagkvæm skipti Steinhus jarðhæð og tvær hæðir um 240 fm með 6 svefnherb. m.m. Ennfremur góður bílsk. 23,4 fm. Góð lán áhv. Margskonar skipti mögul. Tilboð óskast. Traustir kaupendur óska eftir: 2ja-3ja herb. íbúð í vesturborginni. Má þarfnast endurbóta. Greiðsla við kaupsamning. Sérhæðum 110-150 fm. Margskonar hagkvæm eignaskipti eða bein sala. Einbýlishúsum eða raðhúsum 110-140 fm. Margt kemur til greina. Opið í dag kl. 10-14. ALMENNA Viðskiptunum fylgir ráðgjöf ogtraustarupplýsingar. __________________ Teikningar á skrifstofunni. LAU6AVE6118 S. 552 1156-552 1371 FASTEIGNASALAN FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir Vetur eða vor? AÐ UNDANFÖRNU hafa menn ekki verið á einu máli um hvort vor sé í lofti eða vetur eigi margt ósagt, en börnin sem léku sér við Engja- skóla voru ekki í neinum vafa um veðurfarið. Þau sáu fyllstu ástæðu til að klæðast úlpum og eyrnarskjólum, enda annað óskynsamlegt þangað til hita- stigið hækkar svo orð sé á gerandi. Átta mánaða fangelsi fyrir mök við þroskahefta konu HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 57 ára mann i átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðs- bundna, fyrir að hafa þröngvað 43 ára þroskaheftri konu til kynmaka. Héraðsdómur hafði einnig dæmt manninn til átta mánaða fangelsis- vistar, en ekki skilorðsbundið refs- inguna. Atburðurinn varð á heimili kon- unnar og sambýlismanns hennar í nóvember 1994. Maðurinn hafði mök við konuna á meðan sambýlis- maður hennar fór út um stund. Konan sagðist hafa neitað að hafa kynmök við manninn en hafi verið hrædd og ekki þorað annað en láta að vilja hans. Maðurinn neitaði sak- argiftum í fyrstu, en viðurkenndi þær fyrir dómi. Hann sagði að sér hefði ekki verið kunnugt um að hún væri þroskaheft og að samfarirnar hefðu verið að vilja hennar. I dómi héraðsdóms kom fram, að engum, sem sæi konuna og talaði við hana litla stund, gæti dulist hinn mikli greindarskortur hennar. Hæstiréttur vísar ti! þess að sam- kvæmt sakavottorði hafi maðurinn ekki gerst áður sekur um brot á almennum hegningarlögum. Refs- ing hans sé hæfilega ákveðin í hér- aðsdómi, en fresta skuli fullnustu fímm mánaða af refsivistinni og sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum, haldi maðurinn al- mennt skilorð. Pétur Kr. Hafstein, hæstaréttardómari, tók fram að hann teldi ekki rétt að skilorðsbinda hluta refsingar, með hliðsjón af eðli brotsins og aðstæðum konunn- ar. Dráttur á ákæru Hæstiréttur gerði athugasemd við, að málið barst ríkissaksóknara frá rannsóknarlögreglu þann 21. janúar árið 1995, en ákæra var ekki gefin út fyrr en 5. september 1995. „Dráttur þessi hefur ekki verið réttlættur,“ segir í dóminum. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða konunni miskabætur, 250 þúsund krónur og bera þær d^áttar- vexti frá 1. desember 1995, þegar héraðsdómur var kveðinn upp. Að auki greiðir hann áfrýjunarkostnað, 120 þúsund krónur. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Haraldur Henrysson, Gunn- laugur Claessen, Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. Margrét Frímannsdóttir um uppsögn framkvæmdaslj óra Alþýðubandalagsins Kannast ekki við alvarlegan ágreining EINAR Karl Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðubandalags- ins, hefur sagt upp störfum frá 1. apríl með sex mánaða fyrirvara. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins segir hann upp vegna ágreinings við Margréti Frímanns- dóttur, formann flokksins. Margrét kannast hins vegar ekki við alvar- legan ágreining á milli þeirra. „Mér finnst ekki við hæfi að ég sé að ræða ástæður uppsagnarinn- ar meðan ég er enn í starfi hjá flokknum," sagði Einar Karl um uppsögnina í samtali við Morgun- blaðið í gær. Einar Karl vann á útvarpinu, í 10 ár á Þjóðviljanum, við útgáfu- mál hjá Norðurlandaráði og At- hygli. Hann hefur verið fram- kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins frá árinu 1992 og studdi Margréti Frímannsdóttur í formannskjöri á síðasta ári. Ekki sagðist hann vera farinn að velta því fyrir sér hvað hann vildi takast á við eftir að starfi hans hjá Alþýðubandalaginu lyki í haust. „Ég tek eitt skref í einu og fer til fundar við framtíð- ina,“ sagði hann. Eftirsjá af góðu fólki Margrét Frímannsdóttir, for- maður flokksins, sagði að henni hefði borist uppsagnarbréf Einars Karls í fyrrakvöld. Bréfið yrði væntanlega lagt fyrir fund fram- kvæmdastjórnar enda réði fram- kvæmdastjórnin framkvæmda- stjóra. Hún sagði að verið gæti að Einar Karl myndi skýra ástæður sínar nánar á fundinum. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að uppsögnina megi rekja til ágreinings milli Einars Karls og. formannsins Margrétar Frí- mannsdóttur. Einari Karli hafi t.a.m. misiíkað að hvorki hafi verið gerður við hann ráðningarsamn- ingur né samin starfslýsing vegna starfs hans. Margrét svaraði því til að með nýju fólki yrðu ákveðnar breyting- ar á störfum og hugsanlega stefnu flokksins. „Vera má að okkur hafi greint eitthvað á í því sambandi. Mér vitanlega hefur hins vegar ekki verið alvarlegur ágreiningur okkar á milli,“ sagði hún og tók fram að alltaf væri eftirsjá af góðu fólki. Hún vildi taka fram að ekki hafi verið ágreiningur um hús- næðismál flokksins milli hennar og Einárs Karls eins og komið hefði fram í fjölmiðlum enda hefði aldrei staðið til að flokkurinn keypti húsnæði undir starfsemi sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.