Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 51
FRÉTTIR
STJÓRN Iðjuþjálfafélags íslands f.v.: Anna Sveinbjörnsdóttir,
Elsa Ingimarsdóttir, Hope Knútsson, formaður, Lillý Sveins-
dóttir, Lovísa Ólafsdóttir og Auður Axelsdóttir.
Iðjuþjálfafélag
íslands 20 ára
Fundur Evrópusam
takanna um ríkja-
ráðstefnu ESB
Dagskráí
Stígamótum
Á SÝNINGU Stígamóta, „Þvottur
á snúru“, laugardaginn 16. mars
nk. hefst dagskrá kl. 15. Þá segir
móðir reynslusögu sína.
Kl. 15.30 verður sýndur einleik-
urinn „Þá mun enginn skuggi vera
til“ eftir Kolbrúnu Emu Pétursdótt-
ur og Björgu Gísladóttur. Leikstjóri
er Hlín Agnarsdóttir.
Sunnudaginn 17. mars hefst
dagskrá kl. 17. Þar fjalla Guðrún
Linda Rafnsdóttir frá Vinnueftirliti
ríkisins og Stefanía Traustadóttir
frá Skrifstofu jafnréttismála um
kynferðislega áreitni á vinnustað
og munu greina frá sænskum rann-
sóknum um þessi mál.
----»-♦ ♦----
Kaffidagur
Dýrfirðinga
DÝRFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík heldur árlegan kaffidag
félagsins í Bústaðakirkju sunnu-
daginn 17. mars nk. Hefst hann
með messu kl. 14 og kaffiveitingum
í samkomusal kirkjunnar að lokinni
messu.
Allir velunnarar félagsins og
Dýrafjarðar eru velkomnir og þeir
sem era 70 ára og eldri era sérstak-
lega boðnir.
Þessi samkoma hefur tvíþættan
tilgang sem er að allur ágóði af
kaffisölu rennur til byggingar aldr-
aðra í Dýrafirði sem félagið hefur
safnað til á síðustu áram og í öðra
lagi að styrkja samheldni þeirra
Dýrfirðinga sem flutt hafa að vest-
an á liðnum árum.
Stjórn félagsins væntir þess að
fá að sjá sem flesta á þessum kaffi-
degi.
IÐJUÞ JÁLFAFÉLAG íslands
átti 20 ára afmæli 4. mars sl. og
var afmælisins minnst á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var
nýlega. Formaður félagsins er
Hope Knútsson en hún hefur
verið formaður frá upphafi.
í Iðjuþjálfafélagi íslands eru
nú um 80 félagar. Þegar félagið
var stofnað voru 9 iðjuþjálfar
starfandi hér á landi en nú eru
þeir um 65. Þar af eru aðeins 7
starfandi á landsbyggðinni.
Fyrsti iðjuþjálfinn hóf störf hér
á landi árið 1945 en það var ekki
fyrr en 1975 sem heitið iðjuþjálfi
var endanlega ákveðið. Starfs-
heitið var verndað með lögum
árið 1977.
Nám í iðjuþjálfun er á háskóla-
stigi og verða íslenskir iðjuþjálf-
ar að sækja nám sitt til útlanda.
Flestir faratil Norðurlandanna.
Eitt helsta baráttumál félagsins
er að stofna námsbraut við há-
skóla hér á landi sem lyki með
BS-gráðu.
Spáð fjölgun í stéttinni
Eftir venjuleg aðalfundarstörf
flutti Guðrún Pálmadóttir, iðju-
þjálfi, fyrirlestur sem bar yfir-
skriftina: Iðjuþjálfun á Islandi í
20 ár: Þróun, staða, framtíðar-
sýn. I erindi hennar kom fram
að iðjuþjálfar hér á landi vinna
enn sem komið er aðallega hjá
ýmsum heilbrigðisstofnunum en
miðað við þróunina erlendis má
gera ráð fyrir að iðjuþjálfum
fjölgi á næstu árum og þeir hasli
sér völl víðar í þjóðfélaginu.
E VRÓPU S AMTÖKIN gangast
næstkomandi mánudag, 18. mars,
fyrir fundi um ríkjaráðstefnu Evr-
ópusambandsins, sem hefst síðar í
mánuðinum.
Frummælandi á fundinum verður
Valgerður Bjarnadóttir, viðskipta-
fræðingur og starfsmaður EFTA í
Brussel. Að loknum' inngangi henn-
ar verða umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn verður haldinn á Litlu-
NÝLEGA var haldinn aðalfundur
Fagráðs í upplýsingatækni (FUT),
sem starfar á vegurn Staðlaráðs
íslands og er fulltrúi íslands í al-
þjóðastöðlun á sviði upplýsinga-
tækni.
í ársskýrslu fagráðsins kom
m.a. fram að tvær tækninefndir
luku störfum á árinu með útgáfu
íslenskra staðla um hnappaborð
og útboð. Tækninefnd um þjóðleg-
ar kröfur skilaði af sér frumvarpi
að forstaðli'FS 130 og barst tölu-
vert af athugasemdum við það sem
eru nú í úrvinnslu hjá nefndinni.
Á árinu var einnig gert yfírlit um
staðla sem tengjast útboðum á
gagnavinnslubúnaði og sett upp
heimasíða sem er vel sótt
(http://tobbi.iti.is/).
Fjárhagslega fór mest fyrir er-
lendu samstarfi í tengslum við
Evrópunefnd um stafatækni, sem
hefur skrifstofu sína hjá fagráð-
Brekku, að baki
veitingahússins
Lækjarbrekku,
og hefst hann
klukkan 17.15.
Fundurinn er öll-
um opinn. Fund-
argjald er krónur
400 og eru kaffi-
veitingar inni-
faldar í því.
inu. Úr því starfi liggja nú fyrir 2
samþykktir Evrópustaðlar ásamt
skýrslu sem lýsir því sem þarf að
gera til að koma alheimsstafatöfl-
unni í almenna notkun í Evrópu.
Gústav Arnar var kjörinn for-
maður fagráðsins í stað Friðriks
Sigurðssonar sem nú er orðinn
formaður Staðlaráðs íslands. Aðr-
ir í stjórn eru Halldór Kristjánsson
varaformaður, Eggert Claessen,
Stefanía Júlíusdóttir, Sverrir Júl-
íusson og Om Kaldalóns.
-------------------
■ SIGURÐUR Bárðarson, þýð-
andi bókarinnar Heimkoma
(Uppgötvaðu og stattu með
barninu í sjálfum þér), kynnir
bókina laugardaginn 16. mars kl.
17 í sal verkalýðsfélaganna á
Garðarsbraut 26 á Húsavík. Sig-
urður fjallar um hugleiðslu og
æfingar sem í bókinni eru.
Fagráð í upplýsingatækni
Athugasemdir við frétt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ragn-
ari Halldóri Hall, hrl. og formanni
örorkunefndar:
„í Morgunblaðinu 15. mars 1996
er birt sú frétt að Rannsóknarlög-
regla ríkisins hafi óskað eftir því
að „örorkumatsnefnd“ afhendi
nektarmynd af konu, Ásdísi Frí-
mannsdóttur, sem ekki vilja sætta
sig við að slík mynd af henni skuli
varðveitt meðal gagna nefndarinn-
ar. Ýmislegt í þessari frétt er óná-
kvæmt og tel ég óhjákvæmilegt að
koma á framfæri nokkram athuga-
serndum við efni hennar.
RLR hefur ekki óskað eftir því
við þrorkunefnd að umrædd mynd
af Ásdísi Frímannsdóttur verði af-
hent. Hið rétta er að 15. febrúar
sl. kynnti RLR undirrituðum, sem
er formaður örorkunefndar, kröfu
lögmanns Ásdísar um að myndin
verði gerð upptæk og óskaði RLR
eftir skriflegu svari mínu um af-
stöðu til þeirrar kröfu. Það svar var
sent með bréfi 17. febrúar. .
I fréttinni segir að Ásdís hafi
farið fram á „einkaörorkumat"
vegna mistaka í lýtaaðgerð sem hún
hafði farið í. Örorkunefnd starfar
samkvæmt 10. gr. skaðabótalag nr.
50/1993 og heyrir undir dómsmála-
ráðuneytið. Nefndin framkvæmir
því ekki „einkaörorkumat“ heldur
tekur til meðferðar beiðnir sem
henni berast á grundvelli umræddra
laga. Um starfsháttu nefndarinnar
hafa verið settar formlegar starfs-
reglur og er þar m.a. áréttað að í
störfum sínum skuli nefndin fara
að stjórnsýslulögum. Nefndarmenn
eru skipaðir til sex ára í senn. Hér
er því ekki um neitt einkafyrirtæki
að ræða.
29. nóvember 1994 barst örorku-
nefnd beiðni um mat á varanlegri
örorku og miskastigi Ásdísar Frí-
mannsdóttur. Beiðnin var undirrituð
af lögmanni fyrir hönd Ásdísar sam-
kvæmt umboði. í matsbeiðninni er
m.a. lýst yfir af hálfu Ásdísar að
örörkunefnd sé heimilt að afla gagna
beint frá læknum, sjúkrastofnunum
og öðrum opinberam aðilum eftir
því sem þurfa þykir við meðferð og
afgreiðslu beiðni þessarar.
I matsbeiðninni kemur fram að
meðal fylgigagna með henni vora
ljósmyndir af Asdísi.
Tilefni matsbeiðninnar var, eins
og fram hefur komið, lýtaaðgerð
sem framkvæmd hafði verið á Ás-
dísi og afleiðingar hennar. Ég tel
að nokkuð ljóst ætti að vera hveijum
sem um það hugsar, jafnvel blaða-
manni Morgunblaðsins, að við mat
á afleiðingum slíkrar aðgerðar verði
að líta til þess hvernig viðkomandi
leit út fyrir aðgerðina og hvernig
hann lítur út eftir hana.
í gögnum málsins kom fram að
Ijósmyndir hefðu verið teknar af
Asdísi þann dag sem hin upphaflega
skurðaðgerð fór fram og fékk nefnd-
in afhent eintak af einni þeirra
mynda.
Örorkunefnd lauk álitsgerð sinni
í umræddu matsmáli í júlí 1995. Öll
skjöl þessa máls eru varðveitt með
sama hætti og önnur .gögn um störf
örorkunefndar. Ekkert slikra skjala,
hvorki matsbeiðnir, læknisvottorð
né önnur gögn eru aðgengileg óvið-
komandi aðilum sem áhuga kynnu
að hafa á að kynna sér þau, heldur
er efni þessara skjala að sjálfsögðu
trúnaðarmál.
Frásögn sem virðist höfð eftir
Ásdísi í umræddri frétt um það
hvernig hún fékk vitneskju um til-
vist myndarinnar meðal gagna máls-
ins er vægast sagt ónákvæm en ég
sé þó ekki ástæðu til að rekja þann
þátt hér í smáatriðum.
í fréttinni segir m.a.: „Sjálf segist
Ásdís hvorki hafa fengið kvörtun frá
eiginmanni sínum né fæðingarlækni
um að kynfæri hennar séu ekki á
réttum stað.“
Ég tel ástæðu til að taka sérstaklega
fram að ekkert í svarbréfi mínu til
RLR eða öðram gögnum sem ör-
orkunefnd hefur látið fara frá sér
hefur gefíð minnsta tilefni til slíkra
hugleiðinga.“
HOAIDA Gunnai Bemhard hf., Vatnagöiðunt 24, Reykjavík, sími 568 990Q
LJpplýsingar um Honda Civic 5 dyra '36:
kraftmikill 90 hestafla léttmálmsvél
1 B venta og bein innspnautun
hraðatengt vökva- og veltistýri
þjófavörn
pafdnifnar núðun og speglan
viðaninnnétting í mselabonði
• 1 4 tommu dekkjastasnð
■ útvanp og kassettutaeki
• stynktanbitan í hunðum
■ sépstaklega hljóðeinangnaðun
■ féanlegun sjálfskiptun
■ samlaesing é hunðum
spontsasti
— núðuþunnka fynin aftunnúðu
— fnamhjóladnifin
— 4na hnaða miðstöð
með inntaksloka
— haeðanstillanlegun
fnamljósageisli
— stafnœn klukka
— bnemsuljós í aftunnúðu
— eyðsla 5,B I á 90 km/klst.
— 4,31 metni ó lengd
— nyðvönn og sknóning innifalir
- bottai nýja tima -