Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIVIT
Hafna stórmark-
aði við Auschwitz
Varsjá. Reuter.
ALEKSANDER Kwasniewski,
forseti Póllands, hefur mótmælt
áformum um byggingu versl-
unarmiðstöðvar tæpum 100
metrum frá innganginum að
Auschwitz-útrýmingarbúðum
þýskra nasista þar sem rúm
milljón gyðinga var drepin í
seinni heimsstyrjöldinni.
Yfirvöld í bænum Oswiecim,
sem er við útrýmingarbúðirnar
fyrrverandi, og forstöðumaður
safnsins á staðnum höfðu heimil-
að framkvæmdirnar. Pólska
stjórnin ákvað að senda nefnd á
staðinn til að afla upplýsinga um
áformin og hún hyggst beita sér
fyrir því að leyfið til framkvæmd-
anna verði afturkallað.
Smásölufyrirtæki á staðnum
hyggst breyta niðurníddum
byggingum, sem hýsa nú vöru-
geymslu, bílaverkstæði og versl-
un, í 5.000 fermetra stórmarkað,
skyndibitastað og íbúðir. Lysti-
garður er einnig ráðgerður við
byggingarnar.
Ráðamenn í ísrael og gyðing-
ar í Pólla,ndi mótmæltu áformun-
um harðlega. „Þetta er ekki stað-
ur til að versla og skemmta sér
á,“ sagði Shevah Weiss, forseti
neðri deildar ísraelska þingsins.
„Þetta er helgur staður og við
viljum að ekkert verði byggt á
honum.“
Kwasniewski kvaðst hafa full-
vissað Weiss og forystumenn
samtaka gyðinga í Póllandi um
að hann myndi beita sér fyrir
því að hætt yrði við framkvæmd-
irnar.
Reuter
Bandaríska alríkislögreglan upprætir mafíuna í Detroit
Ákæruatríðin allt að
þriggja áratuga gömul
Detroit. Reuter.
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, handtók á fimmtudagskvöld 17
menn sem taldir eru stjórna maf-
íunni í Detroit. Ákæruatriðin ná sum
allt að 30 ár aftur í tímann og eru
hin fjölbreytilegustu.
Talsmaður FBI sagði að handtök-
umar og ákæruatriðin, sem alls munu
vera 25, „legðu í rúst“ starfsemi
mafíunnar í Detroit, sem löngum
hefur verið umfangsmikil. Mafíufor-
ingjarnir 17 voru handteknir í Detro-
it og í Florída en foringi þeirra er
Jack William Tocco. Glæpamennimir
veittu enga mótspymu og var öllum
nema einum sleppt gegn tryggingu.
William Buffalino, verjandi Tocc-
os, lýsti yfir því að ákæruskjölin
væru „marklaus með öllu“ og vændi
FBI um tilbúning og lygar.
Valdamikill glæpamaður
FBI telur Tocco einn valdamesta
glæpaforingja Bandaríkjanna en
hann mun hafa verið skipaður yfir-
maður Detroit-mafíunnar árið 1979.
Talsmenn lögreglunnar bættu við
að auk Toccos, sem er 69 ára, hefði
nánasti undirsáti hans, hinn 68 ára
gamli Anthony Zerilli, verið hand-
tekinn ásamt þeim bræðrum Tony
og Vito Giaclone sem báðir eru rúm-
lega sjötugir. Sá yngsti sem laganna
verðir klófestu er 32 ára.
Ákæruatriðin eru m.a. okurlána-
starfsemi, ólögleg starfsemi spila-
víta, kúganir og samsæri um morð
og íkveikjur. Mál þessi ná allt aftur
til ársins 1966. Morðákæra var ekki
gefin út en FBI-menn sögðu mafíu-
foringjana oftlega hafa hótað Ijend-
um sínum sprengjutilræðum.
„Með þessari ákæru mun allir 17
leiðtogar Cosa Nostra í Detroit
standa frammi fyrir fangelsisdóm-
um, frá fimm árum til lífstíðar, og
gífurlega háum sektum," sagði Saui
Green, ríkissaksóknari.
Embættismenn í dómsmálaráðu-
neytinu í Washington sögðu að
glæpaforingjar frá Detroit hefðu
Engar
EMU-
tilslakanir
Dublin. Reuter.
HANS Titmey-
er, seðlabanka-
stjóri Þýska-
lands, sagði á
blaðamanna-
fundi í Dublin í
gær, að ekki
kæmi til greina
af hálfu Þjóð-
verja að slaka á
kröfum varð-
andi aðild að peningalegum
samruna Evrópuríkja, EMU.
Tietmeyer sagði að peninga-
legur stöðugleiki EMU skipti
meira máli en hvenær sameig-
inleg mynt yrði tekin upp.
Samkvæmt Maastricht-sam-
komulaginu á peningalegi
samruninn að eiga sér stað
árið 1999.
Þýski seðlabankastjórinn
lagði til að tekið yrði upp
breytt gengissamstarf Evrópu,
eins konar EMS II, þar sem
hinn nýi sameiginlegi gjald-
miðill yrði kjölfestan í gengis-
skráningu ESB-gjaldmiðla,
sem ekki eiga aðild að EMU,
gagnvart erlendum gjald-
miðlum.
Hans
Tietmeyer
Danskur þunga-
vigtarmaður
gegn EMU
Kaupmannahöfn. Morgfunbiadið.
ERIK Hoffmeyer, fyrrum seðla-
bankastjóri Dana, hefur lýst vantrú
á evrópska myntkerfinu (EMU),
þar sem hann komi hvorki auga á
pólitíska né efnahagslega kosti
þess. Það hefur lengi legið í loftinu
að Hoffmeyer væri ekki sérlega
trúaður á kerfið, en samkvæmt
danska blaðinu Politiken lýsti hann
hreinni vantrú á því á ráðstefnu
um myntkerfið á vegum Royal
Institute of Internationai Affairs í
London.
í erindi sínu sagði Hoffmeyer að
opni markaðurinn hefði þegar haft
í för með sér þá efnahagslegu kosti,
sem sagðir væru hljótast af kerf-
inu. Smávægileg viðbótarhag-
kvæmni kerfísins væri í engu sam-
ræmi við þann forræðismissi sem
það kostaði aðildarlöndin.
Hugsanlega pólitíska kosti sagði
Hoffmeyer erfíðara að meta. En
þá þyrfti einnig að hafa í huga að
ekki hefði tekist að móta þá 'í
Maastricht-samkomulaginu og
tækist að öllum líkindum heldur
ekki á ríkjaráðstefnu ESB nú. Hann
ályktaði því að best væri að fresta
myntkerfinu, en reyna heldur að
bæta gengissamstarfið gamla, sem
gliðnaði í ágúst 1993.
Þrískipt ESB
Hoffmeyer benti á að væri mynt-
kerfinu haldið til streitu gæti það
leitt til þrískipts Evrópusambands.
Einn hópurinn yrði saman í mynt-
kerfinu, norrænu aðildarlöndin
vildu ekki vera með og í þriðja lagi
væri Suður-Evrópa, sem gæti ekki
verið með því löndin þar uppfylltu
ekki efnahagsforsendur kerfisins.
Fyrir lítið land eins og Danmörku
væri traust gengissamstarf mun
hagstæðara, en það þyrfti þá að
vera tryggilegra en um leið sveigj-
anlegra en gamla samstarfið.
Á ráðstefnunni tðku bæði Eddie
George, seðlabankastóri Breta, og
Adair Turner frá breska iðnrek-
endasambandinu undir sjónarmið
Hoffmayers.
einnig látið til sín taka í spilavítum
í Las Vegas á sjöunda og áttunda
áratugnum og lagt á ráðin um morð,
misþyrmingar og mútugreiðslur.
Hvergi vikið að Hoffa-málinu
í ákærunni er hvergi vikið að
verkalýðsleiðtoganum Jimmy Hoffa
sem hvarf eftir að hafa setið á veit-
ingastað í úthverfi Detroit árið 1975.
Því hefur löngum verið haldið fram
að mafíuforingjar hafi ákveðið að
ryðja honum úr vegi. Talsmaður FBI
sagði að áfram yrði unnið að rann-
sókn Hoffa-málsins.
Janet Reno dómsmálaráðherra
sagði á blaðamannafundi í Washing-
ton að handtökur glæpaforingjanna
væru liður í herferð gegn glæpasam-
tökum í Boston, New York, New
Orleans, Chicago, Philadelphia, Cle-
veland og Newark.
Heimildarmenn í röðum FBI
sögðu að undanfarin fimm ár hefði
verið fylgst grannt með ferðum
mafíuforingjanna í Detroit. Beitt
hefði verið háþóuðum tæknibúnaði
í þessu skyni auk þess sem fulltrúar
lögreglunnar hefðu komist inn í sam-
tökin undir fölsku flaggi.
Mugabe
einn eftir í
framboði
ABEL Muzorewa, biskup og leið-
togi stjórnarandstöðunnar í
Zimbabwe, dró í gær forseta-
framboð sitt til baka og er því
ljóst að Robert Mugabe, forseti
landsins, mun silja annað sex ára
kjörtímabil. Forsetakosningarnar
verða haldnar um helgina.
Stjórnarandstaðan hafði kraf-
ist þess að kosningunum yrði
frestað vegna ásakana um að
kosningalög landsins striddu
gegn stjórnarskránni og tryggðu
hag Mugabes og flokks hans.
Hæstiréttur Zimbabwe hafnaði
þessari kröfu í gær á þeirri for-
sendu að ekki væri ljóst hvers
vegna þetta mál væri svo brýnt
og spurði hvernig á því stæði að
hún væri lögð fram á síðustu
stundu.
Mugabe hefur setið við völd í
16 ár og var búist við að hann
myndi bera sigur úr býtum í kosn-
ingunum. Aðstoðarmaður Mugab-
es sagði að nú gæti forsetinn ekki
sannað lýðhylli sína fyrir um-
heiminum vegna þess að hann
væri einn í kjöri.
Áður hafði Ndabaningi Sithole,
sem um langt skeið hefur verið í
stjórnarandstöðu, dregið sig í hlé.
Á myndinni sjást Nhau-dansar-
ar með „hvítar“ grímur og veifur
til stuðnings Mugabe.
BobDole kveðst öruggnr um tilnefningu
Repúblik-
anar sam-
einist
Washington. Reuter.
BOB Dole, leiðtogi repúblikana i
öldungadeild Bandaríkjaþings,
hvatti repúblikana til að fylkja sér
um hann í forsetakosningunum 5.
nóvember eftir að einn af andstæð-
ingum hans í forkosningunum,
Steve Forbes, ákvað á fimmtudag
að draga sig í hlé.
Allir helstu andstæðingar Doles
í forkosningunum hafa nú dregið
sig í hlé nema Pat Buchanan.
„Sem repúblikanar höfum við
nú það verkefni að fylkja okkur
um forsetaefnið - og Bob Dole
verður forsetaefni Repúblikana-
flokksins, enginn vafi leikur á því,“
sagði Dole á kosningafundi í Mic-
higan.
Bob Dole, leiðtogi repúblik-
ana í öldungadeildinni.
Efnt verður til forkosninga í fjór-
um ríkjum á þriðjudag, í Michigan,
Illinois, Ohio og Wisconsin, sem eru
með alls 229 kjörmenn. Með því
að tryggja sér flesta eða alla þessa
kjörmenn verður Dole mjög nálægt
því að fá þá 996 kjörmenn sem
hann þarf til að verða tilnefndur
frambjóðandi repúblikana á flokks-
þingi þeirra í San Diego í ágúst.