Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 11
FRÉTTIR
Yfirlýsing
frá sókn-
arbörnum
í Bústaða-
kirkju
MORGUNBLAÐINU barst í gær
yfirlýsing frá fjölda kvenna í Bú-
staðasókn, sem samþykkt var á
fundi, sem þær héldu. Yfirlýsingin
er svohljóðandi:
„í framhaldi af fundi þann 11.
mars 1996 í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju viljum við undirritaðar
konur koma á framfæri að við
hörmum þær ásakanir sem bomar
hafa verið á herra Ólaf Skúlason,
biskup íslands. í starfí með honum
bar aldrei skugga á, allan þann
tíma, sem hann var prestur okkar.
Það er ósk okkar til hans og frú
Ebbu að þessu máli fari að linna
og að fjölskyldan öll fái að njóta
friðar.
Með innilegri virðingu við þau
hjón:
Erla Magnúsdóttir, Sesselja Ásgeirsdóttir,
Kristbjörg V. Jensen, Bjarney Sigurðar-
dóttir, Hildigunnur Sveinsdóttir, Fjóla
Emilsdóttir, Sjöfn Kristinsdóttir, Svava
Ásgeirsdóttir, Elísabet Ingvarsdóttir, Bima
Benediktsdóttir, Jenný Jónsdóttir, Steinunn
B. Ingvarsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir, Elísa-
bet Jónsdóttir, Björg Randversdóttir, Ingi-
björg Guðmundsdóttir, Elín Hrefna Hann-
esdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir, Anna
Sigurbergsdóttir, Áslaug Þorfmnsdóttir,
Rósa Sveinbjamardóttir, Björg Gunnars-
dóttir, Guðrún Þorvaldsdóttir, Erla Sigur-
jónsdóttir, Áslaug Friðriksdóttir, Henný
Hermannsdóttir, Lára Herbjömsdóttir,
Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Björg Jakobsdótt-
ir, Stella Guðnadóttir, Guðbjörg Einars-
dóttir, Lilly Kristjánsson, Helga Ivarsdótt-
ir, Mikkelína Sigurðardóttir, Magnea Guð-
jónsdóttir, Ásfríður Gísladóttir, Borghildur
Kjartansdóttir, Dagmar Gunnlaugsdóttir,
Dóra Halldórsdóttir, Ása Pálsdóttir, Rann-
veig Ólafsdóttir, Erla Gunnarsdóttir, Sig-
riður Sveinbjamardóttir, Lilja M. Oddgeirs-
dóttir, Sigrún Einarsdóttir, Sigríður Sig-
geirsdóttir, Ósk Laufey Jónsdóttir, Svava
S. Jónsdóttir, Heiga Sigurðardóttir, Guðrún
Sigurðardóttir, Unnur Runólfsdóttir, Krist-
in Þórðardóttir, Margrét Þórðardóttir, Sig-
urbjörg Runólfsdóttir, Sigríður Lúðvíks-
dóttir, Þorgerður Jónsdóttir, Ólöf Silveníus-
dóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Ólöf S.
Magnúsdóttir, Mundheiður Gunnarsdóttir,
Steinunn Berndsen, Rakel Sjöfn Ólafsdótt-
ir, Guðfinna Jensdóttir, Áslaug Gisladóttir,
Hanna Á. Ágústsdóttir, Oddný Sigur-
björnsdóttir, Sigþrúður Eyjólfsdóttir,
Ragna Bergmann, Kristín Þórarinsdóttir,
Halla Ottósdóttir, Þóra Sæmundsdóttir,
Ólöf Stefánsdóttir, Fríða Hjaltested, Sigríð-
ur Stefánsdóttir, Laufey Kristjánsdóttir,
Fjóla Kristjánsdóttir, Ingunn E. Stefáns-
dóttir, Sigrún Jóhannesdóttir, Guðbjörg
Halldórsdóttir, Ingibjörg Bjömsdóttir, El-
len S. Stefánsdóttir, Þorgerður Stefáns-
dóttir, Helga Bjamadóttir, Ólina Kristins-
dóttir, Jóhanna Þorgeirsdóttir, Elín Ó. Þor-
valdsdóttir, Helga F. Stefánsdóttir, Camilla
Sæmundsdóttir, Aðalheiður Bjargmunds-
dóttir, Aðalheiður B. Björgvinsdóttir,
Sigurbjörg Magnúsdóttir, Helga Guð-
björnsdóttir, Björg Theodórsdóttir, Guðrún
Möller, Erla Magnúsdóttir, Erla Levý,
Björg Berndsen, Kristín Benediktsdóttir,
Unnur Amgrímsdóttir."
------» »4-----
Yilja aðgengi að
Vonarskarði
SKIPULAGI ríkisins hafa borist und-
irskriftir 11 einstaklinga, sem fara
fram á að tryggt verði að aðgengi
að Vonarskarði sunnan frá verði
ekki lakara eftir tilkomu Hágöngu-
miðlunar en er í dag. Nokkur umferð
jeppa sé um Vonarskarð seinni hluta
sumars og á haustin, en svæðið sé
mjög sérstakt hvað varðar litadýrð,
hveri og gróðurfar. i
Einnig er farið fram á að stíflan
við Syðri-Hágöngu verði höfð opin
fyrir umferð bíla allt árið því það
myndi opna svæðið. austan Köldu-
kvíslar og auðvelda för frá Há-
göngum suður í Jökulheima og á
Vatnajökul en ein af fáum færum
leiðum á hann í dag er upp Köldu-
kvíslarjökul, segir í athugasemdum
hópsins við mat á umhverfisáhrifum
. vegna Hágöngumiðlunar.
Undirskriftalisti með áskorun um lagningu nýrrar Borgarfjarðar-
brautar sendur ráðherrum og þingmönnum Vesturlands
NOKKRIR íbúar í Reykholtsdals-
hreppi sendu í gær umhverfisráð-
herra, samgönguráðherra, þing-
mönnum Vesturlandskjördæmis
og hreppsnefnd Reykholtsdals-
hrepps undirskriftalista með nöfn-
um 103 af 174 atkvæðisbærum
íbúum hreppsins, sem lýsa stuðn-
ingi við niðurstöður umhverfis-
mats vegna lagningar Borgar-
fjarðarbrautar Kleppjárnsreykir-
Varmalækur, og skora á sam-
gönguráðherra og alþingismenn
Vesturlands að beita sér fyrir því
að framkvæmdir við vegarlagn-
inguna hefjist sem fyrst.
Þá mótmæla íbúarnir harðlega
hugmyndum um að fresta lagn-
ingu vegarins í Reykholtsdals-
hreppi og lagfæra gamla veginn
um Steðjabrekku og Rudda í stað-
inn, og máli sínu til stuðnings vísa
þeir til raka sem fram koma í úr-
skurði skipulagsstjóra sem stað-
festur var af umhverfisráðherra.
Vill að yfirvöld
rannsaki málið
Þorvaldur Pálmason kennari og
íbúi á Kleppjárnsreykjum hefur
sent sýslumanni Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu bréf þar sem hann
segir það staðfestan grun sinn að
undirskriftum á listann hafi verið
safnað með villandi og siðlausum
hætti og fer hann þess á leit að
þegar fari fram rannsókn á því
hvort um saknæmt atferli sé að
ræða.
í bréfinu til sýslumanns segir
m.a. að þeir sem þekki til málsins
viti að verið sé að skora á alþingis-
menn og samgönguráðherra að
sem fyrst verði hafist handa við
lagningu Borgarfjarðarbrautar
um svokallaða „neðri leið“ [um
land Stóra-Kropps] og þá sé hug-
myndum um lagfæringu á núver-
andi leið [efri leið] hafnað afdrátt-
arlaust. Segist hann geta nefnt
vitni að því að við kynningu á
undirskriftalistanum hafi a.m.k.
tveir aðilar [sem að söfnun undir-
skriftanna stóðu] hagað máli sínu
á þann veg að verið væri að knýja
á um lagfæringu á „efri leiðinni".
Látið hafí verið liggja að því að
til stæði að leggja einbreitt slitlag
á veginn og með stuðningi við
yfirlýsinguna væri verið að skora
á viðkomandi yfirvöld að lagt yrði
tvíbreitt slitlag á veginn. Ennfrem-
ur hefði verið gefið í skyn að vegna
illvígra deilna í sveitarfélaginu
væri með stuðningi við yfirlýsing-
una verið að stuðla að lausn máls-
ins, og fullyrt að vegur um land
Stóra-Kroppsmela, jand Runna,
Stóra-Kropps og Ásgarðs (þ.e.
svokölluð neðri leið) væri plagginu
óviðkomandi.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Þorvaldur að hann harmaði
það fyrst og fremst að börnunum
hans og öðrum unglingum sem
nýkomnir væru með kosningarétt
og þekktu ekki til málsins hefði
verið blandað í það með þeim
hætti sem gert hefði verið.
„Eftir að ég var búinn að lesa
textann, sem er að minnsta kosti
fyrir þá sem ekki þekkja þetta
mál á nokkru stofnanamáli, þá
kemur í ljós að þessir__________________
krakkar sem þarna áttu Frekari fram-
hlut að máli fengu þver- lcvæmdum
öfugan skilning á þessu - l.'kleaa
máli við það sem texti ver°ur
haussins sagði til um.
Fólk hefur skrifað undir
Sýslumaður
rannsaki
söfnun undir-
skrifta
Harka hefur hlaupið í deilur um vegar-
lagningu um Reykholtsdal eftir að nokkrir
íbúar hreppsins gengust fyrir undirskrifta-
söfnun þar sem skorað er á ráðherra og
þingmenn að beita sér fyrir því að fram-
kvæmdir við nýja Borgarfjarðarbraut heflist
sem fyrst. Þess hefur verið farið á leit við
sýslumann að hann rannsaki hvort staðið
hafi verið að söfnun undirskriftanna
með saknæmum hætti.
byrgi er einn þeirra sem stóðu að
söfnun undirskriftanna og vísar
hann á bug ásökunum um að fólk
hafi verið blekkt til að skrifa und-
ir listann. Þeir sem það hafi gert
hafi getað lesið þann texta sem
þeir voru að skrifa undir og fólki
hefði því átt að vera alveg ljóst
hvert efnið var.
þennan lista að svo og svo miklu
leyti án rétts skilnings á efninu
og þess vegna skrifaði ég sýslu-
manni. Mér fmnst þetta sorglegt
og ég vil ekki fara að standa í
einhveijum illindum augliti til aug-
litis við fólk í þessu máli. Mér
finnst bara eðlilegt að yfirvöld
rannsaki þetta mál,“ sagði Þor-
valdur.
Bernhard Jóhannesson í Sól-
Ekkert ákveðið
fyrr en í vegaáætlun
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu áttu alþingismenn Vestur-
lands fund með fulltrúum Vega-
gerðarinnar fyrir skömmu og snér-
ist fundurinn um endurskoðun
vegaáætlunar vegna niðurskurðar
á framkvæmdum. Jón Rögnvalds-
son aðstoðarvegamálastjóri sagði
_______ að mun minna fé væri
til ráðstöfunar en gert
hafi verið ráð fyrir þegar
vegaáætlun var afgreidd
fyrir ári og fyrirhugaðar
vegaframkvæmdir í
Reykholtsdal væru með-
al þess sem lenti undir niðurskurð-
arhnífnum. Væntanlega yrði byij-
að á að byggja nýja brú yfir Flóka-
dalsá sem væri mest aðkallandi
og í ár væri ekki fé til meiri fram-
kvæmda. Síðan væri stefnt að því
að gera bráðabirgðaráðstafanir við
veginn á næsta ári, þar á meðal
lagfæringar í Steðjabrekku og við
Rudda. Taldi hann líklegt að þegar
vegurinn hefði verið lagfærður
frestuðust frekari vegafram-
kvæmdir á þessu svæði um nokkur
ár.
Rík ástæða fyrir
afstöðu hreppsnefndar
Gunnar Bjamason, oddviti
Reykholtsdalshrepps, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
hvað sveitarstjórnina varðaði þá
væri rík ástæða fyrir því að hún
vildi fara þá leið að láta endur-
byggja núverandi Borgarfjarðar-
braut og lagfæra hana verulega.
„Sveitarstjórnir sumar hveijar
í kringum okkur leggjast eindregið
gegn því að fjármunir verði settir
í þetta verkefni og okkur fínnst
þetta kannski svolítið yfirgengileg
afskiptasemi. Þetta er á umræðu-
stigi ennþá, en ástæða __________
þess að við viljum hafa
Borgarfj arðarbrautina
þar sem hún liggur á
efri leiðinni er sú að
brautin liggur miðsvæð-
is um þá byggð sem er
þarna, þannig að sem flestir koma
til með að njóta hennar á þessu
svæði.
Tillaga Vegagerðarinnar geng-
ur út á að fara þarna fyrir neðan
og það er ljóst að við það verður
eignarnám á tveim jörðum þar sem
veruleg uppbygging hefur átt sér
stað í landbúnaði allra síðustu ár
og er fyrirsjáanlegt að verður
meiri. Okkur í sveitarstjórn finnst
það bara ekki fær leið að fara í
gegnum þessar jarðir með eign-
arnám þegar annar mjög viðun-
andi kostur er í boði.
Á þessu svæði, bæði í efri byggð
og neðri byggð, eru liðlega 50%
af mjólkurframleiðslunni í hreppn-
um þannig að mér finnst rökrétt-
ast að brautin liggi sem næst nú-
verandi stað og verði lagfærð
verulega, eins og Vegagerðin hef-
ur í rauninni teiknað og sett fram
í umhverfismatsskýrslu sem leið
2A,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að ef það reyndist
rétt að vafasöinum vinnubrögðum
hefði verið beitt við söfnun undir-
skrifta í hreppnum, og hann hefði
ekki ástæðu til að ætla annað en
svo hafi verið þegar málið væri
komið á þetta stig, þá áttaði hann
sig ekki á því á hvaða plani þeir
væru að vinna sem að undir-
skriftasöfnuninni stóðu.
„Mér finnst þetta þvílík lágkúra
að narra unglingana sem éru ný-
komnir með kosningarétt. Sjálfur
á ég ekki neinna hagsmuna að
gæta í þessu máli, en ég get bara
ekki tekið þátt í því að jarðir héma
verði lagðar í eyði ef hægt er að
komast hjá því á mjög viðunandi
hátt eins og Vegagerðin hefur
orðað það. Þess vegna skil ég ekki
þetta offors og hvernig á að þvinga
þetta fram,“ sagði hann.
Svik af ásettu ráði
Jón Kjartansson bóndi á Stóra-
Kroppi sagði að kannski með einni
undantekningu væri enginn sem
skrifað hefði nafn sitt á undir-
skriftalistann búsettur á því svæði
sem vegur um neðri leiðina færi
um eða færsla vegarins hefði nei-
kvæð áhrif á.
„Það var fjöldi manns sem
spurði hvort þetta væri eitthvað
um efri eða neðri leiðina og var
svarað neitandi. Ég tel að þarna
hafi verið höfð í frammi svik af
ásettu ráði. Ég bendi á fund í
Logalandi sem var haldinn þegar
málið var kynnt af Vegagerðinni
þar sem þessum tillögum var al-
gerlega hafnað af fundarmönnum,
enda mótaði það síðan skoðun
hreppsnefndarinnar, þar kom vilji
íbúanna fram. Hér er verið að
safna undirskriftum á fölskum
forsendum undir fölsku flaggi, en
það er hægt að fá fólk til að skrifa
á hvað sem er,“ sagði Jón.
Samgöngunefnd SSV hafnar
hugmyndum um lagfæringu
Samgöngunefnd Sambands
sveitarfélaga á Vesturlandi sam-
þykkti á fundi í gær ályktun þar
sem alfarið er hafnað framkomn-
um hugmyndum um lagfæringu á
Borgarfjarðarbraut frá Flóku að
Kleppjárnsreykjum þar sem gert
sé ráð fyrir að núverandi vegur
verði styrktur og ef til vill sett á
hann slitlag sem ætti að duga í
10-20 ár. Þar sem vegafé sé tak-
markað þá telji samgöngunefndin
fénu betur varið til varanlegra
vegaframkvæmda en bráðabirgða-
lausna.
„Þar sem fyrir liggur yfirlýsing
frá meirihluta íbúa Reykholtsdals-
________ hrepps um stuðning við
úrskurð umhverfísráð-
herra um veglínu væri
eðlilegt að hefjast handa
samkvæmt þeirri heim-
ild. Verði það ekki gert
leggur nefndin til að því
Fé verði varið
til varanlegra
vegafram-
kvæmda
fé sem ætlað er í Borgarfjarðar-
braut næstu 2-3 árin eða þar til
endanlegt svæðisskipulag liggur
samþykkt fyrir verði varið í bygg-
ingu brúar á Flókadalsá (Flóku)
og síðan í Borgarfjarðarbraut í átt
að Grímsá, en fullkomin sátt er
um þá veglínu,“ segir orðrétt í
ályktuninni sem samþykkt var
samhljóða í samgöngunefnd SSV
í gær.