Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Keisara- salur fluttur FLYTJA átti danssal Vilhjálms Þýskalandskeisara í höfuð- stöðvar stórfyrirtækisins Sony í Berlín í gær, en hætta varð við það eftir að hann hafði ver- ið færður nokkra metra eftir járnbraut sem lögð var sérstak- lega vegna flutninganna. Flytja átti salinn um 75 metra yfir Potsdamer Platz, en í ljós kom að veggir höfðu færst til. Reynt verður að halda verkinu áfram í dag. Sony tók að sér að varð- veita salinn og það er liður í samningi fyrirtækisins við Ber- línarborg fyrir rétt til að reisa skrifstofubyggingu í hjarta borgarinnar. Verkefnið kostar Sony 50 milljónir marka, jafn- virði rúmra 2,2 milljarða króna. Myndin var tekin áður en flutn- ingurinn hófst og danssalurinn sést til hægri. Reuter Mótmæli í Venezuela Caracas. Reuter. TUGIR þúsunda ríkisstarfsmanna og lífeyrisþega tóku þátt í mótmæla- göngum í átta borgum í Venezuela á miðvikudag og kröfðust þess að Rafael Caldera Rodríguez forseti segði af sér. Þetta eru fjölmennustu mótmælin gegn Caldera frá því hann tók við forsetaembættinu í annað sinn fyrir tveimur árum. Að minnsta kosti 25.000 manns tóku þátt í göngunni í höfuðborginni, Caracas. Mótmæ- lendurnir hrópuðu vígorð gegn Cald- era og íbúar nálægra húsa stóðu á svölunum og börðu í potta til stuðn- ings þeim. Forystumenn stéttarfélaga opin- berra starfsmanna ávörpuðu göngu- menn og kröfðust launahækkana til að vega upp á móti 73% verðbólgu. Efnahagssamdráttur hefur verið í Venezuela síðustu tvö árin og Cald- era hefur lofað að grípa til róttækra aðgerða til að blása lífí í efnahaginn. HELGARTILBOÐ og 13-17 sunnudag. fyrir fólkiö í landinu Holtagöröúm við Holtaveg / Grænt númer 800 6850 Jeltsín kveðst sannfærður um sigur í kosningunum í júní Fréttaskýrendur hall- ast að sigri forsetans Gennadij Tsjúganov Grígoríj Javlínskíj BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti sagði í sjónvarpsviðtali á fimmtudag að hann væri 'sannfærður um að hann myndi ná endurkjöri í kosningunum í júní. Forsetinn kvaðst vinna 12-14 tíma á dag og vera við góða heilsu. „Ég er bjartsýnismaður og ég trúi því að ég nái kjöri. Mér líður vel og hef sterka tilfmningu fyrir því að ég fari með sigur af hólmi,“ sagði Borís Jeltsín. Vera kann að nýleg könn- un hafi fyllt forsetann nýjum eldmóði en helstu stjórn- málaskýrendur Rússlands Borig telja að Jeltsín eigi mesta jeltsín möguleika á að sigra í for- setakosningunum í júnímánuði. Þetta kom fram í könnun sem Vox Populi-stofnunin gerði.og birt var nýverið í dagblaðinu Njesavisimaja Gaseta. Barátta Jeltsíns og Tsjúganovs í könnuninni kom fram það álit að þeir Jeltsín og Gennadíj Tsjúg- anov, leiðtogi rússneskra kommún- ista og forsetaframbjóðandi, væru öflugastir rússneskra stjórnmála- manna. Af þeim sem þátt tóku töidu 46 sérfræðingar að Jeltsín myndi bera sigur úr býtum en 43 kváðust telja að Tsjúganov yrði næsti for- seti Rússlands. Á lista sem birtur var yfir 100 helstu stjórnmálamenn Rússlands var Jeltsín efstur með einkunnina 8,37 af tíu mögulegum. Styrkur Tsjúganovs mældist 7,56 og hafði aukist umtalsvert frá síðustu könn- að skipta sköpum fyrir forsetann og tryggja endurkjör hans. „Lúskov nær örugglega endurkjöri í fyrri umferðinni 16. júní. Kjör hans getur orðið til þess að kjósendur styðji Jeltsín í seinni umferð forsetakosn- inganna," sagði Kinsburskíj. Gekk hann þá að því sem vísu að enginn frambjóðandi hlyti meirihluta í fyrri um- ferðinni. Lúskov er talinn í hópi áhrifamestu umbóta- hafa miklar un sem birt var í febrúar. í þriðja sæti var Júríj Lúskov, hinn áhrifa- mikli borgarstjóri Moskvu en næstur honum komu þeir Viktor Tsjerno- myrdín forsætisráðherra og Alex- ander Korzhakov, yfirmaður líf- varðasveita Jeltsíns og einn helsti ráðgjafi hans. Grígoríj Javlínskíj, leiðtogi umbótaflokksins Jabloko og forsetaframbjóðandi, hefur heldur styrkt stöðu sína og er nú í sjöunda sæti. Mikilvægur stuðningur Lúskovs Rússneskir stjórnmálaskýrendur eru almennt þeirrar hyggju að þeir Jeltsín, Tsjúganov og Lúskov munu einkum setja svip sinn á baráttuna fram að kosningunum. Þekktur stjórnmálafræðingur, Alexander Kinsburskíj, sagði í viðtali við dag- blaðið The Moscow Tribune að stuðningur Lúskovs við Jeltsín kynni sinnanna og breytingar átt sér stað í Moskvu í valdatíð hans. Borgarstjór- inn heitir því í auglýsingu í nýjasta hefti bandaríska tímaritsins Time að haldið verði áfram á sömu braut. Auk Lúskovs hefur m.a. Jegor Gaidar, fyrrum forsætisráðherra, látið að því liggja að hreyfing hans muni styðja Jeltsín. Javlínskíj bjartsýnn Margir telja að Grígoríj Javlínskíj sé í raun eini trúverðugi valkostur- inn við þá Jeltsín og Tsjúganov. Javlinskíj hefur iýst yfir því að kjós- endur muni fylkja sér að baki honum þegar í kjörklefana er komið en hann er nú í fjórða sæti frambjóð- enda ef marka má skoðanakannan- ir. „Ég er öldungis sannfærður um að fiestir landsmenn vilja ekki að kommúnistar komist aftur til valda og að þeir vilja heldur ekki draga fram lífið með sama hætti og þeir gera nú,“ sagði Javlínskíj. Prímakov segist skilja Varsjá. Reuter. áhyggjur Pólverja ALEKSANDER Kwasniewski, for- seti Póllands, og Jevgení Prímakov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddust við í gær og sögðu að stigið hefði verið skref í áttina að bættum samskiptum milli Pólveija og Rússa. Hins vegar tókst Kwasniewski ekki að sannfæra Prímakov um að innganga Pólveija í Atlantshafsbandalagið (NATO) yrði Rússum að skaðlausu. Prímakov kvaðst ánægður með niðurstöðu viðræðnanna, þrátt fyr- ir að Kwasniewski virtist hafa verið ómyrkur í máli. Hann sagði að tveggja daga heimsókn sín væri upphafið að bættum sam- skiptum ríkja, sem voru banda- menn í Varsjárbandalaginu, en hafa fjarlægst eftir hrun Sovét- ríkjanna, einkum vegna tilrauna Pólveija til að verða hluti vestræns hemaðarskipulags. Prímakov sagði að Rússar skildu þær áhyggjur, sem ráða- menn í Varsjá hefðu, þótt þeir væru ekki reiðubúnir til að sætta sig við stækkun NATO. Prímakov ítrekaði gamlá tillögu Rússa um að ríki Austur-Evrópu létu af áformum um sækja um aðild að NATO og Vesturlönd og Rússar ábyrgðust öryggi þeirra í staðinn. Pólverjar höfnuðu þessari hugmynd samstundis. „Pólveijar eru staðráðnir í að sækja um aðild að NATO,“ sagði Dariusz Rosati, utanríkisráðherra Póllands. „Sag- an sýnir að ábyrgðir duga ekki.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.