Morgunblaðið - 16.03.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 29
AÐSEIMDAR GREINAR
Fjármögnun og ferliverk
í TENGSLUM við þann niður-
skurð í heilbrigðisþjónustu, sem
hefur verið ákveðinn í fjáriögum,
hefur verið beitt alþekktri vinnuað-
ferð sem er flatur niðurskurður.
Þessi aðferð hefur nú verið reynd
í mörg undanfarin ár með misjöfn-
um árangri en flestir virðast nú
orðið sammála um að nú sé komið
að þeim mörkum að nauðsynlegt
sé að forgangsraða verkefnum og
komast að niðurstöðu í þeim efnum.
Fjármögnun heilbrigðisþjónustu
hér á landi hefur undanfarin ár
byggst á kerfi fastra fjárlaga hvað
rekstur sjúkrahúsa varðar. Fram-
lögin eru ákveðin á Alþingi og finnst
ýmsum að þar sé ekki gætt nægi-
lega réttlátra sjónarmiða enda upp-
hæð sú sem ætluð er til reksturs
hinna einstöku stofnana ekki í bein-
um tengslum við afköst þeirra.
Verulegur niðurskurður hefur orðið
á framlögum til sjúkrahúsa eins og
alþjóð er kunnugt.
Fjármögnun til þjónustu við ut-
anspítalasjúklinga, sem þurfa á sér-
fræðiþjónustu að halda, er eftir
annarri leið. Hún byggist á fram-
lagi til Tryggingastofnunar ríkisins
á fjárlögum en TR semur síðan við
lækna um greiðslu fyrir þau verk,
sem unnin eru. Einnig á þessum lið
var verulegur niðurskurður þannig
að í nýgerðum samningi aðila er
gert ráð fyrir minni íjárframlögum
til ferliverkaþjónustu en áður.
Þessi aðferð verður til þess að
ekki er hægt að flytja þjónustu við
sjúklinga frá því að vera veitt í
sólarhringsþjónustu í dagdeildar-
þjónustu. Til þess að.fólk átti sig á
hvað er um að vera þá er talið að
hægt væri að þjóna 3-4 sjúklingum
á dagdeild fyrir sömu upphæð og
það kostar ef leggja þarf einn sjúkl-
ing inn á spítala.
Hvað gera aðrar þjóðir?
Það vill svo til að sl. sumar komu
hér ráðgjafar frá Dansk Sygehus
Institut í sambandi við sameiningu
Landakots og Borgarspítala í
Sjúkrahús Reykjavíkur. I greinar-
gerð sinni segja þeir m.a.: „Það er
mjög nauðsynlegt að sjúkrahúsið
þrói starfsemi sína meir í átt til
feriiverka. Ný tækni og nýjungar í
meðferð auka mjög möguleika á
að meðhöndla sjúklinga án innlagn-
ar, sem hefur í för meði sér mun
minni þörf fyrir sjúkrarúm. Þetta á
ekki síst við um skurðlækningar.
Skurðlækningadeildirnar geta með
aukinni ferliverkaþjónustu dregið
úr þörf fyrir legurými og sparað
þannig peninga."
Fyrir nokkrum dögum kom hing-
að ráðgjafi á vegum Sjúkrahúss
Stretsbuxur kr. 2.900
Konubuxur kr. 1.490
Mikfö úrval af
allskonar buxum
Opið á laugardögum
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433.
FYRIR
WINDOWS 95
CT KERFISÞRÓUN HF.
“ Fákafeni 11 - Sími 568 8055
Reykjavíkur, Alain
Gauthier að nafni.
Hann er franskur að
uppruna en hefur búið
undanfarin 10 ár í
Kaliforníu, þar sem
hann hefur unnið ráð-
gjafarstörf. Fróðlegt
er að sjá hvað hann
segir um þróunina
vestan hafs: „Þróunin
frá innanspítalaþjón-
ustu - þar sem sjúkl-
ingar þurfa á sólar-
hringsþjónustu að
halda - í mun ódýrari
dagdeildarþjónustu er
mjög hröð. Ný tækni í
Ólafur Örn
Arnarson
rannsóknum og með-
ferð hefur flýtt fyrir
þessari þróun. Sér-
fræðingar telja að loka
þurfi meira en helmingi
þeirra 900 þús. bráða-
sjúkrarúma, sem nú
eru til staðar í Banda-
ríkjunum, fyrir alda-
mót og breyta þeim
fyrir dagdeildarstarf-
semi.“
Áhrif á þróunina
Sú fjármögnunarleið
sem við höfum farið
kemur beinlínis í veg
fyrir þá þróun sem ger-
Nauðsynlegt er,
segir Olafur Orn
Arnarson, að taka
upp ný vinnubrögð.
ist með öðrum þjóðum. Með þessari
tvískiptingu virðist sem annar aðil-
inn viti ekki af hinum og báðum
er sagt að skera niður. Ef fjármögn-
un þessara tveggja nær óaðskiljan-
legu þátta heilbrigðisþjónustunnar
væri á sömu hendi yrði mönnum
fljótlega ljóst að með því að auka
framlög til ferliverka er hægt að
spara þá upphæð þre- til fjórfalda
í spítalaþjónustu án þess að skerða
þjónustu við sjúklinga. Það er mjög
brýnt að fólk átti sig á því að sjúkl-
ingur sem er lagður inn á sjúkrahús
til rannsóknar eða aðgerðar, sem
auðvelt er að framkvæma á dag-
deild, tekur pláss og fjármuni frá
þeim sem nauðsynlega þurfa á sól-
arhringsþjónustu að halda. Til þess
að stuðla að þeirri þróun, sem veit-
ir almenningi sem mesta þjónustu
fyrir það fjármagn sem rennur til
heilbrigðismála, er nauðsynlegt að
taka upp ný vinnubrögð. Það þarf
að auka mjög þekkingu á hvernig
kostnaður verður til í þjónustu við
sjúklinga. Það þarf að beina fjár-
magni þangað sem þjónustan er
veitt og eftir þeim leiðum sem hag-
kvæmastar eru.
Höfundur or læknir.
7
■ '
L L Jó
Venu me.ö fyrir kl. 20~(»