Morgunblaðið - 16.03.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 17
________VIÐSKIPTI_____
Þúsundir missa
vinnuna vegna
gjaldþrots Fokkers
URVERINU
LOÐNUHROGNIN fryst hjá ísfélaginu í Vestmannaeyjum. Morgunbiaðið/Sigurgeir
Hrognafrysting í báðum
frystihúsunum í Eyjum
Amsterdam. Reuter.
FOKKER - flugvélaverksmiðjumar
urðu gjaldþrota í gær eftir frægðar-
feril, sem hófst fyrir rúmlega sjötíu
árum. Þúsúndir missa atvinnuna og
hefur ekkert hollenzkt fyrirtæki
staðið fyrir eins víðtækum uppsögn-
um.
Tilkynnt var á blaðamannafundi
að ekki hefði tekizt að finna kaup-
anda þrátt fyrir örvæntingarfullar
tilraunir og að þijár aðaldeildir fyr-
irtækisins værru gjaldþróta. „Þar
með er lokið 77 ára sögu flugvéla-
iðnaðar í Hollandi," sagði stjórnar-
formaður Fokkers, Ben van Schaik.
Fokker hefur verið haldið gang-
andi með ríkistryggðum lánum
meðan kaupanda hefur verið leitað
logandi ljósi síðan þýzka móðurfyr-
irtækið Daimler-Benz AG hætti
fjárhagsstuðningi sínum 22. janúar.
„Við börðumst unz yfir lauk, það
er í morgun, en án árangurs," sagði
van Schaik.
Rúmlega 5.600 verkamönnum verð-
ur sagt upp, en 960 fá að halda
áfram störfum í þeim einingum fyr-
irtækisins, sem komust hjá gjald-
þroti. Lífvænlegur rekstur eins og
viðhaldi flugvéla, gerð rafeindabún-
aðar og annars sérbúnaðar verður
sameinaður í deildina Fokker
Aviation, sem heldur áfram starf-
semi undir merkjum Fokkers með
um 2.500 staarfsmönnum.
Um leið segir Fokker að haldið
verði áfram að „leita eftir sam-
starfi við annað fyrirtæki, sem
gæti styrkt slöðu félagsins" að sögn
Louis Deterinks skiptaráðanda.
Fokker Aviation tekur einnig við
rekstri tveggja eininga annarrar
gjaldþrota deildar, Fokker Aircraft,
sem verða skornar niður.
Fokker hættir að framleiða hinar
kunnu farþegaþotur sínar, en heitir
tæknilegri aðstoð og þjónustu til
að tryggja að rekstri þeirra verði
haldið áfram.
„Ein ástæða þess að öll starf-
SAMSKIP hf. hafa keypt flutnings-
miðlunarfyrirtækið Air Express á
íslandi ehf. af Heklu hf. Air Ex-
press verður rekið sem sjálfstæð
eining í nánu samstarfi við BM
Flutninga, dótturfélag Samskipa.
Afgreiðsla Air Express verður hér
eftir á skrifstofu BM Flutninga í
Holtagörðum.
Fram kemur í frétt frá Samskip-
um að Air Express International
er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfi
sig í hraðflutningum. Pandalink
Service. Fyrirtækið starfrækir yfir
550 þjónustustöðvar um heim allan
og flytur vörur heimshorna á milli,
frá dyrum sendandna að dyrum við-
takanda. Viðtakandinn losnar þar
HAGNAÐUR Fjárfestingarsjóðs
stórkaupmanna var alls 26 milljónir
króna á sl. ári sem er rúmlega 30%
aukning frá árinu áður og var eigið
fé í árslok 250 milljónir, að því er
segir í frétt frá sjóðnum.
Raunávöxtun inneigna sjóðsfé-
laga á síðasta ári var 10,1%. Heild-
arútlán námu á síðasta ári kr. 108,8
milljónum, útlánatöp voru engin á
árinu.
Fjárfestingarsjóður stórkaup-
semi Fokkers verður sameinuð í
nýtt flugvélafyrirtæki er að
tryggja órofið samhengi," sagði
lögfræðingur fyrirtækisins, Sijmen
de Ranitz. „Þar með getur flug-
vélafloti Fokkers haldið áfran að
fljúga.“
Fokker sagði að nýja starfsemin
væri arðbær og árleg velta gæti
orðið einn milljarður gyllina á
nokkrum árum.
Búizt er við að verkamenn Fokk-
ers fái uppsagnarbréf sín í dag og
að þeim verði greidd !aun til 22.
marz. Sérstakri ráðgjafamiðstöð
hefur verið komið á fót í Dordrecht,
þar sem nokkrar verksmiðjur Fokk-
ers eru, og þar verða 15 ráðunaut-
ar til viðtals.
Starfsmenn, sem hafa ríghaldið
í vonir um björgun, eru vonsviknir
og reiðir. „Sjötíu ára flugvélafram-
leiðslu hefur verið kastað á glæ.
Hollendingar ættu að skammast sín
fyrir mesta þjóðfélagslega slys sitt
frá lokum síðari heimsstyijaldarinn-
ar,“ sagði verkamannaráð fyrirtæk-
isins.
Fokker hafði bundið vonir við
tilboð frá flugiðnaðarfyrirtæki
Samsungs í Suður-Kóreu, en ekk-
ert tilboð hafði borizt þegar skuld-
ir Fokkers féllu í gjalddaga. „Við
gátum ekki lagt fram lokatilboð,
þar sem við vorum komnir í tíma-
þröng,“ sagði talsmaður Samsung.
Hans Wijers efnahagsráðherra
sagði að viðræður við Samsung
hefðu staðið í alla nótt. „Það eina
sem við fengum í gærkvöid var
bréf með minni skuldbindingum en
áður hafði verið gefið í skyn. Því
komust skiptaráðendur að þeirri
niðurstöðu kl. 6.f.h. að við yrðum
að hætta.“
Annar hugsanlegur kaupandi,
kínverska flugiðnaðarfyrirtækið
AVIC (Aviation Industries Corp)
hafði áður slitið viðræðum án þess
að gera tilboð.
með við fyrirhöfn við tollafgreiðslu
varningsins.
Air Express á íslandi notar nýja
flugvél íslandsflugs í hraðflutning-
um. Flogið er frá Reykjavík til al-
þjóðaflugvallarins East Midlands í
Bretlandi á kvöldin og komið til
baka snemma morguns. Viðskipta-
vinir hér á landi og erlendis geta
þar með fengið hraðari flutnings-
þjónustu en áður hefur þekkst. Til
dæmis er hægt að safna saman
vörum á meginlandi Evrópu að degi
til, senda áleiðis til íslands að kvöldi
og afhenda þær viðtakanda hér
heima að morgni næsta dags. Air
Express kemur vörunum þannig til
skila innan sólarhrings.
manna er starfræktur af Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna og hefur
aðsetur í Húsi verslunarinnar. Sjóð-
urinn hefur starfað í 25 ár og er
fjöldi sjóðsfélaga 83 fyrirtæki sem
öll eru meðlimir í Félagi íslenskra
stórkaupmanna.
Formaður stjórnar Fjárfest-
ingarsjóðs stórkaupmanna er
Ragnar Gunnarsson og fram-
kvæmdastjóri sjóðsins er Stefán
S. Guðjónsson.
HROGNAFRYSTING stendur nú
yfir hjá Vinnslustöðinni og ísfélag-
inu í Vestamannaeyjum. ísfélagið
hóf hrognafrystingu á mánudag en
Vinnuslustöðin á miðvikudag. í gær
var verið að frysta hrogn í báðum
frystihúsunum og var vonast til að
hrognavinnsla gæti staðið fram eft-
ir næstu viku.
Jón Ólafur Svansson, framleiðslu-
stjóri ísfélagsins, sagði að þar væri
búið að frysta um 150 tonn en þeir
reiknuðu með að frysta 300 til 400
tonn í heildina. í gær var landað
úr þremur bátum hjá ísfélaginu,
Guðmundi, Gígju og Heimaey og
sagði Jón að þeir kreistu loðnuna
ekki til að ná hrognunum, heldur
tækju bara það sem rynni úr henni
í slógvatnið. Hann sagði að misjafnt
væri eftir förmum hversu þroskuð
hrognin væru en í síðasta farmi
Gígjunnar hefði verið loðna sem átti
nokkra daga í hrygningu.
Furðu-
fiskar
á Esju
VEITINGAHÚSIÐ Esja
stendur nú fyrir svkölluðum
furðufiskadögum. Þá er í
eina viku boðið upp á rétti
úr fisktegundum, sem sjald-
an eru á matarborðum okkar
íslendinga. Þetta er í annað
sinn, sem veitingahúsið
stendur fyrir furðufiskaviku,
en í fyrra nutu um þúsund
manns hinna fágætu fiska.
Ólafur Heiðar Jónsson, yfir-
matreiðslumeistari á veit-
ingahúsinu, segir að að öllu
jöfnu sé lögð áherzla á fjöl-
breytni í fiskréttum á staðn-
um, en það sé við hæfi að
hafa furðufiskavikuna einu
sinni á ári. Viðbrögð gesta í
fyrra hafi verið mjög góð og
því hafi verið ákveðið að
brydda upp á þessu að nýju.
Furðufiskana fær Ólafur
Heiðar frá ýmsum aðilum svo
sem Fiskbúðinni Hafrúnu,
Markaður fyrir
loðnuhrognin í
Japan mjög tak-
markaður
Enginn kraftur í þessu nú
Hann sagði engan kraft í hrogna-
vinnslunni nú, enda ekki markaður
nema fyrir um 1.500 tonn af hrogn-
um í heildina. Hann sagði að mikið
hefði verið fryst umfram markaðs-
þörf á síðustu vertíð, ársneyslan í
Japan væri um 4.000 tonn en í fyrra
hefðu verið fryst um 6.500 tonn,
þannig að nóg væri til af birgðum.
Lagt hefði verið að vinnslustöðvun-
um að frysta ekki umfram markaðs-
þörf því ef það yrði gert myndi
verðið hrapa niður.
Sæbjörgu, Nesfiski í Garði,
Fiskeyri á Stokkseyri og íg-
ulkerin fær hann frá Stykkis-
hólmi. Þá fást innfluttir fisk-
ar frá Snæfiski hf. Meðal
þess, sem nú er boðið upp
á, er loðna, bæði djúpsteikt
og marineruð, loðnuhrogn.
ígulker, gljáháfur, stinglax,
Viðar Elíasson, framleiðslustjóri
Vinnslustöðvarinnar, sagði að þeir
væru búnir að frysta um 100 tonn
en þeir stefndu að 500 tonna fryst-
ingu í heildina. Kap og Gullberg
lönduðu hjá Vinnslustöðinni í gær
og von var á Sighvati Bjarnasyni
með afla, og sagði Viðar að líklega
yrði unnið hjá þeim í hrognafryst-
ingu um helgina.
1.400 tonn fryst í fyrra
Vinnslustöðin frysti um 1.400
tonn af hrognum á síðustu vertíð
þannig að mun minna verður fryst
á þessari vertíð. Viðar sagði að
þeir vonuðu að vinnslan gæti staðið
fram eftir næstu viku en lítil loðna
fyndist á miðunum eftir bræluna
undanfarna daga, svo erfitt væri
að spá í framhaldið. Það myndi
skýrast þegar veður lagaðist hvort
eitthvað meira fyndist af loðnu og
hvernig ástand hrogna í henni yrðu.
skrápflúra, sandkoli, fagur-
serkur, kolkrabbi og smokk-
fiskur, en einnig er von á
fleiri erlendum tegundum. í
tilefni furðufiskavikunnar
eru húsakynni veitingastað-
arins prýdd ýmsum munum
af sjóminjasafni Jósafats
Hinrikssonar.
Samskip kaupa Air
Express á Islandi
Fj árfestingarsjóður stórkaupmanna
Hagnaður jókst um 30%
Morgunblaðið/Ásdís
MATEEIÐSLUMEISTARINN Ólafur Heiðar við furðufiskaborðið.