Morgunblaðið - 16.03.1996, Síða 31

Morgunblaðið - 16.03.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 31 AÐSENPAR GREIIMAR ~ Osvararmálið SÍÐUSTU vikur hefur verið nokk- uð ítarlegur fréttaflutningur af dómsmáli hér fyrir vestan í fjölmiðl- um landsins. Það er eðlilegt að tunga vefjist um tönn þegar skýra á frá flóknum hlutum í einföldu formi svo að allur þorri landsmanna átti sig á hvað hér sé á ferðinni. Því miður hefur skort nokkuð á að fréttamenn hafi sett sig nægilega vel inn í málið og þannig birt efni sem ekki á sér neina stoð í raunveruleikanum eins og t.d. meinta kæru- gleði bæjarstjórnar- manna meirihlutans í bæjarstjóm Bolungar- víkur á hendur ákveðn- um aðilum hér í bæ. Hér hafa fjölmiðlar því miður fylgt í kjölfar „Gróu gömlu á Leiti“ sem vafrað hefur um götur okkar ágæta bæjarfélags hér fyrir vestan sl. ár, málstað þessum til fulltingis. Hingað til höfum við leyft Gróu gömlu að rölta sinn veg óáreittri enda gömul, slitin og auðþekkjanleg. En þegar ákveðnir fjölmiðlar eru farnir að ganga erinda hennar er svo komið að ekki verður lengur við unað. Fréttaflutningur af dómþingi Vegna fréttaflutnings af dómþingi Héraðsdóms Vestfjarða í málinu S- 59/1995: Akæruvaldið gegn Björg- vin Bjarnasyni o.fl. vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri: Einu tengsl bæjarstjórnar Bolung- arvíkur við ofangreint dómsmál fel- ast í samþykkt bæjarráðs Bolungar- víkur dags. 18. apríl 1995 sem er eftirfarandi: „Umfjöllun um bréf lögmanns bæjarsjóðs þar sem hann gerir grein fyrir áliti sínu á leigu Osvarar hf., á aflamarki úr byggðarlaginu og und- irritun þeirra gagna er til þess þarf. Bæjarráð Bolungarvíkur beinir því til Iögmanns bæjarsjóðs Bolungar- víkur, Andra Árnasonar hrl., að fram fari opinber rannsókn á meintri fjöl- földun á undirskrift bæjarstjóra á umsögn sveitarstjórnar á flutningi aflamarks skipa sem ekki eru gerð út frá sömu verstöð." Bæjarráðsfundinn sátu allir kjörn- ir bæjarfulltrúar Bolungarvíkur eða staðgenglar þeirra. Þessi samþykkt var síðan afgreidd athugasemdalaust á næsta bæjarstjórnarfundi. Meint fjölföldun á undirskrift bæjarstjóra Það hefur lengi loðað við umræð- una um þetta mál að bæjarstjórn Bolungarvíkur hafí kært meinta íjöl- földun á undirskrift bæjarstjóra en svo er ekki, aðeins var farið fram á opinbera rannsókn eðli málsins sam- kvæmt. Eftir rannsókn Rannsóknar- lögreglu ríkisins (RLR) vísaði hún málinu til ríkissaksóknara sem gaf út ákæru. Hugmyndir um að bæjar- stjórinn, Ólafur Kristjánsson, hafi getað samþykkt eða heimilað fjöl- földun á nafni sínu eru fráleitar enda ekkert sem bendir til þess í rannsókn RLR, þvert á móti. Önnur málsatriði þessa dómþings, s.s. meint brot á kvótalögum og lög- um um hlutafélög, eru alfarið í hönd- um ákæruvaldsins, enda að frum- kvæði þess eingöngu. Forsendur fyr- ir þessum ávirðingum virðast hafa komið upp í rannsókn RLR á meintri fjölföldun á undirritun bæjarstjóra og eru okkur í bæjarstjórn Bolungar- víkur sem slíkar óviðkomandi. Fundur í stjórn Ósvarar hf. Mikilvægur fundur virðist hafa verið haldinn í stjóm Ósvarar 24. janúar 1995 ef marka má frásögn fjölmiðla. Þar á að hafa verið rætt um og jafnvel tekin ákvörðun um sölu á 30 milljóna virði af leigukvóta þó ekkert slíkt sé bókað í fundar- gerð. Þetta er hugsanlega öllum að meinalausu þangað til málið er skoð- að frá þeirri hlið að bæjarstjóm Bol- ungarvíkur var á þessum tíma að reyna að selja hlutabréf sín í Ósvör hf. Engin vitneskja barst um þessa umræðu eða „ákvörðun" til bæjar- stjómar, hvorki formleg né þá óform- leg í gegnum bæjarfulltrúa okkar, sem þó sátu í stjórn Ósvarar á þess- um tíma, þeim Ólafi Kristjánssyni og Valdimar Guðmundssyni. Þeim hefði þó mátt vera ljóst að sala á kvóta í slíku magni gæti rýrt sölu- hæfni hlutabréfa bæjarsjóðs þar sem fyrir lá vilji meirihluta bæjarstjórnar til að selja hlutabréfin. Um leið og bæjarráð varð ljóst að sala á veru- legu magni af leigukvóta hefði farið fram, stuttu fyrir bæjarráðsfund 11. apríl 1995, var óskað eftir afritum af tilkynn- ingum til Fiskistofu sbr. að ofan. Þessar tilkynn- ingar báru það með sér að ekki væri allt með felldu enda staðfesti þá settur bæjarstjóri Hall- dór Benediktsson að ekki hefði verið leitað eftir hans samþykkt og undirritun, eins og þó var lögboðið. Eins kom varaformaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Kristín Karvelsdóttir, á fund bæjarráðs þennan sama dag og stað- festi að hún hefði ekki undirritað þær tilkynningar sem lágu til grundvallar sölu leigukvótans, þó að lesa mætti undirskrift hennar á skjölunum. Á sama hátt staðfesti Ólafur Kristjáns- son bæjarstjóri, sem var fjarverandi vegna veikinda, í samtali við mig að hann hefði engar tilkynningar undir- ritað enda ekki með umboð til slíks á þessum tíma. Það var eftir þennan fund sem skjölin voru afhent lög- Aldrei bárust mótmæli frá stjórnarmönnum Ósvarar né fram- kvæmdastjórn, segir ------------------------ Agúst Oddsson, við bókun bæjarráðs. manni bæjarins, Andra Árnasyni, til skoðunar og álit hans var að hér væri ekki rétt að málum staðið. Málinu var þá vísað til sýslumanns sem vísaði því áfram til RLR. Samþykktir um meðferð veiðiheimilda í þrígang 4/3, 10/3 og síðast 11/4 beindi bæjarráð Bolungarvíkur því með formlegum hætti til stjórnar- manna og framkvæmdastjóra Ósvar- ar hf. að ekki væru „teknar neinar meiriháttar ákvarðanir varðandi meðferð eigna félagsins eða stofnað til skulda, meðferðar veiðiheimilda, ráðstöfun hlutafjár í félaginu eða gerð varanlegra viðskiptasamninga“. Það verður að teljast í hæsta, máta sérkennilegt að kjörnir bæjarfulltrú- ar í bæjarstjórn Bolungarvíkur, ver- andi jafnframt í stjórn Ósvarar, ræði um og jafnvel „samþykki" á stjórnar- fundi 24. janúar 1995 að heimila framkvæmdastjóra fyrirtækisins .að selja leigukvóta fyrir 30 milljónir og síðan .stuttu seinna samþykkja eða sitja hjá án athugasemda á bæjar- ráðsfundum, þegar verið er að af- greiða ofangreind tilmæli til stjórnar og framkvæmdastjóra Ósvarar. Það er einnig umhugsunarvert að aldrei bárust nein mótmæli frá hvorki stjórnarmönnum Ósvarar né fram- kvæmdastjóra við bókunum bæjar- ráðs. Slík mótmæli hefðu þó átt að koma fram ef þegar hefði verið búið að ráðstafa kvóta fyrir 30 milljónir en afhending leigukvótans ætti að fara fram á þeim tíma sem tilmæli bæjarráðs giltu um aðhaldssemi í fjármálum og meðferð veiðiheim- ilda!? Sala leigukvóta á vafasömum pappírum í þvílíku magni sem raun ber vitni og á þessum tíma við þess- ar aðstæður, hlýtur að hafa gefið stjórnarmönnum Ósvarar og fram- kvæmdastjóra tilefni til að staldra við og skoða málin upp á nýtt. Ekk- ert slíkt gerðist. Hér er eitthvað á ferðinni sem ekki stenst rökræna hugsun. Höfundur er forsetí bæjurstjórnar Bolungnrvíkur. Ágúst Oddsson Eldriborgaraferð tilKanarí 21. apríl - 5 vikur 159.960 Við höfúm nú tiyggt okkur ndckrar viðbótaríbúðir á einum vinsælasta gjstistaðnum okkar á Kanarí, Páraiso Maspalomas. Hér finnur þú afbragðs aðbúnað og stóiglæsilegan garð. Allar ihúðir með einu svefhherbeigi, baði, eldhúsi og svölum. Móttaka, verslun og veitingastaður á hótelinu. Kr 59.960 m.v. 3 f fbúð, 21. apríl, skattar innifaldir. Kr 69.960 m.v. 2 í íbúð, 21. apríl, skattar innifaldir. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17,2. hæð. Sími 5624600. SUZUKI- afl og öryggi Þægindi, öryggi og kraftur Einstaklega vandaður og vel búinn fjölskyldubíll \ Aflmikil 16 ventla vél/86 hestöfl • vökvastýri • s veltistýri • samlæsingar • rafdrifnar rúðuvindur • rafstýrðir útispeglar • rúmgóð farangursgeymsla • einstaklega rúmgott og hljóðlátt farþegarými • útvarp/segulband 4 hátalarar • upphituð framsæti Öryggisbúnaður í sérflokki 2 öryggisloftpúðar (airbags) • hliðarárekstrarvörn • hæðarstilling á öryggisbeltum • krumpsvæði framan og aftan • rafstýrð hæðarstilling á framljósum $ SUZUKI ií410 y —////---------------------- SUZUKI BÍLAR HF i.iíw''' Skeifunni 17 - 108 Reykjavfk - sími: 568 5100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.