Morgunblaðið - 16.03.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
HAGYRÐIIMGAMOT
LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 39
Vel á fjórða hundrað manns
voru á Hótel KEA til að fylgjast
með herlegheitunum og virtust
skemmta sér vel. Hér verður ein-
ungis stiklað á stóru, enda voru
ortar fjölmargar frábærar vísur. í
upphafi kvöldsins kynntu hagyrð-
ingarnir sig til leiks. Stefán byrj-
aði:
Ekki sæmir að mér hrósi,
ósköp telst ég lítils virði.
Ég er svona bögubósi
frá Brekku austur í Mjóafirði.
... og hélt áfram:
Nú er lenska á landi hér
að ljóða á hagyrðingafundum
og Halldór Blöndal orðinn er
ómissandi á slíkum stundum.
Þá tók Ósk við:
Ósk ber ég heiti við hæfi,
húsvísk í gerðum og taii,
fæddist og framan af ævi
fótlipur kindasmali.
Ferskeytlur flugu að kveldi,
feimin var unga daman.
Komst inn í karlaveldi
á kjaftinum einum saman.
Um Hákon orti hún:
Andans frægasti Austfirðingur
eflist og nærist á synd;
helvíti góður hagyrðingur
með húmorinn neðan við þind.
Hjálmar kynnti sig sjálfur:
Mannkosti tíundað mína ég gæti
marga og hvergi ýkt,
en þingeysk hógværð og lítillæti
leyfir mér ekki slíkt.
Halldór bætti svo við um Stefán:
Stefán orð í stöku festi
stórum betri en spá ég þyrði;
honum varð að veganesti
víðsýnin í Mjóafirði.
Fór nú að lifna i kolunum. Kast-
að var fram vísum um Hvalfjarðar-
göngin. Það kom svo sem ekki á
Þó Landspítala liggi á
lítill verður batinn
sjúklinganna sem þar fá
salmónellu í matinn.
Svo sagði hann að þetta gæti
verið mál fyrir Ríkisendurskoðun:
Leiðir af sér talsvert tap
tel ég þyrfti að kanna
tjómabollu rausnarskap
ríkisspítalanna.
Hagyrðingarnir spreyttu sig á
fjölmörgum fyrripörtum um kvöld-
ið. Þar á meðal var:
Núna bjarga norskar smugur
næstum öllu á landi hér
Stefán botnaði:
í sjóræningjum sýnist dugur
og silfur hafsins drepið er.
Þá Hjálmar:
Þangað stendur þakkarhugur
og þaðan forðum komum vér.
Ósk lagði orð i belg:
Löngum hefur djörf og dugur
dregið björg á eftir sér.
Hákon sagðist ekki hafa litið á
fyrripartinn. „Ég er á móti Norð-
mönnum,“ bætti hann við. Halldór
botnaði:
Sjómannanna sóknarhugur
er sýnu meiri en kvótamer.
Lokaorðin á Ósk:
Allur gróður eflir móð,
einnig hljóður friður,
ennþá ljóðin ylja þjóð
er það góður siður.
Um lítinn óð úr listasjóð
landinn fróður biður,
okkar fóður andlegt hnjóð
öllu tróðum niður.
Fallegir FATASKÁPAR.
Svart/hvítt/beyki.
SKRIFBORÐ meö stækkunarmöguleika
Svart/hvítt/beyki/fura frá kr. 8.600.
HIRZLAN
SJONVARPSSKAPAR margar
geröir. Svart/hvítt/beyki/mahoni.
Verö frá kr. 5.900.
LYNGÁS110, GARABÆ - SÍMI 565Ö4535
Opið í dag laugardag frá kl. 12-18.
BÓKAHILLUR. Svart/hvítt/beyki/fura.
Verð frá kr. 3.300.
ÞAÐ VAR vel til fundið að
daðra við Braga síðastliðið föstu-
dagskvöld í tilefni af daður- og
dekurdögum á Akureyri. Eftir að
hafa hlýtt á hagyrðingana Stefán
Vilhjálmsson, Hjálmar Freysteins-
son, Ósk Þorkelsdóttur, Hákon
Aðalsteinsson og Halldór Blöndal
um stund varð þó ljóst að ekki var
um daður að ræða. Það var dekrað
við Braga.
Um það sagði Hjálmar:
Göfga andann, metta maga,
munaðurinn hefur völd;
koma eftir dekurdaga
dekurhagyrðingakvöld.
Um dekurdagana og „þennan
dásamlega bæ Akureyri“ orti
hann:
Alla daga dekra má,
en daðra kvöld og nætur,
þó hér sé ekki hægt að fá
húsaleigubætur.
Hákoni leist heldur illa á uppá-
tækið:
Það geta flestir mett sinn maga
í matarveislum og ölteiti.
Allir kjósa sér dekurdaga,
en daðrið kallast nú áreiti.
Birgir Sveinbjörnsson var fund-
arstjóri og fórst það vel úr hendi.
Hann hafði leitað í smiðju nokk-
urra hagyrðinga fyrir þetta kvöld
og flutti vísur eftir þá eftir þegar
færi gafst. Hafði hann á orði að
þeir töluðu í gegnum hann. Fyrst-
ur til þess var Björn Þórleifsson,
sem tók undir með Hjálmari:
í bæ þeim uni ég alla stund
og engan betri þekki,
þar hafa skátar ljúfa lund
og löggan bítur ekki.
Efnt var til hagyrðinga-
móts á daður- og dekur-
dögum á Akureyri um
helgina. Pétur Blöndal
fylgdist með hagyrðing-
unum, sem létu fjúka í
kviðlingum fram undir
miðnætti við frábærar
undirtektir yfir þrjú
hundruð Norðlendinga.
óvart hvað Halldór hafði til mál-
anna að leggja:
Völvan er um framtíð fróð
færir heim þann sanninn:
Undir Hvalfjörð göngin góð
gleðja Skagamanninn.
Hákon kvað sér næstur hljóðs:
Þau greiða leiðir greiðslukjara
og gróðabrímans,
stytta þann veg sem flestir fara
í fýlling tímans.
Þá Hjáimar:
Blöndal nokkuð brattur er
ber af okkur hinum,
óskareitinn á hann sér
undir Hvalfirðinum.
Þá var komið að því að Ingi-
björg Pálmadóttir, heilbrigðisráð-
Morgunblaðið/Melkorka
ÞAÐ ER glatt á hjalla hjá hagyrðingunum Stefáni Vilhjálms-
syni, Hjálmari Freysteinssyni, Osk Þorkelsdóttur, Hákoni Aðal-
steinssyni og Halldóri Blöndal.
herra, fengi að finna til tevatns-
ins. Hjálmar orti:
Þar er holan matarmörg,
mjög er skurðarhnífnum beitt,
að þeim sækir Ingibjörg
sem enga geta björg sér veitt.
Halldór sagði að þegar mikið
lægi við beitti hann stuðlasetningu
Davíðs frá Fagraskógi:
Hveljur sýpur kerling mörg,
hvín í þjóðarsálunum,
þegar að hún Ingibjörg
er að bjarga málunum.
Hákon sagði að fréttin um salm-
ónellu á Landspítala hefði komið
á sama tíma og hann var beðinn
að yrkja um Ingibjörgu:
Hampandi hungurlúsum
og heilbrigðiskerfisdúsum
því finnst okkur best
að fjölga sem mest
sjálfbærum sjúkrahúsum.
Hjálmar tók við. Hann sagði
einhver brögð hafa verið að því
að menn hefðu ekki fengið heils-
una sem skyldi á sjúkrahúsunum:
VEGGSAMSTÆÐA kr. 33.450.
Margir litir. Ótal möguleikar á uppstillingu.
SKENKAR frá kr. 19.600.
Svart/hvítt/beyki.
SJÓNVARPSSKÁPAR
kr. 17.500 og 9.700
Ennþá ljóðin ylja þjóð