Morgunblaðið - 16.03.1996, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 16.03.1996, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Míkíð framboð stóð- hesta í Danmörku og Þýskalandi AUKIÐ umfang í ræktun íslenska hestsins í Danmörku og Þýskalandi endurspeglast vel í timaritunum „Tölt“ og „Das Islandspferde" með fjölgun auglýsinga og auknum íburði. HESTAR Tímarit TÖLT OG DAS IS- LANDSPFERDE Nýútkomin eintök af „Tölti“ sem danska íslandshestasambandið gef- ur út og „Das Islandspferde“ sem þýska íslandshestasambandið gefur út. MIKILL uppgangur er í út- breiðslu íslenska hestsins á meg- inlandi Evrópu um þessar mundir. Gleggsta dæmið þar um eru þau tímarit sem landsambönd eigenda íslenskra hesta í hveiju landi gefa út. í nýútkomnum_ heftum af „Tölti“ sem danska íslandshesta- sambandið gefur út og „Das Is- landspferde“ sem þýska íslands- hestasambandið gefur út tala auglýsingarnar sínu máli um mikla grósku. Við lauslega talningu í ofan- nefndum blöðum kemur í ljós aðí „Tölti“ er 31 stóðhestur auglýstur til leigu fyrir vorið í Danmörku. Þykja danskir stóðhestaeigendur óvenju auglýsingaglaðir að þessu sinni því í flestum tilvikum er um að ræða heilsíðuauglýsingar fyrir hvern hest og sumar hveijar í lit sem þykir mikið í lagt á þessum vettvangi. Af þessum stóðhestum eru nokkrir þekktir hestar og þeirra fremstur líklega Þytur frá Hóli sem fær opnu blaðsins í lit. Af öðrum íslenskfæddum hestum má nefna Hjalta frá Hala, Dug úr Mosfellsbæ, Vák frá Bratt- holti, Þjálfa úr Keldudal og Austra frá Austurkoti. Þarna eru einnig Stórsýning Fáks Stóðhestsefni á uppboði og í happdrættis- vinning HEPPNIR sýningargestir eiga í vændum vel ættuð stóðhestsefni því tvö veturgömul trippi verða í vinning í happdrætti sýningarinn- ar. Hver aðgöngumiði gildir sem happdrættismiði en auk þess verð- ur hægt að kaupa auka miða. Einnig fer fram uppboð á vet- urgömlum hesti, stóðhestsefni að sjálfsögðu. Trippin sem verða í happdrætt- inu eru jarptvístjörnóttur hestur frá Kirkjubæ undan Svarti frá Unalæk og Nös frá Kirkjubæ sem er undan Ljóra og Löpp frá Kirkjubæ. Núverandi eigandi er Þórður Þorgeirsson. Hinn folinn er frá Stóra Hofi, rauður að lit undan Stíg frá Kjartansstöðum og Hnotu frá Stóra-Hofi sem er undan Hrafni 802 frá Holtsmúla og Busku frá Stóra-Hofi. Folinn er í eigu Bærings Sigurbjörnsson- ar og Kolbrúnar Jónsdóttur. Enn- fremur verður altygjaður fjöl- skylduhestur í vinning í happ- drættinu. Folinn, sem verður boðinn upp, er hinsvegar frá Votmúla í eigu Alberts Jónssonar, svartur að lit undan Baldri frá Bakka og Ga- rúnu frá Stóra-Hofi en hún er undan Náttfara og Nótt frá Kröggólfsstöðum seni er heiðurs- verðlaunahryssa. Allir þykja þessir folar líklegir sem stóðhestar framtíðarinnar, bæði hvað varðar ættartölu og útlit. nefndir Darri frá Kampholti sem er mjög vinsæll og eftirsóttur hestur í Danmörku og svo Glaður frá Ytra-Skörðugili sem er að heita má Holtsmúla-Hrafn þeirra í Danmörku. íslenskfæddu hest- arnir eru 20 talsins, danskfæddir 10 og einn þýskfæddur. Þá vekur athygli að Danirnir eru famir að flagga BLUP-inu í ríkum mæli í auglýsingum. Fyrir utan stóðhestaauglýsingar aug- lýsa _ tamningamenn talsvert og eru íslendingar þar nokkuð fyrir- ferðarmiklir. Af þessu má glöggt sjá að íslandshestamennskan í Danmörku er í uppsveiflu um þessar mundir. í „Das Islandspferde“ eru aug- lýstir 95 stóðhestar til þjónustu reiðubúnir en lengi hefur verið HAFINN er undirbúningur fyrir stórsýningu hestamanna í Reið- höllinni í Víðidal sem haldin verður 12. til 14. apríl nk. Þijár sýningar verða á föstudags- og laugardagskvöld og ein síðdegis á sunnudag. Hestamannafélagið Fákur stendur að sýningunni að þessu sinni en undanfarin ár hafa Fáksmenn verið með sýn- ingu í samvinnu við Sunnlend- inga sömu helgi og sýning stóð- hestastöðvarinnar fer fram. Dagskrárliðir eru óðara að taka á sig mynd og má þar nefna að hópur Norðurlanda- og Is- landsmeistara úr röðum Fáks- manna munu sýna listir sínar. Fram fer tölt- og skeiðmeistara- keppni hestamannafélaga á höf- uðborgarsvæðinu og boðið verð- ur upp á hefðbundnar skraut- sýningar. Tvær kunnar hesta- konur, þær Freyja Hilmarsdótt- ir og Olil Amble, verða með sérstaka sýningu og hesta- íþróttamaður ársins, Sigurður V. Matthíasson, verður heiðrað- ur en hann kemur fram með ljóst að nóg er til af íslenskum stóðhestum í Þýskalandi. Sagt var einhveiju sinni að níu hryssur væru um hvern stóðhest þannig að ætla má að slagurinn um hryss- urnar sé harður þar í landi. Hlut- fall milli íslenskfæddra og þýsk- fæddra hesta er talsvert óhag- stæðara í Þýskalandi, 61 þýsk: fæddur og 34 fæddir á íslandi. Í þýska blaðinu eru notuð nokkuð hástemmd lýsingarorð þegar ágæti hestanna er tíundað. . Þjónustuauglýsingar tamn- ingamanna og hrossasölumanna eru einnig fyrirferðarmiklar í þýska blaðiflu. Allt vitnar þetta um verulegan uppgangi því þessar auglýsingar hafa aukist talsvert ef miðað er við síðsutu fimm árin. Athygli vekur að margir stóðhestinn Gust frá Grund. Þá koma þrír bræður úr röðum 1. verðlaunastóðhesta, þeir Oður, Höldur og Hljómur frá Brún, fram saman og „Stóðhestahátið Kjarnholtabúsins" þar sem fram koma sex til átta stóðhest- ar frá Kjarnholtum. Kynntir verða stóðhestar úr stóðhesta- stöðinni í Gunnarsholti og fjöldi glæsihryssa kemur fram undan Orra, Ófeigi, Hrafni, Baldri, Degi, Kolfinni, Gáska og Náttf- ara svo eitthvað sé nefnt. Að síðustu má geta þess að sýning- arstjórinn, Hafliði Halldórsson, er nýbúinn að taka gæðings- hryssuna Nælu frá Bakkakoti inn en hún missti fyrr í vetur fóstur undan Baldri frá Bakka. Hefur heyrst að Hafliði muni renna Nælu nokkra hringi ef hún verður í góðu formi þegar líður að sýningu. Ekki er að efa að þarna sé í uppsiglingu góð sýning því hross virðast nú þegar komin í góða þjálfun og Fáksmenn kunna orð- ið vel til verka. þekktir hestar eru ekki auglýstir og má þar til dæmis nefna að Gassi frá Vorsabæ, sem nú er kominn til Danmerkur, er ekki auglýstur að þessu sinni og Týr frá Rappenhof er kynntur í aug- lýsingu sem er rífleg frímerkja- stærð að umfangi í þýska blað- inu. Báðir virðast þessir hestar fljóta á frægðinni og þá ekki VETRARLEIKAR voru haldnir hjá Sörla í Hafnarfirði um síðustu helgi þar sem keppt var í tölti í fimm flokkum og í 150 metra skeiði. Góð þátttaka var í mótinu sem haldið á svæði félagsins á Sörlavöllum. Er þetta þriðja mótið sem félagið held- ur það sem af er ári en í lok mars verður opið mót hjá í reiðhöllinni á Sörlastöðum, svokallað PON-open. Samkvæmt mótaskrá LH og HÍS verða þijú mót haldin í dag, laugar- dag, hjá Andvara á Kjóavöllum og Gusti í Glaðheimum. Þá verður Hörður með opið mót á Varmár- bökkum í Mosfellsbæ þar sem skráð verður í Harðarbóli til klukkan 13 en keppnin hefst klukkan 14. Úrslit: Vetraleikar Sörla 9. mars sl. Börn 10 ára og yngri. 1. Ómar Theódórsson á Óðni. 2. Rósa Birna Þorvaldsdóttir á Dím- oni. 3. Geir Harrison á Skutlu. 4. Edda Dögg Ingibergsdóttir á Bóel. 5. Margrét Freyja Sigurðardóttir á Kúlubrún. Börn 11 til 12 ára 1. Eyjólfur Þorsteinsson á ísak. 2. Perla Þórðardóttir á Blakki. 3. Margrét Guðrúnardóttir á Snót. 4. Kristín Jónsdóttir á Tóta. ÆSKULÝÐSNEFND Landsam- bands hestamannafélaga og Hest- íþróttasambands íslands gengst fyrir ráðstefnu um æskulýðsstarf í hestamannafélögum í Iþrótt- amiðstöðinni í Laugardal sunnu- daginn 24. mars nk. Verða þar flutt ýmis fræðsluerindi og má þar nefna að Sigurður Magnússon fræðsiufulltrúi ÍSÍ mun flytja er- indi ásamt Þuríði Sigurðardóttur frá Umferðarráði. Auk þess munu Akureyringar kynna Frissa fríska- leikana og Rosemarie Þorleifsdótt- ir flytur erindi um grunnþjálfun ástæða til að eyða íjármunum í auglýsingar. Gefin eru út tímarit um íslenska hestinn í öllum þeim löndum sem hann hefur náð einhverri fótfestu í og má í þessu sambandi geta þess að í Bandaríkjunum, sem margir telja framtíð íslenska hestsins liggja, er hafin útgáfa á vönduðu tímariti. 5. Bryndís Snorradóttir á Sörla. Unglingar 1. Hinrik Þór Sigurðsson á Tóni. 2. Kristín Þórðardóttir á Síak. 3. Unnur Ingólfsdóttir á Æsu. 4. Gyða Kristjánsdóttir á Mána. 5. Agnes Óskarsdóttir á Þulu. Ungmenni 1. Hrafnhildur Guðrúnardóttir á Blossa. 2. Sigríður Pjetursdóttir á Kolbaki. 3. Lára Grim á Hrappi. 4. Ragnar E. Ágústsson á Einseyr- ingi. 5. Jóhannes Ármannsson á Þór. Konur 1. Elsa Magnúsdóttir á Rómi. 2. Guðrún Guðmundsdóttir á Muggi. 3. Margrét Vilhjálmsdóttir á Ár- vakri. 4. Þóra Ólafsdóttir á Glettu. 5. Anna Björk Ólafsdóttir á Iðu. Karlar 1. Magnús Guðmundsson á Seiði. 2. Pálmi Adolfsson á Glóa. 3. Adolf Snæbjörnsson á Orion. 4. Theodór Ómarsson á Rúbín. 5. Sævar Leifsson á Ösku. 150 metra skeið 1. Þorvaldur Kolbeinsson á Hreggi, 17,86 sek. 2. Jón Oddsson á Snúði, 18,38 sek. 3. Sindri Sigurðsson á Spari-Rauð, 18,38 sek. og jafnvægisæfingar á hlaupandi hesti. Ráðstefnan sem hér um ræðir er framhald félagsmálanámskeiðs sem haldið var í Munaðarnesi í haust á vegum sömu aðila. Sagði Rosemarie Þorleifsdóttir að þau hafi verkað eins og vítamínsprauta á allt æskulýðsstarf meðal hesta- manna og því full ástæða til að hamra jámið meðan heitt væri. Sagðist hún vonast eftir fulltrúum frá öllum félögum á landinu. Ráðstefnan hefst klukkan níu og stendur til klukkan átján. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson OLIL Amble mun koma fram í sérstöku atriði með Freyju Hilmarsdóttur. Hér situr hún stóðhestinn Kolfinn frá Kjarnholt- um sem væntanlega mun prýða „Kjarnholtaveisluna" sem boð- ið verður upp á Stórsýningu Fáks. Fáksmenn undirbúa stórsýningu í reiðhöllinni Líf að færast í mótahaldið Æskulýðsmál í brenni- depli hjá LH og HÍS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.