Morgunblaðið - 15.06.1996, Síða 9

Morgunblaðið - 15.06.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR JÓHANNA Sigtryggsdóttir gerir að koia um borð í Seley í Eskifirði. Morguhbliðið/Kristinn Kolaveiðar meðfram laxeldi SIGTRYGGUR Hreggviðsson á Eskifirði hefur stundað laxeldi í kvíum frá 1987. Meðfram laxeld- inu hefur hann stundað kolaveið- ar á leirunum í Reyðarfirði og Eskifirði ásamt dóttur sinni Jó- hönnu. Sigtryggur segir að lax- eldið gangi afar illa og ætlar . hann að slátra öllum laxinu i sumar og hætta eldi. Sigtryggur sagði að veiðst hefðu 120-140 kg af kola á dag í net en veiðin þyrfti að vera um 200 kg til þess að bera sig. Hann sagði að það væri synd að þurfa að hætta i laxeldinu því þetta væri skemmtilegt starf þótt erfiðleikar hefðu verið fastur fylginautur eldisins. Hann sagði að eiturþörungar hefðu drepið allan sláturfisk árið 1991. Áður en hann hóf eldið hefði honum verið tjáð að eiturþörungar ættu aldrei eftir að gera usla i Eski- firði en raunin hafi orðið önnur. Þetta hafi verið upphaf þeirra erfiðleika sem eldið hefur veriðí. Sjór komst í lestar Flosa ÍS SJÓPRÓFUM vegna Flosa ÍS, sem lagðist á hliðina norðan við Færeyjar sl. sunnudag, lauk á fímmtudag fyr- ir Héraðsdómi Austurlands. Ekki er vitað um orsakir þess að skipið lagð- ist á hliðina en getgátur um að skil- rúm í lest hefðu gefið sig áttu ekki við rök að styðjast. Lögreglurannsókn hófst í fyrradag og var hún lögð fyrir Héraðsdóm. Sjóprófin voru opin en skipstjóri Flosa krafðÍ3t þess þó að sinn vitnis- burður yrði ekki gerður opinber. Skipveijar á Flosa töldu líklegast að skilrúm í lest hefðu gefíð sig og farmurinn, um 140 tonn af síld, hefði færst yfir á bakborðssíðu skipsins með þeim afleiðingum að það fékk á sig mikinn halla. Við lögreglurann- sókn kom hins vegar i ljós að allt var f stakasta lagi í lestinni en þangað hafði komist mikill sjór. Tryggvi Þórhallsson, fulltrúi við Héraðsdóm Austurlands, stjórnaði sjóprófunum, en meðdómendur hans voru Trausti Magnússon skipstjóri á Seyðisfirði og Páll Hlöðversson, skipatæknifræðingur á Akureyri. Endurrit úr dómshaldinu er sent til Ríkissaksóknara sem skoðar hugs- anlega refBÍábyrgð en Tryggvi sagði að engar vísbendingar væru um neitt slíkt í þessu máli. Flosi lá enn I höfn í Neskaupstað í gær, en talið var líklegt að hann færi aftur til sjós í nótt. OPNUN LÖGMANNSSTOFU Þann 1. júní sl. flutti ég lögmannsstofu mína í Skipholt 50d, Reykjavík. Hér eftir sem hingað til mun ég bjóða alhliða lögfræðiþjónustu, þ.m.t. innheimtu vanskilakrafna. Ég býð bæði fyrirtæki og einstaklinga velkomna til samstarfs. Guömundur Örn Guðmundsson hdl., Skipholti 50d, sími 511 3420. f" 1 ■ I V # 1 o LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 9 Alltaf eittlivuð nýtt Pennat fjölbreytt gjufavöru fró Mnai Blanc AA FJALLIÐ HVITA VERSLUN Reykjavíkurvegi 62, 2. haeS, HafnarfirSi Simi 565 4444 Opiö món-fös. 13-18, lau. 11-14 TILBOÐ: 20% ufslóttur nf M0NT BLANC Noblesse línunni meðan kirgðir cndast. Blek- og kúlupennnr, kúlutúss ug blýnntur. MONT BLANC IHt ARI 01 WRIIING í versluninni Söru dagana 13 -20. júní Snyrtivöruverslunin CLINIQUE Bankastræti 8, sími 5513140 Lambb di nýjung! íslenskur lambakjötsborgari með valinni kryddblöndu, fersku grænmeti og sérlagaðri sinnepssósu í nýbökuðu heitu brauði. Sundanesti, Reykjavík Þyrill, Hvalfirði Ferstikla, Hvalfirði Shell, Borgamesi Hreðavatnsskáii, Borgarfirði Vegamót, Snœfellsnesi Grillskálinn, Ólafsvík Krákan, Grundarfirði Dalabúð, Búðardal Brú, Hrútafirði Staðarskáli, Hrútafirði Fiðlarinn, Akureyri Shell-nesti, Húsavík Hútel Tangi, Vopnafirði Söluskáli KHB, Egilsstöðum Ósinn, Hornafirði Víkurskéli, Vík í Mýrdal Hlfðarendi, Hvolsvelli o M MEISTARINN Merki um gœðt Sími 553 3020 -kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.