Morgunblaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 39 INNLENT Fjórði áfangi Reykjavegarins Hagavagninn við Vesturbæjarlaug FJÓRÐI áfangi Reykjavegarins verður genginn sunnudaginn 16. júní. Þetta er raðganga í 8 áföng- um frá Reykjanestá til Þingvalla í samvinnu Ferðafélags íslands og Útivistar. Þátttaka fram til þessa hefur verið sérlega góð en 767 hafa tek- ið þátt í fyrstu þremur áföngunum. Gangan hefst við Djúpavatn og áfram meðfram Fíflavallafjalli um Hrúthólma að Hrútagjá, vestan Sandfells að Fjallinu eina og út á Krísuvíkurveg. Þar gefst kostur á að fara í rútu en þeir sem halda áfram göngunni ganga meðfram Undirhlíðum að Kaldárseli. Brottför er kl. 10.30 frá Um- ferðarmiðstöðinni sunnanverðri og Mörkinni 6. Komið við á Kópa- vogshálsi og við Kirkjugarðinn í Hafnarfirði. PYLSUVAGNINN við Sundlaug Vesturbæjar hefur hlotið nafnið Hagavagninn og er fluttur yfir á sundlaugarlóðina en mun eftir sem áður þjónusta akandi og gangandi vegfarendur. Af þessu tilefni verða allar veiting- ar seldar á hálfvirði í dag, laugardag- inn 15. júní, og smáfólkið fær ókeyp- is ís í brauði á meðan birgðir endast. Gamli nafni Hagavagnsins, leið 4, mun einnig verða til sýnis á svæðinu. RAÐA UGL YSINGAR A TVINNUAUGL YSINGAR Laus staða Laus er til umsóknar staða húsvarðar við Tollhúsið í Reykjavík. Leitað er að áreiðanlegum og reglusömum manni. Æskilegt er að umsækjandi hafi bygg- ingaiðnaðarmenntun eða sambærilega starfsreynslu. Einnig þarf viðkomandi að vera talnaglöggur, lipur í umgengni og geta séð um mannaforráð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Upplýsingar um starfið gefur starfsmanna- stjóri. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist embætti ríkistollstjóra eigi síðar en 1. júlí 1996. Húsfélag Tollhússins. FLENSBORGARSKOLINN í HAFNARFIRÐI Kennararóskast Flensborgarskólinn óskar að ráða stunda- kennara á haustönn í eftirtaldar kennslu- greinar: a) Dönsku, b) ensku, c) stærðfræði, d) efnafræði, e) viðskiptagreinar. Þá er einnig auglýst eftir tónlistarkennara til að taka að sér stjórn skólakörs. Umsóknarfrestur er til 21. júní 1996. Allar nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma 565 0400 eða 555 0560. Skólameistari. íþróttakennari - æskulýðs- og íþróttafulltrúi íþróttakennara vantar á Raufarhöfn. Auk íþrótta- og sundkennslu þarf hann að sjá um íþrótta- og æskulýðsstörf ásamt þjálfun og umsjón með ungmennafélaginu Austra. Góð laun. Á staðnum er glæsilegt nýtt íþróttahús, 16 m innisundlaug, heilsurækt, sauna og Ijósabekkir. Kennarar Kennara vantar við Grunnskólann á Raufar- höfn. Almenn kennsla og listgreinar. Góð hlunnindi. Raufarhöfn er 400 manna þorp í 150 km fjarlægð frá Húsavík. Sérstæð, villt og ósnortin náttúra. Mikið fuglalíf, einstök friðsæld, en einnig fjörugt fólagslíf, gott mannlíf og öll hugsanleg þjónusta. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Upplýsingar gefur Líney Helgadóttir, skóla- stjóri, í síma 465 1225 eða Hildur Harðar- dóttir, formaður Austra og skólanefndar, í síma 465 1339. Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna for- setakosninga, sem fram fara laugardaginn 29. júní 1996, er hafin. Kosið er á skrifstofu embættisins í Hafnar- stræti 107, 3. hæð, Akureyri, alla virka daga frá kl. 9.00 til 15.00, kl. 17.00 til 19.00 og kl. 20.00 til 22.00. Um helgar er kosið milli kl. 14.00 til 17.00. Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu á Dal- vík er kosið milli kl. 9.00 og 15.00 alla virka daga svo og á öðrum tímum eftir samkomu- lagi við Gíslínu Gísladóttur, fulltrúa á Dalvík. Kosið er hjá hreppstjórum eftir samkomulagi við þá. Sýslumaðurinn á Akureyri, 14. júní 1996. Björn Jósef Arnviðarson. Aðalfundur Grensássafnaðar verður haldinn í Grensás- kirkju mánudaginn 24. júní nk. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Sóknarnefndin. Nauðungaruppboð Lausafjáruppboð verður haldið í Tollhúsinu, Tryggvagötu, í dag, laugardag 15. júní og hefst það kl. 13.30. Sýslumaðurinn í Reykjavík. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu 7, 710 Seyðisfirði, föstudaginn 21. júní 1996 kl. 14.00 á eftirfarandi eign: Árskógar 17, n.h., vesturenda, Egilsstöðum, þing. eig. Unnur Inga Dagsdóttir og Jóhann Halldór Harðarson, gerðarbeiðandi sýslumað- urinn á Seyðisfirði. 4. júni 1996. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Ólafsvegi 3, Ólafs- firði, fimmtudaginn 20. júní nk. kl. 10.00 á neðangreindri eign: Ólafsvegur 36, Ólafsfirði, þinglýst eign Davíðs H. Gígja, eftir kröfu Lífeyrissjóðs Norðurlands. Ólafsfirði, 14. júní 1996. Sýslumaðurinn i Ólafsfirði, Björn Rögnvaldsson. SUMARHUS/-LOÐIR Vil skipta á sumarbústað Glæsilegur sumarbústaður á fallegu kjarri- vöxnu landi í Borgarfirði í skiptum fyrir góð- an bústað við Elliðavatn eða fasteign í Reykjavík. Upplýsingar ísímum 852 1309og561 3577. auglýsingar Þingvallakirkja Guðþjónusta 16. júní kl. 14.00. Nám í cranio sacral- jöfnun 1. hluti af þremur 22.-28. júnf. Kennari: Svarupo H. Pfaff, lögg. „heilpraktikerin" frá Þýskalandi. Uppl. og skrán. ísíma 564 1803. KRISTIÐ SAMFÉLAG Dalvegi 24, Kópavogi Almenn samkoma í dag kl. 14. Gestapredikari Kristinn Ásgrímsson. Allir eru hjartanlega velkomnir. Hallveigarstíg 1 • sími 561 4330 Dagsferð laugardaginn 15. júní kl. 10.30: Nytjaferð, 3. ferð; veiðiferð í Úlfljótsvatn. Vanur veiðimaður leiðbeinir um útbúnað og aðferðir. Verð 1.200/1.000. Dagsferð sunnudaginn 16. júnf kl. 10.30: Reykjavegurinn, 4. áfangi; Djúpavatn-Kaldársel. Verð kr. 1.000. Netslóð; http://www.centrum.is/utivist Útivist. FERÐAFÉLAG © ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Dagsferðir Ferðaféiagsins sunnudaginn 16. júní 1) Kl. 8 Þórsmörk - dagsferð - verð kr. 2.700. 2) Kl. 10.30 Reykjavegur 4. ferð Djúpavatn - Kaldársel. Verð kr. 1.000. 3) Kl. 13.00 Þingvellir - Skógar- kot (gömul þjóðleið). Verð kr. 1.000. Mánudagur 17. júní: Kl. 10.30 Móskarðshnúkar - Trana - Kjós. Gengið frá Svína- skarði. Verð kr. 1.200. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin og Mörkinni 6. Ferðafélag (slands. (f j uni Hallvcigarstig 1 • sími 561 4330 Helgarferð 21 .-23. júní Ókeypis i Lakagíga - næstum því 1.200 krónur fyrir 3 daga ferð með gistingu, fararstjórn og rútuferðum. Útivist efnir til ferð- ar í Lakagíga, en þeir eru á þema- svæði Útivistar, Skaftárhreppi. Ferðin er farin í samvinnu Skaft- árhrepps, Austurleiðar hf. og Útivistar, en allir þessir aðilar gefa vinnu sína. Hér er um sér- stakt kynningarverð að ræða, því það er hagur allra að sem flest- ir sæki hreppinn heim. í Skaftár- hreppi eru margarfegurstu nátt- úruminjar landsins, s.s. Eldgjá, Lakagígar, Núpsstaðarskógar, Dverghamar, Kirkjugólf, Álfta- vatnskrókar og Fjaðrárgljúfur svo eitthvað sé nefnt. Þetta er fyrsta stóra gönguferð Útivistar um svæðið og því er um kynn- ingartilboð að ræða. Útivist býð- ur í framhaldi þessa upp á fjöl- margar göngu- og skoðunarferð- ir um svæðið i sumar. Netslóð: http://www.centrum.is/utivist Útivist. Blað allra landsmanna! - kjarni málvinv!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.