Morgunblaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 11
FRÉTTIR
NATTURUFARSGILDI
Mat á fíölbreytni og sérstœbni náttúrufars,
þ.e. lanaslags, jarbmyndana, gróburminja og lífríkis
Mikil Ijölbreylni i náttúrutari,
merkar eöa einstæðar minjar al
mismunandigerðum, óröskuðsvæði
Niikii Ijöibreytni i náttúrulari,
merkar minjar og/eða einstæðar mlnjar
/tni I nátturulari,
I strjálar og'/eða lábreyttar minjar
Fábreytt svæði,
litlar og/eða nær engar minjar
VIRKJANLEG VATNSORKA
■I Meirien 1.000 GWháári
■ 300-1.000 GWháári
■ 100 - 300 GWh á ári
d. Minni en 100 GWh á ári
Heimlld: Orkustolnun
BELTASKIPT LANDNOTKUN
Heimild: Landmótun
Verndarsvæði, lítt röskuð víðerni
nátlúruverndarsvæði ýmis konar, útivistar- og
ferðamannasvæði, vatnsvernd, minjavernd
| 1 Byggingarbelti, mannvirkjabrautir
I I stotnvegir, orkuvinnsla, hálendismiðstöðvar
Flestar byggingar reistar án
leyfis bygginganefnda
í tengslum við undirbúning
skipulagsins gerði Landmótun
frumkönnun um ástand í bygging-
armálum á hálendinu. Niðurstöður
þeirrar könnunar leiða m.a. í ljós
að af 370 byggingum sem eru á
svæðinu er aðeins þriðjungur þeirra
með tilskilin byggingarleyfi og að-
eins í 30% tilvika eru fráveitumál
talin viðunandi. Að sögn landslags-
arkitektanna eru þeir annmarkar á
könnuninni að mjög misjafnt var
hversu nákvæm svör fengust hjá
byggingarfulltrúum um ástand
húsa.
Ennfremur kom í ljós að níu hús
af hveijum tíu eru reist eftir 1960
og að helmingur húsa er í einka-
eign. Gistirými í skálum eru 3500,
flest á suðurhálendinu. í tillögunni
er lagt til að byggingar verði flokk-
aðar eftir hlutverki og reglur gefn-
ar út um útlit og gerð þeirra en
margar byggingar séu hreinlega
lýti á umhverfinu. Loks sé mikil-
vægt að leyfisveiting fyrir bygging-
arframkvæmdum verði háð því að
skálar séu opnir til neyðarnota og
ennfremur að hollustu- og fráveitu-
mál séu í lagi.
Stjórnsýslumörk
enn óljós
Samhliða vinnu samstarfsnefnd-
arinnar starfar sérstök nefnd, skip-
uð fulltrúum umhverfis-, félags-
mála- og dómsmálaráðuneytisins,
Enn er ekið á
nagladekkjum
Ólíklegt
að snjói
úrþessu
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
undanfarið stöðvað 17 bíla sem
enn voru á nagladekkjum.
Refsivert er að keyra á nagla-
dekkjum eftir 15. apríl og nem-
ur sektin 2.500 krónum. Auk
þess er harla ólíklegt að það
snjói úr þessu, þannig að bíieig-
endur ættu ekki að halda í nagl-
ana þess vegna.
Lögreglan vill benda mönnum
á að vilji þeir keyra dekkin út,
eins og margir þeirra sem stöðv-
aðir hafa verið síðustu daga
hafa borið við, þá verður að
plokka naglana úr dekkjunum.
Lögreglan hefur einnig verið
að stöðva og sekta ökumenn sem
hafa böm óbundin í aftursæti.
Börn yngri en sex ára skulu í
stað öryggisbeltis nota barnabíl-
stól, beltispúða eða annan sér-
stakan öryggisbúnað, ætlaðan
bömum. Sekt við því að nota
ekki belti er 2.000 krónur.
sem vinnur að því að greiða úr
ágreiningi um stjórnsýslumörk, þ.e.
mörk sveitarfélaga. Þar til þau
verða ákveðin segir skipulagsstjóri
erfitt sé að sjá fyrir um hvernig
framkvæmd skipulagsins verði og
hvernig nánari deiluskipulagningu
verði háttað á einstökum svæðum
á hálendinu.
Umhverfisráðherra lýsti yfir því
á ráðstefnu Ferðamálaráðs og
Skipulags ríkisins um skipulag og
nýtingu hálendisins í vetur að gild-
andi löggjöf um stjórnsýslumörk
væri ófullnægjandi en samhliða
endanlegri afgreiðslu svæðisskipu-
lags fyrir miðhálendið þyrfti stjórn-
sýsluumgjörðin að vera ljós.
Skipulagsstjóri lýsti þar þeirri
skoðun sinni að áður en tillaga að
svæðisskipulagi verði auglýst verði
að vera ljóst hver fari með stjórn-
sýslu á svæðinu og þar með fram-
kvæmd svæðaskipulagsins. Hann
kvaðst þá vera þeirrar skoðunar að
engum væri betur falið það verk-
efni en heimamönnum.
Magnús Sigurðsson á Gilsbakka,
einn fulltrúa í' svæðisskipulags-
nefndinni, greindi frá því á fundi
með sveitarstjórnarmönnum í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu að
úrlausnarefni stjórnsýslunefndar-
innar væru einkum tvö. Annars
vegar að úrskurða um tilkall sveit-
arfélaga til afrétta en líklegast
muni afréttir fylgja þeim sveitarfé-
lögum sem hafa nýtt þær til þessa.
Hins vegar þyrfti að ákvarða með
lagasetningu hvernig draga ætti
stjórnsýslumörk um einskis manns
lönd, s.s. jökla og almenninga.
Katrín Pjeldsted varaþingmaður
Reykjavíkurkjördæmis mótmælti
því á Álþingi í vetur að fulltrúar
flögurra byggðarlaga, Reykjavíkur,
Reykjaness, Vestfjarða og Snæ-
fellsness, ættu ekki aðild að mótun
skipulags á miðhálendinu og hvatti
til þess að skipulagið yrði unnið í
sátt við alla íbúa landsins. Umhverf-
isáðherra sagði réttast að halda sig
við það að héraðsnefndir sem land
ættu að hálendinu sæju um mótun
skipulagsins en sjálfsagt væri og
eðlilegt að leita samráðs hjá öllum
þeim aðilum sem hagsmuna ættu
að gæta.
PIANOSNILLINGURINN - SONGVARINN - LAGASMIÐURINN OG UNDRABARNIÐ j
ROBERT WELLS
„RHAPSODY IN ROCK"
OG HÖRKUSTUÐ !
í kvöld mun sænski píanósnillingurinn, söngvarinn,lagahöfundurinn s
og undrabarnið Robert Wells halda tónleika ó Hótel íslandi. ^iluJ
ROBERT WELLS er stórstjarna Skandínavíu og allstaðar sem
hann kemur fram koma þúsundir fólks ó tónleika hans. Robert Wells er virtur og
þekktur í ölium stærstu tónleikahúsum heims, jafnt sem einleikari með frægum
sinfóníuhljómsveitum, eins og í Metropolitian óperunni i New York, eða sinni eigin
hljómsveit.
Lars Risberg leikur ó bassa og og syngur og Peter Eyre leikur ó trommur. Á efnisskró tón-
leikanna eru lög eftir klussísku meistarana Chopin, Beethoven, Bach og Mozart.
Svo blandar Robert saman lögum þessaru höfunda og annarra númtímalegri með
útfærslu í jassi, blúsi og rokki ó við Jerry Lee Lewis. Þeir sem muna eftir Nigel Kennedy
hér um órið ættu ekki að lóta Robert Wells fram hjó sér fara.
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00.
Húsið opnað matargestum kl. 20:00.
Missið ekki af þessum snillingi ! - Verð aðeins 3.500 kr. í mat og
tónleikana, • en aðeins 1.500 kr. á sjálfa tónleikana.
Frítt inn á dansleikinn á eftir.
Matseðill
Forréttur:
Ostasalat í kryddpönnukökum, Vinegrette.
Aðalréttur:
Innbakaðir sjávarréttir með Basmati-
hrísgrjónum og hvítvínssósu.
Eftirréttur:
Mokkaís með konfektsósu
Sírni 568-7111 -Fax 568-5018