Morgunblaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
Þj óðargersemi
Hælbítar
UNDANFARNA daga og vikur
hafa ýmsir þeir, sem þekktir eru
að því að vera dagfarsprúðir og
grandvarir íhaldsmenn, umturnast
algerlega í heiftúðugum árásum á
Ólaf Ragnar Grímsson. Það er
hryggilegt að sjá gagnmenntaða
menn, sem sinna vandasömum
trúnaðarstörfum, beita slíkum að-
ferðum gegn Ólafi Ragnari, sem
þjóðin þekkir að
grandvarleik, sann-
girni og víðsýni.
Glefsitíkur og hælbít-
ar breyta engu um þá
einlægu aðdáun og
djúpu lotningu sem
hann hefur öðlast með
þessari þjóð.
Alþýðuhetjan
Ólafur Ragnar er
rakarasonur frá
ísafirði, alinn upp að
nokkru leyti hjá afa
sínum og ömmu á
Þingeyri, eins og hann
hefur oft tíundað að
undanförnu. Honum
eru því kunn kjör al-
þýðu manna og störf hans í henn-
ar þágu hafa mótast af umhyggju
og skilningi. Þjóðin hefur leitað til
Ólafs Ragnars og sótt hann til
trúnaðarstarfa, setu á Alþingi og
ráðherradóms. A þeim vettvangi
hefur skýrast birst hlýhugur hans
í garð vinnandi stétta. Enginn átti
jafnríkan þátt í því og Ólafur
Ragnar að koma hér á þjóðarsátt
milli launamanna og atvinnurek-
enda. Sáttargjörð þessi fólst að
vísu í því einu að vinnandi menn
skyldu ganga niðurlútir og hoknir
í hnjánum að þeim afarkostum að
ríkisvald og atvinnurekendur
mættu skerða kjör þeirra bóta-
laust. Þetta þrekvirki Ólafs Ragn-
ars í þágu íslenskrar alþýðu er nú
að bera fullan ávöxt í lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur og lög-
um um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna. Þannig verður
merki Ólafs Ragnars enn haldið á
lofti og þjóðarsáttin tryggð um
ókomin ár. Vissulega neyddist Ól-
afur Ragnar til þess þegar hann
var að koma þjóðarsáttinni í kring
að bijóta samninga sem hann hafði
sjálfur gert og bundið drengskap-
arheiti sínu, en ástæðulaust að
erfa það við jafnágætan dreng.
Hefðu þeir samningar verið látnir
standa gæti verið að stórir hópar
íslenskra launamanna hefðu nú
svipuð kjör og best gerist hjá ná-
grannaþjóðum okkar, en Ólafi
Ragnari tókst að afstýra þeirri
ógæfu með dyggri aðstoð nokkurra
verkalýðsforingja og alþýðuvina.
Menntafrömuðurinn
Eftir að hann hafði lokið dokt-
orsnámi í stjórnmálafræðum kom
Ólafur Ragnar til starfa við ný-
stofnaða félagsfræðideild við Há-
skóla íslands. Þeir sem hlýddu á
fyrirlestra Ólafs Ragnars ljúka all-
ir upp einum munni um að þeir
hafi borið fræðimannslegu innsæi
hans og óskeikulli dómgreind fag-
urt vitni. Því miður neyddist Ólafur
Ragnar til að draga verulega úr
kennslu þegar hann gerðist þing-
maður og hætti henni síðar alveg.
En í virðingarskyni við fræðin og
af umhyggju fyrir velferð nemenda
sagði hann þó ekki lausri prófess-
orsstöðu sinni við Háskólann, enda
óljóst að hæfari maður fyndist til
að gegna henni. Ýmsir starfsfélag-
ar hans töldu að það væri stjórn-
málafræðinni ekki til framdráttar
að eina prófessorsstaðan í grein-
inni væri árum saman skipuð
manni sem fékkst við önnur og
ólík störf. Munu menn fara nærri
um hvort þessi gagnrýni var
sprottin 'af sanngirni og heilbrigð-
um metnaði eða einhveiju öðru.
Annað dæmi sem sýnir prýðilega
hversu djarflega Ólafur Ragnar
vann að framgangi menningar og
mennta er drengskaparbragð það
er hann sýndi aðstandendum út-
gáfufyrirtækisins Svarts á hvítu.
ðlafur Ragnar sýndi þeim þá vin-
semd að þiggja af þeim einskis
verðan gagnagrunn og gaf eftir
skuldakröfur ríkissjóðs á móti. En
jafnvel fyrir þetta gagnrýndu and-
stæðingar Ólafs Ragnars hann og
héldu því fram að allir skuli njóta
jafnræðis gagnvart
stjórnvöldum en hann
sýndi svart á hvítu að
menningin á að hafa
forgang, ekki síst ef
aðstoðarmaður ráð-
herra og kosninga-
stjóri eiga hlut að
máli.
Stjórnmála-
foringinn
Þegar Ólafur Ragn-
ar hóf siðbót innan
Framsóknarflokksins
ungur að árum snerust
gegn honum ýmsir
varðhundar spillingar-
aflanna í flokknum og
mátti hann lúta í
lægra haldi fyrir ofureflinu; siðbót-
armanninum var vísað úr paradís
Framsóknarflokksins út í ystu
myrkur. Eftir skamma viðdvöl í
Samtökum fijálslyndra og vinstri
manna fann hann loks hæfilegan
vettvang fyrir hugsjónir sínar í
Alþýðubandalaginu. Þar var hann
fljótlega sóttur til að gegna leið-
togahlutverki. Meiri samheldni og
eindrægni ríkti í þeim flokki undir
forystu Ólafs Ragnars en áður
hafði þekkst, þótt það skilaði sér,
einhverra hluta vegna, illa í kosn-
ingum. Ekki er ráðrúm hér til að
tíunda einstök afrek Ólafs Ragnars
á sviði stjórnmálanna, enda eru
þau mörg og stór, en eitt verður
þó að nefna. Ötullegar en nokkur
annar hefur hann reynt, af full-
komnu hreinlyndi, að stefna jafn-
aðarmönnum saman í öfluga breið-
fylkingu. Þetta ætlunarverk hefur
gengið miður en skyldi, enda
mannskepnan einatt kynleg, oft
vanþakklát og eigingjörn, eins og
sést best á því að pólitísk stjúp-
börn Ólafs Ragnars, aðstoðarmenn
hans úr fjármálaráðuneytinu,
hlupu úr náðarfaðmi Alþýðubanda-
lagsins yfir til Þjóðvaka um leið
og þau eygðu þar von um þing-
sæti. En eins og oft hefur verið
bent á er ekki við Ólaf Ragnar að
sakast í þessum efnum, heldur alla
aðra. Hann getur því yfirgefið leik-
svið stjórnmálanna hnarreistur og
hreykinn af þeim afrekum sem
hann ætlaði að vinna.
Þjóðarsómi
Af því sem dregið er saman hér
má ljóst vera að þjóðinni er sómi
að því að Ólafur Ragnar skuli láta
svo lítið aö bjóða sig fram til að
gegna embætti forseta lýðveldis-
ins. Af verkum hans öllum og per-
sónunni sjálfri stafar slíkum ljóma
að eftir er tekið, ekki aðeins hér-
lendis heldur um veröld víða og
má hann sannarlega heita þjóðar-
gersemi. Verum samtaka í því að
sýna honum með eftirminnilegum
hætti það þakklæti og virðingu sem
hann verðskuldar á kosningadag-
inn 29. júní.
ÁRSÆLL FRIÐRIKSSON,
Rekagranda 1,
Reykjavík
Höfundur er kennari.
Blað allra landsmaima!
- kjarni málsins!
Ársæll
Friðriksson
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 25
Guðrún Pétursdóttir
og Ólafur Hannibalsson
verða á Akureyri 16. júní.
Samkoma verður í Húsi aldraðra,
Lundargötu 7, kl. 17-19.
f
• Lýður Ólafsson og Matthías Stefánsson leika létta tónlist
• Ólafur Hergill Oddsson býður gesti velkomna
• Haraldur Bessason flytur stutt ávarp
• Skúli Gautason tekur lagið
• Friðfinnur Hermannsson frá Húsavík flytur stutt ávarp
• Kaffiveitingar
Ávarp dagsins: Guðrún Pétursdóttir.
Guðrún Pétursdóttir mun taka þátt í Kvennahlaupinu á Akureyri kl. 14.00.
Að hlaupi loknu mun Guðrún heimsækja kosningaskrifstofuna í Hafnarstræti 101.
Þjóðhátíðarkaffí 17. júní víð AusturvöU
Þjóðhátíðarkaffi með Guðrúnu Pétursdóttur verður í Kosningamiðstöðinni við
Austurvöll á 17. júní kl. 16-18. Grettir Björnsson tekur í nikkuna.
Kosningaskrifstofur Guðrúnar Pétursdóttur:
Reykjavík: Pósthússtræti 9, 4. og 6. hæð, sínii: 552 7913
Akureyri: Hafnarstræti 101, sími: 462 7858
Selfoss: Tryggvaskáli, sími: 482 2456
Keflavík: Hafnargata 29, sími: 421 6021
Höfn á Hornafirði: Vesturbraut 2, sími: 478 2411
ísafjörður: Hafnarstræti 14, sími: 456 3613
Hafnarfjörður: Fjarðargata 17, sími: 555 0820
Guðrún Pétursdóttir
ein af okkur