Morgunblaðið - 15.06.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996 13
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
BJORN Sigurðsson er kominn á samning sem málari og hér
er hann með lærimeistara sínum í málaraiðninni, Ævari Jónssyni.
Oft mikið að
gera því kröf-
urnar eru miklar
STÖLLURNAR Hafdís Kristjánsdóttir og Kristín Huld Gunn-
Iaugsdóttir eru flokksstjórar í Skólagörðum Akureyrar í sum-
ar, en þær eru í hópi fyrstu grunnskólakennaranna sem braut-
skrást frá Háskólanum á Akureyri.
á Hjalteyri
SÝNING á verkum Dagnýjar S. Ein-
arsdóttur, myndum af íslensku al-
þýðufólki stendur yfír á Hótel Hjalt-
eyri. Sýningunni lýkur næstkomandi
föstudag, 21. júní. Kaffihúsið verður
lokað þjóðhátíðardaginn 17. júní.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Messa í
kirkjunni á morgun, sunnudag kl.
11.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta í
kirkjunni á sunnudag kl. 11.
HJALPRÆÐISHERINN: Tónleika-
samkoma á sunnudag kl. 16.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu í
Reykjavík syngur gospel og lof-
gjörðartónlist.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam-
koma fellur niður í kvöld vegna
unglingamóts. Safnaðarsamkoma
á morgun kl. 11, samkoma í kirkj-
unni á sunnudag fellur niður, en
þess í stað verður samkoma á
Hjálpræðishernum kl. 16, þarsem
sönghópur frá Hvítasunnukirkj-
unni Fíladelfíu í Reykjavík syngur
gospel og lofgjörðartónlist.
Morgunblaðið/Kristján
Á leið úr
grillveislu
FÉLAGARNIR Þorsteinn Ingason og
Andri Heiðar Ásgrímsson voru víg-
reifir, er ljósmyndari Morgunblaðsins
rakst á þá í blíðunni í gær. Þeir voru
að koma úr grillveislu á leikskólanum
Síðuseli, þar sem systkini þeirra eru
en sjálfir eru þeir komnir á grunn-
skólaaldurinn. Engu að síður
skemmtu þeir sér vel í grillveislunni,
ásamt fjölda fólks.
FYRSTU grunnskólakennararnir
verða brautskráðir frá Háskólanum
á Akureyri í dag, laugardag og eru
þeir 24 talsins.
„Það blundaði í mér á þeim tíma
sem ég sótti um þetta nám að verða
kennari,“ sagði Björn Sigurðsson
frá Vopnafirði, einn þeirra sem
útskrifast úr kennaradeild háskól-
ans. Hann sagði að tvennt væri
einkennandi í sinni ætt, í henni
væru margir sem bæru nafnið
Björn og einnig væru margir kenn-
ararar þannig að kannski hefði
þetta legið beint við sér.
Bjöm útskrifaðist frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri, úr
raungreinadeild og hann valdi sér
einnig raungreinasvið innan kenn-
aradeildar háskólans. Hann sagðist
ekki hafa verið tilbúinn að flytja
suður til Reykjavíkur að loknu námi
á Akureyri og því valið sér kennara-
námið við Háskólann á Akureyri.
Næsta haust hyggst hann lesa
heimspeki við Háskóla íslands.
„Mér fínnst það liggja nokkuð beint
við, það er mikil heimspekileg
áhersla í kennslunni hér fyrir norð-
an og ég hef áhuga á að kynna
mér þessa grein betur,“ sagði hann.
„Ég hef engan sérstakan áhuga á
að fara í kennslu, ég held þetta sé
vanþakklátt starf og illa launað.“
Amma hvatti til kennaranáms
Björn sagðist í heildina vera
ánægður með námið, „en ég sinnti
því ekki of vel á köflum, ég féll
alveg flatur fyrir alnetinu og um
tíma komst fátt annað að.“
Ein aðalástæða þess að Björn fór
í kennaranámið sagði hann vera
að móðuramma sín, Aðalheiður
Stefánsdóttir sem nú er látin hafi
hvatt sig óspart. „Hún sagði alltaf
að þetta væri það albesta starf sem
hægt væri að hugsa sér. Ég til-
einka henni þessa útskrift, hún
hefði áreiðanlega orðið glöð á þess-
um degi.“
Sambýliskona Björns, Kristín
Huld Gunnlaugsdóttir, sem er frá
Kópaskeri en hefur búið á Akur-
eyri síðustu 9 ár er einnig að út-
skrifast sem grunnskólakennari frá
háskólanum. Hún varð stúdent frá
Verkmenntaskólanum á Akureyri
árið 1991. Hún er flokksstjóri í
Skólagörðum Akureyrar í sumar
ásamt Hafdísi Kristjánsdóttur frá
Húsavík sem einnig er að braut-
skrást í dag.
„Þetta var oft erfitt," segja þær
um námið í kennaradeildinni, en
Kristín var á almennu sviði og
Hafdís á raungreinasviði. „Oft var
mikið að gera, kröfurnar eru mikl-
ar og því þarf að sinna þessu námi
vel, en það er auðvitað eðlilegt fyr-
ir háskólanám."
Langaði að
verða kennari
Þær sögðu að viðhorfið til kenn-
aranema og kennslunnar við Há-
skólann á Akureyri hefði í fyrstu
oft verið neikvætt. „Það eru dæmi
þess að kennarar hér á Norður-
landi bentu okkur á að fara suður
í Kennaraháskóla, en eftir að við
fórum út í æfingakennslu hefur
viðhorfið breyst."
Hafdís varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1987 en
flutti þá til Húsavíkur þar sem hun
sinnti margvíslegum störfum. „Ég
sinnti mikið störfum með börnum,
í skólagörðum, leikjanámskeiðum
og fleiru. Mig langaði að verða
kennari en var ekki tilbúin að flytja
með fjölskylduna til Reykjavíkur.
Ég varð því afskaplega ánægð þeg-
ar kennaranám bauðst hér á Akur-
eyri,“ sagði Hafdís, en hún hefur
fengið kennarastarf við Síðuskóla
næsta vetur.
Kristín ætlar að hefja nám í
námsráðgjöf við Háskóla íslands
næsta haust.
Alþýðufólk
Fyrstu grunnskólakennararnir brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri
Morgunblaðið/Kristj án
GLAÐBEITT undirbúningsnefnd, frá vinstri Hreinn Pálmason,
Guðmundur Sigurbjörnsson, Aðalheiður Stefánsdóttir, Halldór
Gestsson, Kristján Davíðsson, Páll Leósson og Örn Ingl Gíslason
á Andabrúnni sem er hluti af nýju útivistarsvæði Akureyrarhafn-
ar sem vígt verður á þjóðhátíðardaginn.
Menntaskólanum á Akureyri slitið 17. júní
Homsteinn lagður að
nýbyggrngunni Hólum
Dagskrá há-
tíðarhaldanna
17. júní með
breyttu sniði
HÁTT í þijú hundruð listamenn
víðs vegar að af landinu taka þátt
í hátíðarhöldunum þjóðhátíðar-
daginn 17. júní á Akureyri, en
dagskráin verður með breyttu
sniði frá því sem verið hefur.
Hefðbundin dagskrá á vegum
Akureyrarbæjar hefst kl. 10 á
Hamarkotsklöppum, við styttu
landnámsmannanna Helga magra
og Þórunnar hyrnu, með fánahyll-
ingu, helgistund og tónlistaratriði.
Eftir hádegi, kl. 13.30, verður
nýtt útivistarsvæði Akureyrar-
hafnar við Strandgötu vígt og síð-
an fer skrúðganga með þátttöku
þriggja leikfélaga upp götuna og
að hátiðarsvæðinu, Ráðhústorgi.
Þar verða margvísleg atriði að
loknum hefðbundnum ávörpum,
m.a. keppni milli hverfa bæjarins
í ýmsum þrautum, hlutur verður
falin á torginu og sá sem hann
finnur hlýtur að launum ferð til
Lundúna, þá verður prestavakt á
svæðinu þannig að þeim sem vilja
nota tækifærið og gifta sig eða
láta skíra börn sín gefst kostur á
því.
Gera má ráð fyrir að margir
vi\ji sjá bæjarstjprann Jakob
Björnsson taka júdóglímu við
Vernharð Þorleifsson en það er
eitt dagskrár- atriða.
Síðar um daginn verður fjöl-
skylduskemmtun sem hefst kl. 17
en þar munu börn og unglingar
skemmta, m.a. flytur Leikklúbb-
urinn Saga verkið Kristnitökuna.
Allan daginn verður svonefnd
þjóðhátíðarkaffistofa í skemmti-
staðnum 1929 en þar verður sýnd
kvikmynd sem gerð var á 100 ára
afmæli Akureyrarbæjar árið 1962.
Harmonikuleikarar spila fólk
inn á Ráðhústorg um kvöldið, en
kl. 20.10 hefst kvöldskemmtun þar
sem m.a. verður flutt ný revía,
Bærinn okkar, undir leikstjórn
Arnar Inga en söngtextar eru eft-
ir Björn Þorleifsson. Félagar úr
Freyvangsleikhúsinu sýna. Karla-
kór Akureyrar-Geysir syngur og
hagyrðingar koma fram.
Um miðnætti verður svonefnd
lokagleði þar sem ýmislegt óvænt
gerist, m.a. munu þar fimm hljóin-
sveitir leika fyrir dansi, Geir-
mundur Valtýsson, Synir Mundu,
Mýranda, Hljómsveit Ingu Eydal
og Kristján, Pétur og Kristján.
Dagskránni lýkur kl. 1.30.
Það er íþróttafélagið Þór sem
hefur umsjón með þjóðhátíðar-
dagskránni í ár, en Þór, KA og
skátafélagið Klakkur sjá til skiptis
um dagskrána. Guðmundur Sigur-
björnsson, formaður félagsins,
sagði þegar dagskráin var kynnt
að vilji hefði verið til þess að
brydda upp á nýjungum og hefði
félagið fengið fjöllistamanninn
Örn Inga til að skipuleggja dag-
skrána. Félagið væri ekki svikið
af þeim viðskiptum því dagskráin
nú væri óvenju fjölbreytt og lif-
andi.
MENNTASKÓLANUM á Akureyri
verður slitið í 116. sinn og stúdentar
brautskráðir mánudaginn 17. júní.
Athöfnin verður í íþróttahöllinni og
hefst kl. 10 árdegis. Meðal annars
frumflytja nemendur af tónlistar-
braut verk sem Jón Hlöðver Áskels-
son tónskáld hefur samið að beiðni
skólans við þjóðlagið Augun þín.
Að loknum skólaslitum verður
hornsteinn lagður að nýbyggingunni
Hólum og hefst sú athöfn kl. 12.15.
Formaður bygginganefndar, Knútur
Otterstedt, leggur hornsteininn á
Skólatorg MA, en auk hans flytur
ávarp Pétur Pétursson, formaður
skólanefndar.
Opið hús verður í Gamla skóla frá
kl. 15 til 17 þar sem nýstúdentum,
aðstandendum þeirra og öðrum gest-
um er boðið upp á kaffi og köku-
bita. Hús skólans, þar með talin ný-
byggingin Hólar sem tekin verður í
notkun fullbúin 1. september í haust,
verða til sýnis.
Að kvöldi 17. júní verður hátíðar-
fagnaður nýstúdenta i íþróttahöll-
inni, en um miðnætti fara nýstúdent-
ar að vanda um miðbæ Akureyrar.
MA-hátíðin, fagnaður afmælisstúd-
enta fer fram í íþróttahöllinni að
kvöldi 16. júní, en þar hittast gamlir
nemendur skólans, sem eiga stúd-
entsafmæli sem stendur á heilum eða
hálfum tug auk ársgamalla stúdenta.
SYSLUMAÐURINN A AKUREYRI
Utankj örfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga
sem fram fara laugardaginn 29. júní 1996, er hafin.
Kosið er á skrifstofu embættisins í llafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri,
alla virka daga frá kl. 09.00 til 15.00, kl. 17.00 til 19.00 og kl. 20.00 til 22.00.
Um helgar er kosið milli kl. 14.00 og 17.00.
Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu á Dalvík er kosið milli
kl. 09.00 og 15Í00 alla virka daga svo og á öðrum tímum
eftir samkomulagi við Gíslínu Gisladóttur, fulltrúa á Dalvík.
Kosið er hjá hreppstjórum eftir samkomulagi.við þá.
Sýslumaðurinn á Akureyri, 14.júní 1996.
Björn Jósef Arnviðarson.