Morgunblaðið - 15.06.1996, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1996
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Hringt til Islands frá útlöndum
Þriggja mínútna
símtal frá Dan-
mörku á 171 krónu
eða 703 krónur
Það getur kostað íslenskan ferðamann 57
krónur að hringja heim í eina mínútu frá
Danmörku en hann getur líka þurft að
borga fyrir mínútuna rúmlega 700 krónur.
Munurinn liggur í við hverja hann skiptir.
í BYRJUN vikunnar var haft sam-
band við J)au íslensku fyrirtæki
sem bjóða Islendingum upp á síma-
þjónustu þegar þeir eru á ferðalagi
í útlöndum. Beðið var um taxta á
háannatíma á virkum degi bæði í
eina rnínútu og síðan í fimm mínút-
ur. í nokkrum tilfellum þarf að
borga upphafsgjald og er það inni-
falið í töflunni þar sem það á við.
Þá var haft samband við tvö erlend
símafyrirtæki og forvitnast um
gjald hjá þeim þegar hringja á
heim til íslands þaðan.
Á daginn kom að það borgaði
sig í báðum þessum tilvikum að
kaupa símakort í viðkomandi landi
sem eru þá seld á pósthúsum.
Þá lítur út fyrir að í öðrum tilfell-
um sé álitlegur kostur að hringja
heim í gegnum greiðslukortaþjón-
ustu, með símakorti Pósts og síma
eða hringja í þjónustuna ísland
beint. Það á sérstaklega við þegar
fólk er á hótelum og hefur ekki
aðgang að síma með símakorta-
þjónustu eða finnst einfaldlegra
þægilegra að geta hringt beint af
sínu hótelherbergi. Sé þjónusta
greiðslukorta, símakort Pósts og
síma eða möguleikinn Island beint
notað er komist hjá að greiða hótel-
inu þjónustugjald. Símakort Pósts
og síma er öðruvísi en þau síma-
kort sem hægt er að kaupa í útlönd-
um að því leyti að þau eru ekki
hlaðin og er því hægt að nota á
hótelum og í venjulegum símum í
heimahúsum. Sérstakt númer er á
kortinu sem stimplað er inn þegar
hringt er heim.
Hjá flestum lækkar mínútu-
gjaldið á kvöldin og um helgar en
það er þó ekki algilt.
Hægt að kaupa símakort í
viðkomandi landi
Haft var samband við fyrirtækið
Tele Danmark í Danmörku og
fengust þar þær upplýsingar að
mínútan til íslands kostaði 5 krón-
ur danskar eða um 57 krónur ís-
lenskar. Hægt er að kaupa síma-
kort á pósthúsum í Danmörku sem
nota má síðan meðan á dvöl ytra
stendur og hringja þá á þessu verði
heim.
Þá var hringt til fyrirtækisins
Deutche Telecom í Bonn og þar
kostar mínútan til íslands eitt
mark eða um 44 krónur. Þijár
mínútur kostuðu þijú mörk. Þar
er einnig hægt að kaupa símakort
og nota á ferðalagi um landið.
Gildir þá ofangreint verð þegar
hringt er heim.
NMT-farsíminn (Nordic Mobile
Telehopne) er líka hagstæður kost-
ur sé verið að ferðast um Norður-
lönd en það eru hins vegar ekki
næstum allir sem eiga slíkt tæki.
GSM-síminn er einnig ódýrarasti
kosturinn í sumum tilfellum
þ.e.a.s. sé símakort í viðkomandi
landi ekki betri kostur.
Stundum er hægt að velja um
símafyrirtæki erlendis þegar ferð-
ast er með GSM-farsíma. Síminn
velur oft sjálfkrafa fyrirtæki en
auðveldlega er hægt að breyta því
og velja annað ef þar bjóðast hag-
stæðari kjör.
Ljóst er að það borgar sig að
athuga þá möguleika sem í boði
eru þ.e.a.s. svo fremi sem ætlunin
sé að hringja heim af og til. Þá
getur mismunurinn skipt þúsund-
um.
Heitt í
kolunum
ÞEIR félagar Óskar Finnsson,
Ingvar Sigurðsson og Árni Þór
Arnórsson eru með grillþætti á
Bylgjunni á laugardögum i sum-
ar. Þær uppskriftir sem þeir
gefa hlustendum sínum eru síðan
birtar hér á síðunum.
Nautastelk á grllllð
Þeir félagar segja nautasteik
sígilda á grillið en bæta við að
ýmislegt beri þó að hafa í huga
við val og eldun á nautakjöti.
Best er að grilla steikur sem
eru um 2 cm á þykkt, vegna
skamms eldunartíma. Steik af
þessari þykkt tekur 4-5 mínútur
að elda á vel heitu grilli.
Veljið ávallt kjöt sem er fal-
lega rautt á litinn og vel fituofið.
Dökkt kjöt semer alveg fitulaust
er ekki eins vel fallið til eldunar
á grilli. Fallega fituofið kjöt sem
hefur fengið næga verkun, þ.e.
fengið að hanga hágmark 15
daga eftir slátrun er frábært
grillkjöt.
Steikur sem henta vel á grillið
eru t.d. framhryggjasneiðar, T-
bein steik, lundir o.fl. Látið kjöt-
ið ávallt ná stofuhita fyrir eldun,
það tryggir jafnari og fallegri
steikingu. Notið snarpan hita og
eldið frekar minna en meira, því
alltaf er hægt að skella steikinni
aftur á grillið ef hún þykir of
lítið steikt. Snúið steikunum 2-3
sinnum og kryddið kjötið meðan
á eldun stendur með t.d.
barbecue seasoning. Mjög gott
er líka að krydda með salti og
nýmöluðum svörtum pipar.
Kryddsmjör er frábært með
nautasteik, hér er uppskrift af
einu góðu.
Gróðurvinin
er í Mörkinni
Fjölærar plöntur
Tré og runnar
lauftré • Skrautrunnar • Barrtré
GROÐRARSTOÐIN
Skrautkál
Opnunartímar:
Virka daga kl. 9-21
Um helgar kl. 9-18
Geislasópur
STJÖRNUGRÖF18. SÍMI 581 4288, FAX 581 222
Sækið surnarið til okkar
Biðjið um vandaðan
garðræktarbækling
með plöntulista
Koníakskryddsmjör
400 g smjör
V3 dl lconíak
4 stk. meðalstórir sveppir
2 msk hunang
2 tsk steinselja
salt og pipar
Linið smjörið, hitið koníakið ögn
og leysið hunangið upp í því. Saxið
sveppina fínt niður og blandið öllu
saman. Setjið á plastfilmu, rúllið
upp og kælið.
Grillaöir
kartöflubótar
5 stórar bökunarkarföflur
Spicy Season all krydd
Sjóðið kartöflurnar í u.þ.b. 20
mín. Takið upp og skerið í 6 báta
hveija kartöflu, penslið með olíu
og klárið að elda á grillinu, kryddið
með Season all kryddinu. ■
Hvað kostar að hringja heim frá útlöndum?
Danmörk Noregur Þýskaland Sviss Luxemborg Spánn Portúgal Bandaríkin Bretland
1min. \5min. 7 mín.' 5 mín. 1 min. 5 mín. 1mín. 5mín. 1mín. 5mín. 1 mín. 5 mín. 1min..5mín. 1mín. :5mín. 1 mín. 5 mín.
Visa phone krónur 186 657 186 657 186 657 186 657 203 i 742 203 ; 742 186 657 152 489 176; 607
, Island beint Póstur og sími 473 635 473 635 ; 494 670 563 785 563 785 ' 494 670 563 785 563 785 473 635
Kreditkort h/f Eurocard símakort 146 530 117 : 385 156 577 ! 183 711 204 820 173 664 166 628 147 532 151 ; 551
GSM sími 114 570 70 350 94 470 • 93 468 ' , ■ / J ' 195 975 109 545 116 580 Vodaphone 119 595 Cellnet 157 788
NMTfarsími i „on Nordic Mobile teleph.64 320 ; 49 245 : í : j * - , : I
"Collect" . 703 865 í ' 703 865 724 900 793 1.015 793 1.015 724 900 . 793 1.015 793 1.015 SÍftpráffi 703 865
Ferðasímakort Póstur og sími 158 493 160 502 » 183 616 . t -■ . 226 830 276 1.084 : 190 653 204 722 181 607 235 879
Þjónustugjald er innifalið
Upphafsgjald 230 kr. er
innifalið. 3 min. kosta sama
og 1 min. Handvirk þjónusta
Upphafsgjald 460 kr. er
innifalið. 3 min. kosta sama
og 1 min. Handvirk þjónusta
Upphafsgj. 74 kr. er innifalið.
Verðið gildir frá 1. júli 1996