Morgunblaðið - 27.08.1996, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Hitamál í norskum menntamálum
Bekkjum skipt eftir kynjum
FYRIR skömmu lögðu kvennasamtök Kristi-
lega þjóðarflokksins í Noregi fram hugmynd-
ir um að skipta bekkjum eftir kynjum í fram-
haldsskólum og brugðust margir harkalega
við, sögðu að verið væri að stíga skref hálfa
——------------------------
öld aftur í tímann. I Aftenposten kemur á
hinn bóginn fram að æ fleiri telja nauðsyn-
legt að huga að slíkum lausnum til að auka
hlut stúlkna í ákveðnum námsgreinum
Kynskipting eftir námsgreinum í Noregi
Norskar stúlkur í framhaldsskólum leggja fyrst og fremst
stund á nám í heilbrigðis- og félagsgeiranum, drengirnir
sýna byggingariðnaði og tæknigreinum mestan áhuga
10 20 30 40 50% 60 70
90 100
Kynjahlutfall íheild:
Heilbrigðis- og félagsþjónusta
Hönnun
Tónlfst, dans og leiklist
Nám í viðskiptum og stjórnun
Veitinga- og gistihúsaþjónusta
Landbúnaður
íþróttir
Efnavinnsia
Trjávfnnsla
Byggingatækni
Véltækni
Raftækni
Byggingariðnaður
r I Drengir
I i Stúlkur
100 90 80 70 60 50% 40 30
10 0
REKTOR framhaldsskólans í Sola
hefur tekið af skarið í samvinnu
við fræðslustjóra Rogalands og
þar hefst kennsla í haust í bekk
með 15 nemendum sem eingöngu
eru stúlkur. Markmiðið er að auð-
velda stúlkunum að fara inn á
námsbrautir sem kannanir sýna
að eru fýrst og fremst „stráka-
greinar“ eins og t.d. ýmsar tækni-
greinar í byggingariðnaði.
A áttunda og níunda áratugnum
jókst hlutfall stúlkna í hefðbundn-
um strákagreinum í norsku fram-
haldsskólunum stöðugt en allra
síðustu ár hefur þróunin snúist
við. Áður en skiptingin var ákveð-
in höfðu aðeins fimm stúlkur sótt
um nám í tæknigreinum bygging-
ariðnaðar í skólanum.
Hvað er það sem einkum veldur
ójafnri skiptingu kynjanna eftir
greinum? Svarið vefst fyrir flest-
um en Aftenposten spurði eina af
stúlkunum á Rogalandi.
„Ég hafði hugsað mér að byija
í tæknideild byggingariðnaðar
vegna þess að mig langar til að
verða tækniteiknari," sagði Evy
Olavsen. „En vinkona mín gafst
upp í fyrra eftir hálfs árs nám og
þá missti ég áhugann. Hún þoldi
ekki lengur að hlusta á strákana
lýsa því hvað hún væri klaufaleg."
Olavsen var ekki í vafa þegar boð-
ið var upp á hreinan stúlknabekk
og sótti um.
Stúlkur njóta sín
betur í eigin hópi
Þýskar rannsóknir gefa til
kynna að stúlkur eigi oft undir
högg að sækja í venjulegum,
blönduðum bekkjum. Árangur
stúlkna er betri ,þar sem skipt er
í bekki eftir kynjum. Fullyrt er að
flestir kennarar taki minna tillit
til stelpnanna, grípi oftar fram í
fyrir þeim en strákunum, geri lítið
úr skoðunum hinna fyrrnefndu og
spyrji oftar um skoðanir „karl-
anna“. Þegar bekkjum er skipt
eykst áhugi stúlkna á eðlisfræði
og efnafræði verulega.
„Samkennsla [kynjanna] veldur
meiri skilum milli kynjanna en
kynjaskiptir bekkir,“ segir Jo-
hanna Mehler, skólastjóri við St.
Anna-menntaskólann í Múnchen í
viðtali við Der Spiegel.
Konurnar í Kristilega þjóðar-
flokknum benda á að í 30 ár hafi
verið unnið að jafnrétti kynjanna
í skólunum og á sumum sviðum
hafi ekki náðst árangur. Þær vilji
bregðast við þeirri staðreynd og
gera aðlaðandi fyrir stúlkur að
læra greinar sem þær forðist nú;
skiptir bekkir séu tilraun í þá átt.
Andvígur tillögunum en
viðurkennir vandann
Svein Sjoberg, prófessor við
Óslóarháskóla er andvígur til-
lögunum, segir slíka skipan mála
vera í andstöðu við þær grundvall-
arhugmyndir að jöfnuður sé auk-
inn með því að láta nemendur með
ólíkan bakgrunn og af báðum
kynjum stunda nám saman í bekk.
Hann viðurkennir þó vandann.
„Við vitum að stúlkurnar verða
út undan, einkum í tilraunastund-
um í t.d. eðlisfræði. Strákarnir
hertaka bókstaflega öll hjálpar-
tækin sem á að nota. Þeir eru
vanir að nota ýmis tæki og tól og
þetta veldur því að þeir ráðskast
með allt sem við kemur tilraun-
inni. Stúlkurnar eru látnar skrá
niðurstöðurnar og taka til á eftir,“
segir Sjoberg.
Skólabúðir
að Reykjum
áfram
starfræktar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
áfram starfsemi Skólabúðanna að
Reykjum í Hrútafirði fyrir grunn-
skólanemendur af öllu landinu.
Reykvískir skólastjórar höfðu
borið kvíðboga fyrir að stafsemin
félli niður þegar rekstur þess
færi af höndum menntamálaráðu-
neytis og sendu þeir frá sér áskor-
un um áframhaldandi starfsemi
síðastliðið vor.
Skólabúðirnar að Reykjum
hafa tekið við 2-3 hópum í senn
af 12-13 ára nemendum af öllu
landinu. Hafa þeir dvalist viku í
einu þar sem brotið hefur verið
upp hefðbundið skólastarf en
nemendur settir í ákveðin verk-
efni eins og íþróttir og útiveru,
líffræði þar sem lífríki fjörunnar
er m.a. kannað og Byggðasafnið
og hákarlaskipið er skoðað undir
leiðsögn heimamanna. Hefur
starfsemin mælst mjög vel fyrir
bæði af kennurum og nemendum.
Fjórhliða samningur
Að sögn Siguijóns Péturssonar,
deildarstjóra grunnskóladeildar
Sambands íslenskra sveitarfé-
Iaga, hefur verið gerður samning-
ur á milli Staðahrepps vegna
rekstrarins, Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga vegna fjármunanna,
menntamálaráðuneytisins vegna
húsnæðisins og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga vegna
skipulags eða tengingar við sveit-
arfélögin um þennan rekstur.
„Sambandið hefur á þennan hátt
beitt sér til lausnar ýmsum sam-
eiginlegum málum, þ. e. að fá það
sveitarfélag sem verkefnið er
staðsett í, til að taka það að sér
og bera ábyrgð á því en fjármagn-
ið kemur frá Jöfnunarsjóðnum,"
sagði hann.
Verzlunarskóli íslands
Öldungadeild
Lœrið fijd þeim sem þefikja þarfir viðskiptalífsins
Öldungadeild skólans gefur fólki kost á að stunda nám (einstökum áföngum jafnt
hefðbundinna bóknámsgreina sem viðskiptagreina. Ekki er nauðsynlegt að stefna að
ákveðinni prófgráðu og algengt er að fólk leggi stund á einstakar námsgreinar til að auka
atvinnumöguleika sína eða sér til ánægju.
Sem dæmi um námsgreinar í boði má nefna íslensku, erlend tungumál,
sögu, hagfræði, bókfærslu, verslunarrétt og margt fleira.
Bókhalds- og tölvunám
Markmið er að þjálfa nemendur í bókhaldi og tölvunotkun.
Námið er 208 kennslustundir.
Kennslugreinar:
Almenn tölvunotkun - Stýrikerfið WINDOWS 95
Töflureiknirinn EXCEL
Gagnagrunnurinn ACCESS
Ritvinnslukerfið WORD for Windows 7.0
Bókfærsla
Tölvubókhald (Opus-Alt)
208 kennslustundir. Verð kr. 51.800.
Kennsla hefst 4. september og náminu lýkur með prófum í desember.
VR og mörg önnur stéttarfélög og starfsmenntasjóðir styrkja þátttöku
félagsmanna sinna.
Upplýsingar og innrítun á skrífstofu
Verzlunarskóians, Ofanleiti 1.
skólar/námskeið
myndmennt [
Handmenntaskóli íslands
• Bréfaskólanámskeið
Eins og áður kennum við:
Grunnteikningu, litameðferð, líkams-
teikningu, listmálun með myndbandi,
skrautskrift, innanhússarkitektúr, hí-
býlatækni, garðhúsagerð, teikningu og
föndur fyrir börn og húsasótt.
Nýtt hjá okkur er hljómblóma-námskeið-
ið, sem eykur vöxt blóma, grænmetis,
jurta, trjáa o.s.frv.
Fáið sent kynningarrit skólans og hring-
ið í 562-7644 eða sendið okkur línu í
pósthólf 1464, 121 Reykjavík eða lítið
á slóðina http://www.mmedia.is/hand-
ment/
tungumál
■ Enskunám í Englandi. í boði er
enskunám allt árið við virtan ensku-
skóla. Fæði og húsnæði hjá enskri fjöl-
skyldu. Fámennir námshópar. Sérstök
14 vikna námskeið hefjast 11. septem-
ber (Cambridge Examination Courses).
Upplýsingar veitir Marteinn M. Jóhanns-
son eftir kl. 19 í síma 581 1652.
HEILSUSETUR
ÞÓRGUNNU
■ Svæðameðferðaskólinn
Kynningarnámskeið byrjar
3. september.
■ Ylmolíunudd
með sérstöku andlits-, handa-
og fótanuddi. Þriggja helga námskeið.
■ Ungbarnanudd
Námskeið fyrir foreldra með börn á aldr-
inum 1-10 mánaða.
Upplýsingar og innritun á Heilsusetri
Þórgunnu, Skúlagötu 26, í síma
562 4745.
ýmislegt
■ Söngsmiðjan
Nú geta allir lært að syngja
Hóptímar/einkatfmar
Byrjendanámskeið; Framhaldsnámskeið;
Raddbeiting, öndun, tónheym,
samsöngur.
Söngnámskeið fyrir börn
og unglinga.
Aldursskipt námskeið frá 5 ára aldri.
Einsöngur;
Undirbúningsdeild; einsöngsdeild.
Sveifludeildin:
Söngleikjatónlist, gospel, jass og blues.
Upplýsingar og innriturí í síma
561-2455, fax 561-2456 og á skrifstofu
skólans, Hverfisgötu 76, Reykjavík, alla
virka daga frá 11—18.