Morgunblaðið - 20.09.1996, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
2Vi árs fangelsi
fyrir tryggingasvik
FJÓRIR menn voru dæmdir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær í allt
frá 6 mánaða til tveggja og hálfs
árs fangelsi fyrir að svikja út
tryggingafé með því að setja á
svið umferðarslys og kveikja í bíl
á bílasölu.
Fjórir menn voru ákærðir í þessu
máli og einn þeirra að auki fyrir
tilraun til fjársvika í félagi við
annan mann. Þeir voru báðir sýkn-
aðir af þeirri ákæru. Þeir tveir
höfðu keypt sér tryggingu og taldi
ákæruvaldið að þeir hefðu ætlað
að setja á svið slys.
Fjórmenningamir játuðu á sig
hin brotin og hlaut Benedikt Orri
Viktorsson óskilorðsbundinn dóm
upp á 2Vi árs fangelsi.
Einn mannanna var dæmdur
fyrir að sviðsetja slys á Reykjanes-
vegi, þrír voru dæmdir fyrir að
sviðsetja slys í Hvalfirði og einnig
var dæmt fyrir að svíkja út trygg-
ingabætur með því að kveikja í bíl
á bílasölu í Reykjavík.
Ákvörðun borgarráðs snúið í borgarstjórn
Leyfi fyrir hundahaldi afturkallað
BORGARSTJÓRN samþykkti í gær-
kvöldi að afturkalla leyfi Kristínar
Olsen til að halda hund á heimili
sínu að Neðstaleiti 1. Húsfélagið
hafði krafist afturköllunar með þeim
rökum að ekki hefðu allir þinglýstir
eigendur í 'núsinu gefið leyfið, líkt
og kveðið væri á um í samþykkt um
hundahald í Reykjavík frá 1989.
Meirihluti R-listans í borgarráði
samþykkti 17. septembersl. að heim-
ila hundahaldið í húsinu og vísaði
jafnframt frá tillögu sjálfstæðis-
manna um afturköllun leyfisins. Til-
lagan var borin upp að nýju í borgar-
Morgunblaðið/Einar Falur
SIGURÐUR Þ. Jóhannsson, verksljóri hjá Trosi í Sandgerði, virðir fyrir sér hvalkjötið.
FIB-Trygging
Há iðgjöld
hjá ungnm
ökumönnum
Ökutækjaeigendur sem eru 25 ára
og yngri þurfa að greiða jafn há eða
hærri iðgjöld hjá FÍB-Tryggingu og
hjá öðrum tryggingafélögum hér á
landi.
Iðgjöldin lækka hins vegar um
leið og komið er yfir 25 ára aldur
og þá greiða bíleigendur að jafnaði
25-30% lægri iðgjöld en hjá öðrum
tryggingafélögum.
Einnig er hægt að velja um tvo
kosti í kaskótryggingum FÍB-Trygg-
ingar. Að sögn Gísla Maack vátrygg-
ingamiðlara miðast ódýrari kostur-
inn við að einungis tveir ökumenn,
báðir eldri en 25 ára, hafi afnot af
ökutækinu. Hinn er óskilyrtur og
um 10% dýrari. í ábyrgðartrygging-
um félagsins eru hins vegar engin
skilyrði um fjölda notenda.
Tryggingamar em bundnar við
félaga í Félagi íslenskra bifreiðaeig-
enda. Gísli Maack segir sölu á trygg-
ingum hafa gengið mjög vel það sem
af er. Félagsmenn í FIB greiða ár-
gjald kr. 3.300 en að sögn Gísla
þurfa nýir félagsmenn sem kaupa
sér tryggingar að greiða 1.200 krón-
ur til áramóta. Hann sagði að í FÍB
væru 19.000 félagar, 98% þeirra 25
ára og eldri.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja gerir
athugasemdir við uppboð á hvalkjöti
Sölubann sett
á hvalkjötið
HEILBRIGÐISEFTIRLIT Suður-
nesja hefur sett sölubann á þá aðila
sem keyptu kjöt af hvalnum sem
strandaði í Sandgerðishöfn á mið-
vikudaginn og var boðinn upp á
Fiskmarkaði Suðumesja í gærmorg-
un.
Það var á þriðjudag sem hvalur-
inn synti inn í höfnina og stugguðu
félagar úr björgunarsveitinni Sigur-
von í Sandgerði honum út úr höfn-
inni. Daginn eftir sneri hvalurinn
aftur, strandaði á skeri framan við
innsiglinguna og kafnaði þar, að
sögn Guðjóns Inga Sigurðssonar,
formanns björgunarsveitarinnar.
Þá var hvalurinn tekinn og blóðgað-
ur og gert að honum.
Má ekki gerast aftur
Kjötið, alls 4,7 tonn að þyngd,
var selt á fiskmarkaðnum í gær-
morgun fyrir tæpa eina milljón
króna og skiptu björgunarsveitin
og áhafnimar á tveimur trillum sem
tóku þátt í aðgerðinni ágóðanum
stjóm í gær og hlaut hún meirihluta-
samþykki fyrir tilstilli Árna Þórs Sig-
urðssonar af R-lista.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sagði
að samþykkt undanþága frá banni
við hundahaldi í fjölbýlishúsi hefði
frá upphafi verið marklaus þar sem
ekki hefði verið fylgt fortakslausum
skilyrðum í samþykkt um undanþág-
ur frá banni við hundahaldi. Hann
sagði að borgarráð hefði á sínum
tíma veitt undanþágu á röngum for-
sendum þar sem ekki hefði legið fyr-
ir samþykki tveggja þinglýstra íbúð-
areigenda.
í rökstuðningi borgarstjóra fyrir
meirihlutaákvörðun borgarráðs var
vísað í greinargerð skrifstofustjóra
heilbrigðiseftirlitsins. í henni var
m.a. talið að íbúðareigandi hefði fyr-
irgert rétti sínum til andmæla vegna
tómlætis.
Ámi Þór Sigurðsson sagði að af-
staða sín hefði ekki átt að koma á
óvart. Hann hefði sannfæringar
sinnar vegna tekið undir sjónarmið
minnihlutans enda væri málið þannig
vaxið að ekki væri unnt að ganga
fram hjá ákvæðum um undanþágur
frá banni við hundahaldi.
með sér. Þeir sem keyptu kjötið
voru fiskverkunarhús, fískbúðir og
einkaaðilar.
Magnús Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja, kveðst undrandi á því
að menn kaupi óskoðað kjöt af sjálf-
dauðu dýri sem að öllum líkindum
hafi verið sjúkt. Hann segir að um
vinnslu hvals gildi sérstök reglugerð
frá árinu 1949.
„Þar er nákvæmlega tilgreint
hvernig á að meðhöndla kjötið og
■ hvemig heilbrigðisskoðun dýralækn-
is á að fara fram. Það er farið ná-
kvæmlega í hvaða líffæri á að skoða
og hvaða sjúkdómum á að leita eft-
ir. Þetta var ekki gert en hegðun
þessarar skepnu bendir til að hún
gæti hafa verið sjúk og að dauða
komin þess vegna," segir Magnús.
Hann kveðst munu hafa samband
við forsvarsmenn fiskmarkaðarins
í dag og leita skýringa. „Við verðum
að koma í veg fyrir að þetta gerist
aftur,“ segir hann.
Yfirlýsing frá flugstjóra Boeing-757
Skilaboð
frá flugturni
komu of seint
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing, sem
undirrituð er af Magnúsi Jóns-
syni, flugstjóra Boeing-757 vél-
ar, á leið til Frankfurt sunnu-
daginn 15. september, þegar
flugumferðaratvik átti sér stað,
sem greint var frá í blaðinu í
gær.
„I Morgunblaðinu í [gær] er
viðtal við Guðmund Óla Olafsson
[yfírflugumferðarstjóra á Kefla-
víkurflugvelli] þar sem sagt er
frá flugumferðaratviki sem átti
sér stað sunnudaginn 15. sept-
ember síðastliðinn. Þar sem
ákveðnar og alvarlegar rang-
færslur koma fram í þessu við-
tali er mér nauðugur einn kostur
að gefa eftirfarandi yfirlýsingu
um málið.
Undirritaður var flugstjóri
flugvélar þeirrar sem fór frá
Keflavík klukkan 8.00 áleiðis til
Frankfurt. Fyrir brottför feng-
um við heimild til þess að klifra
óhindrað upp í 29.000 fet (flug-
lag 290). Okkur var ekki sagt
frá umferð sem kom á móti okk-
ur. Þegar við vorum að nálgast
7.500 fet (fluglag 75) kom við-
vörun frá tæki sem er um borð
í okkar vél (svonefndur
árekstrarvari, TICAS) þess efnis
að lækka flugið strax. Um er
að ræða meðal annars tölvu-
gerða rödd sem gefur ákveðnar
fyrirskipanir, í þessu tilfelli með
orðunum „descend now, descend
now“ [lækkið strax, lækkið
strax]. Við fórum eftir þessum
fyrirmælum samstundis og eftir
nokkrar sekúndur var vélin farin
að lækka flugið.
Það var ekki fyrr en eftir þessi
stjómtök okkar að beiðni frá
flugumferðarstjóranum í Kefla-
vík um að halda 7.000 fetum
(fluglagi 70) barst okkur. Þessi
skilaboð komu því of seint þar
sem umrætt atvik var þá þegar
um garð gengið og við búnir að
gera þær ráðstafanir sem þurfti
til þess að forðast mögulegan
árekstur við vélina sem á móti
kom.
Ég vona svo að ég þurfi ekki
að tjá mig frekar um þetta mál
við aðra en þá sem rannsókn
þess hafa með höndum.“
Yfirlýsing frá
flugmálastjórn
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá
flugumferðarþjónustu flugmála-
stjómar. Undir hana skrifar
Hallgrímur N. Sigurðsson, for-
stöðumaður rekstrardeildar.
„Að gefnu tilefni vill flugum-
ferðarþjónustan taka eftirfar-
andi fram: Þann 15. sept. síðast-
liðinn barst tilkynning frá Flug-
leiðum hf. þess eðlis að flugum-
ferðaratvik hefði átt sér stað
milli tveggja Flugleiðavéla suð-
austur af Keflavík. Rannsóknar-
nefnd flugslysa hóf þegar rann-
sókn þessa atviks og stendur hún
enn yfir.
Á þessu stigi málsins er ekki
vitað í einstökum atriðum hvað
gerðist, þrátt fýrir yfirlýsingar
þar að lútandi sem birtust í
Morgunblaðinu þann 19. septem-
ber 1996. Þegar niðurstöður
rannsóknarinnar liggja fyrir
munu þær væntanlega verða
gerðar opinberar.
Flugmálastjóm hefur þá
vinnureglu að fjalla ekki efnislega
um einstök rannsóknarmál fyrr
en endanlegar niðurstöður liggja
fyrir. Af þeim sökum harmar
flugumferðarþjónustan að ótíma-
bærar ályktanir hafi verið dregn-
ar í þessu einstaka máli.“
ENDURSKOÐA þarf tímaáætlun á
fjórum leiðum Strætisvagna Reykja-
víkur samkvæmt niðurstöðum nýrr-
ar tímamælingar sem gerð var 11.
september sl. í Ártúni og Mjódd.
Arthur Morthens, fráfarandi for-
maður stjórnar SVR, gerði grein
fyrir niðurstöðunum á fundi borgar-
stjórnar í gær og sagði hann að þær
staðfestu í meginatriðum að leiða-
kerfisbreytingin hefði heppnast.
Væru niðurstöður bomar saman
við sams konar tímamælingu, sem
gerð var vorið 1995 í Mjódd, komi
í ljós að meðaltalsseinkun vagna
Tímaáætlun fjögurra
leiða endurskoðuð
hefur styst úr 2 mínútum í eina. í
nýju mælingunni voru 6% vagna
meira en fimm mínútum of seinir í
Ártúni en 7% í Mjódd. 1995 voru
11,5% meira en fimm mínútum of
seinir á biðstöðina í Mjódd.
Arthur Morthens vísaði á bug
fuliyrðingum um að nýja leiðakerfíð
væri sprungið og að endurskoða
þyrfti það frá grunni. Hann sagði
að ljóst væri að skoða þyrfti betur
tímaáætlun á fjórum leiðum, leið 3,
5, 6 og 14. Arhtur segir eðlilegt að
leiðakerfishópurinn og stjórn SVR
vinni áfram að því að taka við at-
hugasemdum, meta þær og gera til-
lögur til endurbóta.
Kjartan Magnússon, Sjálfstæðis-
flokki, lýsti áhyggjum sínum af
ábendingum um að vagnstjórar
þyrftu að aka á ólöglegum hraða til
að komast leiðar sinnar og standast
tímaáætlun.
Arthur Morthens greindi frá því
að nýjar mælingar lögreglunnar í
Reykjavík á hraða strætisvagna
staðfestu að hraðakstur viðgengist
ekki. Þvert á móti væri hraði stræt-
isvagna minni en almennt gerðist í
umferðinni.