Morgunblaðið - 20.09.1996, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
-
AKUREYRI
Draumur tveggja systra um ferð til lands forfeðranna rættist
Staðráðnar í að koma
aftur við fyrsta tækifæri
SYSTURNAR og Vestur-íslending-
arnir Petrína og Fjóla Jónsdætur
eða Ena Cordes og Viola Francey
hafa lengi hugsað hlýlega til lands
forfeðra sinna og langað að heim-
sækja það. Draumurinn varð að
veruleika þegar Petrína vann ferð
til íslands en Petrína býr í Minne-
apolis í Bandaríkjunum en Fjóla í
Winnipeg.
Petrína er meðlimur í Heklu
klúbbnum í sinni_ heimabyggð og
vann þar ferð til íslands, frá Balti-
more til Keflavíkur og að sjálfsögðu
bauð hún systur sinni með. Ferða-
lagið tekur tíu daga, þær eru þegar
búnar að sjá svolítið af landinu en
eiga enn eftir að fara víða. Þær
dvöldu í Reykjavík í fyrstu en leigðu
sér svo bíl og óku norður í land þar
sem ræturnar liggja.
Foreldrarnir úr Skagafirði og
Vopnafirði
Faðir þeirra Jón Árnason var
fæddur í Glæsibæ í Skagafirði árið
1889 en fluttist vestur um haf 1906
eða -7. Móðir þeirra Ólöf Stefáns-
dóttir fæddist í Winnipeg, en átti
ættir að rekja til Vopnafjarðar, en
faðir hennar var fæddur í Skála-
nesi og móðir Ólafar, Petrína Vig-
fúsdóttir var frá Ásbrandsstöðum í
Vopnafirði. Amma systranna í föð-
urætt var frá Kristnesi í Eyjafirði,
þar bjuggu foreldrar hennar Jó-
hannes Jónsson og Þorgerður Krist-
jánsdóttir sem og einnig á Hrana-
stöðum, en Þorgerður var fædd á
Teigi í sömu sveit.
„Því miður getum við ekki séð
ailt í einu, við höfum ekki nægan
tíma til að fara og líta á æskustöðv-
ar afa okkar í Vopnafirði, en höfum
verið að skoða okkur um í Eyjafirði
og á leiðinni suður munum við
stoppa í Skagafirði.
Á fyrstu uppvaxtarárum sínum
bjuggu þær Petrína og Fjóla með
foreldrum sínum og systkinum á
sveitabæ í nokkurri íjarlægð frá
Winnipeg. „Það var alltaf töluð ís-
lenska á heimilinu þegar við vorum
börn, við voru í einangruðu um-
hverfi og því heyrði ég varla annað
en íslensku fyrstu árin,“ segir Petr-
ína. Henni var kennt að lesa og
draga til stafs á heimilinu. Frá um
10 ára aldri hefur hún þó lítið talað
málið, en segist geta bjargað sér
um einfalda hluti. Fjóla er töluvert
yngri, var aðeins fárra ára þegar
fjölskyldan flutti í borgina, en hún
segist þó skilja svolítið.
Skemmtu sér konunglega
Ferð systranna um ísland hefur
að sögn verið ævintýri líkust.
„Tíminn líður bara alltof hratt, það
er svo margt að skoða og sjá. Samt
hefðum við gjarnan viljað sjá mikið
meira, þannig að við erum ákveðnar
í að koma aftur,“ segja þær „Við
hlökkum virkilega til næstu ferð-
ar.“ Þær eru glaðlyndar systurnar
og segjast hafa hlegið mikið. Þann-
ig skemmtu þær sér konunglega
þegar skyndilega var kominn hestur
Morgunblaðið/Golli
SYSTURNAR Fjóla og Petrína máttu til með að líta á ullarvörun-
ar islensku í verslun Foldu á Akureyri.
upp á miðjan veg og stóð þar sem
fastast. „Við vissum ekkert hvað
við áttum að gera, hann vildi ekki
hreyfa sig, þetta var svo óvenju-
legt.“ Þá höfðu þær lúmskt gaman
af leigubílstjóra einum sem sagði
við kollega sinn þegar þær pöntuðu
bíl: „Þessar gömlu konur þurfa
hjálp.“ „Hann vissi auðvitað ekki
að við skildum hvað hann sagði.“
Mörg eftirminnileg atvik önnur
hafa hent þær systur á ferðalaginu.
„Þetta hefur allt verið svo óskap-
lega garnan."
gerir heimkoinuna ánægjulegri
ÍSAFIRÐI • PATREKSFIRÐI • VESTMANNAEYJUM
SAUÐÁRKRÓKI • REYKJAVÍK • AKUREYRI • EGILSSTÖÐUM
í 80 sæta lúxusvélum
ClTY*
..... « « _ ~^ ■
...ogþúkemsfx
Flugvél CITY/CT
%
me nninguwa
ÁÆTLUN TIL DUBLIN
Október
ÍO. FrÁ ísafirði
1 3. Frá ísafirði
1 7. Frá Patreksf.
20. Frá Reykjavfk
24. Frá Vestmannaeyjum
27. Frá Vestmannaeyjum
31. Frá Egilsstöðum
Nóvember
3. Frá Egilsstöðum
7. Frá Akureyri
J O. Frá Akureyri
14. Frá Sauðárkróki
17. Frá Reykjavík
2 1 . Frá Reykjavík
24. Frá Reýkjavík
28.. Frá Reykjavfk
Vestmannaevium föst. 18. okt
Hótel Bræðraborg kl. 13 - 19
Revkiavík laug, 19. okt.
Dubliners frá kl. 16
Flugtfrnar frá Dublik kl. 11.00 Frá íslandi kl. 14.30
Sunnudaga frá Duhlin kl. 17.30 Frá íslandi k /. 20.45
ÁcvtUitinrflugtfmi 2.5 - 3 klst.
FERÐASKRIFSTOFAN
Umboðsmenn:
Austurland -Prentverk Austurlands Fellabæ S: 4711800
Suðurland - Ferðaskrifstofan Hálaíid Selfossi S: 482 3444
Stofnaö
1987
Sími 564 1522
IRSKIJR II
AGUR A ©IDBIL]
IUGARDAGINN19. OKT. FRÁ 16.00
Beint frá Irlandi
ifstofunnar THL WILL RIVERS
spila ekta írska tónlist frá kl. 22.00
io.
Vetrarstarf Kórs
Akureyrarkirkju
Söngva-
sveigur og
Gloría með-
al verkefna
KÓR Akureyrarkirkju er að hefja
vetrarstarf sitt. Aðaiverkefni kórs-
ins í vetur verða tvö. Á jólasöngv-
um í desember flytur kórinn
„Söngvasveig" (Ceremony and
Carols) eftir Benjamín Britten og
á. Kirkjulistaviku í apríl á næsta
ári flytur kórinn „Gloríu" eftir
Francis Poulenc ásamt Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Kórinn syngur við reglulegt
helgihald í Ákureyrarkirkju og er
honum skipt í fjóra messuhópa sem
skiptast á að syngja við messur.
Einu sinni í mánuði syngur kórinn
fullskipaður við messu, sem og á
hátíðum og við sérstök tækifæri.
Inntökupróf fyrir nýja félaga
verður haldið í kapellu Ákureyrar-
kirkju næstkomandi mánudag, 23.
september og þriðjudaginn 24.
september milli kl. 17 og 19. Nán-
ari upplýsingar er hægt að fá hjá
Birni Steinari Sólbergssyni stjórn-
anda kórsins í Akureyrarkirkju eða
heima.
-----♦ ♦ ♦-----
Matvælafyrir-
tæki óttast ná-
býli við gáma-
þjónustu
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar í
gær var lagt fram bréf frá mat-
vælaframleiðslufyrirtækinu
Kjarnafæði sem er til húsa í Fjöln-
isgötu 1 B. í bréfinu er lýst áhyggj-
um vegna flutnings á starfsemi
Gámaþjónustu Norðurlands ehf.
að Fjölnisgötu 4 A og nábýlis við
matvælafyrirtækið. Farið er fram
á að starfsleyfi fyrir Gámaþjón-
ustuna á þessum stað verði endur-
skoðað með tilliti til hreinlætis-
þátta.
Jakob Björnsson bæjarstjóri
skýrði frá því að hann hefði óskað
greinargerða um málið frá bygg-
ingafulltrúa og Heilbrigðiseftirlit
Eyjafjarðar sem yrðu lagðar fyrir
bæjarráð.
I
)
í
í
>
I
I
I
I
I
r
ft
i
i
i
i
i
ft
i
f
»