Morgunblaðið - 20.09.1996, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Dregur til úrslita í slagnum um forsetaembættið í Eistlandi
Niðurstaðan talin tvísýn
en Meri líklegastur
Asökunum um fyrri tengsl
forsetans við KGB vísað á bug
ÁTÖKIN um forsetaembættið í Eist-
landi verða leidd til lykta í dag á
sérstakri kjörmannasamkundu en
fjórir menn bjóða sig fram gegn nú-
verandi forseta, Lennart Meri. Var
samkundan kölluð saman eftir að
Meri hafði mistekist í þrígang að fá
nægan stuðning á þingi við að gegna
embættinu annað kjörtímabil. Fyrr-
verandi forsætisráðherra í Eistlandi
hefur sakað Meri um að hafa starfað
með KGB, sovésku leynilögreglunni,
en Meri og raunar flestir stjórnmála-
leiðtogar í landinu vísa ásökununum
á bug sem óhróðri.
Ruutel eða Kelam
Fréttaskýrendur segja, að úrslitin
í atkvæðagreiðslunni í dag séu mjög
tvísýn en telja þó, að líklegast sé
að Meri beri sigur úr býtum. Frétta-
ritari Reuters segir sennilegt, að
Arnold Ruutel, áður háttsettur mað-
ur í kommúnistaflokknum og bar-
áttumaður fyrir endurheimt sjálf-
stæðisins, muni koma næstur Meri
en Ruutel var eini mótframbjóðandi
Páfi í Frakklandi
Hyllti and-
stæðinga
bylting-
arínnar
Tours, Saint-Laurent-sur-Sevre. Reuter.
JÓHANNES Páll II. páfi kom í
gærmorgun til Frakklands í fjög-
urra daga opinbera heimsókn og tók
Jacques Chirac forseti á móti hon-
um á flugvellinum í Tours. Tilefni
heimsóknarinnar er að 1.500 ár eru
síðan Clovis, konungur Franka, var
fyrstur þjóðhöfðingja landsins
skírður í borginni Reims.
Fyrir nokkru fannst sprengja í
dómkirkju heilags Laurents í
héraðinu Vendée og höfðu verið
máluð slagorð með morðhótunum
í garð páfa á vegg. Öryggisráðstaf-
anir eru því miklar vegna heim-
sóknarinnar. Er páfi heimsótti
kirkjuna í gær hyllti hann minn-
ingu um 100.000 kaþólikka er létu
lífið í uppreisn í héraðinu gegn
byltingarmönnum árin 1793-1795.
Byltingarmenn voru andvigir ítök-
um kirkjunnar og margir á móti
kristinni trú.
Páfi er 76 ára gamall og er
heilsuveill en leit þó mun betur út
í gær en í heimsókn til Ungvetja-
lands nýlega. Hann mun í næsta
mánuði verða lagður inn á sjúkra-
hús þar sem tekinn verður úr honum
botnlanginn.
Meirihluti Frakka er kaþólskur,
a.m.k. að nafninu til, en vinsældir
páfa hafa minnkað mjög síðustu
árin vegna andstöðu hans við getn-
aðarvarnir og telja margir hann
vera úr tengslum við nútímann og
viðfangsefni hans. Leiðtogar músl-
ima, sem eru um 5% íbúa Frakk-
lands, fögnuðu heimsókninni og
sögðu páfa hafa lagt sinn skerf af
mörkum við að auka skilning milli
trúflokka og efla frið.
Alls hyggjast 67 hópar og sam-
tök af ýmsu tagi efna til mótmæla-
funda í París á sunnudag vegna
heimsóknarinnar. Þar á meðal eru
frímúrarar, sem hylla ákaft upp-
runaleg markmið stjórnarbyltingar-
innar um frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag, stjórnleysingjar og eitt af stétt-
arfélögum lögreglumanna.
hans í atkvæðagreiðslunum á þingi.
Eistneska fréttastofan ETA hefur
það hins vegar eftir Juhan Sillaste,
formanni borga- eða sveitarstjórnar-
sambandsins, að Meri og Tunne
Kelam muni helst takast á um for-
setaembættið. Kelam er hægrimað-
ur, sem barðist fyrir sjálfstæði lands-
ins og starfaði aldrei innan sovéska
kerfisins eins og Ruutel.
Þar sem frambjóðendur eru fímm
er nokkuð víst, að til annarrar um-
ferðar komi milli tveggja efstu en
kjörmannasamkundan er skipuð 101
þingmanni og 273 fulltrúum sveitar-
stjóma í landinu.
Flestir em sammála um, að Eist-
lendingar geti varla fengið betri tals-
mann en Meri en mörgum þingmönn-
um gramdist þegar þeim þótti hann
ganga lengra en embætti hans leyfði.
Er þá aðallega átt við samninginn,
EFTIR tveggja mánaða misheppn-
aða leit að sönnunum þess efnis,
að sprengja hafi grandað breiðþotu
bandaríska flugfélagsins TWA, sem
fórst hálfri tólftu mínútu eftir flug-
tak í New York 17. júlí sl., eru
rannsóknaraðilar farnir að hallast
að því, að bilun í þotunni eða eldur
í aðaleldsneytistanki hafí valdið því
að hún splundraðist á flugi.
Bæði blöðin New York Times
og Washington Post segja frá því
í gær, og bera fyrir sig aðila er
vinna að rannsókn slyssins, að
skortur á vísbendingum um að
sprengja hafi sprungið um borð
styrki þá skoðun, að rafmagnsbilun
sem hann gerði við Moskvustjómina
1994 um brottflutning rússneska
herliðsins en án þess að hafa um það
samráð við þingið að sumra dómi.
Segja þeir, að vegna þessa samnings
séu allt of margir rússneskir eftirla-
unaþegar, sem áður vom á vegum
hersins, búsettir í Eistlandi.
Ásakanir Savisaars
Eistneskir fjölmiðlar hafa gert sér
mikinn mat úr ásökunum um, að
Meri hafi starfað fyrir KGB, sovésku
leyniþjónustuna en Meri hefur ávallt
neitað því. Þessar ásakanir fengu
þó byr undir báða vængi í fyrradag
þegar stjórnarandstöðuþingmaður-
inn Edgar Savisaar, fyrrverandi for-
sætis- og innanríkisráðherra, skor-
aði á Meri að hætta við forsetafram-
boð. Kvaðst hann geta sannað, að
forsetinn hefði starfað með KGB.
eða eldur í eldsneytistanki hafi
grandað þotunni. Með henni fómst
230 manns.
Af hálfu Öryggisstofnunar sam-
göngumála (NTSB) hefur því ítrek-
að verið haldið fram, að þrjár hugs-
anlegar skýringar á slysinu væm
til skoðunar; að sprengja, flug-
skeyti eða vélræn bilun hafi grand-
að þotunni.
„Við finnum ekkert sem bendir
til þess að um sprengjutilræði hafi
verið að ræða,“ hafði Washington
Post eftir einum rannsóknaraðila.
„Margt bendir til bilunar af ein-
hveiju tagi og beinist athygli okkar
að því nú,“ bætti hann við.
Viðbrögð við þessum ásökunum
Savisaars hafa verið óvenjuhörð og
leiðtogar flestra flokka vísa þeim á
bug sem óhróðri. Savisaar hélt því
meðal annars fram, að Juri Pihl,
yfirmaður eistnesku öryggislögregl-
unnar, hefði viðurkennt, að Meri
hefði verið í tengslum við KGB en
Pihl neitar því. Segir hann lögregl-
una ekki hafa neitt í höndunum um
tengsl Meris og KGB.
Minntur á hlerunarhneykslið
Leiðtogi Umbótaflokksins, Valve
Kirsipuu, sagði í gær, að Savisaar
hefði augljóslega ekkert lært af
hlerunarhneykslinu og teldi enn, að
hann gæti komið ár sinni fyrir borð
með vinnubrögðum af því tagi. Var
þá verið að víkja að því, að Savisa-
ar var neyddur til að segja af sér
sem innanríkisráðherra og leiðtogi
Miðflokksins á síðasta ári þegar
uppvíst varð um, að hann hafði
hljóðritað á laun öll einkasamtöl sín
við frammámenn í eistneskum
stjórnmálum.
Á tveimur stöðum í þotunni, sem
langt er á milli, fundust örsmáar
leifar sprengiefna. Voru þær á inn-
anverðri klæðningunni og því ekki
komnar utan frá með flugskeyti.
Að sögn New York Times er í
ráði að gera tilraunir sem ætlað
er að sannræna hvort vélræn bilun
ein og sér hafi leitt ti! þess að
þotan fórst á leið frá New York
til Parísar.
Aðilar sem að rannsókn slyssins
koma, játuðu í samtali við blöðin
tvö, að engar vísbendingar um vél-
ræna bilun hefðu fundist í brakinu.
Sömuleiðis styddi ekkert kenningu
um að sprengja hafi grandað henni.
Kennsl
borin á öll
líkin
LOKIÐ er við að bera kennsl
á lík allra þeirra sem fórust í
flugslysinu á Svalbarða í síð-
asta mánuði, sem kostaði 141
lífið. Verða líkkisturnar fluttar
frá Tromso, þar sem líkin voru
krufin, fluttar til Rússlands og
Úkraínu í dag. Talið er að
kostnaður við björgunarstarfið
og við að bera kennsli á líkin
sé á 2-300 milljónir ísl. kr.
Kanna
„Mengele-
aðgerðina“
SPÆNSKA ríkisstjórnin sagð-
ist í gær hafa fyrirskipað ein-
um þekktasta dómara iandsins
að rannsaka ásakanir á hendur
leyniþjónustunni um að hún
hefði vert tilraunin með lyf á
flækingum og drykkjusjúkl-
ingum, en hún er sögð hafa
gengið undir nafninu „Meng-
ele-aðgerðin“. Fullyrt er í
blaðagreinum um málið að lyf-
in hafi átt að nota þegar ræna
átti Ieiðtogum aðskilnaðar-
hreyfingar Baska, ETA.
Starfsmenn
rússahers
mótmæla
ÓBREYTTIR starfsmenn
rússneska varnarmálaráðu-
neytisins og hersins, efndu í
gær til aðgerða til að mót-
mæla síendurteknum töfum á
lauangreiðslum. Fóru þeir m.a.
í eins dags verkfall til að vekja
athygli á málstað sínum. í
dagblaðinu Rossiskíje var full-
yrt að geysileg óánægja væri
í hernum og að ástandið væri
að færast í átt til þess að
starfsmenn hans kynnu að
grípa. til ófyrirsjáanlegra að-
gerða.
• •
Ofgamenn
skotnir
EGYPSKA lögreglan skaut í
gær fjóra menn sem grunaðir
voru um að hafa verið liðs-
menn öfgasinnaðra múslima.
Mennirnir voru skotnir i árás
lögreglu á mennina sem gerð
var í fjalllendi í Assiut-héraði.
Juppe ræðst
gegn Le Pen
ALAIN -Juppe, forsætisráð-
herra Frakklands, réðst í gær
harkalega á þjóðernissinnan
Jean-Marie Le Pen og sagði
hann „mjög mikinn... kyn-
þáttahatara, gyðingahatara og
útlendingahatara". Lét Juppe
þessi orð falla á fundi með
ungu fólki.
Morðingi
iðrast
SUÐUR-Afríkumaður, sem
kveðst hafa verið mesti morð-
ingi aðskilnaðarstefnunnar
þar í landi, lýsti því yfir í gær
að hann óskaði þess oft að
hann hefði aldrei fæðst, vegna
allra þeirra grimmdarverka
sem hann hefði framið. Maður-
inn, Eugene de Kock, kvaðst
hins vegar einungis hafa farið
að fyrirskipunum yfirvalda.
Reuter
JACQUES Chirac Frakklandsforseti kynnir páfa fyrir Jean-Philippe Duoin hershöfðingja, forseta
franska herráðsins, í gær. Myndin var tekin við komuna til Tours-herflugvallarins.
TWA-þotan sem splundraðist á flugi
Athyglin beinist að vél-
arbilun eða eldi í tanki
New York. Reuter.