Morgunblaðið - 20.09.1996, Blaðsíða 31
30 FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996 31
jltargtiiiWjiMfr
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SKYNDIGROÐIEÐA
L AN GTÍM AHAGUR?
YEIÐAR íslenzkra skipa á rækjumiðunum á Flæm-
ingjagrunni hafa ekki verið íslandi eða íslenzkum
hagsmunum til framdráttar. ísland er eina ríkið, sem
hefur stóraukið veiðar sínar á þessum miðum, þrátt fyrir
aðvaranir vísindamanna á síðasta ári um að rækjustofn-
inn þyldi ekki meiri veiði. Afli íslendinga á Flæmingja-
grunni stefnir í að verða þrefalt meiri en í fyrra og tí-
falt meiri en fyrir þremur árum. Heildarveiði úr rækju-
stofninum hefur aukizt um allt að þriðjung, aðallega fyr-
ir tilstuðlan íslenzkra skipa.
Nú er að koma í Ijós að þessi stóraukna sókn hefur
ekki skilað íslendingum neinum ávinningi til framtíðar,
þótt skammtímagróðinn sé vissulega mikill. Annars vegar
telur vísindanefnd Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
arinnar (NAFO), sem fer með stjórn veiða á svæðinu,
að rækjustofninn sé ofveiddur og draga þurfi úr veiðunum
frá því sem var í fyrra, eigi að vera hægt að tryggja
viðkomu hans. Hins vegar er ljóst, eftir nýafstaðinn árs-
fund NAFO, að önnur aðildarríki NAFO hyggjast halda
fast við þær sóknartakmarkanir, sem ákveðnar voru á
ársfundi NAFO í fyrra og sætta sig ekki við að Island
eitt auki hlut sinn frá síðasta ári. Það blasir nú við að
það voru mistök að mótmæla samþykkt NAFO í fyrra
og leyfa frjálsar veiðar á þessu ári.
Afleiðingar þess að halda ofveiðinni áfram geta orðið
alvarlegar, eins og rakið var í Morgunblaðinu í gær.
Kanadamenn íhuga að loka höfnum sínum fyrir íslenzkum
skipum. Sum aðildarríki NAFO hafa hótað því að hunzi
ísland áfram samþykktir stofnunarinnar, muni þau gera
slíkt hið sama. Slíkt mun hafa tortímingu rækjustofnsins
í för með sér. Áframhaldandi ofveiði myndi jafnframt
skaða málstað íslands í samningaviðræðum um veiði-
stjórnun á öðrum úthafsmiðum. Hagsmunir íslands á
erlendum mörkuðum kunna að bíða hnekki.
Fullyrðingar Félags úthafsútgerða um stórkostlegt
tekjutap þjóðarbúsins og atvinnumissi sjómanna, verði
rækjuveiðarnar takmarkaðar, bera vott um skammsýni.
Það þjónar íslenzkum hagsmunum mun betur að taka
þátt í skynsamlegri veiðistjórnun með nágrannaríkjunum
°g byggja rækjustofninn þannig upp til langs tíma, en
að einblína á skammtímagróða. Það sama á við um öll
úthafsmið, þar sem íslendingar stunda veiðar. Þar hlýtur
markmiðið að vera að takmarka veiðarnar og byggja fiski-
stofnana upp, um leið og íslendingar krefjast sanngjarns
hlutar. Enginn gat hins vegar reiknað með að veiðar á
úthafinu yrðu frjálsar til langframa. íslenzkir útgerðar-
menn geta ekki styrkt stöðu sína með rányrkju á úthafinu.
j RÍKIÐ ÚT AF
VERÐBRÉFAMARKAÐI
FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráðherra, skýrði frá því
á fundi Skandia hf. með fjárfestum sl. þriðjudag,
að fyrir dyrum standi breyting á starfsemi Þjónustumið-
stöðvar ríkisverðbréfa. Fjármálaráðherra sagði, að vel
komi til greina, að færa áskriftarsölu á spariskírteinum
til verðbréfafyrirtækja.
Fjármálaráðherra upplýsti á fundinum, að álit liggi
þegar fyrir um breytingar á Þjónustumiðstöð ríkisverð-
bréfa. Hann kvað það hafa sannast smám saman, að
önnur fyrirtæki geti tekið yfir þetta verkefni. í sjálfu sér
sé óþarfi öllu lengur að halda úti Þjónustumiðstöðinni,
hvað sem svo verði gert við árkriftina.
í Ummæli fjármálaráðherra eru fagnaðarefni, því ekki
Íer nein sérstök ástæða til þess fyrir ríkið að reka verð-
béfafyrirtæki í samkeppni við einkarekin verðbréfafyrir-
tæki á fjármagnsmarkaði. Þau eru fullfær um að veita
ríkissjóði þá þjónustu, sem hann þarf á að halda og það
á við sölu spariskírteina í áskrift eins og annað. Ríkissjóð-
ur getur einfaldlega boðið út þjónustuna og mun það
vafalaust leiða til sparnaðar fyrir hann.
Fjármálamarkaðurinn starfar í skugga ríkisins, sem
hefur þar yfirburðastöðu vegna eignar á stærstu við-
skiptabönkunum og fjárfestingarlánasjóðum. Allt sem
dregur úr þessum ríkisáhrifum er því af hinu góða.
UNDIRBÚNINGUR KJARASAMNINGA
Ferli samningaviðræðna skv. nýju vinnuiöggjöfinn
Aðilar
ræða
viðræðu-
áætlun
Viðræðu-
áætlun
undirrituð
Samkomulag
næst ekki og
sáttasemjari
gerir viðræðu-
áætlun
Kjarasamningar
takast
Samningar
takast ekki og
málið er sent
ríkissáttasemjara
Viðræður
árangurslausar
að mati
sáttasemjara
Tillaga um
_] verkfall lögð
fyrir félagsmenn
verkalýðsfélags
Tillagan sam-
þykkt og verk-
fall skellur á
Átök um túlkun nýju
vinnulöggj afarinnar
SAMTÖK atvinnurekenda,
ríkið og verkalýðshreyfing-
in eru að undirbúa gerð
nýrra kjarasamninga, en
núverandi samningar renna út um
áramót. Ljóst er að kjaraviðræður
munu fara fram með öðrum hætti
en verið hefur undanfarna áratugi
vegna þeirra breytinga sem gerðar
voru á vinnulöggjöfinni í vor. Með
breytingunum er stefnt að því að
viðræðurnar fari fram áður en gild-
andi samningar falla úr gildi og
þeim Ijúki mun fyrr en venja hefur
verið.
Fyrirmyndir að breytingum sem
gerðar voru á vinnulöggjöfinni eru
að stórum hluta sóttar til Danmerk-
ur. Þar hefur ríkt meiri friður á
vinnumarkaði en hér og að margra
mati agaðri vinnubrögð við gerð
kjarasamninga. Þegar dregur að
lokum gildistíma kjarasamninga í
Danmörku koma forystumenn
verkalýðshreyfingar og atvinnurek-
enda saman og setja saman áætlun
um komandi kjaraviðræður. í henni
eru sett fram helstu markmið samn-
ingsaðila og tímasetningar um ein-
staka þætti samningsferilsins.
Þessar viðræðuáætlanir eru ekki
lögfestar en eru hluti af vinnu-
brögðum sem tíðkast hafa við gerð
samninga í Danmörku í mörg ár.
Islensk stjórnvöld töldu nauðsyn-
legt að lögbinda ákvæði um við-
ræðuáætlanir. Lögin segja hins
vegar ekkert um hvað skuli standa
í viðræðuáætlunum. Þar segir ein-
göngu að samningsaðilar skuli gera
með sér viðræðuáætlun eigi síðar
en 10 vikum áður en eldri samning-
ar renna út. Ef það takist ekki
skuli sáttasemjari gefa út slíka
áætlun eigi síðar en 8 vikum áður
en samningar renna út.
í lögunum er tekið fram að
stéttarfélög geti veitt landsamtök-
um eða heildarsamtökum umboð til
að gera viðræðuáætlanir. Lands-
samtökin innan ASÍ hafa eða eru
með í undirbúningi að óska eftir
því við félögin að þau veiti þeim
umboð til að semja um slíkar áætl-
anir við atvinnurekendur.
Þarf sáttasemjari að gera
4.000 viðræðuáætlanir?
Nái samningsaðilar ekki saman
um viðræðuáætlun eða félög hunsa
ákvæði laga um að gera slíka áætl-
un ber sáttasemjara að setja fram
viðræðuáætlanir. í lagatextanum
er talað um „atvinnurek- ________
endur eða samtök þeirra
og stéttarfélög" eigi að
gera þessar áætlanir.
Forystumenn verkalýðs-
félaganna líta svo á að
sáttasemjari verði að senda öllum
stéttarfélögum bréf um viðræðu-
áætlun fyrir hvern og einn kjara-
samning sem félögin og samtök
atvinnurekenda, ríkið og sveitarfé-
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ, segist
gera ráð fyrir að í komandi kjaraviðræðum
verði höfðað mál fyrir Félagsdómi til að fá
úr því skorið hvaða forsendur þurfi að liggja
fyrir áður en hægt sé að fullyrða að slitnað
hafí upp úr viðræðum, en samkvæmt nýju
vinnulöggjöfinni má ekki boða til verkfalls
nema að sáttatilraunir sáttasemjara hafí
_ *
reynst árangurslausar. Egill Olafsson hefur
skoðað undirbúning nýrra kjarasamninga.
Morgunblaðið/Sverrir
OFT hefur verið verið harðsótt að ná samningum á íslandi.
Viðræðuáætl-
anir liggi fyrir
22. október
lögin hafa gert. Talið er að þessir
samningar séu um fjögur þúsund
ef allt er talið.
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
segir að útilokað sé fyrir sig að
gera viðræðuáætlanir vegna allra
kjarasamninga sem gilda í landinu.
Hann hljóti að verða að „stytta sér
eitthvað leið“. Hann segist vonast
eftir því að samningsaðilar nái sam-
an um gerð viðræðuáætlana án
sinna afskipta.
_______ Ef samningsaðilar ná
ekki saman um gerð við-
ræðuáætlana fyrir 22.
október nk. kemur það í
hiut sáttasemjara að gera
”“~~ slíkar áætlanir. Lögin
segja að hann skuli taka mið af
þeim viðræðuáætlunum sem þá
hafa verið gerðar. Þórir segir að
hann muni þá einkum horfa á tíma-
setningar í þeim áætlunum sem þá
liggi fyrir. Hann muni ræða við
samningsaðila og taka tillit til
sjónarmiða þeirra áður en hann
setji fyrir þá viðræðuáætlun.
Þórir segist gera ráð fyrir að á
næstu vikum og mánuðum takist
samningsaðilar á um túlkun á
lögunum og vinnubrögð við samn-
ingagerðina. Hann komi ekki til
með að leggja aðilum vinnumarkað-
arins línur í þeim efnum. Þeir verði
sjálfír að móta vinnubrögðin.
Þórir viðurkennir að verkefni rík-
issáttasemjara hafi aukist mikið
með tilkomu nýju laganna. Hann
segir að á meðan samningaviðræð-
ur standi sem hæst þurfi hann á
fleira starfsfólki að halda og auknu
húsnæði. Erfitt geti verði að finna,
með litlum fyrirvara, hæft starfs-
fólk sem allir samningsaðilar
treysti. Hins vegar hafi hann aðeins
stækkað við sig húsnæði í sumar.
VSÍ vill ekki viðræðuáætlun
fyrir hvert félag
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VSI, segir að
það komi ekki til greina af háifu
VSÍ að gera viðræðuáætlanir við
hvert einasta stéttarféiag sem það
gerir samning við. Þessar áætlanir
hafi verið hugsaðar sem verk-
stjórnartæki, sem VSÍ og ASÍ eða
landsamböndin geri.
Hannes segist ekki telja ástæðu
til að þessar viðrayðuáætlanir verði
efnismikil plögg. í þeim þurfi að
koma fram tímasetningar, almenn
markmið samningsaðila um verð-
bólgu og stöðugleika og hugsanlega
sameiginleg mál sem aðilar vilji
skoða sérstaklega.
Skiptar skoðanir eru um hvort
kröfugerðir verkalýðsfélaganna
eigi að vera hiuti af viðræðuáætlun-
um. Rafiðnaðarsambandið ætlar að
leggja fram kröfugerð se_m hluta
af viðræðuáætlun, en VSÍ hafnar
því.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, segir að færa mætti rök fyrir
því að það auðveldi mönnum gerð
viðræðuáætlana ef kröfugerðir fé-
laganna liggi fyrir, en hann segir
að VR muni ekki óska eftir því að
kröfugerð verði hluti af viðræðuá-
ætlun. Hann leggur mikla áherslu
á að sátt skapist um gerð viðræðuá-
ætlana. Það verði erfítt að ná samn-
ingum ef menn geti ekki einu sinni
komið sér saman um hvernig eigi
að ræða málin.
VR ætlar sjálft
að gera viðræðuáætlun
Innan ASÍ hefur sú stefna verið
mörkuð að landssamböndin fari
fram á það við einstök félög að þau
veiti Iandssamböndunum umboð til
að gera viðræðuáætlanir. Ekki ligg-
ur fyrir hvort öll félögin muni al-
mennt veita landssamböndunum
þetta umboð. Stærsta stéttarfélag
landsins, Verslunarmannafélag
Reykjavíkur, ætlart.d. ekki að veita
Landssambandi verslunarmanna
umboð tii að gera viðræðuáætlun.
Magnús L. Sveinsson, formaður
VR, segir að VR hafi alltaf komið
að samningaviðræðum með beinum
hætti og engin breyting verði gerð
á því nú. VR sé að ljúka undirbún-
ingi kröfugerðar og óski í fram:
haldi af því eftir viðræðum við VSÍ
og _þau fyrirtæki sem standi utan
VSI um gerð viðræðu- ___________
áætlana.
Sérkjaraviðræður
mikilvægar
Sáttasemjari
þarf fleira
starfsfólk
Verkamannasam-
bandið hefur sent aðildarfélögum
sínum bréf þar sem óskað er eftir
því að félögin veiti sambandinu
umboð til að gera viðræðuáætlun
við viðsemjendur. Það kemur í ljós
um mánaðamót hve mörg félög
veita sambandinu þetta umboð.
Björn Grétar Sveinsson, formaður
VMSÍ, segir að miðað sé við að
umboðið falli niður ef ekki náist
samkomulag við viðsemjendur um
gerð viðræðuáætlana fyrir 22. októ-
ber.
Björn Grétar segist telja mikil-
vægt að verkalýðshreyfingin og
vinnuveitendur láti reyna á hvort
samkomulag takist um viðræðuá-
ætlanir. Það sé betra fyrir stéttarfé-
lögin að reyna að hafa áhrif á gerð
viðræðuáætlana og hafa þar ákveð-
ið frumkvæði en að láta sáttasemj-
ara sjá um þetta fyrir þau.
„Það má undir engum kringum-
stæðum nota nýju lögin til að reyna
að hafa áhrif á efnislega niðurstöðu
samninga. Við munum passa vel
upp á það,“ sagði Björn Grétar.
Björn Grétar segir að verka-
lýðsfélögin leggi mikla áherslu á
sérkjaraviðræður. í viðræðuáætlun-
um verði því að tryggja félögunum
beina aðkomu að samningunum.
Hann segir margt benda til að það
geti orðið erfiðasta úrlausnarefnið
við gerð viðræðuáætlana.
„Annars held ég að þessi mikla
miðstýring við gerð kjarasamninga
sé, a.m.k. í bili, að líða undir lok.
Á Norðurlöndunum hefur sú þróun
orðið að kjarasamningar eru ekki
lengur gerðir á vegum heildarsam-
taka. Samningarnir eru gerðir af
starfsgreinafélögum og úti á vinnu-
stöðunum sjálfum. Sú þróun hlýtur
að verða einnig hér á landi,“ sagði
Björn Grétar.
Ekki verður hins vegar betur séð
en breytingarnar á vinnuiöggjöfinni
miði að talsverðri miðstýringu við
samningsgerðina. Með viðræðuá-
ætlunum er stefnt að því að samn-
ingar fari almennt fram á sama
tíma og almennt má segja að hug-
myndin um þær gangi ekki upp
nema að þær verði gerðar á vegum
heildarsamtakanna. Eitt af því sem
menn velta fyrir sér er hvort samn-
ingar við opinbera starfsmenn fari
fram á sama tíma og samningar á
almennum vinnumarkaði.
Skilyrði fyrir verkfalli
Með nýju vinnulöggjöfinni eru
gerðar talsverðar breytingar á rétti
verkalýðsfélaga til að boða til verk-
falls. Samkvæmt gömlu lögunum
gat félag boðað til verkfalls með
sjö sólarhringa fyrirvara eftir að
hafa samþykkt tillögu um verkfalls-
boðun á félagsfundi. Nú verða félög
að uppfylla nokkur skilyrði áður en
þau mega boða til verkfalls. Áður
verður að hafa verið gerð tilraun
til að ná samningum, deiian verður
að hafa farið til sáttasemjara og
tilraun til sátta reynd þar. Þá verð-
ur félag að láta fara fram atkvæða-
greiðslu um tillögu um vinnustöðv-
un, sem minnst 20% félagsmanna
verða að taka þátt í.
I 15. grein vinnulöggjafarinnar
segir: „Þá er það skilyrði lögmætr-
ar ákvörðunar um boðun vinnu-
stöðvunar að samningaviðræður
eða viðræðutilraunir um framlagð-
ar kröfur hafi reynst árangurs-
lausar þrátt fyrir milligöngu sátta-
semjara."
Ari Skúlason segir að þetta sé
eitt af ákvæðum vinnulöggjafarinn-
ar sem menn muni takast á um
hvernig beri að túlka. „Þetta er
grundvallarspurning sem ég tel al-
veg ljóst að verði að dómsmáli.
Spurningin snýst um mat sátta-
semjara á því hvenær sáttaumleit-
anir hafa verið fullreyndar því það
er skilyrði fyrir verkfallsboðun.“
Ari segir ljóst að sáttasemjari
verði undir miklum þrýstingi á að
________ halda viðræðum deiluaðila
áfram þrátt fyrir að ekk-
ert þokist í viðræðum. Um
leið og hann lýsi því yfir
að fullreynt sé geti verka-
lýðsfélögin boðað verkfall.
Ari segir að átök um þetta og fleiri
atriði geti tafið samningavinnuna.
Eitt sé víst að lögfræðingar komi
til með að hafa nóg að gera í haust
þegar tekist verði á í Karphúsinu.
Ríkisreikningur vegna ársins 1995 var kynntur í gær
Skuldir jukust um
18,5 milljarða króna
Fj ármálaráðherra kynnti
ríkisreikning fyrir árið
1995 ígær, enþað er
óvenjulegt að ríkis-
reikningur fyrra árs sé
tilbúinn svo snemma.
Hjálmar Jónsson
var á blaðamannafundi
fj ármálaráðherra.
HALLI ríkissjóðs á árinu
1995 miðað við greiðslu-
uppgjör reyndist vera
tæpir níu milljarðar
króna eða 8.931 milljón,
en samkvæmt fjárlögum ársins var
hallinn áætlaður um 7,4 milljarðar
króna. Ef miðað er við rekstrar-
grunn hins vegar nam hallinn 15,2
milljörðum króna eða sem nemur
13,3% af tekjum ársins. Það er svip-
aður halli og árið á undan þegar
halli ársins var 15,6 milljarðar króna
eða 14,1% af tekjum ársins. Hrein
lánsfjárþörf ríkissjóðs nam 18,5
milljörðum króna á árinu eða 4% af
landsframleiðslu samanborið við
3,6% árið áður.
Ástæðan fyrir muninum á
greiðslu- og rekstraruppgjöri ríkis-
sjóðs er að í rekstraruppgjöri þarf
að taka tillit til ýmissa þátta sem
hafa í för með sér skuldbindingar
fyrir ríkissjóð, þótt þeir hafí ekki í
för með sér greiðsluhreyfingar á
árinu. Stærstu liðirnir sem þarna
um ræðir eru lífeyrisskuldbindingar
vegna ríkisstarfsmanna, sem námu
rúmum þremur milljörðum króna og
áfalinir ógreiddir vextir sem jukust
um 3,1 milljarð króna milli ára.
Tekjurnar 25% af
landsframleiðslu
Tekjur ríkissjóðs á árinu 1995
voru alls 114,2 milljarðar króna eða
um 25% af landsframleiðslu ársins.
Þær hækkuðu um 3,8 miiljarða frá
árinu á undan eða um 3,5%. Hækk-
un tekna sundurliðast þannig að
skatttekjur hækka um 6.444 milljón-
ir króna, en vaxtatekjur og aðrar
tekjur lækka um 2.619 milljónir.
Hækkun skatttekna sundurliðast
þannig að tekju- og eignaskattar
hækkuðu um tæpa þijá milljarða
króna milli ára, tryggingagjöld
hækkuðu um tæpan einn milljarð
króna, virðisaukaskattur hækkaði
um 1.585 milljónir og aðrir skattar
á vöru og þjónustu hækkuðu um
tæpan milljarð króna.
Þegar litið er til skiptingar tekna
ríkissjóðs kemur fram að skattar á
tekjur námu 18,5%, tryggingagjöld
og launaskattur 10,2%, eignarskatt-
ur 3,5% og skattar á vöru og þjón-
ustu 60,8%. Virðisaukaskattur er
sem fyrr helsti tekjustofn ríkissjóðs
eða 36,2% af tekjunum.
Gjöld ríkissjóðs á síðasta ári námu
alls 129,4 milljörðum króna eða um
28,4% af landframleiðslu ársins. Þau
hækkuðu um 3,4 milljarða*milli ára
eða um 2,7%. Útgjöld til lífeyris-,
sjúkra- og atvinnuleysistrygginga
hækkuðu um 2.315 milljónir króna
milli ára og útgjöld til heilbrigðis-
mála um 904 milljónir. Rekstrar-
og viðhaldsgjöld námu tæpum 40%
af heildarútgjöldum ríkissjóðs á ár-
inu 1995, lífeyrisskuldbindingar
2,9%, fjármagnskostnaður 12,4%,
stofnkostnaður 5,5% og tilfærslur
39,3%.
Önnur framsetning
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
3,5% Eignaskattar
1,5% Tekjuskattar
,7% Innflutnings-
og vörugjöld
Skipting tekna
ríkissjóðs
1995
36,2% Virðisaukaskattur
r3,6% Bifreiðagjöld
r2,3% Arðgreiðslur
'4,1% Vaxtatekjur og aðrar lánatekjur
'10,2% Tryggingagjald og skattar af launagreiðslum
4,5% Hluti af hagnaði ATVR og gjald af einkasöluvörum
3,8% Aðrar tekjur
4,5% Almenn stjórn
_4j3% Dóm- og löggjæsla
13,2% Mennta-og
menningarmál
Skipting gjalda
ríkissjóðs
15,9% Heilbrigðismál 1995
22,3% Tryggingamál
12,4% Vaxtagjöld af lánum rikissjóðs
7,0% Samgöngumál
,0% Landbúnaðarmál
Húsnæðis-, félags- og vinnumál
8,1 % Önnur mál
Tekjur, gjöld, lánsfjárþörf og halli
ríkissjóðs
sem
hlutfall
af vergri
landsframl.
30
25
20
15
10
5
0
-5
1991 1992 1993 1994 1995
Djöldalls /
Tekjuralls y
1 rLáit sfjárþörf, nettó
L 1 / /■ Gjöld u ufr. tekjur
—~ 'l 1 --J
Morgunblaðið/Kristinn
FRIÐRIK Sophusson fjármála-
ráðherra á blaðamannafundi í
gær þar sem ríkisreikningur
1995 var kynntur. Nær er Magn-
ús Pétursson, ráðuneytisstjóri.
herra sagði á blaðamannafundi
vegna útkomu ríkisreiknings í gær
að ríkisreikningurinn núna væri
óvenju snemma á ferðinni og stefnan
væri sú að reikningurinn gæti kom-
ið út snemmsumars, þannig að hægt
væri að leggja hann fyrir þingið
þegar það kæmi saman að hausti
og afgreiða fyrir jól. Mönnum fynd-
ist þetta kannski sjálfsagt, en sú
hefði verið tíðin að reikningarnir
hefðu hlaðist upp og hefðu ekki ver-
ið lagðir fram og afgreiddir fyrr en
mörgum árum síðar. Undanfarin
misseri hefði verið unnið að því að
hreinsa þetta upp.
Einnig kom fram hjá fjármálaráð-
herra að ríkisreikningurinn nú er
settur fram með nokkrum öðrum
hætti en verið hefur til að gera hann
aðgengilegri og er það liður í að
auðvelda almenningi að fylgjast með
því hvernig skattpeningunum er
varið. Reikningurinn er nú gerður í
meira samræmi við þær aðferðir sem
tíðkast í ársreikningsgerð fyrir-
tækja, en ríkisreikningur hefur verið
nær óbreyttur í þtjá áratugi. Fram
kom að þess er vænst að breyting-
arnar verði til þess að styrkja fjár-
málastjóm ríkisins og efla aðhald í
ríkisrekstrinum.
Lífeyrisskuldbindingar
81,4 milljarðar króna
Þegar er litið er til lánamála ríkis-
sjóðs kemur í ljós að heildarskuldirn-
ar námu 214 milljörðum króna í
árslok 1995, en að teknu tilliti til
lánveitinga ríkissjóðs námu skuld-
irnar 136 milljörðum króna. Það er
46,8% af landsframleiðslu ársins •
samanborið við 45,4% árið áður. Af
heildarlántöku ríkissjóðs á árinu var
fimmtungs aflað á innlendum mark-
aði, en afgangurinn var tekin að
láni erlendis.
Vaxtagjöld og lántökukostnaður
námu alls 16 milljörðum króna í
fyrra, en var 14,3 milljarðar króna
árið áður. Vextir og kostnaður af
innlendum lánum námu tæpum 7,6
milljörðum og af erlendum lánum
8,4 milljörðum króna.
Áfallnar lífeyrisskuldbindingar
A-hluta ríkissjóðs námu 81,4 millj-
örðum króna í árslok 1995 og hækk-
uðu um 17,3 milljarða króna á ár-
inu. Hluta af þessari hækkun má
rekja til þess að tryggingafræðilegt
mat sem gert var á árinu leiddi í
ljós að lífeyriskuldbindingar voru
vanmetnar um 6,1 milljarð króna í
ríkisreikningi 1994.