Morgunblaðið - 20.09.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
I ---------------
i Athugasemd
vegna skrifa
um Lakaferð
| Frá landvörðum á Lakasvæði og
| skálavörðum á Síðumannaafrétti,
Jóni Þorbergssyni og Sólveigu Páls-
dóttur:
AÐ GEFNU tilefni viljum við gera
nokkrar athugasemdir við Reykja-
víkurbréf Morgunblaðsins þann 15.
september síðastliðinn um ferð í
Laka, þar sem þar er að nokkru
ranglega farið með staðreyndir.
( Þar er fullyrt að Útivist hafí pant-
að tvo gangnamannakofa á Síðu-
mannaafrétti sem er alrangt, því
( að fulltrúi þeirra pantaði kofann í
Blágiljum og fékk þau svör að þar
gætu þeir fengið 12 kojur af 16,
vegna þess að gæsaskyttur höfðu
þó séð sóma sinn í að panta pláss
með meira en mánaðar fyrirvara
sem Útivist gerði hreint ekki. Einn-
ig var þeim sagt að þeir gætu feng-
ið Hrossatungukofann allan (24
I kojur) en þar var þá ekkert pantað.
I Ekki gátu Útivistarmenn gefið upp
hvorn kostinn þeir vildu né heldur
' gefið upp tölu sinna manna, en
hétu að láta vita fljótlega, sem þeir
þó aldrei gerðu hvorki við okkur
né skrifstofu Skaftárhrepps. Þeim
voru því ætluð pláss í Blágiljum,
sem þeir upphaflega báðu um.
Um þessa helgi komu þrjár gæsa-
skyttur til viðbótar, og þorðum við
ekki annað en vísa þeim í Hrossa-
tungur, þar sem þar hafði Útivist
ekki áréttað neina pöntun, en þeir
rýmdu kofann strax sjálfvíljugir er
Útivistarmenn komu. Þess er rétt
að geta að skyttur þær sem í Blá-
giljum voru gengu svo hljóðlega um
að enginn vaknaði, þegar þær fóru
til veiða.
Einnig er í greininni talað um
60-70 sm breiðar kojur. Rétt er 84
sm að innanmáli og er helmingur
dýnanna passlegur í þær og hefði
það átt að duga þeim sem tví-
menntu en auðvitað eru þær samt
sem áður aðeins ætlaðar fyrir einn.
Finnst okkur ábyrgðarhluti að fara
svona fijálslega með staðreyndir í
einu útbreiddasta blaði landsins.
Varðandi skrif Víkveija um sama
efni fyrir nokkru síðan viljum við
geta þess að útikamrar þeir sem
eru bæði við gangnamannakofana
og við Laka voru að öllu jöfnu þrifn-
ir daglega, og því þokkalegir eftir
því sem slík hús geta orðið. Viljum
við eindregið benda þeim á, sem
gera kröfur um vatnssalerni og
strokið lín á rúmum, að hætta sér
ekki þetta langt frá byggð.“
LANDVERÐIR Á LAKASVÆÐI,
SKÁLAVERÐIR Á
SÍÐUMANNAAFRÉTTI,
JÓN ÞORBERGSSON,
SÓLVEIG PÁLSDÓTTIR.
Önnumst sérpantanir á
húsgögnum, ljósum og
gjafavörum frá
artek
zanotta
driade
MAGIS
MÖRKINNI 3
SÍMI 588 0640 • FAX 588 0641
FÉLAG ÍSLENSKRA
HLJÓMLISTARMANNA
LIFANDITÓNLIST - LIFANDI FÓLK
Útvegum hljóðfæraleikara og hljómsveitir
við hverskonar tækifæri.
Ráðningarþjónusta FÍH, sími 588 8255.
Tónleikalína FÍH
Félag íslenskra hljómlistarmanna sér um að skrá tónleikahald á landinu
og mun reglubundið senda upplýsingar um þá til fjölmiðla og þeirra sem
áhuga hafa á að fylgjast með tónleikahaldi.
Þessi þjónusta stendur öllu tónlistarfólki til boða og er ókeypis.
Tilgangurinn með þessari skráningu er sá að gera tónlistarfólki kleift að
raða tónleikum þannig niður að sumir dagar verði ekki of ásetnir og að
hafa yfirlit yfir tónleikahald á landinu á einum stað.
Ef þú hefur áhuga á að tilkynna tónleikahald þá hringir þú í Tónleikalínu
FÍH í síma 588 8252, sem er símsvari og lest inn upplýsingar um
tónleikana, s.s. stað, tíma, flytjendur, höfunda og verk sem flutt verða,
svo og tengilið og símanúmer.
Samkvæmt upplýsingum Erlu
Guðmundsdóttur, fararstjóra í um-
ræddri ferð í Laka, fékk hún þær
upplýsingar frá Útivist að félagið
hefði fengið inni í báðum gangna-
mannakofunum, í Hrossatungum
og Blágiljum og staðfestir starfs-
maður Útivistar, Heiðar Guðjóns-
son, sem sá um pöntunina, að svo
hafi verið, rætt hafi verið um 12
svefnpláss í Blágiljum. Hins vegar
hafi verið um það rætt 10 dögum
fyrir ferðina að félagið staðfesti
pöntunina áður en ferðin yrði farin
og voru í því sambandi gefín upp
þijú símanúmer. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir náðist aldrei
samband og má þar eflaust kenna
um stopulu farsímasambandi á
svæðinu við Laka. Varðandi breidd
rúmanna, skiptir kannski nákvæmt
mál ekki öllu, þar sem Útivist
greiddi fyrir gistingu ferðalang-
anna sem hver hefði eitt rúm.
STÓLPI fyrir Windows er
samhæfður Word og Excel.
Sveigjanleiki í fyrirrúmi.
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
-kjarnimálsins!
Bruun Rasmussen
sf&yo.. o?, CN
NÚTÍMALIST
MÁLVERK, SKÚLPTÚRAR, GRAFÍK,
HÚSGÖGN, KERAMIK OG AFRICANA
Sigurj°n Ohifsson: Fótboltamenn. 1936.
Gunnlaugur Dlöndal: “Kiki de Montpamasse".
UPPBOÐ
25. September - 1. Oktober 1996
FORSÝNING UPPBOÐS VERKA
Föstudaginn 20. Sepl. kl. 16- 19.00
Laugardaginn 21. Sept. kl. 10 - 16.00
Sunnudaginn 22. Sept. kl. 10 - 16.00
Mánudaginn 23. Sept. kl. 9 - 17.30
Þridjudaginn 24. Sept. kl. 9-17.30
Uppbods bæklingur kostar DKK 170,-
BRUUN RASMUSSEN KUNSTAUKTIONER
BREDGADE 33 DK-1260 K0BENHAVN K TEI.. +45 33 13 69 11 FAX +45 33 32 49 20
OPERA
EFTIR |On ÖSCEIRSSOn
■ BEST SÓTTA ATRIÐIÐ Á LISTAHATIÐ
„Sýningin á Galdra-Lofti í íslensku óperunni er
fágætur listviðburður."
„Jón Ásgeirsson er heilsteypt tónskáld, sjálfum
sér samkvæmur og þorir aö semja tónlist sem
hljómar vel í eyrum.“
Þ.P., Mbl.
„Frammistaöa Þorgeirs Andréssonar í hlutverki
Lofts telst til tíðínda.“
F.T.St., DV
Niöurstaöa: Sýning sem telst til stórviöburöa í
íslensku listalífi. Höfundurinn Jón Ásgeirsson
hefur unniö þrekvirki og öll vinna aöstandenda er
þeim til mikils sóma.
A.B., Abl.
Laugardaginn 21. sept. kl. 21:00
Laugardaginn 28. sept. kl. 20:00
♦ m ♦
ADEinS TVŒR SYnmcAR
mÍÐASÖLA OPÍn DACL. : 15-19 simi 551-1475 ÍSLENSKA ÓPERAN