Morgunblaðið - 11.03.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 15
DÍSARFELL SEKKUR
Morgunblaðið/Golli
TVEIR gámar og stór björgunarbátur úr Disarfellinu á floti í sjónum um hádegisbil á sunnudag.
o' •
STEFNI Dísarfellsins sígur í hafið. Rétt áður en skipið hvarf snerist það og mikið sog myndaðist
í kringum það og gámar komu af afli upp á yfirborðið.
Morgunblaðið/Óskar Einarsson
TUGUM gáma skaut upp á yfirborðið er skipið sökk. Fyrst í stað voru þeir þétt saman, en ýmist
sukku þeir fljótlega eða dreifðust um sjóinn. Þeir geta verið hættulegir sæfarendum.
Morgunblaðið/Golli
FISKIKASSAR og margvislegt annað brak var á
reki í grennd við slysstaðinn á sunnudaginn.
Ólafur Qlafsson, forstjóri Samskipa hf.
Farið eftir ís-
lenskum ör-
yggiskröfum
DÍSARFELL komst í
eigu Samskipa hf. í
ársbyrjun 1996 og var
keypt frá Þýskalandi.
Skipið var með ís-
lenskri áhöfn en sigldi
undir fána Antigua og
Barbuda, heimahöfn
þess var í St. John’s.
Trygging skipsins var
samsett og skipið
tryggt í Noregi og
Englandi.
Að sögn Ólafs Ól-
afssonar, forstjóra
Samskipa, er ástæða
þess að skipið var
skráð undir hentifána
kostnaðurinn við skipaskráningu
hér á landi. „Allt annað, svo sem
öryggisreglur um borð og öryggis-
búnaður var eftir ströngustu ís-
lenskum regium," sagði Ólafur.
Allur öiyggisbúnaður Dísarfells
var yfirfarinn í janúar síðastliðn-
um. Flokkunarfélag skipsins var
Germanische Lloyds og fuiltrúi
þess var viðstaddur skoðunina.
Dísarfell átti að fara beint í 15
ára flokkunarskoðun í Hamborg
úr ferðinni sem varð þess síðasta.
Til stóð að Dísarfell færi í flokk-
unarskoðun í sumar en henni var
flýtt vegna þess að skipið átti að
fara í ný verkefni. Búið var að
leigja Dísarfell tímaleigu til Eim-
skips sem mun hafa ætlað að nota
skipið til Ameríkusiglinga. Skipið
átti að leigja með áhöfn frá Sam-
skipum og átti það að vera áfram
á ábyrgð Samskipa.
Búið var að skoða ástand skips-
ins með tilliti til þess
sem þyrfti að gera í
flokkunarskoðuninni.
Að sögn Ólafs Ólafs-
sonar kom ekkert fram
við forskoðunina sem
gæti skýrt sjóslysið.
„Skipinu hefur verið
vel við haldið og vel
með það farið,“ sagði
Ólafur.
Breyttur skipastóll
Samskip hafa verið
að breyta skipastóli sin-
um. Félagið fékk nýtt
skip, Amarfell, sem var
smíðað í Danmörku
1994. Nýverið tryggði það sér syst-
urskip Amarfells, Heidi, einnig
smíðað 1994, og á það að hefja
siglingar fyrir Samskip 8. apríl
næstkomandi. Nýju skipin henta
núverandi rekstri Samskipa betur
en Dísarfell gerði, eru burðarmeiri,
hraðskreiðari og því afkastameiri.
Arnarfell og Heidi verða stærstu
gámaskipin í flota Samskipa.
Að sögn Ólafs hafa flutningar
Samskipa í Evrópusiglingum auk-
ist meira en áætlanir gerðu ráð
fyrir og hefur það valdið lengri
lestunar- og losunartíma skipanna.
Því var nauðsynlegt að stytta sigl-
ingartímann og fá hraðskreiðara
skip en Dísarfell.
Samskip vom búin að tryggja
sér leiguskipið Arctic Moming sem
átti að brúa bilið í Evrópusiglingum
þar til nýja skipið kemst í gagnið.
Arctic Morning hefur siglingar í
dag.
Ólafur Ólafsson