Morgunblaðið - 11.03.1997, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LANDHELGIS-
GÆZLAN OG
SJÓSLYSIN
SJÓSLYSIN síðustu daga og giftusamleg björgunar-
störf Landhelgisgæzlunnar beina sjónum manna óhjá-
kvæmilega að starfsaðstöðu hennar og búnaði. Fjárveiting-
ar til Gæzlunnar hafa verið skornar niður á undanförnum
árum í sparnaðarskyni með þeirri mikilvægu undantekn-
ingu þó, að nýja björgunarþyrlan, TF-LÍF, var keypt til
landsins sumarið 1995. Atburðir undanfarinna daga, og
björgun þyrlunnar á 39 mönnum við erfiðustu aðstæður
sýna það og sanna, að ákvörðunin um kaup á svo stórri
og öflugri þyrlu sem TF-LÍF er var rétt.
Augljóst er, að björgunartæki eins og TF-LÍF þarf að
vera til taks allan sólarhringinn, allt árið um kring, að
undanskildum þeim tíma sem fer í viðhald og eftirlit. Til
þess að ná þessari nýtingu þarf þrjár fimm manna áhafn-
ir (þ.m.t. lækni). Áhafnirnar þurfa að vera í stöðugri þjálf-
un til að vera tilbúnar til erfiðustu björgunarstarfa. Af
þessum ástæðum er sú hugmynd fráleit, að leggja þyrl-
unni einhvern tíma ársins í sparnaðarskyni. Slysin gera
ekki boð á undan sér. TF-LÍF er eina þyrla Landhelg-
isgæzlunnar sem getur tekið heila skipshöfn í einu, eða
um 20 manns.
Strand Vikartinds sýnir ennfremur, að ekki má dragast
lengur að taka ákvörðun um endurnýjun á skipakosti
Landhelgisgæzlunnar. Hún hefur nú þrjú varðskip í sinni
þjónustu, Tý, sem byggður var 1975, 1.300 tonn að stærð,
Ægi, byggðan 1968, 1.200 tonn, og Óðin, byggðan 1959,
1.000 tonn. Fjárveiting er aðeins til að reka hvert skip í
níu mánuði á ári, sem dregur að sjálfsögðu verulega úr
getu Gæzlunnar til að sinna verkefnum sínum. Þau eru
sífellt að aukast og eru ekki lengur einungis hefðbundin
landhelgisgæzlustöf og björgunarstörf. Eftirlit vegna
mengunarvarna er t.d. að verða sífellt umfangsmeira.
Varðskipin eru orðin gömul og úrelt. Miklar breytingar
hafa orðið á gerð fiskiskipa og kaupskipa undanfarna
áratugi. Kaupskipin eru orðin miklu stærri en fyrr og
stóru frystitogararnir hafa komið til sögunnar. Nauðsyn
er því á mun stærri og öflugri varðskipum en fyrr, ekki
aðeins til eftirlitsstarfa heldur ekki síður vegna björgunar
og aðstoðar. Augljóst er að varðskipið Ægir lenti í miklum
háska, þegar tilraun var gerð til þess að bjarga Vikar-
tindi með þeim hörmulegu afleiðingum að einn skipveija
á varðskipinu fórst.
Ekki má dragast öllu lengur að taka ákvörðun um end-
urnýjun á skipastóli Landhelgisgæzlunnar og það þarf að
gera af myndarskap. Með beztu tæki í höndunum geta
flugmenn og sjómenn Gæslunnar unnið þrekvirki á ögur-
stundu eins og nýjustu dæmin sanna. Alþingi og ríkis-
stjórn þurfa að hlýða kalli tímans og í stórbættu efnahags-
umhverfi þjóðarinnar á endurnýjun á búnaði Landhelg-
isgæzlunnar að vera eitt af forgangsverkefnunum.
ÞÁTTASKIL
í SAMNINGUM
ÞÁTTASKIL urðu í samningaumleitunum á vinnumark-
aðinum í fyrrinótt, er samningar tókust við Verzlun-
armannafélag Reykjavíkur, Landssamband iðnverkafólks,
Iðju, félag verksmiðjufólks, og við Rafiðnaðarsamband
íslands. Auk þess samdi Rafiðnaðarsambandið við Reykja-
víkurborg og frestaði þar með boðuðum aðgerðum gagn-
vart borginni. Félagsmenn þessara aðila eru rúmur þriðj-
ungur allra félagsmanna innan ASÍ. Eftir þessa samnings-
gerð, virðast miklar líkur á, að önnur landssambönd og
stéttarfélög semji í kjölfarið.
Það er nú ljóst, að kjarasamningarnir, sem verið er að
gera í þjóðfélaginu, marka tímamót, þar sem aldrei áður
hefur verið samið til svo langs tíma. Kjarasamningarnir
eru annað hvort til 2 'A eða 3ja ára, sem tryggir lengri vinnu-
frið en hefur áður þekkzt á vinnumarkaði hér. Með kjara-
samningunum, sem gerðir hafa verið, virðist að vísu farið út
á yztu nöf í kauphækkunum og vinnuveitendur telja að verð-
bólga verði hérlendis á bilinu 2,5 til 3,5%. Engu að síður
er ljóst, að hér hefur verið brotið blað.
MANNBJÖRG VIÐ KRÍSUVÍKURBERG
Flaug í hug
hvort ég væri
að gera rétt
eða rang
ÁSGEIR Magnússon, skipstjóri á Þor-
steini GK, sagði að þegar seinni akk-
erisfestin gaf sig hefði ekki verið aft-
ur snúið og ekki veijandi að vera leng-
ur í bátnum. Hann kvaðst hafa neitað
því hálfpartinn að
yfirgefa bátinn
enda mikið í mun
að reyna að bjarga
honum. Það hefði
flogið um í huga
sér hvort hann
væri að gera rétt
eða rangt með því
að yfirgefa skipið.
„Við fórum út í
morgun [gær-
morgun] til þess
að leggja netin. Við vorum búnir að
vera í landi í eina viku, það hefur
verið svo mikil ótíð. Við drógum strax
aftur og héldum að það væri svona
mikill fiskur þarna. Trossan slitnaði
síðan frá og vélin drap á sér,“ sagði
Ásgeir.
Langtí aðra báta
Hann sagði að áhöfnin hefði reynt
allt til þess að koma vélinni í gang á
ný. „Við margsettum í gang en hún
drap alltaf á sér aftur. Skrúfan hafði
náð að vefja svo mikið utan á sig af
drasli. Það var langt í aðra báta. Ég
kallaði strax í næsta bát þegar ég sá
hvað hafði gerst. Næsti bátur var lík-
lega í um 11 sjómílna fjarlægð. Þetta
var allt á síðustu stundu. Við vorum
600 faðma frá iandi þegar við komum
báðum akkerunum út og þá stoppaði
báturinn í smátíma, kannski um hálf-
tíma. Síðan hvessti mikið og festarnar
slitnuðu," sagði Ásgeir.
Ásgeir segir að þarna sé mikil og
þekkt veiðislóð. 800 faðmar voru að
landj þegar búið var að leggja netin.
„Ég neitaði hálfpartinn að fara og
varð að ákveða það með siglykkjuna
utan um mig hvort ég færi upp eða
yrði eftir og reyndi að bjarga skipinu.
Ég valdi þann kost að yfirgefa skipið.
Skipið rak mjög hratt og þetta mátti
engu muna. Líklega hefur það verið
komið upp í land tíu mínútum eftir
að ég yfirgaf það,“ sagði Ásgeir.
Hann sagði að frammistaða Land-
helgisgæslunnar hefði verið stórkost-
leg. „Það er svakalegt álag á sigmann-
inum sem kom niður til okkar og þeir
standa sig allir eins og hetjur,“ sagði
Ásgeir.
*
Akvað að
áhöfnin færi
í galla
„ÞETTA byijaði með því að Helgi
Hallvarðsson hringdi í mig út á flug-
völl og sagði að Þorsteinn ætti í vélar-
bilun um 0,8 mílur undan Krísuvíkur-
bergi. Ég ákvað ITjósi atburða síðustu
daga að öll áhöfnin
færi í galla, gerð-
um okkur klára og
færum út í vél. Við
vorum varla
komnir í gallana
þegar við vorum
beðnir að fara af
stað,“ sagði Páll
Halldórsson flug-
rekstrarstjóri
Landhelgisgæsl-
unnar sem var
flugstjóri á TF-LIF í þessari ferð.
A leiðinni út fréttist um borð í þyrl-
una að áhöfn Þorsteins hefði tekist
að koma út akkeri en Páll kvaðst
hafa ákveðið að þyrlan héldi eigi að
síður sínu striki.
„Við fórum niður undir skipið,
töluðum við þá og það var greinilegt
að það tók vel í hann, það var suðvest-
an átt og þungur sjór. I fyrstunni
vorum við að spá og spekúlera í að-
stæðum og völdum okkur svo stað á
bjarginu til að lenda og fylgjast með
þróun mála og vorum áfram í sam-
bandi við skipið. Við vorum búnir að
sitja á bjarginu í nokkrar mínútur
þegar við stungum uppá því að við
tækjum nokkra menn af skipinu og
fórum í það.“
Sex menn hífðir fyrst
Páll segir að tengilínu hafi verið
komið fyrir, sigmaðurinn farið niður
og sex menn hífðir um borð í þyrl-
una, tveir í senn. Síðan var tengilínan
tekin og sigmaðurinn tekinn upp Iíka
en örskömmu síðar hafi akkerið slitn-
að og bátinn tekið að reka hratt að
bjarginu. Þá var ákveðið að hífa í
snatri þá fjóra sem eftir voru um
borð og nú varð að gera það úr skut
skipsins sem nú lét illa í sjónum en
í fyrra skiptið höfðu mennirnir verið
hífðir úr stefni þess.
„Þarna eru hlutirnir ekki lengi að
gerast og leiðangurinn gekk í alla
staði ágætlega," sagði Páll Halldórs-
son að lokum.
Auk Páls voru í áhöfn þyrlunnar
þeir Jakob Ólafsson flugmaður,
Hjálmar Jónsson sigmaður og Ágúst
Eyjólfsson spilmaður. Læknir var ekki
með í þessari ferð, hann náði ekki út
á flugvöll í tæka tíð.
Reyndi að
sjá hvað var
í skrúfunni
„ÉG VAR aftur á og reyndi að sjá
hvað var í skrúfunni en við höfðum
fírað niður akkerum og það gekk
mikið á þarna," sagði Helgi Hrafnsson
annar vélstjóri á Þorsteini. Hann sagði
að hinn vélstjórinn
hefði verið í vélar-
rúminu og reynt
að koma vélinni í
gang en hún hefði
ekki gengið þegar
kúglað var.
Áhöfninni var
engin hætta búin
að sögn Helga,
hún bjó sig í flot-
búninga þegar séð
varð að akkerin
héldu ekki. Hann var í seinni hópnum
sem hífður var um borð í TF-LIF og
fór síðastur upp af áhöfninni ásamt
skipstjóranum en sigmaðurinn kom
svo allra síðast og voru þá aðeins um
150 metrar í að skipið færi í bjargið.
Helgi kvaðst hafa verið lengi á sjón-
um, verið hálft annað ár á Þorsteini
og nú væri spurning hvar pláss væri
fyrir vélavörð. Ekki tókst áhafnar-
mönnum að bjarga miklu af dóti sínu.
„Ég náði í lambhúshettuna, það var
ekki meira,“ sagði Helgi að lokum.
Eftir að skipbrotsmenn höfðu þegið
kaffi hjá flugdeild Landhelgisgæsl-
unnar héldu þeir heimleiðis og höfðu
á orði að konur þeirra hefðu líklega
flestar heyrt af slysinu í fréttum þar
sem enginn hafði haft samband heim
áður en skipið var yfirgefið.
Kallað á hjálp
þegar akker-
ið slitnaði
„VIÐ vorum eina eða tvær mílur frá
landi þegar eitthvað kom í skrúfuna
og vélin gekk ekki þegar gírnum var
kúplað inn. Akkeri voru sett niður og
þau héldu skipinu framan af en þegar
annað slitnaði var
kallað eftir að-
stoð,“ sagði Vil-
helm Arason, einn
hásetanna á Þor-
steini í samtali við
Morgunblaðið, en
hann er úr Grinda-
vík.
Sex menn úr
áhöfn Þorsteins
voru hífðir upp í
fyrstunni og var
Vilhelm meðal þeirra. „Við þurftum
að viðhafa ákveðinn undirbúning fyrir
hífinguna, fara í flotbúningana og svo
framvegis og þar komu að notum
handtökin sem ég lærði í Slysavarna-
skóla sjómanna," sagði Vilhelm enn-
fremur. „Þetta fór allt vel enda var
brimið ekki óskaplega mikið þarna en
hins vegar gengu dimm él yfir og við
sáum ekki bergið á tímabili þó að við
værum mjög nálægt því. Sett voru
bæði út keðjuakkeri og vírakkeri úr
spilinu. Vilhelm segir að þegar þyrlan
hafi verið komin á vettvang hafi sex
menn verið hífðir um borð fyrst og
síðar, þegar keðjuakkerið hafði slitn-
að, var ákveðið að allir færu í þyrluna
enda gerðust hlutirnir þá hratt.
Of stutt upp
í klettana
KRISTJÁN Ásgeirsson háseti sagði
að margar tilraunir hefðu verið gerðar
til þess að koma vél Þorsteins GK í
gang eftir að drapst á henni. Þegar
enginn árangur varð af því voru sett
út akkeri. 8-9
vindstig voru á
staðnum og sagði
hann að báturinn
hefði strax tekið
afar sterkt í akk-
erin.
„Það voru allir á
þiifari þegar þetta
gerðist og ég held
að við höfum farið
hárrétt að þessu.
Við biðum eftir
Frey GK til þess að draga okkur út
en það var bara orðið of seint. Ég
held að það hafi ekki verið hægt að
bjarga bátnum, það var það stutt upp
í klettana," sagði Kristján.
Hann sagði að ekki hefði liðið lang-
ur tími frá því það festist í skrúfunni
þar til hjálp barst. „Kannski fimmtán
mínútur til hálftími, en ég missti
reyndar allt tímaskyn þegar þetta var
að gerast," sagði Kristján.
Hann sagði að áhöfnin hefði varpað
öndinni léttar þegar hún sá þyrluna
koma.
Vandræði
með annað
akkerið
ÓLAFUR Vilberg Sveinsson háseti
segir að skipveijar hafi verið að leggja
net þegar eitthvað festist í skrúfunni.
„Við vissum því ekki hvort það var
net frá okkur eða einhveijum öðrum.
Við reyndum síðan
að hreinsa úr
skrúfunni með því
að kúpla frá en við
sáum ekki neina
lausa enda á floti.
Ég efast um að
þetta hafi verið
veiðarfæri frá
okkur og hallast
frekar að því að
þetta hafi verið frá
öðrurn," sagði Ól-
afur Vilberg.
„Við létum síðan akkerin fara.
Reyndar lentum við í vandræðum með
annað akkerið því það var fast ofan
í kassa. Við hringdum fljótlega í Land-
helgisgæsluna því við vorum það ná-
lægt landi og fórum allir í flotgalla.
Það skall á með dimmum éljum og
ég held að skipstjórinn hafi tekið al-
veg rétta ákvörðun að biðja strax um
aðstoð. Það var góð tilfinning sem
bærðist með okkur þegar við heyrðum
í þyrlunni," sagði Ölafur Vilberg.
Fjórir um borð er seinna
akkerið slitnaði
Ólafur Vilberg segir að báturinn
hafi hangið um stund í akkerum.
„Annað akkerið héit ansi vel enda var
vír í því. Hitt akkerið var með keðju
og það slitnaði fyrr frá. Þá var strax
byijað að hífa okkur um borð í þyrl-
una. Þegar akkerið með vírtauginni
slitnaði voru fjórir ennþá um borð í
bátnum. Það var mikil hreyfíng á
þyrlunni yfír okkur en það gekk engu
að síður mjög vel að hífa okkur. Það
var líka talsverð hreyfing á bátnum.
Menn höfðu alltaf nóg fyrir stafni
þannig að við höfðum ekki tíma til
þess að velta mikið fyrir okkur að-
stæðunum," sagði Ólafur Vilberg.
Hann sagði að um það Ieyti sem
Ásgeir
Magnússon
Páll
Halldórsson
Helgi
Hrafnsson
Vilhelm
Arason