Morgunblaðið - 17.04.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 23
Yiðbrögð við kjamorku-
slysi æfð í Finnlandi
Helsinki. Reuter.
HVAÐ gerist ef geislavirkt ský
stefnir í átt að íslandi eftir slys í
kjarnorkuveri í Finnlandi? INEX 2
er heiti alþjóðlegrar æfingar í við-
brögðum við kjarnorkuslysi, sem
fram fer í dag með þátttöku sér-
fræðinga hvaðanæva að úr Evrópu
og öðrum heimsálfum. Alls eru
þátttökulöndin 26.
Æfingin gengur fyrst og fremst
út á að láta á það reyna hvernig
upplýsingum er komið út um slík-
an atburð og hvernig brugðizt er
við honum hjá stjórnvöldum, al-
mannavarnastofnunum og fjöl-
miðlum.
Slysið er sett á svið í Loviisa-
kjarnorkuverinu við suðurströnd
Finnlands, skammt frá Helsinki.
Hvers konar leki geislavirkra efna
verður ímyndaður, en við útreikn-
inga á því hvert hið ímyndaða
geislaský myndi reka eftir „slysið“
er það veður lagt til grundvallar
sem verður í raun á æfingardaginn.
Æfingin er skipulögð á vegum
NEA, kjamorkumálastofnunar
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar OECD. Geislavamir ríkisins
bera hitann og þungann af æfing-
unni fyrir íslands hönd, en auk
þeirrar stofnunar gegna Veður-
stofan, Almannavarnir ríkisins,
Hollustuvernd ríkisins og fleiri að:
ilar mikilvægum hlutverkum. í
æfingunni verður lögð áherzla á
þætti er tengjast norrænu sam-
starfi. í henni taka í fyrsta sinn
fulltrúar fjölmiðla á Norðurlöndum
beinan þátt, þar á meðal blaðamað-
ur frá Morgunblaðinu og frétta-
maður Ríkisútvarpsins.
15.-22. anríl
Sejj um afganga með
25-40% afslætti
Alh: Ekki minni gæði, heldur aðeins flísar sem ekki koma aftur. Jafnvel til í magni.
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
EEMSTAKT TÆKEFÆRITEL AÐ GERA GÓÐ KAUP.
Nýkomnar sendingar af t.d. eldhúsflísum 10x10.
Einnig ódýrar gólfflísar 31,6x31,6 á 1.590 stgr.
Siórhöföa 17 \ið Gullinbrú, sínti 567-4844.
Gœðaflísara
góðu verði
Of langt
gengið í
reykbanni
BORGARRÁÐ Toronto í
Kanada hefur fellt úr gildi
umdeild lög, sem bönnuðu
reykingar á velflestum bömm
og veitingahúsum, vegna
harðrar andstöðu við þau.
Fimm vikur eru síðan bannið
tók gildi og viðurkenndi borg-
arráðið að það hefði hleypt svo
illu blóði í reykingamenn að
þeir væru farnir að reykja á
stöðum sem voru reyklausir
fyrir bannið, að því er segir í
The Washington Post.
Eigendur bara og veitinga-
húsa hafa barist af krafti gegn
reykingabanninu, sagt að
annaðhvort verði það ekki virt
eða að þeir verði gjaldþrota.
Samkvæmt reykingalögunum
nýju mátti aðeins reykja á
veitingastöðum í loftræstum
herbergjum og afar fáir veit-
ingamenn gripu til þess ráðs
að stúka af hluta salarins. í
stað laganna hafa verið settar
reglur sem leyfa reykingar í
10-25% veitingasalarins.
Comfort
kcrran var útnefnd bestu kaupin af
sænska barnablaðinu „Vi Foreldrar" í
apríl 1996. Baki má halla alveg aftur og
svunta og innkaupagrínd fylgír með.
Fínesse
Kerruvacn er fáanlegur með 16
mismunanai áldæðum. Kerrupokar og
skíptitöskur fást cinnig í sömu áklæðum.
Sími 553 3366
C4KL€IN
GARY FISHE-R
SMimnno
gfrar • bremsur • SPD skór
CftirSHIFT—
gírskiptar_.
og annar gírbúnaftur
&
CATEYE®
Ijósabúnaður • hraðamælar
LEMOND'
sporthjól.
í sérfiokki
Helstu útsölustaðir: Örninn Reykjavík, Hjólið v/Eiðistorg Seltjarnarnesi, Músik og Sport Hafnarfirði, Pípul.þjónustan Akranesi,
Olíufél. útvegsmanna ísafirði, Hegri Sauðárkróki, K.S. Sauðárkróki, Sportver Akureyri, K.Þ. Húsavík, Skeljungsbúðin Vestmannaeyjum,
Hjólabær Selfossi, Birgir Oddsteinsson Hveragerði, Stapafell Keflavík.