Morgunblaðið - 22.04.1997, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997 37
f®í»r0Mt#Ia!>Íí
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LÝÐRÆÐI í
LÍFEYRISSJÓÐUM
*
IUMRÆÐUM að undanförnu um lífeyrissjóðina hafa sjónir
manna m.a. beinzt að því fyrirkomulagi, sem er við stjórn-
un þeirra. Nú eru það verkalýðsfélögin og vinnuveitendur, sem
skipa stjórnir sameignarsjóðanna svonefndu. Sjóðfélagar, eig-
endur fjármagnsins, koma þar hvergi að með beinum hætti og
hafa því engin áhrif á fjárfestingarstefnu eða mótun starfsemi
sjóðanna að öðru leyti. Því hafa verið uppi kröfur um, að skip-
an stjórna lífeyrissjóðanna verði lýðræðislegri en nú er og sjóð-
félagar komi að stefnumótun með beinum hætti, m.a. verði
stjórnir kjörnar á aðalfundi.
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, lét svo ummælt í frétt í Morgunblaðinu sl.
laugardag, þar sem hann ræddi um lífeyrissjóðafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar, að hann teldi með því tekið ákveðið skref í lýðræð-
isátt í lífeyrismálum landsmanna og sagði síðan, „að það verð-
ur að segjast alveg eins og er, að aðilar vinnumarkaðarins
hafa verið óskaplega tregir til allra breytinga. Það þýðir ekki
fyrir þá að saka þá, sem reyna að tryggja virkt lýðræði á þessu
sviði, um að þeir séu andsnúnir samtökum launþega og vinnu-
veitenda. Þar verður að hafa lýðræðisleg vinnubrögð eins og
hjá öðrum stofnunum í þjóðfélaginu."
Og Halldór Ásgrímsson bætti við: „En ég hef talið það óeðli-
legt, að stjórnir lífeyrissjóða séu útnefndar af skrifstofu Vinnu-
veitendasambandsins og stjórnum verkalýðsfélaga. Mér finnst
lítið lýðræði í því og tel eðlilegt, að launþegarnir sjálfir, eigend-
ur lífeyrissjóðanna, kjósi sjóðsstjórnir."
Að sjálfsögðu er þetta rétt hjá utanríkisráðherra og það er
mikilvægt í þeirri umræðu, sem hafin er og mun standa á
næstunni, að afstaða hans sé svo skýr, sem raun ber vitni.
Annað er óviðunandi en að eigendur sjóðanna ráði sjálfir stjórn-
un þeirra.
STIMPILGJALD -
TÍMASKEKKJ A
*
IRÆÐU Guðmundar Haukssonar sparisjóðsstjóra á aðalfundi
SPRON kom fram hörð gagnrýni á stimpilgjöld. Þau eru
ranglátur skattur, sagði sparisjóðsstjórinn, og tímaskekkja, sem
þarf að leiðrétta. Guðmundur Hauksson sagði m.a.:
„Mörg stærstu fyrirtæki landsins, sem sækja lánsfjáröflun
sína að stórum hluta til beint erlendis frá, þurfa ekki að greiða
þetta gjald. Einnig eru sérákvæði í lögum fjöldamargra aðila,
sem undanskilja þá frá þessum skatti. Eftir stendur að hinir,
sem ekki eru í hópi þeirra, sem að framan er getið, þurfa að
greiða þennan háa skatt. í þessum hópi eru t.d. heimilin í land-
inu.“
Ástæða er til að taka undir þessa réttmætu gagnrýni. Hvað
eftir annað koma fram dæmi, sem sýnir hvað stimpilgjöld eru
fáránlegur og ranglátur skattur.
SLÆMUR AÐBÚNAÐUR
FRÉTT í Morgunblaðinu á sunnudag segir margt um aðbún-
að hugbúnaðariðnaðarins hér á landi. Einar J. Skúlason
hf. auglýsti eftir forriturum til að þróa hugbúnað fyrir vörustýr-
ingarkerfi, sem fyrirtækið mun setja upp í stórverzlunum er-
lendis. Hér er um stórt verkefni að ræða í útflutningi á hugbún-
aði. Engu að síður fást ekki nógu margir hæfir forritarar til
verksins og fyrirtækið hyggst því stofna útibú í Skotlandi til
að vinna verkið.
Oddur Benediktsson, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla
íslands, hefur tekið að sér að stjórna verkefninu fyrir EJS í
ársleyfi frá starfi sínu við HI. I máli hans kemur fram að þótt
vitað sé að þörf sé á að mennta fleiri tölvunarfræðinga á Is-
landi fáist ekki fé til að ráða fleira fólk til skólans eða hefja
meistaranám. Slíkt er auðvitað forsenda þess að laða megi fleira
fólk til náms í tölvunarfræði. Afleiðingarnar blasa við; stórt
verkefni, sem hefði getað veitt hópi fólks vel launaða vinnu,
fer úr landi.
Vísindamenn á borð við Odd Benediktsson eru ekki öfunds-
verðir af þeim aðstæðum, sem þeir starfa við í Háskóla Is-
lands. Þeir hafa byggt upp þekkingu fyrir ýmsar atvinnugrein-
ar, sem eru helztu vaxtarbroddar efnahagslífsins, en eru senni-
lega á mun lægri launum en flestir kandídatarnir, sem þeir
útskrifa. Háskólinn má þakka fyrir á meðan honum helzt á
hæfu fólki við þær aðstæður.
Búa þarf betur að greinum á borð við hugbúnaðariðnaðinn.
Efla þarf nám og rannsóknir í þessum fræðum við HI, en ekki
er síður mikilvægt að ríkisvaldið hætti samkeppni sinni við
einkaaðila í þessum geira.
Vamaðar-
áhrifin
aðalatriði
Embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins
er um það bil fjögurra ára gamalt en á
þeim tíma hafa starfsmenn embættisins
malað gull í ríkissjóð. Fyrsta starfsár sitt
skilaði embættið 23 milljónum króna í
ríkissjóð en í fyrra voru 550 milljónir króna
af tekjum ríkissjóðs raktar til skattrann-
sókna. Pétur Gunnarsson ræddi við
Skúla Eggert Þórðarson skatt-_
rannsóknarstjóra ríkisins.
Morgunblaðið/Kristinn
SKULI Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri ríkisins, blaðar í rannsóknaskýrslu.
Gjaldabreytingar vegna skattrannsc 1993 1994 1995 1996 »kna Samtals
Gjaldbreytingar (höfuðstóll) 25 217 198 542 982
Skaðabætur samkvæmt dómi 38 13 51
Dráttarvextir 157
Breytingar yfirskattanefndar -22
Nettó hækkun 1.168
Skipting rannsóknarskýrslna á
starfsgreinar fram til 31. des. 1996
Byggingar- og verktakastarfsemi 61
Verslun-, veitinga- og hótelrekstur 54
Útgerðarfyrirtæki 11
Flutningastarfsemi 5
Iðnaðarstarfsemi 31
Þjónustustarfsemi 27
Annar rekstur 67
Vanskilamál vörsluskatta 53
Alls 309
ARIÐ 1993 — árið sem emb-
ætti skattrannsóknar-
stjóra var sett á fót —
kom út svonefnd skatt-
svikaskýrsla þar sem því var haldið
fram að árleg skattsvik hér á landi
næmu um það bil 11 milljörðum
króna.
Fyrsta starfsár embættisins skil-
aði skattrannsóknarstjóraembættið
23 milljónum króna í ríkissjóð en í
fyrra gaf starf hinna 16 starfs-
manna embættsins af sér 550 millj-
ónir króna. Talið er að um 500 m.kr.
til viðbótar bíði ákvörðunar um
gjaldabreytingu og þá á eftir að
taka með í reikninginn að 200 m.kr.
í vangreiddum vörslusköttum, þ.e.
innheimtum virðisaukaskatti og af-
dreginni staðgreiðslu hafa verið
greiddar í ríkissjóð vegna afskipta
skattrannsóknarstjóra undanfarin 2
ár.
Skúli Eggert Þórðarson, hefur
verið skattrannsóknarstjóri ríkisins
frá upphafi. Hvernig metur hann
varnaðaráhrifin af þessu starfi? I
skattsvikaskýrslunni frá 1993 var
talið að 11 milljarðar væru sviknir
undan skatti hér á landi á hveiju
ári. Er sú tala raunhæf ennþá?
„Það er mjög erfitt að meta það.
Það er fátt sem bendir til að skatt-
svik hafi aukist, helst þróun virðis-
aukaskattskyldrar veltu, en það
bendir heldur ekkert sérstaklega til
þess að það hafi dregið úr þeim.
Ég tel að það þyrfti að fara fram
alveg sérstök úttekt á því hvort svo
er,“ segir Skúli Eggert. „Menn verða
líka að hafa í huga að fyrsta árið
sem þessi stofnun starfaði var hún
að koma sér í gang; það var gerð
kerfisbreyting. Það hafði auðvitað
heilmikill árangur verið í tíð fyrri
skattrannsóknarstjóra sem var við
rannsóknadeild ríkisskattstjóra
þannig að ég tel að þessi tala, 23
milljónir fyrsta árið, gefi ekki alveg
rétta mynd.
5% mála lýkur með lækkun
Skúli Eggert segir að fjárhæð í
ríkissjóð sé ekki einhlítur mæli-
kvarði á skatteftirlit og -rannsóknir.
Margnefndar 550 milljónir eru nett-
ófjárhæðir og á síðasta ári voru
skattar um 5% þeirra sem teknir
voru til rannsóknar lækkaðir frá því
sem verið hafði áætlað á þá. Þótt
máli ljúki með lækkun frá áætlun
skattstjóra segir Skúli Eggert að
engu að síður sé um árangur af
ræða af starfinu því eftir standi að
lögbrot hafi verið upplýst. „Annars
er ég þeirrar skoðunar að vafasamt
sé að meta árangur út frá gjalda-
hækkunum einum sér. Það eru varn-
aðaráhrifin sem eru aðalatriðið en
vissulega er erfitt að meta þau.“
- Það kom líka fram í skattsvika-
skýrslunni að 70-80% íslendinga eru
tilbúin til að svíkja tekjur undan
skatti. Hvernig komum við út úr
samanburði við nágrannaþjóðir hvað
þetta viðhorf varðar?
„Það er nú reyndar athyglisvert
að sama hlutfall, 70-80%, telur að
það eigi að herða eftirlit og viðurlög
vegna skattsvika. En miðað við þær
upplýsingar sem ég hef frá Norður-
löndum mundi ég halda að viðhorfið
sé verra hér en þar. Hins vegar er
umfang skattsvika hér á landi að
öllum líkindum mjög svipað og í
nágrannalöndum okkar. I sumum
öðrum Evrópuríkjum er ástandið
mun verra."
Engu að síður sýnir það sig að
þetta er umtalsvert vandamál hér
og mér finnst það mikið umhugsun-
arefni að 16 manns geti labbað út
og tekið inn hálfan milljarð með til-
tölulega lítilli fyrirhöfn ár eftir ár.
Stærstu málin hafa leitt til hækkana
upp á á annað hundrað milljónir
króna og mörg mál hafa verið með
hækkanir upp á tugi milljóna.“
Fésektir og skilorðsbundið
fangelsi
- Er lagaumhverfi hér varðandi
refsingar og viðurlög við skattsvik-
um svipað og t.d. á Norðurlöndun-
um?
„Já, nú orðið er það að mestu
leyti. í Danmörku t.d. er hins vegar
skilvirkari meðferð hvað varðar við-
urlög við skattsvikum. Þar eru fang-
elsisdómar algengir. Hér eru menn
meira dæmdir í fésektir og skilorðs-
bundið fangelsi. Ég er þeirrar skoð-
unar að ástandið muni ekkert lagast
hér á landi fyrr en mönnum verður
ljóst að þeir eru að taka mjög mikla
áhættu með skattsvikum. Stofnun
eins og skattrannsóknarstjóra emb-
ættið ætti í sjálfu sér ekki að þurfa
að vera mjög fjölmenn vegna þess
að vitneskja um refsingar og máls-
meðferð ætti að fæla frá. En þetta
viðhorf er því miður ekki ríkjandi
hér á landi.“
íslendingar bera sig gjarnan sam-
an við Dani um hvers konar löggjöf
og Skúli Eggert segir að Danir taki
einnig mun harðar en íslendingar á
málum þar sem sömu menn stofni
hvert fyrirtækið eftir annað og láti
þau fara í gjaldþrot eftir skamman
rekstur og skilji eftir sig háar skatta-
skuldir.
í ákveðnum rikjum Evrópu eru
fyrirtæki dæmd til að hætta rekstri
og alls kyns hindranir settar við
því að menn með slíkan feril fái að
standa í atvinnurekstri. Hérlendis
hefur dagað uppi á Alþingi laga-
frumvarp um bann við atvinu-
rekstri og Skúli Eggert kveðst telja
áhugavert að velta því fyrir sér
hvort hægt sé að setja löggjöf til
að koma í veg fyrir starfsemi af
þessu tagi. „Það er auðvitað hægt
að takmarka þetta með því að skatt-
rannsóknarstjóri elti þessa aðila
uppi en það er ekki hægt að koma
í veg fyrir þetta með þeim hætti.
Spurningin er í hvað kraftar okkar
starfsmanna eiga að fara,“ segir
hann.
Kerfisbreyting 1993
Skúli leggur hins vegar áherslu á
að mikilvæg skref í rétta átt hafi
verið stigin. „Ég tel að það hafi
sýnt sig að sú kerfisbreyting sem
gerð var árið 1993, að láta skatt-
stjórana sinna skatteftirliti, hafi ver-
ið rétt skref. Skattstjórar vísa mál-
um til skattrannsóknarstjóra, þeirra
hlutverk er að leita skattsvikin uppi
og koma málunum í rétta refsimeð-
ferð og þeir hafa að auki sinnt öðru
almennu skatteftirliti. Góður árang-
ur hjá skattrannsóknarstjóra er m.a.
að þakka góðu skatteftirliti og ár-
angursríku samstarfi innan skatt-
kerfis og við réttarvörsluaðila, þ.e.
lögreglu og ákæruvald," segir hann.
„Það er einnig geysilega mikilvæg
breyting sem löggjafmn gerði á ár-
unum 1994 og 1995 með því að
taka upp ný lög um bókhald og ný
lög um ársreikninga sem var tíma-
mótalöggjöf hér á landi. Eldri lögg-
jöf var mjög gömul og þurfti að
takast til rækilegrar endurskoðunar
í ljósi breytts umhverfis og breyttrar
tækni. Síðan setti Iöggjafinn ný
refsiákvæði í skattalög og sérstök
ákvæði í almenn hegningarlög um
stórfelld skattsvik. Nú er farið að
dæma eftir þessum nýju
lögum.“
í samræmi við kerfis-
breytingu og nýja laga-
setningu hefur dómum í
skattsvikamálum farið
fjölgandi undanfarin ár,
Ijöldi uppkveðinna héraðsdóma fjór-
faldaðist t.a.m. frá 1994 til 1996
og af 49 uppkveðnum héraðsdómum
í skattsvikamálum frá 1993 til 1996
var sakfellt í 48 tilvikum.
- Þú sagðir að 16 manns hefðu
auðveldlega náð í 500 milljónir.
Gæti þá 160 manna starfslið hjá
skattrannsóknarstjöra náð inn 5
milljörðum króna úr neðanjarðar-
hagkerfmu?
„Ég er ekki eins viss um það. Við
höfum forgangsraðað málum og
reynt að taka frekar inn hin alvar-
legri mál. Engu að síður er það
ástand núna að með góðum hætti
mætti loka hér útidyrum og einbeita
sér næstu tvö ár að þeim málum sem
liggja fyrir, þ.e.a.s. málum sem bíða
rannsóknar frá skattstjórum, lög-
-h
reglu og ýmsum öðrum aðilum, og
ábendingum sem komið hafa hingað
inn. En það ástand gæti náttúrulega
ekki gengið. Það þarf að taka við
nýjum málum og forgangsraða og
því miður er talsvert um að það sé
ekki hægt að fara í mál sem ástæða
væri til, bæði vegna þess að stofnun-
in er mannfá og svo þarf að velja
mál eftir þvl hvað þau taka langan
tíma. Ef við sjáum fram á að mál
taki mjög langan tíma í rannsókn
þarf kannski að stytta rannsókna-
tímann með því að afmarka hann.“
Starfsmönnum fækkað vegna
rýrnunar fjárveitinga
- En telur þú næga áherslu lagða
á skattrannsóknir með 16 manna
starfsliði?
„Ég tel að stjórnunarlega séð
væri ekki slæmt að hér væru 20-25
menn. Þeir mundu afkasta hlutfalls-
lega meira en sá mannafli sem hér
er núna. En ég tel það ekki viðeig-
andi að stofnanir séu að hvetja til
þess að þær eigi að stækka. Það er
ákvörðun viðkomandi ráðuneytis og
ákvörðun löggjafans og ég tel það
afar óviðeigandi að einstakir for-
stöðumenn ríkisstofnana séu að nota
tækifærið í fjölmiðlum að heimta
útþenslu. Ég treysti fjármálaráðu-
neytinu og Alþingi alveg til að
ákveða það eftir sínum forsendum
hvort ástæða sé til að fjölga hér,
fækka eða hafa óbreyttan mann-
afla.“
Nánar um rekstur embættisins
og fjárveitingar segir hann
að fjárveitingar til þess
hafi haldist óbreyttar í
krónutölu frá upphafi en
rekstrarkostnaður á hvern
starfsmann hefur aukist
með hækkandi starfsaldri
þeirra og launabreytingum. Þess
vegna hafa fjárveitingar embættis-
ins rýrnað að raungildi um 10% og
eru starfsmenn nú einum færri en
var í upphafi.
Skattsvikamálum er skipt í tvo
meginflokka. Þorri málanna sem
koma til rannsóknar er, að sögn
Skúla Eggerts, vegna vantalinna
tekna, sem ekki koma til skatts og
í framhaldi af því er vantalinn virðis-
aukaskattur.
Vantaldar tekjur
„Við höfum lagt áherslu á að leita
að vantöldum tekjum hjá atvinnu-
rekstraraðilum, sem dylja hluta
tekna sinna í tvöföldu bókhaldi eða
með kerfisbundnum undanskotum
eða með því að skrá hreinlega ekki
Þeir sem hafa
sín mál ber-
sýnilega í lagi
iátnir vera
Gagnrýnt
hvemig valið
er til sljómar
Skiptar skoðanir eru innan efnahags- og
viðskiptanefndar um frumvarp ríkisstjómar-
innar um lífeyrissjóði. Guðjón Guðmunds-
son ræddi við þrjá fulltrúa í nefndinni.
tekjur sínar,“ segir Skúli Eggert
Þórðarson. Hins vegar er um að
ræða svik á vörslusköttum, þ.e. virð-
isaukaskatt sem menn innheimta
eða staðgreiðslu sem dregin er af
launum en ekki skilað til ríkissjóðs.
Þeim málum sinna 1-1,5 starfs-
menn að jafnaði og 53 af 309 rann-
sóknaskýrslum sem embættið hefur
gert eru vegna þess konar mála.
„Menn eru að læra meira og
meira á virðisaukaskattkerfið og
finna þar ákveðnar smugur. Með
honum komu nýir svikamöguleikar,
einkum svik á innskatti. Þar höfum
við nokkur sorgleg dæmi þar sem
menn hafa svikið út tugi milljóna
án þess að nokkur eiginleg atvinnu-
starfsemi hafi verið þar á bakvið.
Það þarf að vera sérstakur vari á
gagnvart virðisaukaskattinum.
Þetta er þannig kerfi að það þarf
umhirðu, mannafla og yfirferð.
Starfsmenn á skattstofum sem
eru að kalla inn bókhald segja mér
að það sé eitthvað að hjá öllum og
mikið að hjá mörgum. Én auðvitað
eru bara kallaðir inn þeir aðilar sem
þykja grunsamlegir. Þeir aðilar sem
hafa sín mál bersýnilega í lagi eru
látnir vera. Sjálfur er ég þeirrar
skoðunar að þau fyrirtæki sem hafa
ársreikninga sem eru að fullu og án
fyrirvara endurskoðaðir af löggiltum
endurskoðanda eigi ekki að sæta
sérstakri athugun skattayfirvalda
nema í úrtakskönnunum.
Bókhald ekki í lagi
Við höfum aldrei lent í því hér
að taka aðila í rannsókn sem hefur
engan fyrirvara í áritun endurskoð-
anda og að fullu endurskoðaðan árs-
reikning. Þeir aðilar sem við erum
með í rannsókn eiga það sameigin-
legt að bókhald er ekki í lagi, oftast
vegna vantalinna tekna.“
- Fyrirtæki í byggingaiðnaði og
veitingarekstri hafa verið tæpur
þriðjungur af ykkar rannsóknum.
Hvers vegna koma þessar tvær
greinar svona mikið við sögu?
„Veitingabransinn vegna þess að
tekjuskráningin er oft slæm í þeirri
grein. Viðskiptamaðurinn sér ekki
þegar skráningin fer fram, hann sit-
ur við borð úti í sal og sér ekki
hvort hann sé skráður í kassann.
Þetta er einnig rekstur þar sem eru
mjög örar breytingar hjá rekstrar-
aðilum. Nýir aðilar koma og standa
stutt við. Það eru dæmi um það að
veitingahús hafi verið rekin mánuð-
um saman án þess að vera nokkurn
tímann skráð hjá skattayfirvöldum
og án þess að skila nokkurn tímann
virðisaukaskatti eða staðgreiðslu.
Ég held að það sé hægt að segja
að þær rannsóknir sem við höfum
framkvæmt á veitingahúsum gefa
fyllilega til kynna að þar sé ýmislegt
að og þeir veitingastaðir sem við
höfum tekið til rannsókná hafa und-
antekningalaust verið hækkaðir um
miklar fjárhæðir, mun hærra en
meðaltalið, sem er um það bil 7
milljónir króna.
Tímabundið verkefni
Byggingaiðnaður, þ.e. hvers kon-
ar mannvirkjagerð, var talinn
áhættugrein í skattsvikaskýrslunni.
Þetta er sú grein þar sem flestir
telja að til sé svört starfsemi og það
hefur sýnt sig að vera rétt. Það er
líka einkennandi fyrir þessa grein
að fyrirtæki eiga mörg hver stuttan
líftíma og skýringanna er m.a. að
leita í óreiðu og ólagi á bókhaldi og
það fer mjög oft saman ólag á bók-
haldi og ólag á skattskilum.
Verslun var mikið til rannsóknar
á tímabili og sjálfsagt munu koma
upp nýjar atvinnugreinar á næstu
árum þar sem skattsvik eiga mögu-
leika.“
Skúli Eggert segir að það séu nú
liðin um 30 ár síðan skattrannsókn-
ir hófust formlega með lögum um
stofnun rannsóknadeildar ríkisskatt-
stjóra. „Þá töldu menn að þetta
væri tímabundið verkefni sem mundi
taka ákveðinn tíma að koma í lag.
Það reyndist nú ekki vera svo og
það er ekkert sem bendir til þess
að það verði eitthvert lát á þessu.
Vantalin velta til skatts hjá atvinnu-
rekstraraðilum er og verður megin-
viðfangsefnið hjá skattrannsóknar-
stjóra svo og vantalinn virðisauka-
skattur sem fylgir því.“
PÉTUR Blöndal, sem á sæti
í efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis, kveðst
hafa sett sig upp á móti
skorti á lýðræði í sjóðunum. „Ég
boðaði það að ég myndi flytja breyt-
ingatillögu um að sjóðirnir séu eign
sjóðfélaganna og að þeir kjósi stjórn
beint án milliliða á aðalfundi eða
með bréflegri kosningu. Einnig hef
ég sett mig á móti inngripum aðila
vinnumarkaðarins inn í þessa lög-
gjöf,“ sagði Pétur.
Hann sagði að margt í frumvarp-
inu væri afar þarft og orðið löngu
tímabært að setja í lög.
Hann sagði að hægt væri að leysa
vanda séreignarsjóðanna á auðveld-
an hátt. „Gallinn við almannatrygg-
ingakerfið er sá að það er ekki
búið að binda hnútana milli þess
og lífeyrissjóðanna. Þessi tvö kerfi
vaða áfram án tillits hvort til ann-
ars. Flóknar tekjuskerðingar eru
notaðar til þess að taka á oftrygg-
ingu en einfaldast væri að gera ráð
fyrir því að allir íslendingar hefðu
greitt í sameignarsjóð frá 1980. Þá
væri hægt að segja við þá sem ósk-
uðu eftir lífeyri hjá almannatrygg-
ingum að þeir ættu að eiga rétt hjá
lífeyrissjóðum sem væri hærri en
mörkin hjá almannatryggingum og
enginn lífeyrir stæði til boða þar.
Þannig tækju lífeyrissjóðirnir við
af almannatryggingum þegar fram
líða stundir, eða eftir 15-20 ár,“
sagði Pétur.
Sjóðfélagar í séreignarsjóðum
kaupi tryggingavemd
Einar Oddur Kristjánsson á einn-
ig sæti í efnahags- og viðskipta-
nefnd. Hann kveðst ekki kannast
við það að mikill ágreiningur sé í
nefndinni um frumvarpið og á von
á því að það fái þar hraða af-
greiðslu.
„Ég held að frumvarpið eigi mik-
inn stuðning í þinginu en ég ætla
ekki að fortaka það að engar breyt-
ingar verði gerðar á því. Ég tel að
það sé brýnasta úrlausnarefnið í
dag að gera áætlun um það hvern-
ig lífeyrissjóðirnir taki við á næstu
öld af almannatryggingakerfinu.
Ég er því í megindráttum samþykk-
ur þeirri rammalöggjöf sem núna
er verið að flytja. Mér
fyndist þó eðlilegt að
þeim sem hafa á móti því
að greiða inn í samtrygg-
ingarsjóði og vilja greiða
í séreignarsjóði verði það
heimilt gegn því að kaupa
sér tryggingarvernd sem tryggir
þá til æviloka. Áð öðrum kosti
næst aldrei það ætlunarverk okkar
að láta lífeyrissjóðina taka við af
almannatryggingunum á næstu
öld. Hins vegar eru skiptar skoðan-
ir um það hvort lífeyrissjóðir geti
verið bæði í senn sameignarsjóðir
og séreignarsjóðir. Sumum finnst
að leyfa eigi blandaða sjóði og ég
býst við að meginátökin verði um
þetta í nefndinni. En ég á von á
því að sjálft frumvarpið njóti mik-
ils stuðnings í þinginu," sagði Ein-
ar Oddur.
Hann segir að verði farin sú leið
að heimila sjóðfélögum í séreignar-
sjóðum að kaupa sér tryggingar-
vernd sé afar mikilvægt að sú
tryggingarvernd sé ítarlega skil-
greind svo ljóst sé að menn séu
tryggðir og eftirlit sé haft með því.
Ágúst Einarsson, varaformaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, segir að komið hafi fram
við fyrstu umræðu um frumvarp
ríkisstjórnarinnar um lífeyrissjóð-
ina að mjög skiptar skoðanir séu
um málið, einkum meðal stjórnarl-
iða. Hann kvaðst hafa haft af því
spurnir að Alþýðusambandið og
Vinnuveitendasambandið hygðust
senda nefndinni sameiginlega um- -
sögn um frumvarpið sem væri afar
óvenjulegt.
Ágúst segir að stjórnarandstað-
an hafi gert ýmsar athugasemdir
verkalýðshreyfingarinnar að sín-
um.
„Það sem stjórnarliðar hafa
gagnrýnt eru þættir sem snúa að
því hvernig menn geta valið sér
lífeyrissjóði. í frumvarpinu er gert
ráð fyrir því að það fari eftir kjara-
samningi, lögum eða ráðningar-
samningum en aðrir hafa sagt, *
þ.á m. fulltrúar í efnahags- og við-
skiptanefnd, að menn eigi að fá
að velja alfarið í hvaða lífeyrissjóð
greiðslurnar eiga að renna. Rökin
gegn þessu eru þau að ef menn fá
að velja sér lífeyrissjóð muni sjóð-
irnir einnig velja sér sjóðfélaga sem
leiddi til þess að þeir sem eru dýrir
í tryggingu, eins og t.d. konur, sem
eru langlífari en karlar, og þeir sem
lakari heilsu hafa, munu eiga erfitt
með að fá aðkomu að lífeyrissjóð-
um,“ sagði Ágúst.
Skiptar skoðanir um þak á
skyldutryggingu
Hann telur að skynsamleg út-
færsla hafi verið valin að binda
a.m.k. 10% af launum inn í sam-
eignarsjóði og heimila sjóðfélögum
að ráðstafa því sem er umfram inn
í séreignarsjóði að þeirra vali.
„Virkir sjóðfélagar sem hafa verið
að greiða allan sinn sparnað í sér-
eignarsjóði eru um 3 þúsund talsins
en ekki 15 þúsund manns eins og
haldið hefur verið fram. í sameign-
arsjóði greiða um 135 þúsund
manns,“ sagði Ágúst.
Hann sagði að það væru einnig
skiptar skoðanir milli stjórnarliða
um það innan nefndarinn-
ar hvort þak ætti að vera
á skyldutryggingu sem
samkvæmt frumvarpinu
verður 10% af launum.
Þau sjónarmið séu uppi
að sanngjamt sé að þeir
sem hafi 150-200 þúsund kr. í laun
á mánuði greiði 10% í lífeyrissjóð
en einungis upp að 200 þúsund kr.
Aðili með hærri laun hafi frelsi til
þess að ráðstafa sjálfur sínum líf-
eyri umfram þessa fjárhæð.
Ágúst segir að það sé einnig
gagnrýnt bæði af stjórnarliðum og
stjórnarandstæðingum hvernig val-
ið er til stjórnar í lífeyrissjóðunum.
Nú sé aðeins gert ráð fyrir tilnefn-
ingu verkalýðsfélaga og vinnuveit-
endafélaga og þar sé um afar mið-
stýrða ákvörðun um val á stjórn
að ræða.
„Um þetta verður tekist á í
nefndinni. Nefndin byrjar að fjalla
efnislega um málið á morgun [í
dag],“ sagði Ágúst.
Spurnir af
sameiginlegri
umsögn ASÍ
og VSÍ