Morgunblaðið - 22.04.1997, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 22.04.1997, Blaðsíða 50
. 50 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1997 MINIUINGAR MORGUNBLAÐIÐ FANNAR ÞORLÁKUR SVERRISSON + Fannar Þorlák- ur Sverrisson fæddist í Reykjavík 29. nóvember 1968. hann lést af slysför- um 5. apríl síðast- iiðinn. Foreldrar hans eru Sverrir Theodór Þorláks- son matreiðslu- meistari, f. 2.6. 1933, og Krisljana Guðmundsdóttir, f. 7.3. 1939. Systkini hans eru Margrét, f. 22.11. 1961, og Þórarinn Gunnar, f. 23.8. 1973. Fannar var ókvæntur og barnlaus. Fannar lauk svif- flugprófi 15 ára að aldri, einkaflug- mannsprófi 18 ára og atvinnuflug- mannsprófi frá Bandaríkjunum 22 ára. Hann hafði einnig lagt stund á nám í listflugi er- iendis. Fannar starfaði sem fram- leiðslustjóri hjá Polyto-plastgerð. Utför Fannars fer fram frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Kveðja frá ömmu Á kveftjustund er margs að minnast og margt að þakka, allt sem var en orðin eru fá sem finnast þó fylli hjartað minningar. Eg man þín bernsku brosin hlýju þá bjarmi sólar lék um hár ungan dreng í örmum mínum, æskumann með von og þrár. .T Reyndi öllum gott að gera góðvild ríkti í þinni sál, bakhjarl þinna vina vera vanda leysa og bæta mál. Trútt var hjarta og trygg var hönd traust og sterk þín vinabönd. Frá jarðvist til eilífðar örstutt er skref vor alvaldur harmana sefi. í bænimar mynd þína og minningu vef, miskunnsemd drottinn þér gefí. Þú ljósið sem hjá okkur lýsti um stund uns leiddu þig örlög á skaparans fund. (Höf. Sigurunn Konráðsdóttir.) Um jökla vafðist júnínóttin blá, úr jörðu spruttu silfurtærar lindir. Við áttum vor sem aldrei líður hjá og elda sína bak við höfín kyndir. (Davíð Stefánsson) Elsku vinurinn minn, brátt kem- ur hin bláa júnínótt með sínar silf- urtæru lindir. En þá ert þú geng- inn inn í eilífðarvorið sem aldrei líður hjá frekar en okkar fornu vor. Og þótt óravíddir himins og hafs séu milli okkar munu þau vor ^kynda elda sína og ylja mér um ókomna tíð. Þau urðu fjögur vorin okkar saman áður en leiðir skildi. Vor full af gleði og ást, hamingju og hlátri. Því ef það var einhvers staðar kátína og sprell þá var það kringum þig. Þú varst svo stríðinn að áður en ég kynntist þér nánar fannst mér þú óþolandi. Við gátum hlegið okkur máttlaus að hinu og þessu í fari annarra, allt í góðlát- legu gríni, eins og þegar þú upp- nefndir mömmu þína og ömmu eða kallaðir mig Svínku. Þú umvafðir mig með gælunöfnum eins og Kisa og Snoppa... í fjögur ár gerðum við allt sam- an, vöknuðum og sofnuðum sam- x an, grétum og hlógum, spjölluðum og rifumst, því bæði vorum við skapmikil. Þú gast þagað í nokkra daga og ég þagði líka, þangað til þér þótti nóg komið og þú sagðir lausnarorðin: Selja mín, þú ert ágæt. Við fórum í endalausa göngutúra því þú elskaðir náttúr- una, að ég nú ekki tali um bíltúr- ana, bæði langa og stutta. í gamni og alvöru ræddum við um framtíð- ina, um börnin okkar sem áttu að heita Fannar og Selja af því okkur þóttu nöfnin okkar svo falleg. Eða -að þú vildir læra að dansa svo þú gætir dansað við mig í brúðkaup- inu okkar ef ég vildi einhvern tíma giftast þér. Stundum spiluðum við kleppara, tveggjamannakapal og lönguvitleysu heilu næturnar og læddumst svo heim til mömmu á Sunnuflötina um miðjar nætur og fengum okkur snarl. Hjá þér jafn- aðist ekkert á við vöfflurnar henn- ar mömmu og oft var hún búin að undirbúa komu litlu næturmús- anna þegar þær gægðust inn. Eg elti þig upp um fjöll og firn- indi þegar þú fórst á veiðar, þótt mér þættu þær ógeðslegar. Ég elti þig líka upp í heiðloftin blá því það varð mér fljótlega ljóst að sá sem ekki fyndi unað i að svífa um him- insins bláu boga ætti litla samleið með þér. Marga stundina svifum við saman í þögninni með eilífðina framundan, himinhvelfinguna yfir okkur og úfin hraunin og dimmblá fjöllin undir. Þær tilfinningar sem hrærast í bijóstum manns á slíkri stundu skilur enginn nema sá sem reynt hefur. Þú reyndir líka árang- urslaust að kenna mér að fljúga þótt öðrum tækist það ágætlega. Þér þótti of vænt um mig sögðu þeir, þú skyldir hættur flugsins og mundir aldrei þora að sleppa mér einni. í vélflugunum tylltum við niður tá vítt og breitt um landið, skoðuðum Garðabæinn, hraunið og bæjarlækinn okkar úr lofti eða brugðum okkur austur að Höfða þar sem amma og allt hennar fólk átti rætur sínar. Við lögðum ekki bara ísland undir okkur. Saman fórum við til Bandaríkjanna þar sem þú varst í flugnámi og í sumarleyfunum heimsóttum við hin og þessi lönd. Við vorum bæði spennufíklar eins og sést á því að í einni ferðinni fórum við á hverjum degi aftur og aftur í rússíbanann í tívoliinu. En ef til vill standa þær upp úr hversdagsstundimar óteljandi þeg- ar við gerðum alls ekki neitt nema vera saman og vera til. Það var gott að vera í Hlíðarbyggðinni þar sem foreldrar þínir dekruðu við okkur, þótt þú kæmir þér ekki að því að kynna mig fyrir þeim þótt við værum komin í formlega sam- búð, og þau byggju í sama húsi Ég varð sjálf að taka af skarið, lalla upp og segja: Komið þið sæl, ég heiti Selja Dís og er kærastan hans Fannars! En umhyggja þín var óendanleg, þú keyrðir mig og sóttir, þú hringd- ir hvenær sem færi gafst. Við skruppum í mat til pabba þíns í Tæknigarði, þú skaust heim úr vinnunni í kaffisopa þótt stundin væri stutt eða leist inn til mín í vinnuna. Eftir að ég fór að fljúga hjá Atlanta skrifaðir þú mér á hveijum degi: „Elsku Selja við Teddi (bangsinn sem þú gafst mér) söknum þín, við viljum að þú komir heim. Það er enginn til að gefa okkur að borða. Ég vildi óska að þú værir hér.“ Þú sem varst í eðli þínu lokaður opnaðir þín innstu hjartans djúp í bréfunum. En um leið og þú umvafðir mig og elskaðir varst þú eigingjarn á mig, nokkuð sem stundum varð erfitt. En sjálfsagt, má segja það sama um mig, þvi þótt mér þætti þú óþolandi stríðnistöffari áður en ég kynntist þér gerði ég mér ljóst að ég var ekkert ein um að þykja þú bæði glæsilegur og skemmtileg- ur. Þú varst alltaf umsvermaður, enda hrókur alls fagnaðar hvar sem þú komst, og húmoristi fram í fingurgóma. Hvergi naust þú þín heldur eins vel og í hópi svifflugfé- laganna, þið skilduð hver annan og töluðuð sama mál. Og oft skemmtum við okkur saman í þeim góða hópi. En nú ert þú horfinn úr hópnum, horfinn þeim, horfinn foreldrum þínum og ættingjum, horfinn vinunum, horfinn mér, horflnn inn í eilífðarvorið „sem elda sína bak við höfin kyndir". Þar svífur þú um loftin blá og horfir niður til okkar hinna meðan júnínóttin vefst um jöklaná og tár okkar renna saman í silfurtærar lindir. Vinurinn minn, ég þakka þér árin okkar saman og bið góðan guð að styrkja alla ástvini þína. Þú yarst minn vetrareldur. Þú varst mín hvíta lilja, bæn af minum bænum og brot af mínum vilja. Við elskuðum hvort annað en urðum þó að skilja. (Davíð Stefánsson) Þín, Selja Dís. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgr. J. Hallgrímsson) „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag,“ segir Tómas Guðmunds- son þegar hann veltir fyrir sér lífs- hlaupi manna og er það vel til fund- ið. í fyrstu virðist svo ofureðlilegt að menn deyi, því ekkert líf er án dauða og enginn dauði án lifs. Þessum staðreyndum fær enginn breytt. En þrátt fyrir þessa vitn- eskju verðum við, sem eftir lifum, alltaf jafn undrandi þegar dauðinn knýr dyra hjá vinum og ættingjum. Fregninni um andlátið fylgir sárs- auki og harmur. Það eru svo óteljandi minningar sem sækja á hugann þegar ég hugsa um Fannar, vin minn, sem lést langt um aldur fram hinn 5. apríl sl. Útgeislun hans var mikil og heillandi hláturinn, brosið og hlýleg framkoman er það sem ég skynja svo sterkt núna er ég minn- ist hans. Ég þakka guði fyrir að hafa gefið okkur þá dýrmætu sam- verustund sem við áttum saman er við hittumst sama sólarhring og hann yfirgaf þetta jarðlíf og mun ég ávallt geyma hana i hjarta mínu. Við ræddum um heima og geima, rifjuðum upp öll gömlu skólaárin og allt það sem hann, ég og Danni höfðum brallað saman í gegnum tíðina og hlógum mikið að. Einnig ræddum við um framtíð- ina og við vorum strax farin að hlakka til að hitta alla skólafélag- ana þegar við yrðum þrítug. Því miður gat Fannar ekki verið með okkur á síðustu endurfundum okk- ar 1993, þar sem hann var erlend- is, og var hann mjög leiður yfir því. En það er öruggt að hann verður í huga okkar allra þegar að því kemur. Fannar átti mörg áhugamál, vildi taka þátt í öllu, prófa allt, en flugið skipaði þó langveglegastan sess í huga hans. Drifkrafturinn var óþijótandi og gerði hann allt vel sem hann tók sér fyrir hendur. Er það mál reyndustu manna að hann hafl verið afskaplega fær flugmaður. Þakklæti mínu fyrir að fá að njóta svo margra góðra sam- verustunda með Fannari allt frá barnæsku verður best lýst með ljóði Margrétar Jónsdóttur: Ég þakka alit frá okkar fyrstu kynnum, það yrði margt ef telja skyldi það. I lífsins bók það lifír samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu hvíta stóra hjarta þá helgu tryggð og vináttunnar Ijós er gerir jafnan dimma daga bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. Elsku Sverrir, Kristjana, Mar- grét og Þórarinn, megi algóður guð halda í hendur ykkar á þessari sorgarstundu, umvefja ykkur ijósi og kærleika í þessum sára missi og gefa ykkur styrk. Ruth Örnólfsdóttir. Veistu, ef þú vin átt, þann er þú vel trúir, og vilt þú af honum gott geta, geði skaltu við hann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Hávamál.) Laugardaginn 5. apríl fengum við þær hörmulegu fréttir að Fann- ar vinur okkar væri dáinn. Hann- hafði lent í hræðilegu flugslysi skammt frá heimili okkar fyrr um daginn. Þegar ungur maður í blóma lífsins fellur frá koma upp margar spurningar, spurningar sem aldrei fást svör við. Það er af ótal mörgu að taka þegar hugur- inn leitar til baka því saman áttum við margar góðar stundir, stundir sem aldrei gleymast. En nú er stórt skarð höggvið í hóp traustra vina og er okkur þakklæti efst í huga, þakklæti fyrir að hafa átt svo góð- an vin. Það er okkar sem eftir stöndum að halda uppi minningu um góðan dreng. Við kveðjum þig með virðingu, vertu sæll, kæri vinur. Orri og Rósa Björg. Kæri vinur, aldrei hefði mig órað fyrir því að þú færir svona snemma inn í eilífðina og aldrei mun ég skilja af hveiju ég var ekki með þér í vélinni eins og við vorum búnir að skipuleggja í morgunkaff- inu á laugardaginn 5. apríl. Þú varst glaður eins og ávallt og fórst nákvæmlega yfir þær æfingar sem við ætluðum að gera enda var þér öryggið mjög ofarlega í huga. Ég mun seint gleyma hversu góð tök þú hafðir á þeim vélflugum og ekki síður svifflugum sem þú flaugst, alltaf fannst mér flugvélin vera hluti af þér og ég fann alltaf þetta öryggi stafa frá þér. Uppi í loftinu varstu hluti af elementun- um. I huga mínum renna endur- minningarnar um þig og þína miklu persónutöfra, fyrir þér var ekkert sem heitir kynslóðaskipti, þínir nánu vinir voru á öllum aldri, ég er þakklátur fyrir þau ár sem þú gafst mér sem vinur og starfs- maður, ég mun sakna allra okkar stunda, en geymi dýrmætan fjár- sjóð innra með mér. Ég er þakklát- ur fyrir allar gleði-, kátínu- og ekki síður prakkaraskapsstundirn- ar sem við vorum svo samtaka í, en ofar öllu er sú vissa og vakning sem við upplifðum saman í leit er snerti trúmál. Elsku Kittý, Sverrir og Margrét og aðrir aðstandendur og vinir, megi æðri máttur styrkja ykkur í ykkar djúpu sorg en gleymið ekki þeirri staðreynd að neikvæðar minningar eru ekki til um þennan góða dreng sem var gleðigjafi hvar sem hann kom og fór. Blessuð sé minning þín. Gunnar. Kæri Fannar. Okkur langar að kveðja þig með fáeinum orðum, þegar þú hefur flogið þitt hinsta flug í þessari jarðvist. í flestum vinahópum er einn einstaklingur sem hefur orku og kraft umfram aðra, geislar frá sér og drífur aðra með sér. Þú varst slíkur maður. Þú bjóst yfir innri krafti og bjart- sýni sem smitaði frá sér og þú hvattir okkur hina til verka, hjálp- samur og drífandi. Þegar við byijuðum að fljúga svifflug fyrir 15-20 árum varst þú lítill polli sem komst með Sverri pabba þínum upp á Sandskeið. Þú sast með skófíu úti í sandi og mokaðir meðan pabbi var að fljúga og fékkst síðan að fara í flug. Það var snemma ljóst að þú hafðir fengið flugbakteríuna að erfðum frá pabba þínum sem hefur verið virkasti kennari Svifflugfélagsins í gegnum tíðina. Þú varðst fljótlega mjög fær og fórst að fljúga einn um leið og aldur leyfði. Síðan höf- um við stundað svifflugið saman, tekið þátt í starfseminni á Sand- skeiði, reynt okkur við að fljúga hærra, lengra og hraðar. Þú lést ekki þar við sitja, lærðir vélflug og stundaðir listflug bæði á svif- flugu og vélflugu. Þú stundaðir flugið af kappi og náðir mikilli færni. Það var ekki laust við að við öfunduðum þig þegar þú flaugst listflug með tilheyrandi lykkjum og veltum af öryggi og yfirvegun. Nemendur munu minn- ast þín sem framúrskarandi kenn- ara sem varst alltaf boðinn og búinn að miðla þeim af þekkingu þinni og færni. Þú var allra manna glaðlyndast- ur og mjög skemmtilegur félagi. Stríðnisglampinn í augunum var aldrei langt undan. En gamanið var alltaf græskulaust og beindist ekki síður að sjálfum þér en öðr- um. A síðari árum kepptum við allir í svifflugi. Þótt keppt væri af einurð og kappi var alltaf stutt í léttleikann og grínið. Þú varst öðr- um fremri í að færa ýmiss atvik í skemmtilegan búning sem er ómissandi hluti af góðum félags- skap. Þegar þú vannst einn af dögunum á síðasta íslandsmóti en náðir ekki alla leið til baka og þurftir að lenda í kartöflugarði rétt við flugvöllinn gerðir þú sjálf- ur mest grín að þessu. Þessi létt- leiki í og utan keppni gerði félags- skapinn ógleymanlegan. Við hittum þig síðast á fundi fyrir mánuði. Þú varst kátur að vanda, stutt í sumarið og þú ætlað- ir að fljúga mikið, bæði hér heima og svo ætlaðirðu að fara til Pól- lands að svífa. Þú lifðir fyrir flug- ið, það var líf þitt og yndi. Brotthvarf ykkar Þorgeirs er okkur svifflugmönnum mikið áfall. Þið hafið verið burðarásar í starf- seminni undanfarin ár. í raðir okk- ar hefur verið höggvið stórt skarð sem erfitt verður að fylla. En við vitum að hvorugur ykkar óskar þess að svifflugið leggist í lægð. Við munum halda minningu ykkar á lofti með öflugu svifflugstarfi. Kannski fljúgið þið með okkur í sumar, hver veit. Kæri vinur, við söknum þín sárt en erum þess vissir að glaðværð þín nýtur sín nú á öðrum stað. Þar getur þú án efa stundað eitthvað sem samsvarar svifflugi en með meira rennigildi en þekkist hérna megin. Eða ertu kannski alveg laus við hlekki efnisins og svífur sjálf- ur, fijáls og engum háður? Kæru Sverrir, Kittý, Margrét og Þórarinn. Við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur í sorg ykkar. Megi minningamar um góð- an dreng vera ykkur huggun. Magnús Ingi Óskarsson og Steinþór Skúlason. „Hæ, strákar, það eru komnar hérna stelpur, þær ætla að fá að fljúga." Þetta var um verslunar- mannahelgi fyrir sjö árum. Stelp- urnar sem um var rætt voru vinkon- ur sem höfðu, að áeggjan vina, ákveðið að prófa svifflug á Sand- skeiði. Ég var þarna komin vegna þess að mér fannst það þjóðráð til að losna við flughræðslu en ída vinkona mín vegna þess að hana hafði dreymt um að læra flug. Það var eins og við manninn mælt að við vorum teknar fram fyrir þá sem áttu skráð flug og drifnar í loftið. Kennarinn sem sat aftur í var liðlega tvítugur maður, Fannar Sverrisson. Hann fullvissaði mig um að ég hefði ekkert að óttast og þetta fyrsta flug verður ógleyman- legt. Eftir reynsluflugin hvatti Fannar okkur vinkonurnar eindreg- ið til að koma aftur sem fyrst, helst ættum við að drífa okkur í sóló um haustið. Það sem eftir var sumars og langt fram á haust vorum við flesta daga á Sandskeiði og flugum ef veður ieyfði, annars var setið yfir kaffibolla í Harðarskála eða farið í bæinn. Fannar var alltaf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.