Morgunblaðið - 05.12.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 13
FRÉTTIR
Morgfunbladið/Jón Svavarsson
Hlaut sænsk mál-
ræktarverðlaun
SÆNSKA Læknafé-
lagið hefur veitt Erni
Bjarnasyni yfirlækni
málræktarverðlaun
að tillögu orðanefndar
þess.
Um er að ræða heið-
ursverðiaun Fræðafé-
lags sænskra lækna,
og nema þau 15 þús-
und sænskum krónum
(150 þúsund ISK).
Sagt er frá þessu í
tímaritinu Nordisk
Medicin og vitnað í
umsögn orðanefndar-
Örn Bjarnason
innar þar sem segir
að Örn hafi unnið mik-
ið hugsjónastarf við
að byggja upp íslenskt
læknisfræðimál. Starf
hans sem ritstjóra
Læknablaðsins og höf-
undar íslenskrar orða-
bókar í háum gæða-
flokki um íðorð í lækn-
isfræði hafi verið fyr-
irmynd og hvatning til
allra þeirra sem hafa
áhuga á læknisfræði-
máli á Norðurlöndun-
um.
Eldvarnavika
slökkviliðs-
manna
LANDSSAMBAND slökkviliðs-
manna hefur síðustu ár efnt til
brunavarnaátaks um jól og ára-
mót. Brunavarnaátakið stendur
alla þessa viku undir yfirskrift-
inni „Eldvarnavika".
Slökkviliðsmenn um land allt
heimsækja grunnskóla landsins
með fræðslu um eldvarnir, þ.e.
47 skóla á Reykjavíkursvæðinu
og um 130 skóla á landsbyggð-
inni. Fræðslunni er sérstaklega
beint að 3. bekk grunnskóia-
nema og var meðfylgjandi mynd
tekin á miðvikudag þegar börn-
in í Hlíðaskóla fengu heimsókn
frá slökkviliðsmönnum.
Um er að ræða samstarfs-
verkefni Landssambands
slökkviliðsmanna, slökkvilið-
anna i landinu og grunnskól-
anna.
-----»-♦ 4----
Vara við
leysi-
bendum
GEISLAVARNIR ríkisins hafa
sent frá sér tilkynningu þar sem
varað er við gáleysislegri notkun
svokallaðra leysibenda.
Leysibendar eru lítil áhöld með
leysilampa sem sendir frá sér
sterkan rauðan ljósgeisla og eru
einkum ætlaðir fyrirlesurum,
kennurum og öðrum sem þurfa að
beina athygli að atriðum á töflu
eða tjaldi.
Geislavörnum hafa borist ábend-
ingar um að börn og unglingar
hafi að undanförnu verið að leika
sér með leysibenda og jafnvel lýst
með þeim í andlit annarra. Geislinn
frá þessum bendum getur verið það
sterkur, að fullrar varúðar sé þörf,
og samkvæmt alþjóðlegum viðmið-
unum er styrkur ljósgeisla frá sum-
um af þessum leysibendum meiri
en svo að lýsa megi í augu.
Bannað í Bretlandi
Fram kemur hjá Geislavömum,
að yfírvöld í mörgum löndum hafi
vaxandi áhyggjur af gáleysislegri
notkun þessara áhalda. Hafi leysi-
bendar m.a. verið notaðir til aað
trufla íþróttakappleiki. Almennt
hafi þessi notkun verið talin skapa
óþægindi frekar en beina hættu.
Til skamms tíma hafi sala á leysi-
bendum því ekki verið takmörkuð
eða bönnuð en nú hafi bresk yfir-
völd riðið á vaðið og takmarkað
sölu á aflmiklum leysibendum og
líklegt sé að fleiri fylgi í kjölfarið.
Hafa Geislavarnir ríkisins tekið
saman fræðsluefni um notkun
leysibenda og er það að finna á
heimasíðu stofnunarinnar á Alnet-
inu. Netfang heimasíðunnar er
http://www.geirik.is.
MAX er islenskt iðnfyrirtæki sem hefur
starfað við fataframleiðslu siðan árið
1941. Starfsfólk fyrirtækisins leggur
metnað í hönnun og vandaða framleiðslu
sem uppfyllir kröfur íslenskra neytenda
MAX framleiðir úrval af útivistar- og
vinnufatnaði þar sem áhersla er lögð
á gæði, þægindi og notagildi.
Hægt er að renna vatt- eða fleece-
jakka inn í F2000 öndunarjakkann.
•f
MAX fatnaðurinn fæst í MAX-Húsinu
og hjá umboðsmönnum um land allt.