Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997
4
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/RAX
JÓHANNES Kristjánsson og Þórir Kjartansson, hluthafar í Vík-
urplasti ehf., með sýnishorn af væntanlegri framleiðslu.
Plastverksmiðja stofnuð í Mýrdalnum
Frá geirfugls-
nefjum til báta
STOFNAÐ hefur verið einkahluta-
félag um rekstur trefjaplastverk-
smiðju í Vík í Mýrdal. Aðstandend-
ur verksmiðjunnar vonast til að hún
verði lyftistöng fyrir atvinnulífið í
plássinu.
Víkurplast ehf. verður með starf-
semi sína I sláturhúsi SS sem stað-
ið hefur ónotað í Vík í nokkur ár.
„Þetta kom þannig til að Birgir
Hinriksson í Vík spurði mig að því
hvort ég þekkti ekki einhvern sem
vildi koma með rekstur og setja upp
í sláturhúsinu. Ég hringdi nokkur
símtöl, meðal annars í kunningja
minn í Vestmannaeyjum, Sigurð
Óskarsson kafara sem þar rekur
fyrirtækið Eyjaplast. Kom þá í ljós
að annað bæjarfélag var að kanna
möguleika á samstarfi við hann um
framleiðslu úr trefjaplasti svo við
drifum í þessu og gengum frá því
að komið yrði upp trefjaplastverk-
smiðju hér,“ segir Jóhannes Krist-
jánsson á Höfðabrekku, stjómarfor-
maður Víkurplasts ehf.
Óendanlegir möguleikar
Fyrirtækið tók sláturhúsið á leigu
og er að búa það undir reksturinn.
Jóhannes tekur fram að húsið hafí
staðið ónotað og SS hafi stutt við
bakið á þessu framtaki með því að
krefjast sanngjarnrar leigu og
leggja auk þess fram hlutafé.
Að Víkurplasti standa einstakl-
ingar, félög og stofnanir, bæði í
Mýrdalnum og utan hans. Jóhannes
segir stefnt að því að hlutafé verði
að minnsta kosti 10 milljónir kr.
og gangi hlutafjársöfnun vel.
Unnið er að lagfæringum á hús-
inu og vélakaupum og er áætlað
að framleiðsla hefjist í janúar.
Starfsmenn verða þrír í upphafi en
stefnt er að því að fjölga þeim fljót-
lega í sex.
í verksmiðjunni verða í byijun
framleiddar vörur sem Sigurður
Óskarsson hefur hannað og nú eru
framleiddar í fyrirtæki hans í Eyj-
um. Þar er um að ræða ruslaskápa,
verkfærakistur, rafgeymakassa í
báta og bíla og lyfjaskápa í útihús.
Fleiri framleiðsluvörur eru í undir-
búningi sem Jóhannes segir ekki
tímabært að skýra frá. Fyrirtækið
byggir tilveru sjna á hugmynda-
auðgi Sigurðar Óskarssonar. Hann
er stöðugt að hanna nýja hluti og
smíða fyrir þá mót. Vörurnar verða
síðan framleiddar hjá Víkurplasti.
Jóhannes er bjartsýnn á góðan
árangur fyrirtækisins, segir að
möguleikamir séu nánast ótæmandi
á þessu sviði. „Láttu þér detta eitt-
hvað í hug og við skulum framleiða
það,“ segir hann. Sem dæmi um
fjölbreytileikann nefnir hann að
Sigurður hafi smíðað sér sumarhús
og bát úr trefjaplasti og hann sé
Iíklegast sá eini í heiminum sem
framleiði geirfuglsnef fyrir safnara
og náttúrugripasöfn.
LAIMDIÐ_________________ f
Skagfirðingar áhuga- •
samir um stóriðju
Húsavík - Bárður Guðmundsson,
héraðsdýralæknir á Húsavík, er
nú að reisa dýraspítala sem stað-
settur er sunnan hesthúsahverfís-
ins við Traðargerði og í nábýli við
fjárhúsahverfið sunnan Húsavík-
urlækjar sem eitt sinn var þekktur
en fáir vita nú hvar er.
Eins og flestir dýralæknar
landsins hefur Bárður haft sína
spítalaaðstöðu í viðbyggðum bíl-
skúr við íbúðarhús sitt sem hann-
aður var fyrir bíl en ekki dýr.
Hið opinbera styrkir þessa
framkvæmd á engan hátt heldur
fjármagnar Bárður hana sjálfur
en þetta mun verða mjög til hags-
bóta fyrir bændur og aðra þá sem
dýr eiga.
Nokkuð lengi stóð í stappi með
lóð fyrir spítalann en fengist hef-
ur staðsetning hans þar sem al-
mennt mun vera talið að hún sé
heppileg.
Sauðárkróki - Í nýútkominni
skýrslu Byggðastofnunar kemur
fram að íbúar á Sauðárkróki hafa
einna mestar áhyggjur allra lands-
manna af atvinnumálum, atvinnu-
öryggi og tekjumöguleikum sínum,
og kom þetta berlega í ljós á fundi
sem boðað var til á vegum Stefáns
Guðmundssonar alþingismanns,
með Finni Ingólfssyni iðnaðarráð-
herra á Kaffi Króki á þriðjudags-
kvöldið. Rétt um tvö hundruð gest-
ir sátu fundinn.
Stefán Guðmundsson skýrði frá
því að fundurinn væri boðaður með
skömmum fyrirvara vegna anna
ráðherrans, en þetta var eina
kvöldið sem um var að ræða fram
til jóla, til þess að kynna Skagfirð-
ingum þær hugmyndir sem nú
nýlega hafa komið fram um að
reisa olíuhreinsunarstöð í Skaga-
firði.
í inngangserindi sínu fjallaði
ráðherrann um markmið stjórn-
valda um nýtingu orkuauðlinda
landsins, og kom þar meðal annars
fram að ekki væru líkur á að ný
orkufrek iðnfyrirtæki yrðu reist á
suðvesturhorninu, þar sem flutn-
ingsgeta á orku þangað væri ekki
meiri en næmi þeim stækkunum
sem gert væri ráð fyrir við núver-
andi fyrirtæki.
Því væru mestar líkur á að ef
samningar næðust við Norsk
Hydro um byggingu nýs álvers,
yrði það reist á Reyðarfirði þar sem
sú staðsetning væri hagkvæmust,
miðað við orkuvinnsluna. Hins veg-
ar yrði þá ekki unnt að reisa þar
olíuhreinsunarstöð, en umræður og
athuganir hafa verið í gangi um
samvinnu við bandarísk/rússneskt
fyrirtæki varðandi byggingu slíkr-
ar stöðvar hérlendis, og hafa þeir
aðilar haft hug á Reyðarfjarðar-
svæðinu sem valkosti eitt.
Ráðherrann sagði hér ekki vera
um orkufrekan iðnað að ræða og
því hentaði Skagafjarðarsvæðið vel
til þessara nota, hér væri aðkoma
góð á sjó og svæðið lægi vel við
siglingum frá nýjum olíuvinnslu-
stöðvum í Barentshafi, og áleiðis
til markaðar vestanhafs.
Ef af þessu yrði sagði Finnur
að hér væri verið að ganga til sam-
starfs við mjög traust alþjóðlegt
fyrirtæki sem sérhæft hefði sig í
olíuiðnaði, og yrði allur tæknibún-
aður fluttur inn frá Bandaríkjun-
um, en uppsetning, eftirlit og þjón-
usta við stöðuna yrði í höndum
íslendinga.
Gert væri ráð fyrir uppbygg-
ungu í tveim áföngum, fyrst stöð
sem annaði einni milljón tonna og
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
HVERT sæti var skipað á fundi á Sauðárkróki um olíuhreinsunarstöð og stóriðju.
væri þar um að ræða fjárfestingu
upp á sautján milljarða, sem veita
mundi um tvö hundruð manns at-
vinnu. í síðari áfanga væri unnt
með stækkun að auka afkastaget-
una í fjórar milljónir tonna og
mundi sú fjárfesting vera um sjö-
tíu milljónir og þá mundi mann-
aflaþörf tvöfaldast.
Lítil mengunarhætta
Að ioknu framsöguerindi komu
fram margar fyrirspurnir, bæði
varðandi mengunarhættu, óöryggi
í siglingum vegna ísa og margt
fleira. í svörum ráðherra kom fram
að af stöðinni sjálfri er sáralítil
mengunarhætta, en eins og bent
var á væri aðalhættan vegna sigl-
inga með hráefni og afurðir til og
frá stöðinni.
Þeir sem tóku til máls lýstu
ánægju sinni með fundinn og þær
miklu upplýsingar sem ráðherrann
veitti, og hvöttu til þess að málið
væri skoðað með jákvæðum hug,
sérstaklega með tilliti til þess að
Norðurland vestra er verulegt lág-
launasvæði, en Ijóst er að stóriðja
sem hér um ræðir er líkleg til að
greiða um það bil 40% hærri laun
en fást við sambærileg störf og í
almennum iðnaði í dag.
c
i
fl
I
f
I
Söngvaka
á Patreksfirði
Patreksfirði - Söngvaka var
haldin í félagsheimilinu á
Patreksfirði 30. nóvember sl.
Það var sönghópur sem kall-
ar sig Farfugla sem stóð fyr-
ir vökunni. í hópnum er fólk
á aldrinum 21-67 ára og var
ekki annað að sjá en að það
gengi vel þrátt fyrir aldurs-
muninn. Leikið var undir á
harmoníku og gítar.
Á dagskrá voru dægurlög
frá árunum 1940-55. Einnig
voru tekin lög eftir Steingrím
Sigfússon en hann var organ-
isti á Patreksfirði um þetta
leyti. í þá gömlu góðu daga
voru ekki til plötuspilarar og
notaði fólk hér eins og ann-
ars staðar útvarpið sem spil-
aði með gömlu dansana og
djass. Og sumir voru svo
heppnir að eiga góð útvörp
og gátu þá náð að hlusta á
Radio Luxemborg. En unga
fólkið á Patró var heppið, það
hafði Steingrím sem var iðinn
við að semja ný og falleg
dægurlög sem fólkið lærði
fljótt.
Góðar undirtektir voru í
sal þegar sunginn var fjölda-
söngur enda er talið að þarna
hafi verið yfir 150 manns.
Börn og húsmæður gerðu
línudansinum góð skil og í
hópi húsmæðra mátti sjá ung-
ar ömmur sem dönsuðu af
lífi og sál. Og þar sem senn
fer að styttast til jóla þá var
blaðinu snúið við og eftir
kaffihlé og sungnir jóla-
söngvar.
Ekki bar á öðru en að fólk
skemmti sér vel og varð sum-
um á orði að ef þetta yrði
endurtekið myndi það mæta
aftur og það segir allt sem
segja þarf um söngvöku
þessa.
Morgunblaðið/Silli
Dýraspítali byggður á Húsavík