Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlutabréf í News
Corp. ekki hærri
í29 mánuði
Hækun rakin til velgengni tveggja kvikmynda
Sydney. Reuters.
HLUTABRÉF í News Corp, fyrir-
tæki Ruperts Murdochs, hafa ekki
verið hærri í 29 mánuði vegna þess
að tvær Hollywood kvikmyndir
hafa gengið vel og auknar líkur eru
á bættum hag fyrirtækisins.
Hlutabréf í News Corp seldust á
7,97 Astralíudala og höfðu hækkað
um 15 sent við lokun en komust
hæst í 8,04 dolara — hæsta verð
síðan í júlí 1995.
Verðhækkunin stafar af vel-
gengni tveggja kvikmynda 20th
Century Fox, Alien Resun-ection
og Anastasia helgina eftir þakkar-
gjörðarhátíðina í Bandaríkjunum í
nóvemberlok.
Aætlað er að miðar að Alien
Resurrection hafi selzt fyrir 27,2
milljónir Bandaríkjadala á fimm
dögum og var aðeins ein kvikmynd
söluhærri.
Anastasia var í þriðja sæti og
áætlað er að miðar að henni hafi
selzt fyrir 16,7 milijónir Banda-
ríkjadala á fimm dögum. Þó hrap-
aði myndin um eitt sæti á metsölu-
listanum á einni viku.
Ekkert Titanic slys
Um leið segja sérfræðingar að
trú fjárfesta á væntanlega kvik-
mynd um Tftanic-slysið hafi aukizt,
enda hefur hún fengið góða dóma.
Gerð Titanic mun kosta um 200
milljónir Bandaríkjadala. Um tíma
var talið að eins mundi fara fyrir
kvikmyndinni og Titanic í jómfrúr-
ferðinni. Upphaflega átu sýningar
á myndinni að hefjast í maí.
Nýlega tilkynnti Fox sjónvai-p
News Corp í Bandaríkjunum að
áhorfendum þess í nóvember hefði
fjölgað um 1% og afkoma fyrir-
tækiasins á síðasta ársfjórðungi
var talsvert betri en sérfræðingar
höfðu spáð.
Verð hlutabréfa í News Corp
hefur hækkað um 25% á fjórum
vikum, á sama tíma og áströlsk
hlutabréf hafa snarlækkað vegna
niðursveiflunnar í Austur-Asíu.
Porsche annar
ekki eftirspum
Stuttgart. Reuters.
ÞÝZKI sportbflaframleiðandinn
Porsche AG kveðst ekki geta annað
eftirspurn vegna takmarkandi
framleiðsluþátta.
Stjómarformaður Porsche,
Wendelin Wiedeking, sagði á árleg-
um fréttamannafundi fyrirtækisins
að það stæði frammi fyrir alvarleg-
um hindrunum á framleiðslunni, sem
mundu takmarka áframhaldandi
hagnað og söluaukningu á yfirstand-
andi fjárhagsári sem lýkur í júlí.
Porsche getur því ekld smíðað
nógu marga tveggja sæta Boxster
og klassíska 911 bfla fyrir viðskipta-
vini sína.
í fyrra smíðaði Porsche 32.390
bíla, en í ár er gert ráð fyrir að
framleiða um 38.000 i ár í verk-
smiðjunni nálægt Stuttgart og með
hjálp verktakans Valmet í Finn-
landi.
Stefnt hefur verið að því að auka
framleiðsluna í Valmet í yfir 5.000
Boxster bfla, sem getur reynzt
erfitt, en er ekki ómögulegt.
Umskipti á nokkrum árum
Mikil umskipti hafa orðið hjá
Porsche síðan snemma á þessum
áratug þegar mikið tap var á
rekstrinum og fyrirtækið virtist
ramba á barmi gjaldþrots.
Undir forystu Wiedekings hefur
Porsche skorið niður kostnað, fækk-
að tegundum í tvær og náð meiri ár-
angri en flest önnur fyrirtæki í bíla-
iðnaði.
Gorbatsjov
auglýsir
Pizza Hut
Moskvu.
MIKHAIL Gorbatsjov, „faðir
glasnost, kemur fram í aðal-
hlutverki í milljón doliara aug-
lýsingu um Pizza Hut, hina
kunnu veitingahúsakeðju.
Samkvæmt handritinu pant-
ar Gorbatsjov risapítsu og
hrópa þá gestir veitingahúss-
ins: „Lengi lifi Gorbatsjov, sem
færði okkur Pizza Hut.“
Auglýsingin verður líklega
ekki sýnd í Rússlandi. Þar er
fylgi Gorbatsjovs innan við 1%
og lítill akkur talinn í að sýna
auglýsingar með honum.
Warner
Bros í
lægð
New York. Reuters.
WARNER Bros. er í öldudal
vegna minni miðasölutekna,
sem hafa vakið áhyggjur í
Wall Street að sögn New York
Times.
Ástandið vekur spurningar
um aukin hlutverk tveggja að-
alæstjómenda Warner Bros,
Roberts Dalys og Terrys Sem-
els að sögn blaðsins.
Stjórnendur færzt
of mikið í fang?
í heild virðist starfsemi
móðurfyrirtækisins Time
Wamer í skemmtanaiðnaðin-
um hafa gengið vel í ár, en í
Hollywood velta menn því fyr-
ir sér hvort yfirmennirnir hafa
færzt of mikið í fang þegar
þeir tóku einnig við tónlistar-
iðnaði Warners í heiminum að
því er blaðið segir
Daly og Semel hafa átt með
sér árangursríkt samstarf í 17
ár, en em hálfgerðir nýgræð-
ingar í tónlistargeiranum, seg-
ir blaðið.
Sendiherra Suður-Kóreu afhendir forseta íslands trúnaðarbréf sitt
„Hstgkerfi Suður-Kóreu
traust til lengri tíma litið“
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!
EFNAHAGSORÐUGLEIKAR
Suður-Kóreu hafa verið ofarlega á
baugi að undanfömu, en sem kunn-
ugt er hefur nú verið gengið frá um-
fangsmestu fjárhagsaðstoð sem
nokkurt land hefur fengið fyrir til-
stilli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
IMF. Mun landið fá að láni um 55
milljarða dala eða sem nemur 3.900
milljörðum íslenskra króna, til að
greiða niður skammtímaskuldir
bankakerfisins þar í landi.
Sei Hoon Yang, sendiherra Suð-
ur-Kóreu í Noregi og á Islandi. af-
henti forseta íslands, herra Olafi
Ragnari Grímssyni, trúnaðarbréf
sitt í síðastliðinni viku. Aðspurður
um þá erfiðleika sem nú steðja að í
MhV
HÁÞRÝSTI
DÆLUR
- fyrir heimilið
SKEIFUNNI 3E-F • SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215
\1
ffilodozd
SOKKABUXUR SEM MÓTA LÍKAMANN
ÞÚFDNNUR
MUMNN
SLIM UP
Útsöluscaðin Hagkaup Skeifen, Hagkaup Kringlan, ja a
HagkaupAkurcyri,Fjarðarkaupogíflcstumapótekum. «« CltJll
Suður-Kóreu, segir Yang
að mjög góður árangur hafi
náðst á undanförnum ár-
um. Suður-Kóreska hag-
kerfið sé nú hið 11. stærsta
í heimi og hagvöxtur hafi
verið mikill undanfarin ár.
Spáð sé 6% hagvexti á
næsta ári en stjómvöld séu
hins vegar að reyna að
stemma stigu við svo hröð-
um vexti.
Yang segir hins vegar að
staðan í efnahagsmálum
Suður-Kóreu til lengri tíma
litið sé mjög traust. Þetta sé
samdóma álit sérfræðinga
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
og fleiri sérfræðinga. Utan-
rfldsviðskipti hafi verið að
aukast á undanfömum ár-
um auk þess sem gengis-
lækkun Suður Kóreska
„wonsins“ hafi dregið úr
viðskiptahallanum á
ákveðnum sviðum, og bætt
samkeppnisstöðuna gagn-
vart ýmsum japönskum vör-
um svo sem tölvum og bfl-
um. Hann segir að orsök
erfiðleikanna nú sé þríþætt.
„Fyrirtækin í landinu
hafa verið að þenja sig
mjög hratt út þar sem þau
töldu að slík útþensla
myndi bæta samkeppnis-
hæfni þeirra. Þessi þensla
hefur hins vegar reynst vera of mik-
il. Þetta er ein ástæða þeirra vand-
ræða sem efnahagslíf okkar á við að
etja.
Þá hafa lítt ákjósanlegar starfs-
aðferðir bankakerfisins við lánveit-
ingar til stórfyrirtækja átt sinn þátt
í þessum erfiðleikum. Bankamir
hafa heldur ekki reynst tilbúnir til
að sameinast til að styrkja stöðu
þeirra. Okkur var margsinnis bent á
að Suður-Kórea þyrfti að gera
ákveðnar umbætur í fjármálakerfi
landsins, en það dróst af mörgum
ástæðum. Rflösstjómin lagði fjár-
málaumbætur sínar fyrir þjóðþingið
en þær hafa hins vegar ekki náð
fram að ganga enn.“
Morgunblaðið/Árni
SEI Hoon Yang, nýskipaður sendiherra
Suður-Kóreu á íslandi.
Leitt til óviðunandi
greiðsluhæfis
Yang segir að þriðja ástæða fjár-
hagserfiðleika Suður-Kóreu sé mik-
ill viðskiptahalli og halli á greiðslu-
jöfnuði við útlönd sem leitt hafi til
þess að gjaldeyrisforði landsins hafi
verið orðinn of lítill. Seðlabanki
landsins hafi þurft að hlaupa undir
bagga og greiða upp skammtímalán
bankakerfisins.
„Þetta er meginástæðan fyrir erf-
iðleikunum í Suður-Kóreu í dag, þ.e.
ófullnægjandi greiðsluhæfi lands-
ins.“
Yang segir að þessu til viðbótar
skapi forsetakosningar í Suður-
Kóreu í desember ákveðna
óvissu. Forseti landsins
hafi mikil völd, ekki aðeins
á sviði stjórnmála heldur
einnig í efnahagslífinu.
„Því hefur viðskiptalífið
beðið til að sjá hver verði
næsti forseti landsins.
Þetta stafar af því að
stefna stjómvalda kann að
breytast. Grundvallar-
stefna okkar stendur
óhögguð, þ.e. við stefnum í
átt að frjálsu og opnu hag-
kerfi og lýðræði, en smáat-
riðin í stefnu stjórnvalda
svo sem umbætur í fjár-
málakerfi landsins, munu
alltaf ráðast af því hver
verður næsti forseti lands-
Góð tengsl við ísland
Yang segir samskiptin
við ísland hafa gengið
mjög vel enda engin
ágreiningsefni á milli land-
anna tveggja. „Jafnvel þó
að viðskipti milli þessara
landa hafi ekki verið mjög
mikil til þessa hafa þau
verið að aukast jafnt og
Sæberg Þétt. Ég vil gjarnan finna
leiðir til að auka viðskipti
milli landanna auk annarr-
ar efnahagslegrar sam-
vinnu. Ég hef hitt nokkra
háttsetta embættismenn í utanríkis-
ráðuneytinu vegna þessa auk þess
sem ég tók með mér hingað til lands
viðskiptafulltrúa sendiráðs okkar í
Ósló.“
Yang segir að líkast til megi
fjölga talsvert ferðamönnum frá
Suður-Kóreu hingað til lands. Hann
bendir á að Kóreubúar hafí í aukn-
um mæli verið að fara til Noregs,
Svíþjóðar og Danmerkur, en ísland
hafi gjarnan haft þá ímynd að land-
ið væri afskekkt og langt frá megin-
landi Evrópu. „Með góðri kynningu
væri hins vegar hægt að sýna Suð-
ur-Kóreubúum að landið er ekki svo
afskekkt og að hingað sé áhugavert
að koma.“