Morgunblaðið - 05.12.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 39
BÆKUR
Endurminningar
LÍF OG TRÚ
Endurminningar og hugleiðingar
Péturs Sigurgeirssonar biskups. 255
bls. Vaka-Helgafell. Prentun: Oddi
hf. Reykjavík, 1997. Verð kr. 3.980.
Með reisn
og alúð
ÞETTA er kristileg bók en þó fyrst
og fremst mannleg. Séra Pétur var
biskupssonur. Sjálfur varð hann svo
biskup eftir að hafa gegnt prests-
embætti í röska þrjá áratugi.
Að loknu námi í guðfræðideild og
framhaldsnámi vestanhafs vígðist
séra Pétur til Akureyrarprestakalls.
Prestsstarfið reyndist honum strax
auðvelt. Hann hafði dæmin fyrir
sér. Hann bylti engu en stóð fyrir
margs konar umbótum. Hvaðeina
gekk honum í sólarátt. Hann var
ungur, áhugasamur og brennandi í
andanum. A Akureyri starfaði hann
alla sína prestskapartíð. Prestakallið
var í tölu hinna fjölmennari. Aðstæð-
ur voru eins og best varð á kosið.
Kirkjan var svo til ný þegar hann
gerðist prestur norður þar, tilkomu-
mikið guðshús sem setur enn mikinn
svip á höfuðstað Norðurlands þótt
hvort tveggja hafi nú margfaldast,
íbúafjöldinn og stærð byggðarinnar.
Kirkjan með turnana tvo, sem gnæf-
ir yfir miðbæinn, var þá títtnefnd
Matthíasarkirkja. Lögformlega hef-
ur hún ekki enn hlotið það heiti ef
rétt er skilið.
íslensku þjóðkirkjunni bættist
fjölmennur liðsauki á þessum árum,
það er að segja við stríðslokin.
Greinileg kynslóðaskil urðu með til-
komu séra Péturs og jafnaldra hans.
Safnaðarstarf var aukið, sterk
áhersla var lögð á starf leikmanna
innan kirkjunnar. Séra Pétur segist
ekki fella sig við orðið »kirkjugest-
ur«. Maður eigi ekki að
vera gestur í kirkju
sinni heldur eins og
heimamaður.
Með lagni og elju
kom séra Pétur á fót
víðtæku æskulýðsstarfi
og fóru síðan aðrir að
dæmi hans. Kirkjan
hafði þá iengi átt undir
högg að sækja og fátítt
að unglingar létu sjá
sig við guðsþjónustu.
Því hefur þurft meira
en meðalfortölur til að
fá þá til taka þátt í
kristilegu starfi og
helgihaldi. Alls þjónaði
séra Pétur í 32 ár á
Akureyri. Hann var þá kosinn biskup
- með eins atkvæðis meirihluta,
nákvæmlega eins og faðir hans
nokkrum áratugum áður. Mótfram-
bjóðandi séra Péturs var séra Ólafur
Skúlason, en á móti föður hans bauð
sig fram séra Bjarni Jónsson sem
eldri Reykvíkingar muna vel eftir.
Að kosningu lokinni varð fjöl-
skyldan að flytjast til Reykjavíkur.
Hófst þá nýr kapítuli í starfsævi
séra Péturs með nýjum og að öllum
líkindum erfiðari viðfangsefnum.
Telur hann upp þau embættisverk
sem biskupi er ætlað að sinna og
eru þau æðimörg þegar öllu er á
botninn hvolft. Þó að vegsemdin
væri mikil var vandinn þeim mun
meiri. Það jók áiagið að hann átti
alla sína biskupstíð við
alvarlega vanheilsu að
stríða.
Minnisstæðasti við-
burður í biskupstíð séra
Péturs hefur vafalaust
verið koma Jóhannesar
Páls páfa II. Sænskt
blað skýrði svo frá
páfaheimsókninni að
»erkifjendur« hefðu
sæst hér í bróðurlegum
kærleika. Annaðhvort
hefur blaðamaðurinn
skrifað af ókunnugleika
eða kosið að slá um sig
með stóryrðaglamri þar
eð fjandskapur milli
katólskra og lúterskra
taldist þá til löngu liðins tíma.
Skemmst er frá að segja að íslenska
kirkjan tók páfa eins og hveijum
öðrum velkomnum heiðursgesti.
Meðal annars segir séra Pétur frá
því er páfi, sem að sjálfsögðu hafði
sérstakan bíl til umráða, vippaði sér
upp í rútu sem var þéttsetin íslensk-
um prestum.
Sérstakan kafla ritar biskup svo
um Biblíuþýðingar. Þær hafa oft
valdið ágreiningi. Og víst er útlegg-
ing heilagrar ritningar sífellt í end-
urskoðun. Gríska Nýja testamentis-
ins og hebreska Gamla testamentis-
ins teljast báðar til löngu dauðra
mála. Bæði kunna þau tungumál að
hafa búið yfir skírskotunum sem
mönnum eru ekki fullljósar lengur.
Pétur
Sigurgeirsson
BÓKMENNTIR
Smásögur
ÉG HEITI ARAM
eftir William Saroyan. Mál og menn-
ing, Reylqavík 1997.155 bls. Gyrðir
Eliasson þýddi.
SÖGURNAR fjórtán í þessu
safni Williams Saroyans (1908-
1981), sem voru fyrst gefnar út á
frummálinu, ensku, 1940, eru allar
með tölu ljúfar og skemmtilegar.
Þær hverfast um drenginn og ungl-
inginn Aram Garoghlan og eru
æskuminningar hans.
Aram er armenskur að uppruna
og tilheyrir fyrstu kynslóð af sinni
ætt sem kallað getur sig innfædda
Bandaríkjamenn. í þessu liggur
uppskriftin að flestum sögunum:
þær sýna átök eða tog tveggja
heima og tveggja tíma, hins gamla
og hins nýja. Illindi og kergja eru
þó víðs flarri: það er engu líkara
en kynslóðir styðji hver aðra, á
ómeðvitaðan hátt, til að umskipti
og aðlögun að nýjum heimi og hugs-
anahætti gangi greiðlega og sárs-
aukalítið fyrir sig. Sögusviðið er
Kalifornía, í Jóakimsdalnum, á
fyrstu áratugum aldarinnar, í nám-
unda við borgina Fresno. Þar í sveit
hafa Armenar og innflytjendur af
öðrum þjóðernum sest að á svipuð-
um slóðum.
Lífsbaráttan er hörð en það er
enginn barlómur sem einkennir frá-
sögnina. í fyrstu sögunni fáum við
að vita að að öll ætt-
kvíslin hafi verið „blá-
snauð“ og að ,,[s]ér-
hver fjölskylda Garog-
hlanættarinnar" hafi
búið „við hina furðu-
legustu og skoplegustu
fátækt í víðri veröld.
Enginn skildi hvernig
okkur tókst að skrapa
saman peninga fyrir
mat, ekki einu sinni
gömlu mennirnir í ætt-
inni“. Ættin kemst af
við erfiðar aðstæður
með hyggjuviti, vinnu-
semi og heiðarleika
sem hún hefur verið
„fræg fýrir í svona um
það bil ellefu aldir“. Þessi tilvísun
í kröpp kjör er þó látin duga því
heimurinn er séður með augum
ungs drengs sem skynjar ævintýri
í hveiju skoti og framtíðarvon út
við víðari sjóndeildarhring en for-
feður hans áttu að venjast.
Garoghlanættin hefur flutt með
sér vestur um haf gamla hætti og
hugsun. Stórfjölskyldan er enn við
lýði og höfuð hennar er Gamli Mað-
urinn, afi; þegar hann
hefur orðið þá hlusta
aðrir. (Amma, mamma
og aðrar konur eiga
auðvitað ekki upp á
pallborðið í þessu
karlasamfélagi, eru í
aukahlutverkum, og
komast bara að innan
sviga í þessu greinar-
korni.) Sá gamli býr
að reynslu og þekkingu
sem lífið hefur kennt
honum. Hann veit sínu
hyggjuviti og ber tak-
markaða virðingu fyrir
þeirri menntun sem
menn leita í skólum og
bókum. Þessi afstaða,
og „sannleikskornin" í henni, eru
tekin fýrir á skemmtilegan hátt í
sögunni, „Ræðumaðurinn Dikran
frændi".
Ættmenn Arams eru margir
hveijir kostulegir persónuleikar. Afi
sem veit sínu viti og Kosrove frændi
sem tjáir sig helst í upphrópunum
eru aðalmennirnir í a.m.k. tveimur
sögum hvor fyrir sig. Eins og bent
er á í eftirmála, er hægt að skoða
Notalegar
sögur
William
Saroyan
Táknmál Biblíunnar er víða flókið
fyrir okkar sjónum séð, ef til vill
vegna þess að við þekkjum ekki for-
sendurnar. Fer biskup ofan í nokkur
atriði sem breytt hefur verið eða
breyta þarf að hans mati.
Einnig víkur hann að friðarmál-
unum sem mjög voru á dagskrá allan
hans embættistíma. Það liggur í eðli
kristindómsins að boðberar hans
skulu jafnframt vera friðflytjendur.
En friður er líka pólitískt hugtak.
Þeir, sem boða frið í einlægni, eiga
því alltént á hættu að fjarskyld öfl
með annarleg markmið fyrir augum
blandi sér í málin. Eg hygg að biskup
ofmeti áhrif þau sem hann telur að
friðarboðskapur kirkjunnar hafi haft
gegnum aldirnar. Styijaldir í Evrópu,
kristnasta hluta heimsins, hafa aldrei
verið fleiri né heiftúðugri en á öld
þeirri sem nú er senn á enda. Sá er
og veikleiki trúarbragðanna, kris-
tinnar trúar sem annarra, að auðvelt
er að snúa út úr þeim, túlka þau á
ýmsa vegu eftir tilgangi og eðli máls-
ins hveiju sinni.
Þó að valdsvið biskups hafi
þrengst með aldanna rás er embætt-
ið enn í hávegum haft. Miklar kröf-
ur eru gerðar til biskups, bæði per-
sónulegar og kennimannlegar. Bisk-
up er maður sem mark er tekið á.
Honum er því meiri vandi á höndum
en öðrum kjósi hann að segja sögu
sína. Og segjá hana eins og hver
annar! Séra Pétur þarf engan að
öfunda og ekkert að fela. Því getur
hann leyft sér að vera bæði einlæg-
ur og tala afdráttarlaust. Af sömu
hógværð og æðruleysi ræðir hann
almenn mál sem viðkvæm einkamál.
Hann hefur svo hreinan skjöld að
hann getur sagt allt. Endurminning-
ar hans eru í senn fróðlegar og
mannbætandi. Þær eru í raun hinn
ágætasti jólaboðskapur!
Erlendur Jónsson
sögurnar í heild sem (sundurlausa)
skáldsögu. Þó hægt fari og með
hléum er framvinda frá fyrstu sög-
unni til þeirrar síðustu. Aram er
níu ára snáði í bakgarðinum heima
hjá sér í fyrstu sögunni en í þeirri
síðustu hleypir táningur heimdrag-
anum og leggur upp í langa ferð
til New York. Þessi fyrsta ferð, úr
faðmi fjölskyldunnar, á vit framtíð-
ar, markar endanlega inngöngu
innflytjandans í ameríska drauminn
með allri þeirri ódrepandi bjartsýni,
dirfsku og framkvæmdagleði sem
hann hleypti í menn á fyrri hluta
aldarinnar.
Það er ótrúlegt að nokkrum leið-
ist að lesa þessar glaðlegu og „nota-
legu“ sögur (svo maður seilist í titil-
inn á einni þeirra). Þær eru auðvitað
komnar til ára, og geta tæplega
talist „krassandi" eða líklegar til að
slá lesendur útaf laginu. Frásögnin
er öll á lágu nótunum en býr yfir
glettni og skemmtilegum einfald-
leika. Textinn er ákaflega góður.
Þýðandi, Gyrðir Elíasson, skrifar
ágætan (á köflum mjög skáldlegan)
eftirmála um William Saroyan.
Þetta finnst mér til fyrirmyndar og
áhugavert fyrir lesendur, einkum
þegar verið er að kynna eldri rithöf-
unda og skáld. Þessi eftirmáli er
heldur ekki þurr upptalning eða
viska úr uppflettiritum. Gyrðir seg-
ir sínar skoðanir, leggur sjálfstætt
mat á Saroyan og gerir auk þess
skemmtilegan samanburð á íslensk-
um höfundum og bandarískum.
Geir Svansson
Nýjar bækur
• LÍFAKURer fjórða ljóðabók
Ágústínu Jónsdóttur. Fyrri bækur
hennar heita Að baki mánans, Snjó-
birta og Sónata.
í kynningu seg-
ir: „Ljóð Ágústínu
einkennast af
myndvísi og hug-
myndaauðgi og
hún hefur mótað
með sér persónu-
legan stfl, þar sem
sterkar tilfinning-
ar búa í knöppu
Ágústina formi."
Jónsdóttir Jafnframt segir
að Ágústína hafi fengið fijálsar
hendur til að hanna útlit bókarinn-
ar. Hún komi þar á óvart með því
að nota nýja tækni, þar sem lesa
má sum ljóðanna gegnum „tran-
sparentur" eða einskonar
gagnsæjublæjur og við það fær Líf-
akur svip skartgrips.
Fjölvi gefur bókina út. Lífakur
er 60 bls. oggeymir 48 Ijóð, nokk-
urþeirra eru íformi prósaljóðs.
Bókin er að öllu leyti unnin í Prent-
smiðjunni Odda. Verðkr. 2.280.
• MÚSIN og eggið er eftir William
Mayne í þýðingu sr. Hreins Hákon-
arsonar.
. í kynningu segir: „Ég er orðinn
þreyttur á því að fá alltaf egg í
matinn. Ég er orðinn leiður á eggj-
um. Getum við ekki fengið eitthvað
annað betra að borða? - segir afi,
einn dag við ömmu. Og þá fer nú
ýmislegt að gerast í litla húsinu.
Þar kemur doppótta hænan og
músin við sögu.“
Útgefandi er Skálholtsútgáfan.
Myndskreyting eftir eftir Krystynu
Turska. Bókin er 32 bls. ogkostar
490 kr.
• SÁLMABÓK kirkjunnar, ný
útgáfa, hefur verið tekin í notkun.
I kynningu segir: „Hin nýja
sálmabók er með nótum og í tónhæð
sem miðast við almennan safnaðar-
söng. - Helsta markmið með útgáf-
unni er að auka og styðja við og
hvetja til þátttöku í almennum safn-
aðarsöng í kirkjunni."
Ný sálmalög hafa verið valin við
allmarga sálma og einnig hafa
margar laggerðir verið yfírfamar.
Nýir sálmar eru aftast í bókinni,
alls 57 sálmar. Allir sálmarnir hafa
sömu númer og í eldri sálmabókun-
um, því er hægt að nota nýju bók-
ina samhliða þeirri eldri. Samhliða
verður gefín út kóralbók fyrir org-
anista.
Skálholtsútgáfan, útgáfufélag
þjóðkirkjunnar, gefursálmana út.
• NY Barnabiblía er komin út í
þýðingu sr. Hreins Hákonarsonar.
Í kynningu segir: „Þessi nýja
Bamabiblía leiðir barnið inn í frá-
sögur Biblíunnar á nýjan og ferskan
hátt en þó sígildan. Hér geta börn
og foreldrar upplifað sögur Bibl-
íunnar á glettinn en jafnframt hlý-
legan og raunverulegan hátt sem
endurspeglast í fallegum teikning-
um Ulf Löfgrens."
Útgefandi er Skálholtsútgáfan.
Barnabiblían hefur verið gefin út á
öllum Norðurlöndunum og í Þýska-
landi, nú síðast á íslandi og í Dan-
mörku. Bókin er 271 síður og kost-
ar 1.980 kr.
Nýjar plötur
• HEYRÐI ég í hamrin-
um er með úrvali laga
Ingibjargar Sigurðardótt-
ur, Bjálmholti í Rangár-
vallasýslu. Að auki kemur
út nótnahefti með sama
nafni, sem hefur að geyma
yfir 90 laga Ingibjargar.
Ingibjörg er fædd árið
1909 og var aðeins sex ára
þegar hún fór að semja
lög. Lögin á geislaplötunni
em 36 talsins og spanna 75 ára
tímabil í lífi hennar.
Flytjendur eru kórar úr Rangár-
Sigurðardóttir ið af Ingibjörgu sjálfri á
dragspil.
Útgefandi erJón Þórðarson.
Upptöku stjórnaði SigurðurRún-
ar Jónsson. Dreifing: Japishf.
JAKKAR, STUTT OG SÍÐ PILS, BUXUR,
BLÚSSUR OG KJÓLAR
vallasýslu og Hafnarfirði, sönghópar og einsöngvar- ar, þeirra á meðal eru HEIMAGALLAR í MÓRGUM LITUM
Signý Sæmundsdóttir, Loftur Erlingsson og Sig- ÁTILBOÐI:
■ Jf M, urveig Hjaltested. Meðal Sfc)IR KJÓLAR Á KR. 8.900
undirleikara eru Guðjón Halldór Óskarsson, Ágnes Löve og Ólafur Vignir Al- hpi'f««nn TiOkalacrið pr lpik- BUXUR OG BLÚSSUR Á KR 4.800 '
[nraarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
frákl. 10.00-18.00
og sunnudaga
frá kl. 13-17.00