Morgunblaðið - 05.12.1997, Side 48

Morgunblaðið - 05.12.1997, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ JÓLALILJA, Narc. polyantkus paperwhite. AÐVENTUPISTILL BLOM VIKUNNAR 376. þáttur ÁGÆTI lesandi. Þá er komið að síðasta blómi ársins, enda mál að linni, komin aðventa. Óvenjulegu hausti er lokið. Stutt frost snemma í haust rétt dugði til að minna okkur á að taka upp grænmetið og setja niður haustlaukana, en síðan hefur verið ótrúleg veðurblíða, mér liggur við að segja hiti. Þegar ég var að taka upp grænmetið í garðin- um mínum í haust, ákvað ég að láta nokkrar plöntur standa lengur, svona upp á grín. Umsjón Ágústa Björnsdóttir nr. dags. Listi yfir blóm vikunnar 1997 heiti höfundur 351 24.4. Vetrargosi, fyrsti boðberi Sigríður Hjartar 352 3.5. sumarsins Skógarblámi (Hepatica nobilis) Sigríður Hjartar 353 13.5. Töfratré (Daphne mezereum) Sigriður Hjartar 354 17.5. Geitabjalla (Pulsatilla vulgaris) Sigriður Hjartar 355 24.5. Maðkar í mysunni Guðríður Helgadóttir 356 6.6. Alpabjalla (Cortusa matthioli) Ólafur B. Guðmundss. 357 13.6. Ný sumarblóm Guðríður Helgadóttir 358 22.6. Ný sumarblóm II Guðriður Helgadóttir 359 4.7. Klifurplöntur. Forsæla í garðskálum og Heiðrún Guðmundsd. 360 17.7. skraut í görðum Heggur (Prunus padus) Sigríður Hjartar 361 22.7. Rósir Guðríður Helgadóttir 362 30.7. Fjölærar kryddjurtir I Guðríður Helgadóttir 363 6.8. Fjölærar kryddjurtir II Guðríður Helgadóttir 364 12.9. Risahvannir - Heracleum flagð undir Sigríður Hjartar 365 20.8. fógru skinni Stjúpur í vandræðum Guðríður Helgadóttir 366 26.8. Liljur Sigríður Hjartar 367 29.8. Japanskir garðar. Valkostur Heiðrún Guðmundsd. 368 12.9. fyrir fagurkera í garðlist Skriðklukka Sigríður Hjartar 369 19.9. (Camp. rapnuculoides) Haustverkin í garðinum Guðríður Helgadóttir 370 24.9. „Bláu drengimir" Ágústa Bjömsdóttir 371 2.10. „Hvítu dömurnar“ Sigríður Hjartar 372 14.10. Garðyrkjuferð til Þýskalands Guðríður Helgadóttir 373 31.10. og Danmerkur I Garðyrkjuferð til Þýskalands Guðríður Helgadóttir 374 6.11. og Danmerkur II Jurtalitun Sigríður Hjartar 375 19.11. Kristþymir (Ilex aquifolium) Óli Valur Hansson 376 05.12. Aðventupistill Sigríður Hjartar Það er ekki að orð- lengja það, að ég hafði á borðum sunnudag- inn fyrir aðventu grænmeti, sem ég tók beint inn úr garðinum. Auðvitað svindlaði ég dálítið og lét þær teg- undir, sem ég vissi að . þyldu smávegis frost, vaxa áfram, en ég var dálítið góð með mig, þegar ég kom inn með litla sprotakáls- og rósakálshausa. Meira að segja vorlaukurinn var ferskur og fínn. En fyrsta sunnudag í aðventu var garðurinn minn hrímhvítur og hefur verið það nú í nokkra daga. Nú hljóta síðustu blómin að láta undan síga, en anemónur, stjúpur og fjólur blómstruðu fagurlega þegar þetta frost kom. Haustliljan, eða colc- hicum, er ómetanleg þegar viðrar eins og nú og verði þessi fro- stakafli stuttur, eins og spáð er, á ég jafnvel von á að hún blómstri meira á aðventunni. En þegar við hugsum um að- ventublóm, eru garðblómin ekki ofarlega í huga. Jólastjarnan skip- ar örugglega efsta sæti hjá flest- um. Hún á það líka sannarlega skilið, því glæsileg er hún þar sem hún skartar stjörnulaga háblöðum sínum í rauðum, bleikum eða hvít- um lit. Aðeins þarf að hafa í huga að henni er illa við kulda og trekk og vökva vill hún jafnt og þétt, en þó í hófi. Jólabegóníur finnast mér líka mjög fallegar. Ekki má gleyma laukblómunum. Jólalilja, sem er páskaliljutegund, eins og latneska nafnið bendir til, Narc- issus polyanthus paperwhite, finnst mér ómissandi á aðvent- unni. Hún er forræktuð, þannig að hún blómstrar 4-6 vikum eftir að henni er komið til, annaðhvort í mold eða vatni, sem mér finnst skemmtilegra, því gaman er að fylgjast með rótunum. Jólaliljan ber mörg, hvít blóm á hveijum blómstöngli og fyllir húsið ilmi sínum. Og á sjálfum jólunum blandast ilmurinn af jólahýasint- um ilminum af hangikjötinu, ijúp- unum og greninu og leggur sitt af mörkum við að móta jólablæ í húsi og hjarta. S.Hj. WICANDERS GUMMIKORK í metravís • Besta undiriagið fyrir trégólf og linoleum er hljóðdrepandi, eykur teygjanleika gólfsins. • Stenst hjólastólaprófanir. • Fyrir þreytta fætur. WICANDERS GUMMIKORK róar yólfin niöur! ÞÞ &co í rúllum - þykktir 2.00 og 3.2 mm. Þ. ÞORGRÍMSSON &CO ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK SÍMI553 8640'568 6100 ibería Tilboð 20% afsláttur Verð frá kr. 2.450. Sníðum þær í gluggann þinn. & Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD, FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333. KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Opið hús á aðventu Á MORGUN, laugardaginn 6. des- ember, er Samhjálp með opið hús í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, frá klukkan 14 til 17. Að venju verður vandað til dagskrár. Sönghópur úr Vox Femine, sem er hluti af Kvennakór Reykjavíkur, kemur í heimsókn kl. 15.30 og syngur jóla- lög, gospel og önnur lög. Samhjálp- arkórinn mun leiða almennan kóra- söng við undirleik hljómsveitarinn- ar. Dorkaskonur munu sjá um að hafa heitt á könnunni og bera fram meðlæti eins og þeim er einum lag- ið. Bækur, snældur og aðrar Sam- hjálparvörur verða til sölu á vægu verði. Lítið inn, spjallið um lífið og tilveruna og takið þátt í aðventunni með Samhjálp í opnu húsi. Allir velkomnir. Langholtskirkja. Opið hús kl. 11-16. Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12.10. Fyrirbænaefnum má koma til prests eða djákna. Súpa og brauð á eftir. Laugarneskirkja. Mömmumorg- unn kl. 10-12. Neskirkja. Kl. 15 laugardag, laufa- brauðsskurður, kökur tilbúnar til skurðar seldar vægu verði. Vinsam- lega pantið hjá kirkjuverði. Hafið með ykkur bretti og hníf. Litli kór- inn syngur, jólalögin leikin, kaffi- veitingar, jólaglögg og piparkökur. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Hvítasunnukirkjan Fíladelfia. Unglingasamkoma kl. 20.30. Ræðumaður Dögg Harðardóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Sjöunda dags aðventistar á ís- landi: Á laugardag: Aðventkirkj- an, Ingólfsstræti 19. Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Hvíldardags- skóli kl. 10. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík. Biblíu- fræðsla kl. 10.15. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi. Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Derek Beardsell. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður Kristinn Ólafsson. FÉLAGSSTARF ^^^^Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík Jólateiti 6. desember Á morgun, laugardaginn 6. desember, efna sjálfstæðisfélögin í Reykja- vik til hins árlega jólateitis í Valhöll frá kl. 16-18. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins og fjármálaráðherra, flytur stutta hugvekju. Brasskvintett Tónlistarskóla Seltjarnarness leikur nokkur lög. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjálfstæðismenn í Reykjavík að líta við í Vaihöll, t.d. að loknum verslunarerindum, og verma sig í góðra vina hópi á góðum veitingum, sem að venju verða á boðstólum. Nefndin. Kópavogsbúar- opið hús Opið hús í Hamraborg 1,3. hæð er á hverjum laugardegi milli kl. 10.00—12.00. Halla Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar, verð- ur gestur I opnu húsi á morgun, laugardaginn 6. desember. Allir bæjarbúar eru velkomnir. Heitt kaffi á könnunni. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. NAUÐUMGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð þeim sjálfum sem hér segir. Deildarfell, Vopnafirði, þingl. eig. Anton Gunnarsson, gerðarbeiðendur Geiðslumiðslun hf.-Visa Island og Stofnlánadeild landbúnaðarins, miðvikudaginn 10. desember 1997 kl. 15.00. Fífuhvammur 3, e.h., Fellabæ, þingl. eig. Einar Sveinbjörnsson og Joanne Katherine Klimczak, gerðabeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Kreditkort hf., Lífeyrissjóður Austurlands og sýslumaðurinn á Seyðis- firði, fimmtudaginn 11. desember 1997 kl. 15.00. Fífuhvammur 3, n.h., Fellabæ, þingl. eig. Einar Sveinbjörnsson og Joanne Katherine Klimczak, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki (slands Egilsstöðum, Eftirlaunasjóður atvinnuflugmanna, Kreditkort hf. og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 11. desember 1997 kl. 15.30. Lagarás 26, Egilsstöðum, þingl. eig. Gísli Sigurðsson, gerðarbeiðeandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, fimmtudaginn 11. desember 1997 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 4. desember 1997. 5MAAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1 = 1781258’/2 h 9.0. O.* I.O.O.F. 12 ■ 1781257’/;= E.K.S.S. Frá Guðspeki- „ félaginu Ipgólfsstræti 22 Askriftarsími Ganglera er 896-2070 í kvöld kl. 21.00 heldur Þór Jak- obsson, veöurfræðingur, erindi um líf í alheimi í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15.00—17.00 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjón Ástu Jónsdóttur. Á sunnudag fellur niður sýning myndbands með Krishnamurti, en verður þess í stað sunnudag- inn 14. desember. Á sunnudög- um kl. 15.30—17.00 er bókasafn félagsins opið til útláns fyrir fé- laga og kl. 17.00—18.00 er hug- leiðingarstund með leiðbeining- um fyrir almenning. Á fimmtu- dögum kl. 16.30—18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bókmennta. Guðspekifélagið hvetur til saman- burðar trúarbragða, heimspeki og náttúruvísinda. Félagar njóta al- gers skoðanafrelsis. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.