Morgunblaðið - 05.12.1997, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hverjir eru
' bestir?
Bókaútgáfan Hólar hefur nýverið sent frá
-------------------y-----
sér bókina Hverjir eru bestir? I henni er
að fínna fjölmargar gamansögur af íslensk-
um íþróttamönnum í nánast öllum íþrótta-
greinum og ættu því allir að geta fundið
- Þar eitthvað við hæfí. Ritstjórar bókarinn-
ar eru Guðjón Ingi Eiríksson og Jón
Hjaltason, en þeir stóðu einnig að baki
bókanna Þeim varð á í messunni og Þeim
varð aldeilis á í messunni.
Handboltakappinn Sigurður
Sveinsson hefur fyrstur orðið og
segir hér frá lyfjaprófi sew Alfreð
Gíslason lenti eitt sinn í:
Okkur þótti alltaf svolítið fyndið
að lenda í dóptesti, hafandi í huga
við hvers konar heraga við bjugg-
"um hjá Bogdan. Á undirbúnings-
tímanum fyrir mót mátti enginn
neyta áfengis, svo ég tali nú ekki
um eitthvað annað og veiTa. Og
ekki slaknaði á aganum þegar í
mótið sjálft var komið.
Svo var það í B-keppninni ‘89,
eftir leikinn við Sviss, að númerið
hans Alla Gísla (Alfreðs Gíslasonar)
kom upp úr hatti dóptestaranna,
ásamt númeri svissneska mark-
mannsins.
Það er ekki einfalt mál að fara í
' * svona athugun. Maður þarf að pissa
glasið fullt í einni bunu. Ef það
tekst ekki og glasið fyllist ekki
nema að tveimur þriðju þarf að
byrja aftur. Þetta er grundvallarat-
riði að ekki má fylla glasið í tveimur
eða fieiri bunum, þetta verður allt
að koma úr skinnsokknum í einni
buni, annað er ómark. Alli hafði
alltaf átt erfitt með þetta og orðið
að nýta sér bjórinn sem jafnan var
hafður til taks þar sem prófunin fór
fram.
Um áttaleytið erum við komnir
heim á hótel en ekkert bólar á Alla.
Líður svo og bíður. Klukkan ellefu
áttu allir að vera komnir í rúmið og
enn er Alli ekki kominn. Klukkan
langt gengin í eitt eftir miðnætti
kemur hann loksins með svissneska
markmanninn á öxlunum, steinsof-
andi. Alli hafði þá drukkið 16 bjóra
ALFREÐ Gíslason í úrslitaleiknum í B-keppninni ‘89 - kjörinn besti maður mótsins þrátt fyrir
að hafa innbyrt 16 bjóra.
áður en nokkuð gerðist - en síðan
var hann kjörinn besti maður móts-
ins.
★
Árið 1964 tóku KR-ingar þátt í
sinni fyrstu Evrópukeppni í knatt-
spyrnu. Léku þeir gegn enska lið-
inu Liverpool, sem þá var einnig að
stíga sín fyrstu skref í þeirri
keppni. Þegar KR-ingarnir voru í
Liverpool gistu þeir á sama hóteli,
og reyndar á sömu hæð, og stór-
hljómsveitin Rolling Stones. Fylgdi
hljómsveitinni mikill skari áhang-
enda sem hafðist við fyrir utan hót-
elið í þein-i von að berja goðin aug-
um. Það var einmitt þá sem einum
KR-ingnum, Heimi markverði Guð-
jónssyni, datt í hug að leika eilítið á
þessa æstu aðdáendur. Brá hann
fingrum gegnum hár sitt, labbaði
því næst vel úfinn út á svalir og rak
upp þetta feikna öskur. Trylltist þá
lýðurinn fyrir neðan svo um mun-
aði, enda var í fyrstu talið að þarna
væri enginn annar en Mick Jagger,
aðalmaðurinn í Rolling Stones, á
ferð. Á hæla Heimis kom hins veg-
ar Bjami nokkur Felixson, lítt stór-
hljómsveitarlegur á að líta, og sló
þá algjörri þögn á mannskapinn, en
síðan heyrðist frá einni stúlkunni:
„Oj! It’s the footballers!"
★
Hermann Gunnarsson, sem við
þekkjum öll sem Hemma Gunn, var
um nokkurra ára skeið íþrótta-
fréttamaður ríkisútvarpsins. Hann
er manna hressastur og skortir
y
„...lækkaður ur tign
gestgjafa niður í
aðstoðarkokk. ‘
Steingrimur Sigurgeirsson býður Sigurði HalI og Svölu í mat.
Vikulokin í blaðinu á laugardaginn.
Jí!£2